Morgunblaðið - 24.04.1985, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 24.04.1985, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1985 27 um og aukna þekkingu almenn- ings sem leitt hafi til þess að fólk leiti nú mun fyrr til læknis ef eitthvað bjátar á en áður tíðkað- ist. Krabbameinsfélag íslands hóf skipulega leit að leghálskrabba- meini árið 1964 með þeim árangri að dánartíðni þess sjúkdoms hefur minnkað og hefur félagið fengið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir þann árangur sinn. Skipuleg leit að brjóstkrabbameini hófst hins vegar ekki fyrr en árið 1973 og munu hin nýju röntgentæki vænt- anlega gera þá leit mun markviss- ari og árangursríkari þar sem greina má nú krabbameinið á frumstigi. Að auki er hægt að fá stækkaða mynd af meininu og staðsetja það nákvæmlega. Þegar meinið hefur verið staðsett er tek- ið úr því frumusýni. Ef ljóst er að krabbameinið er illkynjað er psrautað litarefni í meinið og eiga skurðlæknar þá auðveldara með að finna það og fjarlægja. Þetta gerir það að verkum að ekki er nauðsynlegt að fjarlægja stóran hluta brjóstsins, eða brjóstið allt, til að vera þess fullviss að öll meinsemdin hafi verið numin brott. Eins og málum hefur verið háttað hefur þrautalendingin oftast orðið sú að fjarlægja allt brjóstið, þar sem krabbameinið greinist of seint og hefur náð að breiðast út um líkamann. Síðbúin greining veldur því oft að læknis- aðgerðir verði umfangsmeiri en ella. „Það er okkar draumur sem að þessu störfum að unnt verði að nota þessi nýju brjóstaröntgen- tæki til rannsókna á öllum konum sem til okkar leita, hvort sem grunur leikur á að þær séu með brjóstakrabbamein eða ekki. Þess eru fjölmörg dæmi að krabbamein í brjósti sem alls ekki fannst við Frá fundi Krabbameinsfélags fslands á Egilsstöðum. hefðbundna skoðun með þreifingu hefur fundist við röntgentmynda- töku,“ sagði Snorri. Þá er í athugun að fá sérstök röntgenmyndatæki, farandtæki, sem nota má við brjóstkrabba- meinsleit í hinum dreifðu byggð- um landsins á tveggja ára fresti eða svo. Ætla má að hartnær 50% kvenna i slíkri skoðun þarfnist nákvæmari skoðunar í Leitarstöð- inni í Reykjavík. Að loknum framsöguerindum sátu þeir Gunnlaugur og Snorri fyrir svörum og voru margs spurð- ir. f stjórn Krabbameinsfélags Austurlands, sem er deild innan Krabbameinsfélags fslands, sitja nú Helga Snæbjarnardóttir, Gunnþórunn Hvönn Einarsdóttir og Snædís Jóhannsdóttir. Ólafur Framsögumenn á fundinum, læknarnir dr. Snorri Ingimarsson og dr. Gunn- laugur Snædal. Guðbjörg Lind sýnir á ísafirði fsifirAi, 21. april. Myndlistarsýningar eru nú í fullum gangi í Slunkaríki, sýn- ingarsal Myndlistarfélagsins á ís- afirði, en salurinn var opnaður fyrr í vetur. Guðbjörg Lind Jónsdóttir myndlistarmaður sýnir nú níu olíu- málverk sem hún hefur málað á þessum vetri. Guðbjörg Lind er að útskrifast úr Myndlista- og handíðaskólan- um nú í vor, og er þetta hennar fyrsta sýning. Mótív sýningarinnar, eru skepnur í abstraktformi, þar sem leikið er með liti og fleti. Guðbjörg Lind er fædd á ísa- firði 1961 dóttir hjónanna Ingu Ruth Olsen og Jóns Hermanns- sonar ljósmyndara og myndlist- armanns. Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu. Úlfar Morgunblaðið/ Júlíus Ragnhildur Helgadóttir, menntamálaráðhcrra, flutti ávarp við setningu Myndlistaþings 1985. notað og væri unnt að nýta það fyrir listamenn. Halldór kvað einnig athugandi hvort starfs- menn íslenskra sendiráða erlendis gætu ekki komið listamönnum á framfæri og greitt fyrir því að þeir eigi þess kost að sýna verk sín eða efna til tónleikahalds. Mikil gróska í myndlistinni Svava Jakobsdóttir rithöfundur og fyrrum alþingismaður rakti baráttu rithöfunda fyrir því að fá viðurkennt að ritstörf væru ekki hjáverk heldur fullt starf og nefndi þar stofnun Launasjóðs rit- höfunda árið 1975. Hún sagði mikla grósku einkenna myndlist í landinu og tímabært að stjórnvöld og aðrir sem peningum ráða legg- ist á sveif með myndlistar- mönnum til að hindra að kyrking- ur hlaupi í gróðurinn vegna skammsýni og skilningsleysis. Svava sagði að listamenn yrðu að gera sér grein fyrir þvi að laun til þeirra væru engin ölmusa. Þeir mættu aldrei bila í þeirri sann- færingu að í raun og veru ættu þeir það fé sem þeir væru að biðja um. Listaverkið sjálft væri háð lögmálum markaðarins um kaup og sölu, en starfið sem að baki liggur yrði aldrei metið. Svava Jakobsdóttir sagði að lok- um: „Tími, ferðalög, húsnæði, vinnustofur, efni til að vinna úr, alls þessa þarf listamaðurinn við en þeirra er tíminn mikilvægast- ur. Listamaðurinn getur keypt sér tíma með starfslaunum og öðru móti, en við fjárveitingu til haA og úthlutun verður réttur skiln- ingur á tíma listarinnar að vera fyrir hendi svo frumleikinn fái svigrúm." Frelsi, frumkvæði og baráttuvilji Síðastur frummælenda talaði Gunnsteinn Gíslason formaður Sambands íslenskra myndlistar- manna. Hann rakti aðdraganda að stofnun SÍM og sagði það hafa komið skýrt í ljós á fyrra Mynd- listaþingi 1981 að þörf væri á heildarsamtökum allra mynd- listarmanna. Árið 1982 hefði fé- lagið verið stofnað og fyrsti for- maður þess var Sigrún Guðjóns- dóttir. Gunnsteinn sagði að lista- menn þyrftu og ættu að lifa við sömu skilyrði og aðrir. Hér á landi væri áhugi manna á myndlist mikill og listamenn yrðu að taka þátt í að upplýsa, miðla og mennta almenning. Listin risi hæst ef frelsi, frumkvæði og baráttuvilji einstaklingsins fengi að njóta sín. Þegar frummælendur höfðu lok- ið máli sínu voru umræður og fundarmenn komu með fyrir- spurnir. Var þá m.a. rætt um starfslaun til listamanna, skatta- frádrátt þeirra sem listaverk keyptu, sérstakt húsnæði fyrir myndlistarmenn, stefnu eða stefnuleysi i menningarmálum og söluskatt af afsteypum högg- mynda. Eftir hádegi á föstudag tóku umræðuhópar til starfa og lögðu þeir niðurstöður sínar fram á jaugardag, en Myndlistaþingi 1985 ^vpr slitið síðari hluta dagsins. Klassískt kvöld í Arnarhóli í kvöld Marakvartettinn leikur kammertónlist undir borðhaldi. NÝR, STÓRKOSTLEGUR SÉRRÉTTASEÐILL í Koníaksstofunni Vegna fjölda áskorana syngur aftur fyrir gesti okkar í kvöld sigurvegarinn í söngvakeppni sjónvarpsins, Ingibjörg Guðjónsdóttir. Ingibjörg hefur stundað nám við Tónlistar- skóla Garðabæjar sl. 3 ár undir Ieiðsögn Snæ- bjargar Snæbjarnardóttur. Undirleik annast Olafur Vignir Albertsson. Vinsamlegast pantið borð tímanlega. Med ósk um a<) jiid eigid ánœgjulega kvöldstund. ARHARHÓLL Áhorni Hverfisgötu og Ingólfsstrœtis. Boróapantanir í sh na 18833. ...i ■i ■ i
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.