Morgunblaðið - 23.04.1985, Page 72
KEILUSALURINN
OPINN 10.00-00.30
BTT MMT MIS SIABAR
ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Landsnefnd Alþjóða verslunarráösins:
Kannar kosti
fríverslunar-
samnings við
Bandaríkin
Á VEGUM landanefndar Alþjóða verslunarráðsins á íslandi er nú verið að
kanna möguleika á því, svo og kosti þess og galla, að gera fríverslunarsamn-
ing við Bandaríkin.
Að sögn Árna Árnasonar, fram-
kvæmdastjóra Verslunarráðs Is-
lands, hefur talsverð vinna þegar
verið lögð í þetta mál og viðræður
' farið fram við fulltrúa bandaríska
"sendiráðsins og aöra fulltrúa
bandariskra stjórnvalda sem
hingað hafa komið síðustu mán-
uði.
Bandaríkin hafa þegar gert einn
friverslunarsamning á breiðum
grundvelli sem segja má aö nái til
allra vörutegunda og er það við
tsrael. Sá samningur er nú fyrir
bandaríska þinginu til staðfest-
ingar, en að sögn Árna hafa full-
trúar Verslunarráðsins hér þegar
kynnt sér efni samningsins og
haft til hliðsjónar við athugunina
á kostum þess og göllum að leita
eftir slíkum samningi.
Ein meginástæðan fyrir því að
slikur samningur getur þótt væn-
legur er að vitað er að Kanada-
Aukið smygl
fíkniefna
með sendi-
bréfum
Verðmæti sendinga allt
að hálfri milljón kr.
Kíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík hefur að undanfornu
fundið nokkur bréf með fíkni-
efnum í. Að sögn Arnars Jens-
sonar, lögreglufulltrúa við fíkni-
efnadeildina, er algengt að þessi
bréf séu stfluð á tilbúin nöfn í
fjölbýlishúsum þar sem eigend-
ur þeirra taka þau. Lögreglan
befur haft hendur í hári nokk-
urra manna sem við slík mál
hafa verið riðnir.
Eiturlyfin hass, amfetamín,
kókaín og LSD voru í þeim
bréfum sem náðst hafa, að
sögn Arnars. Sagði hann auð-
velt að koma til dæmis 15
grömmum af kókaíni fyrir í
bréfi sem eftir blöndun hér
gæti verið að söluverðmæti
hér á götunum um hálf milljón
kr. Fíkniefnabréfin eru flest
frá Amsterdam, en einnig eru
dæmi um slík bréf frá Kaup-
mannahöfn og Bandaríkjun-
um. Sendendur bréfanna gæta
þess í flestum tilvikum að
senda einungis efnin og láta
engar upplýsingar fylgja sem
hægt væri að ráða af sendanda
eða móttakanda. Sagði Arnar
erfitt að fást við þessi mál af
þeim sökum.
Arnar sagði að þessi þróun
benti til að smygl fíkniefna til
landsins með sendibréfum
væri að aukast og biður hann
fólk að vera á verði gagnvart
slíkum sendingum. Það gæti
til dæmis verið hættulegt ef
börn kæmust í fíkniefnabréf í
stigagöngum.
menn hafa áhuga á að gera frí-
verslunarsamning af þessu tagi
við Bandaríkjamenn, sem gæti
haft áhrif á samkeppnisstöðu kan-
adískra sjávarafurða gagnvart ís-
lenskum fiskafurðum, ef íslend-
ingar nytu þarna ekki sömu kjara.
Aðalfundur landsnefndar Al-
þjóðaverslunarráðsins var haldinn
í gær. Meginmál fundarins var
skýrsla sem tekin hefur verið
saman á vegum landsnefndarinn-
ar um ríkisstyrki í sjávarútvegi
nágrannalandanna.
Áthygli manna á fundinum
beinist einkum að ríkisstyrkjum í
norskum og kanadískum sjávar-
útvegi og þeir ráðherrar sem sátu
fundinn töldu að berjast yrði
gegn, þótt varlega bæri aö fara í
sakirnar. Halldór Ásgrímsson
skýrði frá því að á næstunni
myndi viðskiptaráðherra Matthí-
as Á. Mathiesen fara til Noregs í
boði viðskiptaráðherrans þar og
taka þetta mál upp við hann, með-
an Halldór kvaöst sjálfur vera
boöinn til Kanada af starfsfélaga
sínum þar og hyggðist hann einnig
taka þar upp þetta mál.
Víðir Friðgeirsson landar fiski á Stöðvarflrði eftir velheppnaöan handfæraróður.
Morgunbl&ðið/Steinar.
Stöðvarfjörður:
Fékk 2 tonn á handfærin
Verðmæti dagsaflans 36 þúsund
HUMrarfirM, 21. *rrfi.
VÍÐIR Friðgeirsson gerir það
betra en margir aðrir. Hann gerir
út trilluna Rós SU 17. Um daginn
fékk hann einn tvö tonn af þorski
á handfærin og nokkrum dögum
áður fékk hann 2,4 tonn á línu, en
fyrir eitt tonn af þorski fást um
18.000 krónur. Mjög stutt er fyrir
smábáta að róa frá Stöðvarflrði og
er olíukostnaður í veiðiferðinni
150 til 200 krónur.
