Morgunblaðið - 24.04.1985, Page 6

Morgunblaðið - 24.04.1985, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÓ, MIÐVIKUBAGÍÍR 24. APRÍL1986 Dósa- matur Smá leiðrétting. í seinustu grein minni átti ekki að standa: Slíkt hefði nú ekki þótt fínt á Seyðisfirði í gamla daga, heldur: Slíkt hefði nú þótt fint á Seyðisfirði í gamla daga. Vilji menn fá botn í fyrrgreinda máls- grein verða þeir að fletta blaðinu í gær og setja hana í víðara sam- hengi. En ekki orð meir um þessa smá- legu málfarsþúfu, því mál er að vinda sér í mánudagsmyndina, er loksins skreið á skjáinn að aflokn- um iþróttum og íþróttaauka, sem hefir sennilega valdið því að und- irritaður fékk sinadrátt í vinstri fótinn klukkan 21:44, en til allrar hamingju hófst blessuð myndin klukkan 21:45. Ég segi til allrar hamingju, því mynd þessi reyndi ekki bara á lærvöðvana eða önnur þau líffærakerfi líkamans er mað- ur vill helst ekki vita af hvunn- dags heldur mæddi hún þau óskil- greindu lífkerfi er manninn prýðir og hann nefnir tilfinningar og vitsmuni. Glæsipían Aðeins á sunnudögum nefndist myndin og segir frá miðaldra manni sem hefur yfirgefið konu sína og tvær ungar dætur, vegna annarrar. Maðurinn unir i fyrstu harla vel við hið nýfengna „frelsi" en brátt fer af nýjabrumið og hversdags- leikinn verður grár sem fyrr. Glæsipían fær sömuleiðis leið á hinum værukæra fjölskylduföður, sem auðvitað hverfur úr ungkarla- hlutverkinu þegar frá líður og leit- ar í gamla plógfarið fyrir framan imbakassan með kaffibollann full- an af írsku kaffi. Og hvar eru þá litlu dæturnar er báru sólina til pabba síns hvern sunnudagsmorg- un? Nú, það er ekki að orðlengja það að nýja konan hverfur á brott og frelsi hins endurfædda ung- karls birtist í mynd óuppvaskaðra diska, illa pressaðra buxna og skítugra sængurfata er stinga í augun í litlu piparsveinsibúðinni. Enda líður ekki á löngu þar til karl er orðinn fastagestur á öld- urhúsum, þar sem hann sér fyrri tilveru í gegnum litfagurt alkóhól- íð í skýjuðum glösum. En nú verð- ur ekki aftur snúið, konan hefir nælt sér í annan, og ný fjölskylda er í mótun á gamla heimilinu og par ræður hann litlu um, enda sá sem varpaði sprengjunni í upp- hafi. Saga margra manna Ætli þessi ágæti írskættaða mynd lýsi ekki harmsögu margra þeirra karlmanna er í raun lifa í ágætu hjónabandi, en verða með auknum starfsframa svo upptekn- ir af eigin ágæti og lífsins lysti- semdum, að fölva slær á þá litlu veröld er ein skiptir máli þegar upp er staðið. Þannig verður hin heimavinnandi húsmóðir, er nýtur raunar engra almennra mannrétt- inda svo sem lífeyrisréttinda og þiggur sín laun úr vasa karl- mannsins, harla hversdagsleg og nánst púkó, miðað við glæsikonur viðskiptalífsins, slíkar er gjarnan mæta uppdressaöar til vinnu og brosa sínu blíðasta, hvað sem á gengur, enda sjálfar i leit að starfsframa. Og hvílíkur munur að tala við slíkar konur sem eru inní öllu, enda ekki bundnar við einhæf heimilisverk daginn út og inn. Já, það er auðvelt að gleyma „BH“ og börnum í glæsiheimi viðskiptalifsins, þær dásamlegu verur sjá menn venjulega ekki í réttu ljósi fyrr en þeir eru sestir aleinir fyrir framan sjónvarpið með dósamatinn í hendinni. