Morgunblaðið - 24.04.1985, Síða 47

Morgunblaðið - 24.04.1985, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 24. APRÍL 1985 47 þungA MIÐJAN FINNBOGI MARINÓSSON JENS ÓLAFSSON Eitt var það sem mér fannst sameÍKÍnlegt öllum hljómsveit- unum þetta kvöld en það var að söngur var æði misjafn. Virðist mér sem skortur sé á góðum söngvurum og mæli ég með að hljómsveitir sleppi frekar söng en að láta hann draga sig niður. Þegar Ofris hafði lokið flutn- ingi sínum var hafist handa um að telja atkvæðin og á meðan spiluðu Dúkkulísurnar. Mikil eftirvænting ríkti meðal áhorf- enda hver úrslitin yrðu og sýnd- ist mér sem heilu skips- og rútu- farmarnir af áhangendum hefðu fylgt hljómsveitunum. Úrslitin urðu síðan þau að Special Tre- atment var efst með 2625 stig og í öðru sæti var Jónas með 2053 stig. Þessar tvær hljómsveitir keppa síðan á úrslitakvöldinu. í þriðja sæti var Ofris með 1833 stig, fjórða var Fidus með 1689 stig, fimmta var Voice með 1513 stig og neðst var Autobahn með 1483 stig. Annað kvöld verður síðan tilraunakvöld númer þrjú og þær hljómsveitir sem koma þá fram eru: Fásinna, No Time, Falskir Tónar, F-929 og Trinity. Gestahliómsveit verður Rik- shaw. A föstudagskvöld verða svo úrslitin og hvet ég alla til að mæta bæði þessi kvöld. Annað kvöld Músíktllrauna ’85 Tvær stuttar plötufréttir að hefur frést að hljóm- sveitin Grafík sé um þessar mundir á leið inn í hljóðver til upptöku á efni á nýja plötu. Áætlað er að platan komi út í júní og verður það fjórða plata sveitarinnar en síðasta plata þeirra, Get ég tekið sjéns, vakti umtaisverða athygli enda mjög góð í alla staði. Ég hef einnig fengi þær fréttir að væntanleg hljómplata Drýsils hafi tafist ögn í framleiðslu og komi því seinna út en áætlað var í fyrstu. Biðin verður þó vonandi ekki löng því vonast er til að hún komi út fljótlega eftir mánaða- mótin. þrjú lögin voru allþokkalega spiluð fyrir utan hörmulegan söng, en síðasta lagið hefði alveg mátt missa sig. Síðasta hljómsveit kvöldsins var Ofris frá Keflavík. í Ofrisi eru þeir Þröstur Jóhannesson (gítar + söngur), Magnús Ein- arsson (bassi) og Helgi Víkings- son (trommur). Tónlist þeirra var frekar hrá og minntu þeir mig nokkuð á U2. Síðastliðið fimmtudagskvöld var haldið annað tilrauna- kvöld Músíktilrauna ’85. Þetta kvöld mættu 6 hljómsveitir til leiks auk gestahljómsveitar kvöldsins sem í þetta sinn var hljómsveitin Dúkkulísurnar. Fyrsta hljómsveitin þetta kvöld var Voice úr Reykjavík. Hljómsveitina skipa Davíð Traustason (söngur), Jóhann Álfþórsson (hljómborð), Gunnar Eiríksson (gítar), Össur Haf- þórsson (bassi) og Einar Ormsson (trommur). Það hefur verið sagt um þessa stráka að tónlist þeirra minni á Sex Pistols þegar sú hljómsveit var upp á sitt besta. Ég er ekki það vel að mér í tónlist Sex Pistols að ég þori að fullyrða eitt eða annað þar um en allavega spil- uðu strákarnir í Voice geysi- kröftugt og hrátt rokk. Spila- mennskan var ágæt og vakti það athygli að trommuleikarinn og bassaleikarinn voru báðir örv- hentir. Hljómsveit númer tvö kom frá Hveragerði og nefndist Jónas. Jónas skipa Ágúst Jóhannsson (bassi), Magnús Snorrason (gítar + söngur), Birgir Sveinsson (trommur) og Heimir Eyvindar- son (hljómborð). Tónlist þeirra var að mörgu leyti frumleg og nefni ég þar sérstaklega fyrsta lagið sem þeir fluttu. Hljóðfæra- leikur var allgóður og þá sér- staklega gítar og hljómborð. Næsta hljómsveit, Fídus, var einnig utan af landi, nánar til- tekið frá Akranesi. Fídus skipa Theodór Hervarðsson (hljóm- borð), Logi Guðmundsson (trommur), Jón Páll Pálsson (bassi), Ingimundur Sigmunds- son (gítar) og Anna Halldórs- dóttir sá um söng. Hljóðfæra- leikur var góður og lögin ágæt, þó fannst mér þau heldur keim- lík. Næst til að stíga á svið var svo sigurhljómsveit kvöldsins, Spe- cial Treatment frá Húsavík. Spe- cial Treatment skipa Jón I. Valdimarsson (bassi), Kristján Halldórsson (hljómborð + söng- ur), Sveinbjörn Grétarsson (gít- ar) og Gunnar Gunnarsson (trommur). Hljóðfæraleikur hjá Sérstök meöferð í fyrsta sæti Morgunblaöið/ Bjarni Special Treatment Kristján Halldórsson, Gunnar Gunnarsson, Jón Valdimarsson og Sveinbjörn Grétarsson. Gestahljómsveit kvöldsins, Dúkkulísurnar. þeim var góður og lögin nokkuð góð en mér fannst númer þrjú, sem ég náði ekki hvað hét, held- ur væmið og var ég ekki einn um þá skoðun. Á eftir Special Treat- ment kom ung hljómsveit úr Reykjavík og kallaðist hún Autobahn. Autobahn skipa Pét- ur Einarsson (hljomborð), Árni Gústafsson (hljómborð + söngur) og Jóhann Jóhannsson (hljóm- borð + trommuheili). Þeir piltar höfðu aðeins æft í viku og tel ég að þeim hafi ekki veitt af nokkr- um vikum til viðbótar. Fyrstu Hundaræktarfélag íslands: Kaffisala og hlýðni- sýning Hundaræktarfélag íslands gengst fyrir kaffisölu á fimmtu- dag, sumardaginn fyrsta, í Þróttheimum við Sæviðarsund. í tilefni af kaffisölunni verða tvær sýningar á vegum hlýðniskóla fé- lagsins þar sem starfsemi skól- ans verður kynnt. Kaffisalan hefst kl. 14.30 en hundarnir og eigendur þeirra úr hlýðniskólanum sýna kl. 15.30 og 16.30. Vörubfll með gröfu valt VÖRUBIFREIÐ með traktorsgröfu á pallinum valt um miðjan dag á laug- ardag á þjóðveginum við SHELL- skálann við sporð Borgarfjarðarbrúar í Borgarnesi. Vörubifreiðin og grafan eru mikið skemmd, jafnvel ónýt, en ökumaðurinn meiddist Iftið. Bifreiðin var á norðurleið. Hún valt í beygjunni við SHELL-skál- ann en að sögn lögreglunnar i Borgarnesi er ekki vitað um ástæð- ur óhappsins. ökumannshús bif- reiðarinnar dældaðist mikið við veltuna og talið er að krani, sem staðsettur er aftan við húsið, hafi komið i veg fyrir að það legðist alveg saman og bjargað því að ekki fór verr. Gert var að meiðslum ökumannsins, sem ekki voru taiin alvarleg, á heilsugæslustöðinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.