Morgunblaðið - 24.04.1985, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1985
45
Minning:
Bjarni Guðjónsson
framkvœmdastjóri
í dag fer fram frá litlu kapell-
unni í Fossvogi kl. 15 útför Bjarna
Guðjónssonar fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra heildverslunarinn-
ar Eddu hf. í Reykjavík. Bjarni
var Norðlendingur að ætt, nánar
tiltekið frá Leysingjastöðum í
Húnavatnssýslu. Kynni okkar hóf-
ust í marsmánuði 1938 er ég stóð
uppi atvinnulaus í Reykjavík en
undanfarin ár hafði ég verið í sigl-
ingum á skipum Eimskipafélags
fslands. Það var lítið um vinnu á
þessum árum og fleiri manns buðu
sig fram ef eitthvað starf var í
boði og var þá ekki spurt um
hvaða starf það var. Ég frétti af
tilviljun, að ráða ætti sölumann í
Eddu, sem var þá með stærri
heildverslunum hér í bæ. Þar sem
slíkt starf var eftirsótt, voru
margir um boðið.
Ég herti þó upp hugann og fór á
skrifstofuna sem þá var á Lauga-
vegi 3, 4. hæð, og hitti annan
framkvæmdastjórann, Karl Þor-
steins. Kvað hann það rétt, að til
stæði að ráða sölumann, en ekkert
yrði gert í þeim málum fyrr en
féiagi hans, Bjarni Guðjónsson,
kæmu úr söluferð sem hann væri í
úti á landi, og yrði það næstu
daga.
Eg kom aftur síðar og var þá
svo heppinn að hitta þá báða á
skrifstofunni, og tjáðu þeir mér
þá, að þeir hefðu, þrátt fyrir
margar umsóknir sölumanna,
ákveðið að ráða óvanan mann til
prufu.
Síðar, þegar ég kynntist
verkaskiptingu þeirra í firmanu,
finnst mér líklegast að Bjarni hafi
ráðið mestu um ráðningu mína
þar eða ég átti að taka við því
starfi sem hann hafði haft, að fara
í söluferðir út á land.
Starfsandinn í fyrirtækinu var
með ágætum, bæði hjá okkur
starfsmönnum svo og samband
okkar við yfirmennina. Bjarni var
alltaf til í ýmislegt glens með
okkur starfsmönnum, og fór með
okkur í skíðaferðir og fleira, og
Ingibjörg Jóm-
dóttir - Minning
í dag fer fram frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík útför ömmu
minnar Ingibjargar Jónsdóttur, en
hún lést þann 16. þ.m.
Amma fæddist 5. febrúar 1900.
Hún var því aldamótabarn eins og
sagt var, hafði því lifað tímana
tvenna. Ég man hún sagði eitt
sinn við mig; „Hugsaðu þér, ekki
hefði mig órað fyrir því að geta
setið heima í stofu og horft á sjón-
varp.“
Amma var yngst af tíu systkin-
um sem öll eru látin. Foreldrar
hennar voru Jón Runólfsson og
Geirlaug Björnsdóttir. Þau bjuggu
allan sinn búskap í Stuðlakoti við
Bókhlöðustíg.
Þann 4. október 1930 giftist
amma Lúðvík Bjarnasyni og áttu
þau þrjú börn. Afi lést 1956 þá
tæplega sextugur að aldri. Mikill
var missir ömmu þá. En nú hafa
þau hist aftur.
Ég vil þakka elsku ömmu minni
allar okkar samverustundir sem
ófáar urðu. Éinnig hversu góð hún
var mér alla tíð og syni mínum
sem hún kallaði „Gullið mitt“.
Kallið er komið, komin er nú stundin,
vina skilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
vann með okkur i afgreiðslu og við
sölu vara.
Karl sá aftur um peningahliðina
og var hinn trausti bakhjarl firm-
ans sem við gátum alltaf leitað til.
Ég vil og geta þess, að ég hygg
að sé mjög fátítt, að þegar við
starfsmennirnir, ég og Teitur
Finnbogason, ákváðum að stofna
nýtt fyrirtæki þá gerðust þeir
meðeigendur okkar, og lögðu fram
helming af hlutafénu og ábyrgðust
þar að auki fyrir okkur yfirdrátt í
Margs er að minnast, margt er hér að þakka
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast, margs er sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
banka þannig að við yrðum
starfshæfir. Þrátt fyrir það, að
fyrirtæki okkar ætlaði að versla
með líkar vörutegundir og þeir
voru með.
