Morgunblaðið - 09.05.1985, Side 23

Morgunblaðið - 09.05.1985, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MAl 1985 23 Idnaðarráðherra á Sauðárkróki: Sætti mig ekki við að verðbólgan verði hærri en 18% SaaAárkróki 6. nuí. Á FUNDI sem Sjálfstæðisflokkur- inn bodaöi til hér í gær sagði Sverr- ir Hermannsson iðnaðarráðherra að hann teldi 99% líkur á að Al- þingiskosningar yrðu í haust. Ef eitthvað skyldi á vanta þegar þar að kæmi til að þessi spádómur hans rættist, hét hann því að sjá sjálfur um herslumuninn. Ráðherrann kvað sennilegast að kosningarnar yrðu á tímabil- inu 20. til 30. október nk. Þessum afdráttarlausu yfirlýsingum fylgdi ráðherrann eftir af mikl- um þunga, svo fundarmönnum duldist ekki að hér var alvara á ferðum. Sverrir sagði að glíman við verðbólguna væri höfuðverk- efni ríkisstjórnarinnar og að hann myndi ekki sætta sig við að hún yrði hærri en 15%, eða í mesta lagi 18%. Næðust ekki þessi markmið, þýddi það hrun atvinnufyrirtækjanna og í kjöl- farið kæmi svo atvinnuleysið, sem væri eitt hið mesta böl sem á þjóðina gæti lagst. Sturla Böðvarsson sveitar- stjóri í Stykkishólmi var annar frummælandi á fundinum. Hann gerði að umtalsefni samþykktir síðasta landsfundar Sjálfstæðis- flokksins og sagði flokkinn hafa markað mjög skýra og afdrátt- arlausa stefnu sem fylgja yrði eftir af festu. Sturla gerði hús- næðismálin einkum að umræðu- efni, sem hann taldi mjög brýnt að leysa með viðunandi hætti sem fyrst. Að loknum framsögu- erindum urðu nokkrar umræður og var fyrirspurnum beint til frummælenda. Kári. Eldur í mannlausu húsi ELDUR kom upp í gömlu timb- urhúsi að Fálkagötu 27 um tvö- leytið á þriðjudag og logaði glatt þegar slökkviliðið í Reykjavík kom á vettvang. Húsið, sem er hæð og ris, hefur staðið autt síðustu árin, fólki i nágrenninu til ama. Búið er i áföstu húsi, en slökkviliðinu tókst að koma í veg fyrir að eld- ur læsti sig í það. Slökkvistarf gekk greiðlega og til öryggis voru tveir slökkvi- liðsmenn á vakt eftir að slökkvistarfi lauk. Grunur leik- ur á að kveikt hafi verið í hús- inu. Rafmagn er ekki leitt í hús- ið, en mikið drasl hefur safnast þar í gegn um árin. Morgunblaftid/Júlfus Myndbandstæki með omissandi yfirburði i Nú hefur Philips rutt sér til rúms á VHS markaðnum með splunkunýtt myndbandstæki sem skarar fram úr hvað snertir gæði og áreiðanleika. Phillps VR 6460 er búið öllum hefð- bundnum möguleikum myndbandstækja og tveimur nýjungum sem eiga eftir að þykja ómissandi hjá öllum vídeógeggjur- um. 1. Fijótandi haus sem „eltir" myndbandið og kemur í veg fyrir bjögun myndarinnar, jafnvel þó spólan sé orðin lúin og þreytt eftir endalausan snúning. 2. Sjáifleitari sem finnur besta útsend- ingarstyrk hverju sinni og losar þig þannig við að snúa of litlum tökkum með „of stórum" fingrum. Ef þú vilt fá afbragðsmyndgæði út úr myndbandstækninni er öruggast að tengja það við sjónvarp frá stærsta sjónvarpstækja- framleiðanda í heimi: Philips. kr. 46.900.-stgr. Helmilistæki hf HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.