Morgunblaðið - 24.04.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.04.1985, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. APRlL 1985 BHM fundar á Sögu í dag: BHM með 4—5 % hærri laun en BSRB-félagar — samkvæmt útreikningum fjármálaráðuneytis — meðalhækkun annarra en kennara ekki nema um 10%, segir hagfræðingur BHM EFTIR nýgenginn kjaradóm er munur i launum ríkisstarfsmanna í BHM og almennra félaga í BSRB 4—5% BHM í vil. Kennarar í BSRB fengu við kjarasamningana { haust 3—4% umfram aðra í BSRB vegna heimavinnu, þannig að launamunurinn hjá kennurum í BSRB og BHM virðist vera sá sami og þegar litið er á heildina, skv. upplýsingum launadeildar fjármála- ráðuneytisins. ýmsar breytingar — aldurshækk- anir, stöðubreytingar og fleira — sem gætu breytt þessum tölum. Ég giska á, að ef þessar breytingar séu reiknaðar með megi lækka út- reiknaða hækkun launadeildar- innar um eitt og hálft prósent eða svo,“ sagði Birgir Björn. „Ef kennarafélögin eru einnig tekin út þá er meðalhækkun launa BHM-félaga ekki nema um tíu prósent," sagði hann. „Það er erf- itt að segja nákvæmar til um þetta, því nákvæmar upplýsingar um laun og stöður í febrúar liggja ekki fyrir. Auk þess er ekki alveg ljóst hvernig menn flokkast í starfsaldursþrep í nýja kerfinu, sem ákveðið var af Kjaradómi í Meðaltalshækkun launa BHM- félaga er 14,8% frá og með 1. mars sl., skv. upplýsingum launadeild- arinnar. Mest er hækkunin hjá kennurum eða um 17%. Séu þeir ekki taldir með er meðalhækkunin 12,3%. Almennt hafa laun ríkis- starfsmanna í BSRB hækkað um 7—8% umfram hækkanir hjá BHM-mönnum að undanförnu. Birgir Björn Sigurjónsson, hag- fræðingur BHM, sagði í gær að þegar launadeild fjármálaráðu- neytisins reiknaði út að kjaradóm- urinn fæli í sér 14,8% kauphækk- un að meðaltali, „þá eru þeir að miða við laun eins og þau voru í desember. Síðan þá hafa orðið Morgunbladiú/Friðþjófur Ærslaleikurinn Grena lyftan var frumsýndur í Broadway í gærkvöldi, en það er Revíuleikhúsið, sem að sýningunni stendur. Hér bregða nokkrir leikaranna á leik eins og vera ber á sviði. mars sl. — og ef til vill er það ekki gert með réttum hætti. Til að sjá þetta nákvæmlega vantar frekari upplýsingar." Birgir benti á, að á fjórða árs- fjórðungi síðasta árs hafi kaup- taxtar aðildarfélaga ASÍ hækkað um 10,7% en kauptaxtar BHM-fé- laga um 10,3%. „Ofan á sína taxtahækkun fékk ASÍ að meðal- tali 14,7% launaskrið, sem við fór- um á mis við,“ sagði hann. „ASÍ- félögin hafa á þessu ári fengið tvær taxtahækkanir, liðlega 5% í janúar og 3% í mars, þannig að taxtahækkanir þeirra eru samtals um 9% frá áramótum. Við höfum engar hækkanir fengið á þessu ári fyrr en nú og þá er vegið meðaltal þeirra um 10% eins og ég gat um áðan.“ f framhaldi af samningum BSRB sl. haust fengu BHM-félag- ar samsvarandi taxtahækkanir fyrir árið 1984 í krónum talið. „Það var minna en ASf fékk,“ sagði Birgir Björn. „Okkur sýnist því, að við séum í dag öllu fjær markaðslaunum en við vorum þeg- ar launakönnun Hagstofunnar var gerð í maí 1984. Hún sýndi að á dagvinnulaunum var 61% munur á okkur og starfsmönnum hjá einkafyrirtækjum en ef heildar- laun voru reiknuð, eins og launa- deildin vill gera, þá var munurinn 14—15% okkur í óhag.