Mánuður er nú liðinn síðan
annar togari Stöðfirðinga,
Krossanes SU 4, varð fyrir al-
varlegri vélarbilun, en áætlað er
að skipið verði frá veiðum í 4 til
6 mánuði. Næg atvinna hefur þó
verið í hraðfrystihúsinu þar sem
trillubátar hafa aflað mjög vel
undanfarið á handfæri og lfnu.
Uppistaðan í aflanum er bolta-
þorskur, kjaftfullur af loðnu og
muna elstu menn ekki eftir
svona góðu vorhlaupi. Á síðast-
liðnu ári voru 10 trillur gerðar út
frá Stöðvarfirði, en vitað er að
þeim fjölgar mikið í sumar.
Steinar
Kjaradómur dæmir BHM-R félögum 14,5% meðaltalshækkun:
„Fjölmargir munu nú
segja upp störfum“
— segir formaður samninganefndar BMH — kennarar fengu 4—6 % meira en aðrir
MEDALTALSHÆKKUN launataxta BHM-félaganna 24, sem dómur Kjara-
dóms á sunnudagskvöldið tekur til, er um 14,5%. Mestar hækkanir fá
hjúkrunarfræðingar og kennarafélögin fjögur, eða 16—20%, en nokkur félög
fá allt niður í um tíu prósent hækkun frá desemberlaunum, að því er Indriði
H. Þorláksson, formaður samninganefndar ríkisins, sagði í samtali við Mbl.
í gær. Meðaltalshækkunin er nokkru lægri, eða um 12% ef kennarafélögin
eru ekki tekin með í meðaltalinu. Gjaldaauki ríkissjóðs vegna dóms Kjara-
dóms er áætlaður 15 milljónir kr. á mánuði.
Kennarafélögin fjögur eru Hið
íslenska kennarafélag, Félag há-
skólakennara, félag Kennarahá-
skólakennara og félag Tækni-
skólakennara. Meðal félaganna,
sem minnstar hækkanir fá, eru fé-
lög arkitekta, lögfræðinga, mat-
vælafræðinga, náttúrufræðinga,
tæknifræðinga og verkfræðinga.
Launataxtar þessara félaga
hækka með dómnum um 10—14%
frá í desember.
Indriði H. Þorláksson sagði I
gær, að þessar hækkanir væru
nokkru meiri en samninganefnd-
armenn ríkisins hefðu reiknað
með. Hann sagði að BHM-menn í
þjónustu ríkisins hefði vantað
6—8% uppá að vera með sam-
bærileg laun og aðrir hafa eftir
samningshækkanir síðustu mán-
aða.
Stefán Ólafsson, formaður
samninganefndar BHM, sagði i
gær að hækkun á töxtum félag-
anna væri mun minni en menn
hefðu gert sér vonir um. „Sannast
sagna töldum við að við fengjum
um 40% hækkun og höfðum þá í
huga yfirlýsingu ríkisstjórnarinn-
ar,“ sagði hann. „1 viðurkenningu
á dagvinnulaunastefnu okkar felst
hinsvegar mikill sigur þótt dóm-
urinn hafi ekki viljað fylgja þeirri
stefnu eftir alla leið.“
Stefán sagði að á fundi launa-
málaráðs BHM I gær hefði komið
fram mikil reiði og óánægja með
niðurstöðu Kjaradóms. Hann
sagðist telja að fjölmargir ríkis-
starfsmenn innan BHM myndu
segja upp störfum sínum í fram-
haldi af dóminum, til dæmis verk-
fræðingar og kennarar, sem
myndu „einfaldlega flosna upp“.
Hann sagði ennfremur, að
Kjaradómur hefði fengið „átyllu
til að vísa gögnum okkar frá með
skýrslu Þjóðhagsstofnunar um
efnahagsmál á árinu 1983 og svo
erindi Ásmundar Stefánssonar
forseta ASl og Vilhjálms Egils-
sonar, hagfræðings Vinnuveitend-
asambandsins, sem fundu hjá sér
þörf til að senda greinargerð inn í
Kjaradóm á föstudaginn. Ég tel þá
greinargerð meðal annars haft
áhrif á, að við fengum ekki metið
launaskrið sem varð hjá félögum í
Alþýðusambandinu á siðasta ári.
Við erum mjög óánægðir með að
þeir skuli hafa blandað sér á þenn-
an hátt í málið og teljum þessa
afskiptasemi óskiljanlega," sagði
Stefán Ólafsson.
Auðna Ágústsdóttir, fulltrúi Fé-
lags háskólamenntaðra hjúkrun-
arfræðinga í launamálaráði BHM,
sagði sína félaga mjög óánægða
með dóm Kjaradóms og að sér
þætti sem „Kjaradómur hafi valið
þá leið, að ýta vandanum á undan
sér.“
Kristján Thorlacius, formaður
Hins íslenska kennarafélags,
sagði niðurstöðu dómsins vera
„eins og svartsýnustu menn
bjuggust við.“ Hann sagði enn-
fremur að nú myndi HÍK knýja á
að nefnd sú, sem ríkisstjórnin hét
að sett yrði á laggirnar í vetur,
myndi hefja störf hið fyrsta.
Hann sagðist eiga von á að kenn-
arar yrðu tregir til að mæta til
kennslu á hausti komanda.
Sjá ennfremur forsendur
Kjaradóms og fréttir um við-
brögð forsvarsmanna BHM-fé-
laganna á bls. á bls. 36 og 37.