Morgunblaðið - 24.04.1985, Blaðsíða 59
MORGÚNBLAÐIÐ, MIÐVHOJDÁGUR 24. APRÍL1985
59
t
> ~ jj
AKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
T1L FÖSTUDAGS
Bjór: ógæfa þjóðarinnar
Magnús Guðmundsson, Strand-
götu 3, Patreksfirði, skrifar:
Kæri Velvakandi.
Nokkur orð vegna skrifa Guð-
mundar Guðmundsonar, Húsavík,
í Velvakanda 14. apríl sl., þar sem
hann er furðu sleginn út af því, að
ég fullorðinn maður, skuli vera á
móti bruggun á sterkum bjór til
sölu hér á landi, og vitnar til orða
minna í Velvakanda þann 30. marz
sl. Ég get nú ekkert séð furðulegt
við það að fullorðinn maður sé á
móti þessum ófögnuði, sem veldur
ógæfu. Menn gætu frekar furðað
sig á því að ég er ekki bindindis-
maður og hef aldrei verið, en samt
er ég á móti bjórnum. Hann upp-
hefur ekki þjéiðina. Hann fremur
niðurlægir hana, og það ættu full-
orðnir menn að átta sig á eins og
ég þegar ég er orðinn fullorðinn.
Ef bjórfrumvarpið verður sam-
þykkt er það ógæfa þjóðarinnar að
hafa kosið yfir sig óábyrga stjórn-
málamenn þvi verði það gert er
það gert í skjóli ábyrgðarleysis.
Það er nefnilega sorgleg staðreynd
að ráðherrar og þingmenn þessa
lands virðast vera algjörlega
ábyrgðarlausir vegna sinna at-
hafna, eins og sannaðist fyrir
stuttu þegar sjálfur forsætisráð-
herra lýsti því yfir, að það hefðu
verið pólitísk mistök að taka
kaupgjaldsvísitöluna úr sam-
bandi, en slík mistök hafa orsakað
að búið er nú þegar að ræna lands-
menn um milljarða króna.
Ég er ekki frá því, að ef ein-
hverjir aðrir hefðu gert svona al-
Ef bjórfrumvarpið verður
samþykkt, er þaö ógæfa þjóð-
arinnar, segir bréfritari.
varleg mistök, væru þeir undir lás
og slá. Ríkisstjórn sem svona er
komið fyrir á þegar í stað að segja
af sér. Henni er trúandi til þess að
gera enn alvarlegri mistök.
Guðmundur upplýsir í skrifum
sínum að þúsundir íslendinga
stundi þá iðju að brugga sterkan
bjór, 6—8%. Sé svo, er ég viss um
að þeirri iðju verður haldið áfram
þótt bjórinn verði leyfður. En ég
spyr: Hverjir bera ábyrgð á því að
hér á landi er svona mikil bruggun
í gangi eins og Guðmundur upp-
lýsir? Eru það ekki „ráðamennirn-
ir“ — ábyrgðarleysingjarnir, sem
stjórna innflutningnum og eiga að
gæta laga og réttar?
Guðmundur segist hafa orðrétt
eftir mér: „Númer eitt ölvun um
allt land“. Þetta er ekki rétt, en
orðrétt sagði ég: „Númer eitt ölv-
un við akstur um allt land“ ef
bjórfrumvarpið verður samþykkt.
Guðmundur telur að nær öll þjóð-
in þrái að fá bjór inn í kæliskáp-
ana á heimilunum, en það er auð-
vitað hans eigin óskhyggja og
vegna þess að ýmsar sálir ímynda
sér að þjóðin óski eftir bjórnum er
þess krafist að þjóðaratkvæða-
greiðsla fari fram um málið.
Vilji þjóðarinnar skal vera
grundvöllur að vaidi ríkisstjórnar-
innar. Fólkið á að skapa réttinn
sjálft, annaðhvort til góðs eða ills.
Með þessum orðum lýk ég þessu og
greiði atkvæði mitt gegn sterkum
bjór og bjórlíki á íslandi.
Fatlað fólk er hluti af
íslenska lýðveldinu
Bréfrítari vill *ð gert sé ráð fyrir fötluðu fólki í gegnum aðaidyr
Steinunn Ásmundsdóttir skrifar:
Velvakandi góður.
Nú þegar nýlokið er hjálpar-
tækjasýningu fyrir fatlaða, get ég
ekki stillt mig um að drepa niður
penna og skrifa fáeinar línur. Sýn-
ingin fannst mér mjög gott fram-
tak. Þar sem tækniþróun er ör á
okkar dögum, efast ég um að fatl-
aðir geri sér fulla grein fyrir öll-
um þeim nýjungum sem geta orðið
þeim til hjálpar i sínu daglega lífi.
