Morgunblaðið - 24.04.1985, Blaðsíða 43
Helga, sem reyndar grynntist á í
upphafi stríðsins, en samt var svo
háttað, að þegar hann andaðist
voru áttatíu prósent af sameigin-
legum húsakaupum þeirra Krist-
ínar á Seljaveginum ógreidd, sem
Kristín greiddi síðar af launum
sínum.
Stjúpbornum sínum reyndist
Kristín mjög vel og á sama við um
börn þeirra og barnabörn. öll
reyndust þau Kristínu líka vel.
Þegar Seljavegshúsið var keypt
1938 átti sú gata að vera strand-
gata með mjög fögru útsýni til
Snæfellsness, Akraness, yfir sund-
in og allar siglingar til og frá
Reykjavík. Fátt var það, sem var
valdandi skapbrigðum hjá Krist-
ínu, en ekki var laust við, að hún
yrði mjög ergileg, þegar því skipu-
lagi var breytt og Vitamálahúsið
tók frá henni kært útsýni til
Snæfellsjökuls og dró úr fegurð
Vesturbæjarins og hinna fögru
vorkvelda þar, sem Tómas borg-
arskáld hefir gert ódauðleg með
snilidarljóði.
Kristín var hófsemdakona og
dugnaðarforkur hinn mesti. Trú-
kona var hún mikil og hjá henni
fór saman kenning og breytni.
Hafi einhver sannað og sýnt, að
kærleikurinn sé takmarkalaus og
umburðarlyndið dyggð, þá var það
Kristín. Höfðingi var hún og
hjálpsöm úr hófi fram, jafnan
miskunnsami samverjinn, sann-
kölluð „Móðir Teresa" norðursins.
í framkomu látlaus og lítillát og
gerði allt, til að leyna góðverkum
sínum. Rósemi, blíða og mil"
hennar var einstök á hverju se
gekk. Það mun hún hafa sótt i
föður síns og föðurafa. Rósem
gekk þó ekki svo úr hófi fram, se
hjá föður hennar, þegar hann ei
sinn um jól sat að spilum með vii
um sínum og á meðan kviknaði
jólatrénu. Spilafélagarnir ruk
upp til slökkvistarfa, en Þorvaldi;
faðir hennar snupraði þá me
þeim orðum; „að þeir skyldu ekl
Ijúka spilinu fyrst.“
Svo fór Kristín eftir þein
gullvægu kenningu Bibliunnar, a
hóflega drukkið vín gleddi manns
ins hjarta, því að í blaðaviðtal
níutíu og sex ára, komst hún sv
að orði: „Ég er búin að reykja
yfir sextíu ár og fæ mér í staup
inu, ef svo ber undir og verð ekk
vör við að það sé óhollt.“
Eldri systur sinni, Önnu Rósu
sem látin er fyrir nokkrum árun
reyndist hún einstök. Anna, sen
var mun meira menntuð en Krist
ín og með stærri prófgráður, bæð
frá Danmörku og Þýskalandi vai
skólastýra Kvennaskólans i
Blönduósi 1911—23. Anna mui
tvímælalaust vera jafnmerl
skólastýra og þær Elín Briem o(
Þóra Melsted. Hún mat nemendui
skólans eingöngu eftir ástundur
og námshæfileikum, en hvorki eft-
ir ættum né auði og völdum for-
feðra þeirra. Hún lagði fyrst of
fremst áherslu á bókleg fræði
fyrir nemendur sína og vandaðri
og æðri hannyrðir, en lítið sem
börn eru Sólveig, Gústaf Þór og
Ólafur Egill.
Steinunn og Ólafur slitu sam-
vistum 1952, þá flutti Steinunn til
Reykjavíkur þar sem hún bjó til
dauðadags.