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP / S JÓN VARP David Attenborough hefur lagt sig í alls konar hættur til að sýna áhorfendum fram á eitt og annað. „íslenskar dansmyndira — úr safni sjónvarpsins ■i „íslenskar 35 dansmyndir" — eru á dagskrá sjónvarpsins klukkan 22.35 í kvöld. Þátturinn er úr safni sjónvarpsins og var áður sýnt í sjónvarp- inu í janúar 1977. Sýndir verða sex dansar eftir Unni Guðjónsdóttur, og er hún jafnframt stjórnandi. Dansarnir eru byggðir á fimm íslenskum myndlistarverkum og einu ljóði. Verkin eru: Vindstroka eftir Jóhannes Kjarval, Konur við þvott eftir Gunnlaug Scheving, Trúarbrögð, Fuglinn og Fönix, Málarinn eftir Ásmund Sveinsson og ljóðið „Hvað er í pokan- um?“ eftir Tómas Guð- mundsson. Dansararnir eru: Ásdís Magnúsdóttir, Helga Magnúsdóttir, Ingi- björg Björnsdóttir, Krist- ín Björnsdóttir og Guð- brandur Valdimarsson. „Hvað viltu verða?a „Lifandi heimuru — óhefðbundið að þessu sinni ■i Breski 40 heimilda- myndaflokkuri- nn „Lifandi heimur" er á dagskrá sjónvarpsins klukkan 20.40 i kvöld. Þátturinn er sá áttundi af tólf, og nefnist þáttur kvöldsins „Vatnalíf”. Da- vid Attenborough kannar — vatnalíf ferli árinnar frá upptök- um til ósa. Einnig sýnir hann fram á lífríki stöðu- vatnanna. Hann sýnir frá stóru stöðuvatni í Júgó- slavíu og frá heimaslóðum Fenja-Araba í írak og frá | óshólmum víða, hvernig ' dýralífið er þar svo og : mannlegt líf. lífið á vatnasvæði Amaz- onfljótsins aðallega svo og í öðrum vötnum annars staðar. Óskar Ingimarsson, þýðandi og þulur þátt- anna, sagði í samtali við Mbl. að Attenborough myndi lýsa í þættinum H Þátturinn 20 „Hvað viltu — verða" er á dagskrá útvarpsins, rásar 1, í kvöld klukkan 20.20. Umsjónarmenn hans eru Erna Arnardóttir og Sig- rún Halldórsdóttir. Þátturinn er starfs- kynningarþáttur, en er að þessu sinni með mjög óhefðbundnu sniði. Um- sjónarmennirnir ætla að vera á „Hátíð í Höll“ á miðvikudaginn í Laugar- dalshöllinni og taka upp allt efnið þá milli klukkan 15.00 og 17.00 - taka við- töl við gesti og gangandi og spila hress lög. Engin sérstök starfsstétt verður tekin fyrir, heldur verða tekin fyrir þau gervi sem nemendurnir bregða sér i þennan eina dag. Því er verið að tala við krakkana sjálfa í staðinn fyrir að vinna þátt fyrir þau eins og tíðkast hefur í hinum þáttunum, sem á undan eru gengnir. ÚTVARP MIÐVIKUDAGUR 24. aprll 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. A virkum degi. 7.20 Leiktimi. Tilkynningar. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Siguröar G. Tómas- sonar frá kvöldinu áöur. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá. 8.15 Veöurtregnir. Morgunorð: — Sólveig As- geirsdóttir talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: .Hollenski Jónas" eftir Gabriel Scott. Gyöa Ragn- arsdóttir les þýðingu Sigrún- ar Guðjónsdöttur (8). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 9.45 Þing- fréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 Islenskir einsöngvarar og kórar syngja. 11.15 Or ævi og starfi Islenskra kvenna. Umsjón: Björg Ein- arsdóttir. 11.45 Islenskt mál Endurtekinn þáttur Jóns Aö- alsteins Jónssonar frá laug- ardegi. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12^0 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar. 13J0 Barnagaman Umsjón: Sólveig'Pálsdóttir. 13.30 „Topplög" Ýmis lög sem náð hafa efsta sæti vinsældalista allt frá 1955. 14.00 „Eldraunin" eftir Jón Björnsson. Helgi Þorláksson les (22). 