Morgunblaðið - 09.05.1985, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGURD. MAÍ 1985
Fiskeldi á íslandi
framtíð eða hvað?
— björt
— eftir Jónas
Matthíasson
Þessi greinarstúfur er ritaður á
Sumardaginn fyrsta. Á þeim degi
eru menn jafnan bjartsýnir. Þetta
á við um mig líka, ef morgundag-
urinn er undanskilinn, því þá
verður laxaseiðunum okkar slátr-
að vegna nýrnaveiki. Um annað er
því miður ekki að ræða.
Dagurinn í dag og morgundag-
urinn gefa mér því alveg sérstakt
tilefni til hugleiðinga um stöðu og
framtíð fiskeldis. Eg kýs að tak-
marka þessar hugleiðingar að
mestu við þátt stjórnvalda, af-
skipti þeirra annars vegar og að-
stoð þeirra hins vegar.
Ríkisafskipti
Fiskeldi á hvergi heima í stjórn-
kerfinu og þörf er á nýrri löggjöf í
stað gamallar og úreltrar. Þetta er
sjálfsagt satt og rétt, en hversu
viðamikil þarf þessi löggjöf að
vera? Menn segja líka að það vanti
alla stjórn og stefnumótun í fisk-
eldismálum og vísa þá gjarnan til
stjórnvalda. Hvert er þeirra hlut-
verk?
Ég hef það fyrir satt að land-
búnaðarráðuneytið sé ekki í vafa í
þessum efnum. Þar hefur verið
samið frumvarp, allsendis án sam-
ráðs við fulltrúa atvinnugreinar-
innar. Frumvarið gerir ráð fyrir
eftirfarandi:
— Landbúnaðarráðuneytið fer
með yfirstjórn fiskeldismála.
— Stofna skal Fiskeldisráð, 7
manna, þar af 1 frá landssam-
tökum atvinnugreinarinnar.
— Til þess að ráðið verði nú ekki
mát skal það hafa sér til halds
og trausts 22 manna ráðgjafar-
nefnd, þar af 3 frá landssam-
tökunum.
— Fiskeldisfyrirtækjum er skylt
að hafa með sér samtök og
landbúnaðarráðherra skal
staðfesta samþykktir þeirra.
— Landbúnaðarráðherra er heim-
ilt að veita einkarétt á afurða-
sölu á erlendum markaði.
— Innheimta skal 0,5% veltusk-
att.
— Stofna skal nýjan sjóð, Fisk-
eldissjóð. Landbúnaðarráð-
herra skal þar fara með yfir-
stjórn og meðal annars ákveða
vexti og lánstíma.
Ég læt þessa upptalningu
nægja. Hún trlar sínu máli svo
ekki verður um villst. Það vantar í
raun og veru ekki nema eitt
ákvæði til þess að kóróna verkið:
— Stofna skal fyrirtæki, Fiskeldi
ríkisins, og skal öllum fyrir-
tækjum, sem nú stunda fisk-
eldi skylt að afhenda því eigur
sínar.
Ég set þetta viljandi fram á
fremur kaldhæðnislegan hátt til
þess að leggja áherslu á þá „land-
búnaðarseringu", sem frumvarp
þetta felur í sér. Auðvitað er einn-
ig í því að finna góð og gegn
ákvæði, um það skal ekki deilt.
Það er sjálfur andinn sem er ekki
í samræmi við yfirlýsta stefnu
stjórnvalda og alls ekki að skapi
fiskeldismanna, vil ég leyfa mér
að fullyrða.
Er það svona sem best verður
stuðlað að nýsköpun í atvinnulíf-
inu?
Er þetta það sem kallað er upp-
stokkun og einföldun á sjóðakerf-
inu?
Er þetta til þess fallið að draga
úr pólitísku valdi við ráðstöfun
fjármagns og auka mikilvægi arð-
semissjónarmiða? Hvar er sjálfs-
forræði atvinnugreinarinnar?
Hvað höfum við eiginlega til
saka unnið, að ekki þyki annað
fært en að hneppa okkur í þessa
fjötra? Mér er spurn!
Það er Ián í óláni að sjávarút-
vegsráðuneytið telur sig líka hafa
þarna nokkurra hagsmuna að
gæta og vil því vera haft með í
ráðum. Þess vegna mun frum-
varpsnefnan aldrei sjá dagsins
ljós í óbreyttri mynd. En hvað tek-
ur við? Ekki er útilokað að I
sjávarútvegsráðuneytinu kunni
menn líka að setja saman frum-
vörp, jafnvel hjálparlaust. Er
nokkur trygging fryir því að
bjargvætturinn „Shanghæi" okkur
ekki? Það er eins gott að vera við
öllu búinn.
Ég held að togstreita tveggja
ráðuneyta um fiskeldi í landinu
„Fiskeldi á hvergi
heima í stjórnkefínu og
þörf er á nýrri löggjöf í
stað gamallar og úreltr-
ar. Þetta er sjálfsagt
satt og rétt, en hversu
viðamikil þarf þessi
löggjöf að vera? Menn
segja líka að það vanti
alla stjórn og stefnumót-
un í fiskeldismálum og
vísa þá gjarna til stjórn-
valda. Hvert er þeirra
hlutverk?“
geti leitt til ófarnaðar og að öllum
sé fyrir bestu að halda því utan
við hinar hefðbundnu atvinnugr-
einar, að minnsta kosti fyrst um
sinn. Þá að það mun meiri lífsvon.
