Morgunblaðið - 24.04.1985, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 24.04.1985, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1985 46 mynd i. BREYTING HREINS TÍMAKAUPS MIÐAÐ VIO TAXTA MILU Arsfjorounca SKRffSTOfU KMLW MYND 2. YFIRVINNLIGREIÐSLUR SEM HLUTFALL AF DAGVINNULAUNUM SAMKV/EMT KJARARANNSÖKNARNEFND CZZl X Laun skrifstofufólks Morgunblaðið birti hinn 18. aprfl frétt frá ríkisstarfsmönnum í Bandalagi háskólamanna þar sem þeir vitna í nýtt fréttabréf Kjararannsóknarnefndar og segja í því upplýsingar „sem hafl mjög mikla þýðingu fyrir kröfugerð og málflutning BHMR“ fyrir ^Kjaradómi. Er síðan sagt, að „verulegt launaskrið hafl orðið hjá skrifstofufólki ASÍ á árinu 1984. Hækkun dagvinnulauna skrifstofumanna umfram taxta hafi orðið 25,2% og skrifstofu- kvenna 14,6%. Þetta sé umfram þær taxtahækkanir sem BHMR fékk á síðasta ári, og bætist því við þann mikla mun sem fyrir hafl verið,“ eins og segir í Morgunblaðinu 18. aprfl. Af þessu tilefni sendu þeir Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur Vinnuveitendasambandsins og Ásmundur Stefánsson, forseti Al- þýðusambandsins, frá sér fréttatilkynningu í nafni Kjararann- sóknanefndar föstudaginn 19. aprfl sl. Um þessa tilkynningu sagði Stefán Ólafsson, formaður samninganefndar BHM, í ^ Morgunblaðinu í gær, þriðjudag, að þeir Ásmundur og Vilhjálm- ur hafl fundið hjá sér þörf til að senda greinargerð inn í Kjara dóm á lostudaginn. „Ég tel þá greinargerð,“ sagði Stefán „með- al annars (hafa) haft áhrif á, að við fengum ekki metið launa- skrið sem varð hjá félögum í Alþýðusambandinu á síðasta ári. Við erum mjög óánægðir með að þeir skuli hafa blandað sér á þennan hátt í málið og teljum þessa afskiptasemi óskiljanlega.“ Morgunblaðið birtir hér umrædda greinargerð Kjara- rannsóknanefndar í heild ásamt með skýringamyndum. Greinargerð frá Kjararann- sóknanefnd Kjararannsóknanefnd vill taka eftirfarandi fram vegna frétta- tilkynningar BHM frá 17. apríl um laun skrifstofufólks í úr- taki nefndarinnar. 1. Upplýsingarnar sem dregn- ar voru fram eru aðeins miðað- ar við einn ársfjórðung, 4. ársfjórðung 1984. Vegna þess hve fáir skrifstofumenn eru í úrtaki nefndarinnar er var- hugavert að draga afdráttar- lausar ályktanir af niðurstöð- um aðeins eins ársfjórðungs. Á mynd 1 er sýnt hvernig laun karla í skrifstofustörfum hafa breyst miðað við taxta síðan hafin var birting þessara upp- lýsinga. Þar kemur m.a. fram að nokkrum sinnum hafa laun hækkað minna en kauptaxtar. Þannig má að hluta skýra 25% hækkun launa umfram taxta milli 4. ársfjórðungs 1983 og 4. ársfjórðungs 1984 með því, að á síðari hluta ársins 1983 hækk- uðu laun skv. úrtakinu minna en taxtar. Aðilar Kjararann- sóknanefndar hafa m.a. af þessum ástæðum tamið sér varúð í túlkun á niðurstöðum að því er einstaka ársfjórðung varðar. 