Morgunblaðið - 24.04.1985, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1985
DC6
ferst
Narbonne, Frakklandi, 22, apríl. AP.
FLUGVÉL af geröinnni DC-6, sem
var í eigu borgaralegra varnarsveita,
fórst í morgun í nágrenni borgarinn-
ar Fitou. Fórust a.m.k. 5 menn með
flugvélinni sem var í leið frá Mars-
eille til Perpignan. Verið var að
flytja sérfræðinga í skógareldum til
ráðstefnu um skógarelda.
Bretland:
Drottningin
hættir ekki
Lundúnura, 23. apríl. AP.
TALSMAÐUR bresku krúnunnar
greindi frá því í dag að hin 59 ára
gamla Elísabet Bretadrottning
hefði ekki í hyggju að stíga niður
úr hásætinu til þess að Karl prins
gæti tekið við konungstigninni.
Talsmaðurinn, Michael Shea,
sagði það ófrávíkjanlegt, hefðin
væri að leiðtogaskipti yrðu við lát
kóngs eða drottningar. Sagðist
Shea vonast til þess að nú myndi
linna vangaveltum um að réttast
væri að Elísabet léti af embætti.
Shea kvað einnig í kútinn orð-
róm þess eðlis að hin 23 ára
gamla Díana prinsessa væri hið
mesta skass sem hefði Karl
prins algerlega í vasanum og
stjórnaði honum að vild. Einnig
að Karl ætti í vandræðum með
sjálfan sig vegna þess að hann
teldi sig gagnslausan. „Þetta er
firra, hið sanna er, að Diana og
Karl eru í farsælu hjónabandi,
þau eru ánægð, sjálfstæð og
fara eigin leiðir ef þeim býður
svo við að horfa. Þeir sem
þekkja þau vita manna best að
allar getgátur af þessu tagi eru
gersamlega út í hött,“ sagði
Shea.
Iranir hylla her og spámann
AP/Símamynd
Tugþúsundir íranskir hermenn marséruðu um götur höfuðborgar íran á fyrsta degi viku, sem kennd er við her landsins. Haldin voru hátíðahöld af
sama tilefni víðs vegar um land. Er athygli landsmanna beint að hernum og starfi hans á þessum tímamótum.
Vika hersins hófst á degi spámannsins Múhameðs. Á þessum degi var Múhameð útnefndur dýrlingur múhameðstrúarmanna. í tilefni dagsins hélt
Khomeini erkiklerkur ræðu, og þar ítrekaði hann að þrýstingur innanlands og utan fengi írana ekki til að friðmælast við Iraka. Ríkin tvö hafa eldað
grátt silfur í mörg ár.
Súdan:
Meðstjórnin fullskipuð og
stjórnmálasamband við Líbýu
Khartoum, 23. apríl. AP.
Stjórnmálasambandi verður kom-
ið aftur á milli Súdans og Líbýu,
eftir því sem talsmaður Súdanstjórn-
ar sagði í dag. Ríkisútvarpið í Líbíu
staðfesti þetta í fréttatíma. Hvenær
skrefið verður formlega stigið er þó
ekki Ijóst enn sem komið er. Þá er
lokið skipan í sérstaka meðstjórn
sem mun aöstoða herstjórnina í Súd-
an í að undirbúa almennar kosn-
ingar eftir eitt ár. /Eðsti maður með-
stjórnarinnar heitir El Gazouly Daf-
allah. Hann er læknir og formaður
stéttarfélags lækna í Súdan.
Sambúð Súdans og Líbýu hefur
verið slæm í seinni tíð og fullur
fjandskapur milli Gaddafís Líbýu-
leiðtoga og Nimeiri fyrrum Súd-
anforseta. Swareddahab hers-
höfðingi, sem nú er æðsti maður í
Súdan, tilkynnti fljótlega eftir
valdaránið, að það fyrsta sem yrði
að gera væri að bæta sambúðina
við Líbýu, Eþíópíu og Sovétríkin.
Gaddafí hefur viðurkennt hin
nýju stjórnvöld í Súdan, en Sware-
ddahab hefur varað Líbýustjórn
við því að færa sér stjórnarskiptin
í nyt.
Meðstjórnin sem á að fara með
stjórn landsins ásamt herstjórn-
inni næsta árið er nú fullskipuð
með fyrrnefndum Dafallah, sem
mun vera æðsti maður hennar.
Honum er lýst sem „sósíalista en
ekki kommúnista". Hann var í
haldi siðustu dagana sem Nimeiri
réð í Súdan. Val Dafallah kom
ekki á óvart, stéttarfélag hans var
í fylkingarbrjósti mótmælanna
sem settu svip sinn á Súdan síð-
ustu dagana fyrir valdaránið.
Olympíuleikar í
Lundúnum 1992?
Bretland:
Mótmæla óhróðri um vensla-
menn konungsfjölskyldunnar
London, 22. apríl. AP.
NOKKRIR þingmenn breska íhalds-
flokksins kröfðust þess í gær, sunnu-
dag, að nokkur dagblaðanna þar í
landi hættu „illgjörnum óhróðri" um
þýska venslamenn konungsfjölskyld-
unnar, sem á sínum tíma hefðu verið
í SS-deildum Hitlers.