14J0 Miödegistónleikar Sónata I a-moll op. 3 nr. 8 fyrir tvær fiðlur og strengja- sveit. Georges Maes og Paul Malfait leika meö einleikur- um Belgisku kammersveitar- innar. 14.45 Popphólfiö — Bryndls Jónsdóttir. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Islensk tónlist a. Tvö tónverk, „Bláa Ijósiö" og „Sýn“, eftir Askel Más- son. Flytjendur: Manuela Wi- esler, Jósef MagnUsson, Roger Carlson, Reynir Sig- urðsson, AgUsta AgUstsdótt- 19.25 Aftanstund. Barnaþáttur með innlendu og erlendu efni. Söguhornið — Sagan af grlsinum góða, þula. Stefán Jónsson þýddi og endursagði. Sögumaöur Sigrlður Eyþórsdóttir. Myndir eftir Nlnu Dal. Kanlnan með köflóttu eyrun. 19Æ0 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Lifandi heimur. 8. Vatnallf. Breskur heimildamynda- flokkur I tólf þáttum. ir og kvenraddir Ur Kór Tón- listarskólans I Reykjavlk; Marteinn H. Friðriksson stjórnar. b. „Sonata per Manuela" ettir Leif ÞórarinSson. Manu- ela Wiesler leika á flautu. c. „Dimmalimm", þrjU planó- lög eftir Atla Heimi Sveins- son. Rögnvaldur Sigurjóns- son leikur. 17.10 SlðdegisUtvarp Tilkynningar 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.45 Málræktarþáttur Bergur Jónsson formaður orðanefndar rafmagnsverk- fræðinga flytur. 19.50 Horft I strauminn með David Attenborough kannar llfiö á vatnasvæöi Amazon- fljótsins og I ýmsum öðrum fljótum og stöðuvötnum um vlöa veröld. Þýöandi og þul- ur Oskar Ingimarsson. 21.50 Herstjórinn. Ellefti þáttur. Bandarlskur framhalds- myndaflokkur I tólf þáttum, gerður eftir metsölubókinni „Shogun" eftir James Cla- vell. Leikstjóri Jerry London. Aöalhlutverk: Richard Kristjáni Róbertssyni. (RU- VAK). 20.00 Utvarpssaga barnanna: „Gunnlaugs saga orms- tungu. Erlingur Siguröarson byrjar lesturinn. 2020 Hvað viltu verða? Starfskynningarþáttur I um- sjá Ernu Arnardóttur og Sig- rUnar Halldórsdóttur. 21.00 Frá Kanadlska Utvarpinu Planókonsert nr. 26 I D-dUr K.537 eftir Wolfgang Ama- deus Mozart. Murray Perahia leikur á pianó og stjórnar Hljómsveit þjóðlistasafnsins ( Ottava. 21.30 Að tafli Jón Þ. Þór flytur skákþátt. 22.00 Tónleikar 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Chamberlain, Toshiro Mifune og Yoko Shimada. Þýðandi Jón O. Edwald. 22.35 Úr safni sjónvarpsins. jslenskar dansmyndir. Sex dansar eftir Unni Guö- jónsdóttur sem jafnframt er stjórnandi. Dansarnir eru samdir við fimm islensk myndlistarverk og Ijóö eftir Tómas Guðmundsson. Stjón upptöku: Tage Amm- endrup. Aöur sýnt I sjónvarpinu I janUar 1977. 20.05 Fréttir I dagskrárlok. Dagskrá morgundagsins. Orö kvöldsins. 22.35 Tlmamót. Umsjónarmaður Ævar Kjart- asson. 23.15 NUtlmatónlist Þorkell Sigurbjðrnsson kynn- ir. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. 10.00—12.00 Morgunþáttur Stjórnandi: Kristján Sigur- jónsson. 14.00—15.00 Eftir tvö Stjórnandi: Jón Axel Ólafs- son. 15.00—16.00 Nú er lag Gömul og ný Urvalslög aö hætti hússins. Stjórnandi: Gunnar Salvars- son. 16.00—17.00 Vetrarbrautin Þáttur um tómstundir og Uti- vist. Stjórnandi: JUIIus Einarsson. 17.00—18.00 Tapaö fundið Sögukorn um soul-tónlist. Stjórnandi: Gunnlaugur Sig- fússon. Þriggja minútna fréttir sagð- ar klukkan: 11.00, 15.00. 16.00 og 17.00. SJÓNVARP MIÐVIKUDAGUR 24. aprll

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.