Ég undirritaður kynntist Stein-
unni skömmu eftir að hún fluttist
hingað í bæinn, þar sem ég giftist
frænku hennar önnu Björgúlfs-
dóttur dóttur ólafar Guðmunds-
dóttur. Steinunn kom mér fyrir
sjónir sem fremur hæglát kona en
undir niðri glaðvær og hafði
skemmtilega kímnigáfu. Hún
hafði ánægju af músík og samdi
sjálf lög, eins átti hún auðvelt með
að koma saman vísu. Hægt er að
segja að Steinunn heitin hafi verið
listfeng kona á margan hátt. Anna
konan mín og Steinunn voru góðar
vinkonur alla tíð, eða frá því að
Anna var barn að aldri.
Steinunn var okkur önnu sér-
lega velviljuð og góð. Við söknum
hennar og þökkum henni allt gott.
Dóttur hennar, fjölskyldu og vin-
um vottum við innilega samúð og
hluttekningu og biðjum Guð að
blessa þau öll. JÁG
M()RGUNB1,AÐIÐ, MlDVfKUÐAOUR 24. APRÍt 1985
DÍI'
43
ekkert upp úr eldun hafragrauts
og sokkaþvotti. Taldi nemendur
sína ekki veita af þessum tveggja
ára skólatíma, þar sem þeir
myndu ekki hljóta frekari mennt-
un síðar, til að nema það, sem
kennslu þyrfti við, en eyða ekki
kennslutímanum í hluti, sem
myndu lærast af sjálfu sér. Þetta
féll ekki í góðan jarðveg foreldra
lélegra nemenda og skólanefndar,
svo að hún var látin hætta skóla-
stjórn. Það tók hún sér allt of
nærri, því að ýmiss störf við henn-
ar hæfi buðust. Eftir það fékkst
hún aldrei við kennslu og var aldr-
ei söm síðan. Eftir fjögurra ára
aðgerðarleysi, gerðist hún
spjaldskrárritari, sem var staða
ósamboðin menntun hennar og
hæfileikum. Kristín var henni í
þessum raunum og jafnan síðar
huggari og í öllu stoð og stytta.
föllum ættum er fólk sem ekki
er vammlaust, því að sitthvað er
gæfa og gjörvileiki. Við óskilgetna
ættingja Kristínar gerði hún eng-
an mun og á skyldmennum sínum.
Reyndist hún mæðrum þeirra
barna og börnum þeirra sem móð-
ir, svo og barnabörnum þeirra og
var jafnvel betri við þá ættingja
sína en aðra, enda hiaut hún fyrir
það bæði ást þeirra, svo og þakk-
læti og virðingu.
Kristín hefir reynst mér sem
móðir, sér í lagi eftir að móðir mín
andaðist á bezta aldri. Hjá Krist-
ínu bjó ég árin 1946—53. Kynntist
ég henni náið og mannkostum
hennar mjög vel.
Fyrsta þjóðskáld tslendinga,
séra Hallgrímur Pétursson, segir í
Passíusálmum sínum „Oft má á
máli þekkja manninn, hver helzt
hann er ... Góður af geði hreinu
góðorður reynist víst . .. o.s.frv."
Sama þjóðskáld yrkir um dóttur
sína og eiga þau orð vel um hina
látnu:
„Tign, æru, sæmd og sóma
sálir guðs barna fá,
sem ljósar stjörnur ljóma
lambsins stóli hjá,
ávallt guðs auglit sjá,
með hvitum skrúða skrýddar,
skarti réttlætis prýddar,
sorg allri sviftar frá.“
Líkur sækir líkan heim. Vinir og
gestir Kristínar voru einstakt úr-
valsfólk, göfugt, gáfað, trygglynt,
mannlegt, sögufrótt og einstak-
lega skemmtilegt. Átti það jafnt
við karla sem konur, er reyndar
voru í meirihluta. Allir þessir vin-
ir munu nú látnir. Kristín, sem
var glöð með glöðum og hrygg með
döprum, tók nærri sér andlát vina
sinna, sætti sig samt við það og
rifjaði upp minningar um góð
kynni og ógleymanlegar gleði-
stundir með þeim.