“ Launamálaráð ríkisstarfs- manna í BHM hefur boðað til al- menns fundar aðildarfélaga ráðs- ins á Hótel Sögu kl. 15 í dag. Þar verða væntanlega lagðar fram til- lögur um hver næstu skref sam- takanna verða og ákveðin við- brögð við niðurstöðu Kjaradóms, sem talsverð óánægja ríkir með, eins og fram hefur komið. Sjá einnig forystugrein í miðopnu. Hilmar Hilmarsson um borð í Kvisti. Mannbjörg er trilla sökk: Ljóflmynd/Loftur Ásgeirsson Fengum ekki við neitt ráðið — segir Hilmar Hilmarsson, eigandi trillunnar Sauðárkróki, 23. aprfl. í gærkvöldi klukkan 23.15 sökk 5 lesta triila, Kvistur SK 58, skammt innan við Ingveldarstaðahólma undan Reykjaströnd. Þrír menn voru á bátnum og björguðust þeir allir. Eigandi trillunnar er Hilmar Hilmarsson og sagðist honum svo frá í samtali við fréttaritara Morgunblaðsins: „Við fórum frá Sauðárkróki um klukkan 18 í gær til að vitja um grásleppunet, sem við höfðum lagt út af Sævarlandsvík. Veður var gott þegar við lögðum af stað, en á heimleiðinni hvessti snögglega af vestan svo við fengum ekki við neitt ráðið. Gerðist þetta með mjög skjótum hætti og kölluðum við þá á aðstoð. Heyrði hafnar- vörðurinn á Sauðárkróki hjálp- arbeiðnina og brá skjótt við. Þegar sýnt var að hverju stefndi, fórum við í gúmmíbjörgunarbát og gekk það greiðlega og áfallalaust. Lag- arfoss, sem var að fara frá Krókn- um, leitaði okkar með ljósköstur- um og fann gúmmíbátinn. Blá- tindur kom svo og bjargaði okkur. Höfðum við þá verið í gúmmibátn- um í um það bil klukkutíma. Fé- lagar mínir á Kvisti voru Hörður Guðmundsson og ólafur Axel Jónsson. Þetta fór allt betur en á horfðist og við viljum þakka inni- lega öllum þeim, sem veittu okkur aðstoð,“ sagði Hilmar. Guðmundur Árnason, hafnar- vörður, sem heyrði hjálparbeiðni skipverjanna á Kvisti, sagði að þrír bátar hefði verið farnir frá Sauðárkróki til hjálpar aðeins 10 til 15 mínútum eftir að beiðni barst. Það voru bátarnir Blátind- ur, Týr og Máni, en einnig fór Haf- borgin frá Hofsósi til aðstoðar. Guðmundur hafði samband við Lagarfoss, sem var nýfarinn frá Sauðárkróki og bað hann um að svipast um eftir bátnum og fann hann bátinn með ljóskösturum sem fyrr segir. Þá var björgun- arsveitin á Sauðárkróki kölluð út og fór bíll frá henni út á Reykja- strönd. Fjórir björgunarsveitar- menn lögðu upp á gúmmíbát til hjálpar skipverjum á Kvisti en sneru við, þegar þeir fréttu af björguninni. Kári ! Mál skipstjórans á Klakk VE: Verjandi krefst sýknunar — ákæruvaldið fer fram á refsingu og upptöku afla og veiðarfæra Vestmannaeyjum 23. aprfl. MÁL skipstjórans á Klakki var valdið krafðist refsingar og að afli Klakki var dómtekið hjá bæjarfógetanum hér í Eyjum seint í gærkvöldi að loknum málflutningi, en uppkvaðningar dóms var ekki að vænta fyrr en á morgun. Verjandi skipstjórans krafðist sýknu hans og til vara að refsing yrði látin niður falla. Ákæru- og veiðarfæri yrðu gerð upptæk. Aflaverðmæti veiðiferðarinnar er 1,7 milljónir króna og veiðarfæri eru metin á 900.000 krónur. t málflutningi ítrekaði skip- stjóri Klakks það, að hann teldi sig hafa verið á löglegum veiðum Hagfræðingur VSl um „óskiljanlega afskiptasemi** af málum BHM: Nauðsynlegt að leiðrétta villandi málflutning BHM er hann var tekinn. Hann hefði fengið það staðfest af sjávarút- vegsráðuneytinu að markalínur í frétt Morgunblaðsins væru réttar. Verjandi skipstjórans Jón Hjaltason, hrl., gat þess í ræðu sinni, að þegar skipstjórarnir hefðu verið að spyrjast fyrir um það í ráðuneytinu hvort markalín- ur í frétt Morgunblaðsins væru réttar, hefðu stjórnartíðindi ekki verið komin út. Þeir hefðu þá fengið þau svör að rétt væri farið með í frétt Mbl. Þá væri það