Morgunblaðið - 24.04.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL1985
21
Fréttamynd ársins 1984
Fréttaljósmyndir
IVIyndllst
Valtýr Pétursson
í Listasafni ASÍ stendur nú
yfir sýning á fréttaljósmyndum
frá síðasta ári. Hún kemur glóð-
volg frá Amsterdam, þar sem
samtök fréttaljósmyndara hafa
aðsetur sitt, og munu þeir hol-
lenzku vera prímus motor í
þessu fyrirtæki. En við fengum
að sjá hliðstæða sýningu fyrir
tveimur árum. Þarna eru myndir
hvaðanæva að úr heiminum og
hefur íslenzkri deild verið bætt
við upprunalegt úrval, sem frá
Hollandi kom.
Það eru myndraðir sem fengið
hafa verðlaun, sem eru uppistað-
an í þessari skemmtilegu sýn-
ingu. Þarna má sjá fréttamyndir
ársins, fólk í fréttum, íþróttir,
náttúrumyndir, listir og vísindi,
gleðilega atburði, daglegt líf og
fréttafrásagnir. Flest er þetta
flokkað í myndraðir eins og áður
segir, og stundum fannst mér
eins og þessar myndraðir væru
of þéttar eða réttara sagt of-
hlaðnar, en sitt sýnist hverjum
áreiðanlega. Sigurjón Jóhanns-
son skrifar stuttan formála i
sýningarskrá og segir meðal
annars: „Allir geta tekið myndir
og haft af því ánægju, sumir
taka góðar myndir með listræn-
um áherzlum og aðrir nota
myndavélina til að skrá atburði
líðandi stundar af íhygli og
raunsæi. Einstaka maður beitir
ljósmyndavélinni af snilld." Þarf
að segja miklu meira um ljós-
myndara og vélina hans?
Það er nokkuð ljóst, þegar
þessi sýning er skoðuð, að ís-
íenzka deildin hefur sérstöðu.
Hún er að mínum dómi vel valin
og vandaðri, hvað listræn tök
varðar. Það eru afar merkilegar
myndir í þeirri deild, og okkar
þjóð til hins mesta sóma. Mig
langar til að segja það þannig,
að það er ekki eins mikill hraði í
okkar tilveru eins og í myndun-
um utan úr hinum stóra heimi.
Og nú er ég viss um, að margur
missir af því hvað ég er að fara,
en látum þessa athugasemd
samt flakka.
World Press Photo er hér í
annað sinn og vonandi verður
framhald á þessum sýningum.
Þær eru margvíslegar og verða
til í dagsins önn, og hvert ár ber
í skauti sínu viðburði, sem festir
verða á filmu, bæði gleðilega og
ægilega. Heimurinn er nú einu
sinni eins og hann er, og enginn
veit, hver verður uppákoma
næsta árs, en eitt má fullyrða:
Ljósmyndarar verða viðstaddir
og festa atburðina á filmur.
Þannig er nú sagan skráð í dag,
og þannig geymast atvikin til
komandi kynslóða.
Það er mikið verk að skoða
þessa sýningu fréttaljósmynd-
ara í ASÍ, en það borgar sig í
meira en einum skilningi.
Sumir komast upp með allt
Hljómplötur
Sigurður Sverrisson
Dave Lee Roth
Crazy from the heat
Warner Brothers/Steinar
Sumir komast upp með nánast
hvað sem er á meðan aðrir mega
sig vart hræra innan um kröfu-
harðan almúgann.
Dave Lee Roth, söngvari Van
Halen-flokksins, virðist tví-
mælalaust í fyrrnefnda hópnum.
Ofangreind fjögurra laga plata
hans hefur heldur betur slegið í
gegn, einkum vestanhafs, og lag-
ið California Girls, sem þeir
kumpánar í Beach Boys gerðu
eitt sinn feikivinsælt, fagnar nú
velgengni jafnt austanhafs sem
vestan.
Vafalítið eru þeir margir að-
dáendur Van Halen sem eiga
erfitt með að kyngja þessu hlið-
arspori söngvarans jafn fag-
mannlega og það er nú stigið. Eg
get hins vegar ekki að því gert,
að mér finnst þetta þræl-
skemmtilegt uppátæki Roth.