En hvað á þá að gera? Ekki getur
fiskeldi verið eins og útlagi í þjóð-
félaginu, utan við lög og rétt. For-
sætisráðherra hefur réttilega sagt
að hlutverk stjórnvalda sé fyrst og
fremst að skapa jarðveg fyrir
nýsköpun í atvinnulifinu. Það er
laukrétt. Okkur vantar ekki
gaddavírsgirðingu utan um harð-
bala heldur frjósaman, skjólgóðan
akur mót suðri.
Ég held að það sé heppilegast,
úr því sem komið er, að forsætis-
ráðherra fari með málefni fiskeld-
is fyrst um sinn til að koma í veg
fyrir að ráðuneytatogstreita verði
dragbítur á eðlilega þróun.
Jónas Matthíasson
Forsætisráðherra ætti að skipa
nefnd, sem til að byrja með hefði
eftirfarandi verksvið:
— Semja reglugerð um sjúkdóma-
varnir.
— Semja reglugerð um leyfisveit-
ingar til fiskeldis.
— Semja lagafrumvarp er kveði á
um að forsætisráðuneytið fari
með málefni fiskeldis og þau
atriði önnur í gildandi lögum,
sem með einum eða öðrum
hætti standa í vegi fyrir eðli-
legri þróun eða eru úrelt orðin.
Nefndin verði skipuð þremur
fulltrúum ríkisvaldsins og tveim-
ur fulltrúum Landssambands fisk-
eldis- og hafbeitarstöðva og ljúki
störfum fyrir haustþing.
Háð árangri þessarar vinnu,
yrði nefndinni síðan falið að
semja reglugerðir um fiskeldis-
rannsóknir, menntunarmál og
framleiðslueftirlit.
RíkisadstoÓ
Ég vitnaði í orð forsætisráð-
herra um jarðveg fyrir nýsköpun.
Til þes að jarðvegurinn sé frjó-
samur þurfa að mínu mati að vera
í honum eftirfarandi næringar- og
bætiefni:
Hið nýja raðhús með þremur íbúðum, sem afhent var á dögunum. Morgunbla&iJ/Albert Kemp
— Athafnafrelsi.
— Stöðugleiki í verðlags- og geng-
ismálum.
— Fjármagnsfyrirgreiðsla í formi
langtímalána og þar til sú til-
trú hefur skapast að veðsetn-
ing fiskeldisstöðvanna sjálfra
sé nægileg trygging einnig
lánaábyrgðir. Ella geta engir
komið upp fiskeldisstöðvum,
nema þá helst ríkið sjálft og
samvinnufélög. Einkaframtak-
ið á þarna engan möguleika
eins og ástandið er í þjóðfélag-
inu í dag.
— Aðflutningsgjalda- og sölu-
skattsfrelsi. Fiskeldi framleið-
ir útflutningsvörur í skefja-
lausri samkeppni við útlend-
inga. Við verðum að sitja við
sama borð og þeir.
— Hagkvæmari raforkutaxtar,
sem taka tillit til söluspennu
og þess stóriðjumynsturs sem
á notkuninni er. Verðjöfnun-
argjald og söluskatt á að fella
niður.
— Auknar skattaívilnanir vegna
hlutafjárframlaga og arðs.
Ella næst ekki saman nægilegt
hlutafé.
— Tímabundnar skattaívilnanir
til handa nýstofnuðum fyrir-
tækjum, t.d. niðurfelling tekju-
skatts, eignaskatts, launa-
skatts og aðstöðugjalds í 5 ár.
Fleira mætti sjálfsagt nefna. Ég
læt þetta þó duga að sinni.
Nokkur ofandreindra næringar-
og bætiefna eru þegar fyrir hendi,
annað væri rangfærsla. Nokkur
eru í framleiðslu, ef svo má segja,
og enn önnur í athugun. Víðast
hvar er góður vilji til að rétta fisk-
eldi þá hjálparhönd sem það
þarfnast.
Það er því, þrátt fyrir nýrna-
veiki og þrátt fyrir frumhlaup við
samningu lagafrumvarps, fyllsta
ástæða til að ætla að framtíð ís-
lensks fiskeldis sé björt.
Gleðilegt sumar!
Höfundur er framkræmdastjóri hjá
Fiskeldi Grindavíkur hf.
Fáskrúðsfjörður:
Nýjar íbúðir í
verkamanna-
bústöðum
Fáskrúðsfírði, 1. maí.
1 DAG fór hér fram afhending á
þremur íbúðum í raðhúsi til stjórnar
verkamannabústaða. Verktaki var
Þorsteinn Bjarnason, húsasmíða-
meistari hér á staðnum. Húsið er
teiknað á tæknideild Húsnæðis-
málastjórnar.
Allur frágangur hússins er hinn
vandaðasti en eftir er að ljúka frá-
gangi lóðar og verður því lokið I
sumar. Ætlun stjórnar verka-
mannabústaða er að afhenda
væntanlegum íbúum íbúðirnar
sem allra fyrst.
Albert
FALCONCREST
Frábærir framhaldsmyndaþættir
2 nýir þættir koma á hverjum
fimmtudegi
Fást á öllum helstu myndbandaleigum landsins
Dreifing: MYNDBÖND HF.
Skeifunni 8. Símar 686545 — 687310.