Auðvitað kosta þessi hjálpartæki
sitt og ég held að enginn geti sagt
með góðri samvisku að örorkubæt-
ur séu mannsæmandi hér á landi.
Ég freistast til þess að hugsa að
forráða- og framkvæmdamenn
þessarar þjóðar liti ekki á fatlað
fólk sem hluta af islenska lýðveld-
inu. Það er einungis gert ráð fyrir
fullfrísku fólki á tveimur jafn-
fljótum, sem geta þrammað um
alla stiga og ójöfnur yfirleitt.
Sjáið bara Þjóðleikhúsið okkar.
Ég sá loksins fram á að góðri að-
stöðu yrði komið upp fyrir hjóla-
stóla við aðaldyr hússins og járn-
grindafeluleiknum hætt i bakdyr-
unum. Ekki var það nú aldeilis.
Tröppumar voru steyptar i sama
mót á ný.
Eru fatlaðir ekki jafn réttháir
og við hin? Af hverju fá þeir ekki
að koma inn um aðaldyr Þjóðleik-
hússins með reisn eins og aðrir?
Mér finnst þetta til háborinnar
skammar. Og byggingarlöggjöfin
gerir ráð fyrir lyftu i hverju húsi,
sem er hærra en þrjár hæðir, en
auðvitað byggja menn þá bara út á
við í stað upp á við til að losna við
lyfturnar. Állt er gert til að sleppa
við eina lyftu, sem er ekki nema
brotabrot af byggingarkostnaði
eins húss. Það besta við þetta mál
er svo að skrifstofa þeirra, sem sjá
Þjóðleikhússins en ekki inn um bakdyr.
um málefni fatlaðra, er á þriðju
hæð í lyftulausu húsi.
Kæru arkitektar og byggjendur.
Reynið að setja ykkur í spor
þeirra sem þurfa að dúsa i sinu
horni vegna íslensks skipulags.
Einn góðan veðurdag gæti slys
hent þig eða mig sem myndi e.t.v.
leiða til lífs í hjólastól. Fyndist
ykkur þá ekki skemmtilegra að
gert væri ráð fyrir ykkur í þjóðfé-
laginu, en ekki sem frelsissviptu
fólki á einhverri stofnun?
Umræða varðandi þetta þjóð-
þrifamál er örlítið að vakna en
betur má ef duga skal. Hugsum og
framkvæmum núna en ekki eftir
þrjátíu ár. Þetta þolir ekki bið.
Að lokum langar mig að þakka
Sigþrúði Pálsdóttur fyrir vasklega
framgöngu í Kastljósi á dögunum.
Mér fannst hún sýna mikið hug-
rekki og styrk sem ég vona af öll-
um hug að megi hjálpa fötluðu
fólki og einnig þeim heilbrigðu til
að reyna að skilja.
Söluturn til sölu
Til sölu nú þegar söluturn á mjög góöum staö viö
mikla umferöargötu í Reykjavík. Ársvelta ca. 9 millj.
Mikill og góöur tækjabúnaöur og fallegar innrótt-
ingar. Tilboö sendist augl.deild Mbl. fyrir 30. apríl
merkt: „Söluturn — 2884“.
GOODYEAR GERIR
KRAFTAVERK
Til átaka sem þessa þarí gott jarösamband
Paö nœst meö GOODYEAR hjólböröum.
Gott samband jarövegs og hjólbaröa
auöveldar alla jarövinnu.
Eigum fyrirligrgncmcii
eítirtalciczr stœröir.
HAGSTÆD VERD
600-16-6
650-16/6
750-16/6
900-16/10
750-18/8
10,0/75-15/8
11,5/80-15/10
l/L-16/lO
12.5L-16/12
10,0/80-18/10
13,0/65-18/10
16/70-20/10
9,5/9-24/6
11,2/10-24/6
12.4/1/-24/6
14,9/13-24/6
19.5L-24/12
21L-24/12
18,4/15-26/10
23,1/18-26/10
11,2/10-28/6
12,4/11-28/6
13,6/12
14,9/13
16,9/14
16,9/14
18,4/15
16,9/14
16,9/14
18,4/15
12,4/11
16,9/14
13,6/12
28/6
28/6
-28/8
-28/10
28/12
30/6
30/10
-30/10
32/6
-34/8
38/6
Laugavegi 170-172 Simar 21240-28080