at- hyglivert, að ráðuneytið hefði ekki hirt um að leiðrétta markalínur fréttar Mbl. Það væri ekki hægt að skilja öðruvísi en svo, að þær væru réttar. hkj „AÐ SJÁLFSÖGÐU sáum við til þess að Kjaradómur fékk tilkynningu Kjararannsóknanefndar í hendur. Um það var algjör samstaða þeirra aðila, sem að nefndinni standa, ekki síst vegna þess, að hin villandi fréttatilkynn ing BHM frá því á miðvikudaginn í síðustu viku átti augljóslega að vera hluti af málflutningi BHM fyrir Kjaradómi," sagði Vilhjálmur Egilsson, hagfræð- ingur og fulltrúi Vinnuveitendasambands Islands í Kjararannsóknanefnd, í samtali við blaðamann Mbl. um ummæli Stefáns Ólafssonar, formanns samninganefndar ríkisstarfsmanna { BHM, í Mbl. í gær. Hann sagði að Vilhjálmur og Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, hefðu haft óviðeigandi afskipti af málum BHM-félaga fyrir Kjaradómi með því að senda þangað inn fréttatilkynningu sl. fóstudag. Tilkynningin er birt í heild á bls. 46 í blaðinu í dag. Vilhjálmur sagði að tilefni fréttatilkynningar Kjararann- sóknanefndar hefði verið frétta- tilkynning frá BHM fyrra mið- vikudag. „Þar voru teknar tölur úr fréttabréfi Kjararannsóknanefnd- ar sem einar og sér gáfu mjög vill- andi mynd af því, sem verið var að fjalla um,“ sagði Vilhjálmur. „Að- ilar vinnumarkaðarins hafa starf- að saman í Kjararannsóknanefnd í yfir 20 ár og það samstarf bygg- ist á gagnkvæmu trausti og svo því, að menn hafa tamið sér varúð í að túlka niðurstöður fyrir ein- staka ársfjórðunga, ekki síst þeg- ar upplýsingarnar, sem liggja að baki, eru byggðar á jafn litlu úr- taki og skrifstofumannaúrtakið, sem um ræðir. Aðilar nefndarinn- ar hafa ekki tamið sér að eltast við einstök dæmi, þar sem sveiflur eru mjög miklar, vegna þess að reynslan sýnir að sveiflur í eina átt jafnast venjulega út með sveiflum í hina áttina. Til að geta starfað áfram í sama anda og hefur verið gert í þessi tuttugu ár er auðvitað mikilvægt að þessir aðilar reyni að verjast því, að utanaðkomandi aðilar taki einstakar tölur úr þessum frétta- bréfum nefndarinnar og slíti úr samhengi til að sýna allt aðra mynd en raunveruleikinn gefur tilefni til. Þetta veldur okkur áhyggjum og vonbrigðum, ekki síst þegar forsvarsmenn menntuð- ustu launþega í landinu leyfa sér að beita svo ófaglegum vinnu- brögðum," sagði Vilhjálmur Eg- ilsson. Morgunblaðið náði einnig í gærkveldi tali af Ásmundi Stef- ánssyni, forseta Alþýðusambands Islands. Hann sagði: „Mig undrar þessi yfirlýsing Stefáns Olafsson- ar. Það, sem hann vísar til, er fréttatilkynning Kjararannsókna- nefndar, sem send er út til þess að leiðrétta 2ja daga gamla frétta- tilkynningu BHM. Það eru okkar einu afskipti af málinu. Menn hljóta að mega treysta því, að góð- ur málstaður þoli staðreyndir." Jafnteflisumferð á Borgarnesmótinu ÖLLUM skákum fyrstu umferðar al- þjóðlega skákmótsins í Borgarnesi, sem lokið var seint í gærkvöldi, lykt- aöi með jafntefli. Önnur umferð verður tefld í dag. t fyrstu umferð gerðu jafntefli Dan Hanson og Karl Þorsteins, Anatoly Lein og Sævar Bjarnason, Guðmundur Sigurjónsson og Margeir Pétursson og Vlastimil Jansa og Curt Hansen. ólokið var skák Hauks Angantýssonar og Williams Lombardy, en skák Kar- el Mokry og Magnúsar Sólmund- arsonar fór í bið. I annarri umferð tefla: Dan og Lein, Sævar og Guð- mundur, Margeir og Haukur, Lombardy og Jansa, Hansen og Mokry og Karl og Magnús.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.