Kannski hef ég bara gaman af
því af því að það er hann sem
stendur á bak við þetta, því tón-
listin á plötunni er ekkert annað
en slétt og fellt popp.
Roth naut dyggilegrar aðstoð-
ar Edgars Winter við gerð þess-
arar plötu og mér segir svo hug-
ur um, að Winter eigi ekki minni
þátt í heildarútkomunni en Roth
sjálfur. Útsetningarnar eru
sumar hverjar mjög í hans stíl,
t.d. Easy Street. En enn og aftur:
mjög skemmtileg og framandi
hlið á Dave Lee Roth.
HELEN JAHREN
Tónlist
Egill Friöleifsson
Norræna húsiö 21. aprfl '85.
Flytjendur: Helen Jahren, óbó. Lára
Rafnsdóttir, píanó.
Kfnisskrá: flutt voru verk eftir H.
Dutilleux, G.P. Telemann, R. Schum-
ann, T. Jennefelt, A. Mellnás, Á.
Hermanson og E. Krenek.
Sl. sunnudagskvöld efndi sænski
óbóleikarinn Helen Jahren til tón-
leika í Norræna húsinu ásamt Láru
Rafnsdóttur píanóleikara. Þetta var
annar konsertinn í tónleikaröðinni
„Ungir norrænir einleikarar" sem
Norræna húsið á frumkvæði að, og
er það vel til fundið á ári æskunnar
og evrópsku tónlistarári.
Helen Jahren var meðal sigur-
vegaranna í tónlistarkeppni ungra
tónlistarmanna í Ósló 1984, og eftir
að hafa heyrt hana leika í Norræna
húsinu undrar mig ekki að hún hafi
náð langt í þeirri keppni. Helen
Jahren er snjall hljóðfæraleikari.
Hún hefur mjög fallegan tón, býr
yfir glæsilegri tækni og allur leikur
hennar er músíkalskur og sannfær-
andi.
Efnisskráin spannaði tímabilið
frá Telemann til okkar daga, og
virtist hún jafnvíg á gömlu meist-
arana sem og samtímatónlist. Það
er eiginlega sama hvar niður er
borið. Hún lék Fantasíu Telemanns
mjög vel og rómantik Schumanns
átti einnig vel við hana. En e.t.v.
var meðferð hennar á samtímatón-
listinni áhugaverðust. I „Yellow 2“
fyrir óbó eftir T. Jennefelt sýndi
hún okkur margvísleg blæbrigði
óbósins, og sveiflaðist tónninn frá
því að vera lungamjúkur til þess að
vera harður og grófur, og erfið són-
ata A. Mellnas var leikin af miklu
öryggi. Raunar er litlu við þetta að
bæta. Helen Jahren er fyrsta flokks
óbóleikari. Meðleikari hennar var
Helen Jahren
Lára Rafnsdóttir. Og ef haft er í
huga hve stuttan undirbúningstíma
þær stöllur höfðu verður ekki annað
sagt en samvinna þeirra hafi tekist
með ágætum, enda Lára vandaður
og öruggur listamaður. Bestu þakk-
ir fyrir góða skemmtun.
með jjölda stórra vinninga
Búum öldruðum
áhyggjulaust ævikvöld
Hagnaði afhappdrætti DAS er varið til velferð-
armála aldraðra um alit iand. Meða! annars
stuðnings við byggingar dvaiarheimila aldr-
aðra á sem fiestum stöðum vtðsvegar um
landið.
Hér sést yfir framkvæmdasvæði Sjómanna-
dagsráðs og Happdrættis DAS í Hafnarfírði og
Garðabæ.
Helstu framkvæmdir er nú standa yfír eru að
Ijúka að fullu við hjúkrunardeildina, þ.e.
endurhæfíngardeiid, meðferðarsundlaug og
að laga lóð.
Síðar taka svo við framkvæmdir við næsta
smáhýsahverfí.
___HAPPDRÆTTI_________
Dvalarheimilis aldraðra sjómanna