2. Launakerfi karla í skrifstofustörfum á almennum markaði virðast almennt vera þannig upp byggð, að sérstakar greiðslur fyrir yfirvinnu minnki hlutfallslega eftir því sem stjórnunarleg ábyrgð er MYND 4. YRRVINNUGREIÐSLUR SEM HLUTFALL AF DAGVINNULAUNUM SAMKVÆMT LAUNAKÖNNUN HAGSTOFU An StJ.t*o Obynyl ......1 t~Z— MYNO 5. YRRVINNUGREIOSLUR SEM HLUTFALL AF DAGVINNULAUNUM SAMKVjEMT launakönnun HAGSTOFU MJ-N, SIJ.Nq ðby^fur öbyryd Mol 1984 MYND 7. YFIRVINNUGREIÐSLUR SEM HLUTFALL AF DAGVINNULAUNUM hjA hAskölamönnum HJÁ RlKI I-------1 X meiri, þrátt fyrir að í flestum tilfellum sé eflaust unnin yfir- vinna. Á almennum vinnu- markaði er þannig greinilega algengt, að fólk með stjórnun- arábyrgð sé á föstum launum, sem fela í sér greiðslur fyrir yfirvinnu. Þannig er mismunur dagvinnu- og heildarlauna deildar- og skrifstofustjóra á höfuðborgarsvæðinu sam- kvæmt athugun Kjararann- sóknanefndar einungis 4% samanborið við 25% mismun í almennum skrifstofustörfum. Mynd 2 sýnir þennan mun í úr- taki nefndarinnar. Könnun Hagstofunnar á laun- um skrifstofufólks gefur það sama til kynna, en niðurstöður hennar eru sýndar á myndum 3—5, þar sem fram koma hlut- fallslegar yfirvinnugreiðslur í einstökum störfum. Þar kemur m.a. fram að í þeim þriðjungi starfa sem hafa hlutfallslega lægstar sérstakar greiðslur fyrir yfirvinnu eru 5 störf af 8 með stjórnunarlega ábyrgð. í þeim þriðjungi starfa sem hafa hlutfallslega hæstar sérstakar greiðslur fyrir yfirvinnu er ein- ungis eitt starf af átta með stjórnunarlega ábyrgð. Sambærileg könnun hefur ekki verið gerð fyrir ríkisstarfs- menn en margt bendir hins vegar til þess að þar sé hið raunverulega launakerfi þver- öfugt byggt upp. Þar virðist svo sem sérstakar greiðslur fyrir yfirvinnu fari vaxandi með aukinni stjórnunarlegri ábyrgð. Á myndum 6 og 7 er sýnt hvað sérstakar greiðslur fyrir yfirvinnu eru hlutfalls- lega miklar hjá ýmsum starfs- hópum háskólamanna hjá rík- inu. Þar má fá vísbendingu um þennan grundvallarmun á raunverulegri uppbyggingu launakerfa á almennum mark- aði og hjá ríkinu. Meiri rann- sóknir þarf til þess að staðfesta þetta frekar. En sé hægt að staðsetja þennan grundvall- armun verður samanburður á skráðum dagvinnulaunum einn og sér, milli starfsfólks á al- mennum markaði og hjá hinu opinbera ónothæfur sem vís- bending um kjaramun í þessum mismunandi launakerfum. Samanburður á heildarlaunum er jafnframt nauðsynlegur til þess að fá sem réttasta mynd af kjaramun. Kjararannsóknarnefnd hefur enn ekki fengið aðgang að sam- anburðarkönnun Þjóðhags- stofnunar á tekjum háskóla- manna í þjónustu ríkisins og á almennum vinnumarkaði. Samkvæmt upplýsingum fjöl- miðla komu fram í þeirri könn- un vísbendingar um, að há- skólamenn í þjónustu ríkisins hafa frekar tækifæri til þess að vinna aukastörf hjá öðrum vinnuveitendum en háskóla- menn á almennum vinnumark- aði. Þennan þátt má ekki und- anskilja við samanburð á kjör- um hópanna. 3. Óvenjulega hraðar tækni- breytingar hafa orðið í skrif- stofustörfum á undanförnum árum og breytt samsetningu þeirra. Tæknimenntuðu fólki og fólki með sérþekkingu á nýj- um sviðum hefur fjölgað mjög, en hlutfallsleg fækkun hefur orðið í þeim hópum sem vinna handverk. Afleiðing þessa er að sjálfsögðu hækkun meðallauna skrifstofufólks. Þessi breyting er hins vegar þess eðlis, að ekki er rökrétt að kenna þennan launaauka við yfirborganir eða launaskrið. Reykjavík 19. apríl 1985, f.h. Kjararannsóknarnefndai. Vilhjálmur Egilssoi Ásmundur Stefánsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.