Morgunblaðið - 24.04.1985, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUft 24. APRÍL 1985
Afmælistónleikar hjá
Karlakór Selfoss
Selfoasi, 21. aprfl.
KARLAKÓR Selfoss heldur sér-
staka afmælistónleika í íþróttahús-
inu 25. apríl nk., á sumardaginn
fyrsta. Kórinn varð 20 ára 2. mars sl.
Söngkonan Anna Júlíana Sveins-
dóttir mun syngja meó kórnum á
tónleikunum.
Efnisskrá tónleikanna verður
eins vönduð og kostur er. Sungin
verða nokkur lög eftir tónskáld
sem búsett eru í Árnessýslu, m.a.
nýtt lag, Sumarkveðja, eftir Sig-
urð Ágústsson frá Birtingaholti
við texta Hannesar Hafstein. Þá
mun Anna Júlíana Sveinsdóttir
syngja nokkur einsöngslög með
kórnum.
Karlakórsmenn hafa tekið upp
nokkra nýbreytni við þessa tón-
leika sem er að allir áheyrendur fá
saeti í sal íþróttahússins en ekki á
áhorfendapöllum svo sem venja
hefur verið.
Söngskránni verður dreift i
verslanir á Selfossi og í nágrenni
nokkrum dögum fyrir tónleikana.
Auk tónleikanna á Selfossi
áformar kórinn að syngja að Flúð-
um 4. maí nk. Söngstjóri kórsins
er Sigfús ólafsson og undirleikari
Þórlaug Bjarnadóttir.
Sig. Jókk
Fjölskylduskemmt-
un í Grindavík
LEIKFÉLAG Grindavíkur heldur
fjölskylduskemmtun í Festi á
sumardaginn fyrsta klukkan
14.00.
Þar mun lúðrasveit Tónlistar-
skólans í Grindavík leika undir
stjórn Jóns Hjaltasonar, sýndur
verður barnasöngleikurinn „Vor-
draumur" eftir Margréti Sighvats-
dóttur og telpur úr Tónlistarskól-
anum leika á flautur undir stjórn
Svanhvítar Hallgrímsdóttur. Þá
munu nemendur úr Dansskóla
Heiðars Ástvaldssonar sýna dansa
undir stjórn Hörpu Pálsdóttur, og
„Húsmæðrakórinn" kemur fram í
lokin og syngur með börnunum.
I litla salnumí Festi verður
Handknattleiksdeild kvenna í
UMFG með kaffisölu frá klukkan
15.00 til klukkan 18.00.
Margrét Sighvatsdóttir, höfundur
söngleiksins „Vordraumur" er flutt-
ur verður í Festi á sumardaginn
fyrsta.
DASAMLEG BORG
SEMÞUATT^H
EKKIAUÐVELT MEÐ
■ AÐ YFIRGEFAH
Þegar til Salzburgar er komið, og bílaleigubíllinn
hefur verið afhentur, þá bíða þín óteljandi
ferðamöguleikar. Þér kann að reynast erfitt að slíta
þig frá Salzburg, sem er ein fegursta borg Evrópu.
En takist það, þá er aðeins fárra klukkustunda
akstur til Vínar, Innsbruck, Mílanó og Feneyja.
Fljúgðu með Flugleiðum til Salzburgar
og aktu á bílaleigubíl um Austurríki og Ítalíu
Vidkomustadurá suóurleió
2
LEITK) FREKARi UPPLÝSINGA
A SÖLUSKRIFSTOf UM FLUGLEIOA
HjA UMBOÐSMÖNNUM OG FERÐA
SKRIFSTOFUM.
FLUGLEIDIR