Meðal helztu gesta hennar, sem
ég nú man eftir, rifja ég nokkra
upp. Byrja ég á Elísabetu Foss,
sem mun hafa verið bezta vinkona
hennar og það allt frá 18%, Theó-
dóru Thoroddsen og dætur henn-
ar, Katrínu, Kristínu, Ragnhildi
og Maríu, dætur séra Jóns Árna-
sonar ■ frá Otradal, Sigríði og
Ragnheiði, systurnar Láru og
Maren LárUsdætur, Margréti
Hróðmarsdóttur, Þórunni Páls-
dóttur, Sigríði Grímsdóttur, systr-
anna Rögnu og Helgu Sigurðar-
dætra, Ólöfu Jónsdóttur frá Segl-
búðum og mörgum fleiri slíkum
konum. Af mönnum eru mér
minnisstæðir Magnús Jónsson,
Þorsteinn Þorsteinsson, Stefán
Stefánsson frá Fagraskógi, Sig-
urður Einarsson, Tómas Guð-
mundsson, Sigurður Grímsson,
Torfi Jóhannsson og margir fleiri.
Þetta eru nú þeir, sem ég man eft-
ir í augnablikinu. Þá voru mjög
tíðir gestir hjá Kristínu ættingjar
hennar og stjúpbörn, ásamt niðj-
um þeirra allra.
Eftir að Kristín fór að finna
fyrir elli og eiga erfitt með að fara
sjálf ferða sinna reyndust mjög
margir henni góðir og hjálplegir,
t.d. bræðradætur hennar þrjár,
svo og Ingibjörg Sigurðardóttir
frá Nautabúi. Sannaðist þar ræki-
lega orðtakið: „Svo uppsker hver
sem hann sáir.“
Af öllum kostum Kristínar tel
ég mildina hennar höfuðkost. Því
á vel við lokavers forföður hennar,
Þorvalds Böðvarssonar í áramóta-
sálmi hans:
„Alvöld mildin, öllu þú sem ræður, 4
enn góðvildar séð oss þinnar gæðum,
auðga dyggðum, hamla hryggðum,
hrind burt styggðum,
bú oss byggð í hæðum.“
Persónulega vona ég, að við
missi þessarar velgjörðarkonu
minnar, sem á vissan hátt var mér
sem móðir, muni hluti mildi henn-
ar fylgja mér alla ævi.
Minningarorðum þessum lýk ég
með lokaerindi séra Tryggva H. -
Kvaran í eftirmælum um föður
hinnar látnu:
„Góði vinur, Guð þig leiði.
Greiði för um ókunn höf.
Brosið þitt, sem brast á vðrum.
Byrgja nú hin hvítu tröf.
Ótal vina ást og virðing.
Yfir skyggir þína gröf.“
Þorv. Ari Arason
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
540
LASER
LYKILLINN AÐ VANDADRI LITPRENTUN
#'Við opnum í dag!
Undanfarin 8 ár höfum viö selt glæsileg matar- og kaffistell og vandaðar gjafavörur
úr postulíni og kristal frá ROSENTHAL í verslun okkar viö Laugaveg. Viö höfum einnig
haft á boðstólum hnífapör og kristalsvörur frá öðru þekktu v-þýsku fyrirtæki, WMF. Vegna
þess hve verslun okkar viö Laugaveg er þröngur stakkur skorinn höfum við ekki getað
gert vörum WMF nægilega góð skil. En nú bætum við um betur, stóraukum vöruúrvalið,
og opnum nýja verslun í AUSTURVERI með vandaðan borðbúnað, búsáhöld og
gjafavörur frá WMF.
Við bjóðum viðskiptavini okkar velkomna til að skoða vöruúrvalið í nýju versluninni
og vonum að þeir finni þar margt við hæfi - til gjafa jafnt sem til eigin nota - á matborðið
og í eldhúsið.
í tilefni opnunarinnar hefur WMF boðið okkur að selja marga fallega muni á
sérstöku kynningarverði, t.d. kristalskaröflur, pottasett, hitakönnur o.fl., sem við seljum
meðan birgðir endast. Verið velkomin.
&
studiohúsið
Til samræmis
ætlum við framvegis
S aö kalla verslunina við
s Laugaveg
AUSTURVERI •SÍMI 31555
--------------------^
studiohúsið
A EINARSSON & FUNK