„Óbein sakfelling og aðdróttanir
voru háttur nasista. Sérhver drott-
inhollur þegn hlýtur að líta á þess-
ar árásir á konungsfjölskylduna
með viðbjóði,“ sagði Neil Hamilton,
einn þingmannanna, um frétta-
flutning sumra dagblaðanna í Fleet
Street. Þetta mál kom fyrst upp
þegar skýrt var frá því í einu
dagblaðanna, að eiginkona Michael
prins af Kent, frænda drottningar,
væri dóttir fyrrum foringja í SS og
skeytti blaðið því engu þótt upplýst
væri, að hún hefði ekki vitað um
hlut föður síns í stríðinu fyrr en
hún var komin á fullorðinsár. Sið-
an fundu blöðin það einnig út, að
mágur Philips, drottningarmanns,
Cristoph prins af Hessen, hefði líka
verið háttsettur í SS.
Systir Philips giftist Cristoph
fyrir stríð og einn þingmannanna
sagði um helgina, að það væri að
sjálfsögðu engin frétt, að sumir
venslamanna Philips og drottn-
ingar væru Þjóðverjar. Ekki ætti
það heldur að koma neinum á
óvart, að þessir menn hefðu verið
nasistar á stríðsárunum. „Philip
prins þjónaði landi sínu og þjóð
með miklum sóma á stríðsárunum
og hefur gert það alla tíð síðan,"
sagði þingmaðurinn Anthony
Beaumont-Dark.
Vensl ensku konungsfjölskyld-
unnar og þýska aðalsins hófust
snemma á 18. öld þegar enginn
enskur ríkisarfi var til að taka við
krúnunni af Önnu drottningu en þá
var leitað til nánasta ættingja
meðal mótmælenda, sem var Georg
I, konungur af Hannover.
iAindúnum, 23. aprfl. AP.
BORGARYFIRVÖLD í Lundúnum
hafa lýst áhuga sínum á að halda
sumarólympíuleikana árið 1992. Um-
sóknin var lögð fram hjá bresku
óiympíunefndinni sem mun fjalla
um hana og koma henni síðan áleið-
is. Sex borgir hafa sótt um sömu
leika, en umsóknir eru sagðar vænt-
anlegar frá að minnsta kosti tveimur
enskum borgum öðrum, Birming-
ham og Manchester.
Breska ólympíunefndin mun
fjalla um umsóknir ensku borg-
anna og velja eina úr með hliðsjón
af áætlunum og fjármagnsmögu-
leikum, en ólympíunefndir og
borgarráð borganna þriggja eru
með fjárhagsáætlanir í smíðum.
Breska nefndin mun velja eina
borg úr 12. júlí næstkomandi og
viðkomandi borg mun keppa við
Barcelona, Brisbane, Belgrað,
Nýju Delhí, París og Rotterdam/-
Amsterdam, sem hafa sótt um að
halda leikana í sameiningu.
Alþjóðlega ólympíunefndin mun
velja borg í október á næsta ári og
mun áður taka marga þætti til at-
hugunar. Þess má geta, að
ólympíuleikarnir hafa tvívegis
farið fram í Lundúnum, árin 1908
og 1948.
Kosið í Grikk-
landi 2. júní
Aþeou, 22. aprfl. AP.
CHRISTOS Sartzetakis, forseti
Grikklands, hefur ákveðið að kosið
verði til þings í landinu 2. júní nk.
Ríkisstjórnin hafði farið fram á
þennan kjördag og féllst forsetinn
á það í dag.
ERLENT
Saka sænsku kirkjuna um
að vera verkfæri Rússa
SÆNSKA kirkjan verður fyrir stöðugt meiri áhrifum Sovétmanna. Æ
fleiri sænskir kirkjuleiðtogar þiggja heimboð Sovétmanna undir yfírskini
friðarins og láta síðan nota sig í pólitískum tilgangi. Kemur þetta fram í
bók, sem sænsku rithöfundarnir og blaöamennirnir Gösta Hulte og Jan
Samuelsson hafa samið og nú er verið að gefa út. Skýrði sænska blaöið
Tempus frá þessu í vikunni.
Höfundarnir saka Alkirkju-
ráðið og Lúterska heimssam-
bandið um að vera verkfæri ein-
ræðisaflanna og segja, að Olof
Sundby, fyrrum erkibiskup, og
margir aðrir biskupar sænsku
ríkiskirkjunnar hafi látið Sov-
étmenn nota sig í valdatafli sínu.
„í samræmi við það að biskup-
arnir fara æ oftar á friðar-
ráðstefnur í Moskvu, þá mót-
mæla þeir æ sjaldnar ofsóknum
Sovétstjórnarinnar á hendur
kristnum mönnum,“ segir í bók-
mni.
Þá halda höfundarnir því enn
fram, að verulegur hluti af
áróðri Sovétmanna nái til kirkn-
anna fyrir tilstilli kristilegra al-
þjóðastofnanna, sem Sovét-
mönnum hafi ýmist tekizt að
hafa áhrif á eða láta stjórnast af
sovézkum hagsmunum. „Þar eru
markmið Sovétmanna hvítþveg-
in og klædd í heppilegan búning.
Valdapólitík er gerð að hugsjón-
astefnu, kalt stálið er fært i
mjúkt silki og Karl Marx er
gerður að góða hirðinum."
Höfundarnir tveir segjast
álíta það mikilvægt, að kirkjan
standi utan við stjórnmál og að
sjálfstæði hennar sé vörn gegn
þeim „sovézku einræðisöflum,
sem ógni mannkyninu." Þá segja
höfundarnir ennfremur: „Þess
vegna sitjum við ekki með hend-
ur í skauti, þegar Alkirkjuráðið
og Lúterska heimssambandið
kjósa að loka augunum gagnvart
þessum einræðisöflum eða tengj-
ast þeim.“