Ég vil þakka sérstaklega fyrir
þá velvild.sem þau hjón Elna og
Bjarni sýndu mér fyrir rúmum 30
árum þegar ég veiktist og þau
buðu mér að dvelja á heimili sínu í
Ameríku um 3ja mánaða skeið,
meðan ég leitaði mér lækninga.
En þar hafði hann stofnsett versl-
unarfyrirtæki sem einnig hét
Edda og var aðalforstjóri þess um
20 ára skeið. Það sýnir best hve
miklum söluhæfileikum hann var
gæddur, að geta náð fótfestu í
landi hinnar hörðu samkeppni. Ég
vil og minnast margra ánægju-
stunda á heimili þeirra hjóna í
samskiptum milli þeirra og minn-
ar fjölskyldu.
Þegar ég nú á gamals aldri lít
yfir farinn veg finnst mér árin
sem ég vann í Eddu vera eitt
skemmtilegasta tímabil í lifi
mínu.
Með þessum fátæklegu orðum
vil ég nú kveðja minn gamla
vinnuveitanda og félaga með þökk
fyrir margar góðar stundir og
votta konu hans, Elnu Guðjóns-
son, og dóttur þeirra, Björgu, og
hennar fjölskyldu mína innileg-
ustu samúð.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
Héðan skal halda, heimili sitt kveður
heimilisprýðin í hinsta sinn.
Síðasta sinni sárt er að skilja,
en heimvon góð i himininn.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi.
Hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar,
göngum vér nú héðan.
Fylgjum þér vinur, far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja í friðarskaut."
Blessuð sé minning ömmu
minnar.
Ingibjörg
Sprengja
sprakk
í húsi
Siemens
lhÍHHeldorr og BruHsel, 22. aprfl. AP.
ÖFLUG sprengja sprakk í skrif-
stofuhúsnæði rafeindafyrirtækisins
Siemens í DUsseldorf í dag. Olli
hún miklura skemmdura, en engan
mann sakaði. Á sunnudaginn
sprakk einnig sprengja við húsa-
kynni AEG-Telefunken í Brussel,
miklar skemmdir urðu á húsnæð-
inu og tveir menn særðust. Vinstri
sinnaðri öfgamenn lýstu ábyrgð á
tilræðunum á hendur sér.
Sprengjutilræðið í Dússeldorf
var annað tilræðið á jafn mörg-
um dögum þar sem ráðist var að
rafeindafyrirtækjum sem skipta
við herafla NATO: Siemens á auk
þess mikil viðskipti við vestur-
þýska herinn. Af þessum sökum
virðist augljóst að tilræðin eiga
sér pólitískar rætur.
Leiðrétting
Nafn Sigríðar Einarsdóttur
flugmanns misritaðist í þættinum
„Fólk í fréttum“ í blaðinu í gær
(stóð þar Sigrún). Biðst blaðið
velvirðingar á þeim mistökum.
Fréttabréf úr Jónshúsi í Kaupmannahöfn:
Innfæddir sem aðfluttir
langeygir eftir vorinu
JónfihÚHÍ, 12. apríl.
EKKI KEMUR vorið enn, þótt ís-
inn hafi horfið af vötnunum fyrir
fáum dögum, og eru margir, inn-
fæddir sem aðfluttir, orðnir lang-
eygir eftir hlýjum vindum. Svo bef-
ur líka ríkt vetrarkuldi á öðrum
sviðum, verkfallsaðgerðir verið
miklar og mætt gjarnan á þeim
sem sízt skyldi. Þannig hafa sjúkl-
ingar á nokkrum sjúkrahúsum
fengið mat sinn seint og illa og
hreinlæti verið lítt sinnt. Þekkjum
við bezt dæmin af Ríkisspítalan-
um, þar sem íslenzkir sjúklingar
dveljast oftast, þótt venjulega sé
öll umönnun og aðbúnaður þar til
mikillar fyrirmyndar og starfsfólk-
ið framúrskarandi alúðlegt við
sjúklingana og ættingja þeirra. —
Póstur kom í fyrsta sinn í dag eftir
2 vikna hlé, en öskutunnur eru
enn fullar og rúmlega það.
Um mánaðamótin síðustu var
fluttur einþátturinn Messi eftir
Eyvind Eiríksson lektor. Hlut-
verkin 3 léku Ingunn Jensdóttir
leikkona, sem nú dvelur í fræði-
mannsíbúðinni ásamt eigin-
manni sínum, Friðjóni Guð-
röðarsyni sýslumanni; höfundur-
inn og sonur, hans Eiríkur Ey-
vindsson, sem hyggst stunda
leiklistarnám. Tókst sýningin
vel, þott ekkert svið sé í félags-
heimilinu, og voru áhorfendur
margir.
Ein teikninga Hauks Dórs.
Hátíðaguðsþjónustan i St.
Pálskirkju á páskadag var fjöl-
sóttari en nokkru sinni. Að þessu
sinni stjórnaði og raddæfði
Kristjana Þ. Ásgeirsdóttir 20
manna kirkjukór íslendinga i
Kaupmannahöfn og lék á orgel-
ið. Einnig léku tveir kórfélagar
með Kristjönu, þau Sigriður
Helga Þorsteinsdóttir á fiðlu og
Gunnar Gunnarsson á flautu.
tvíleik við orgelið og að hluta
undir sönginn.
Um páskana var opin sýning á
teikningum hjá Hauki Dór
Sturlosyni á Tinggaarden i Hels-
inge. Færri komust þangað en
vildu vegna bensínskorts, en þó
komu margir gestir. Eru myndir
Hauks unnar með koli, tússi og
blýanti, alls 40 á sýningunni,
sem sett var upp í hinum vistl-
egu veitingasölu Þingbæjar. Var
sýningunni hrósað í dagblöðum
nágrannabæjanna. Er ástæða til
að minna íslenzka ferðamenn á
veitingastað Hauks Dórs og fjöl-
skyldu hans, sem verður opinn á
kvöldin og um helgar í sumar. —
Haukur Dór er nú á heimleið til
sýningar sinnar i Gallerí Borg i
Reykjavík, sem standa mun frá
20.-30. apríl.
Helga Bachmann leikkona fer
senn í hálfsmánaðar sýningar-
ferð um Norðurlönd með einleik-
inn um Gertrude Stein eftir
Marty Martin. Sýningar verða í
Jónshúsi föstudaginn 26. april
kl. 20. og eftir guðsþjónustu og
messukaffi sunnudaginn 28. apr-
il kl. 16.30. Er tilhlökkunarefni
að fá tækifæri til að sjá hér hina
athyglisverðu sýningu i túlkun
Helgu Bachmann og er búizt við
fjölmörgum áhorfendum.
G.L. Ásg.
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
HULL/GOOLE:
Dísarfell 6/5
Dísarfell 20/5
Dísarfell 3/6
ROTTERDAM:
Dísarfell 7/5
Dísarfell 21/5
Dísarfell 4/6
ANTWERPEN:
Dísarfell 8/5
Disarfell 22/5
Dísarfell 5/6
HAMBORG:
Dísarfell 26/4
Disarfell 10/5
Dísarfell 24/5
Dísarfell 7/6
HELSINKI/TURKU:
Hvassafell 2/5
FALKENBERG:
Arnarfell 2/5
LARVÍK:
Jan 29/4
Jan 13/5
Jan 28/5
Jan 10/6
GAUTABORG:
Jan 30/4
Jan 14/5
Jan 29/5
Jan 11/6
KAUPMANNAHÖFN:
Jan 1/5
Jan 15/5
Jan 30/5
Jan 12/6
SVENDBORG:
Jan 2/5
Jan 16/5
Jan 1/6
Jan 13/6
ÁRHUS:
Jan 2/5
Jan 16/5
Jan 1/6
Jan 13/6
GLOUCESTER,
MASS.:
Jökulfell 9/5
NEW YORK:
Jökulfell 10/5
PORTSMOUTH:
Jökulfell 12/5
HALIFAX, KANADA:
Jökulfell ...... 15/5
m.
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
Jarðarfarar-
skreytingar
Kistuskreytingar, krans-
ar, krossar.
Græna höndin
Gróörarstöö viö Hagkaup,
sími 82895.