Morgunblaðið - 09.05.1985, Side 26
26
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 9. MAl 1985
Böggull meö dreifibréfum til íslendinga opnaöur í gær:
Böggull meö dreifibréfum til ís-
lensku þjóðarinnar, sem breska, síð-
an bandaríska herstjórnin og ríkis-
stjórn íslands létu prenta á stríðs-
írunum var opnaður af Ólafi As-
geirssyni þjóðskjalaverði I gær.
Þessi böggull hafði aðeins einu sinni
áður verið opnaður, af dr. Þór
Whitehead, sagnfræðingi, árið 1973.
Prentuð voru 300 eintök fyrir allt
landið, en í bögglinum voru 12 sýn-
ishorn af hverju bréfi. Bréfunum átti
að dreifa til almennings ef árás ann-
ars ríkis væri yfirvofandi og kemur
fram í þeim að herlög hafi tekið
gildi. Fjörutíu ár eru síðan bréfin
voru innsigluð, en þau voru í vörslu
utanríkisráðuneytisins þar til (
febrúar 1965 en þá fékk Landsbóka-
safnið þau til varðveislu.
í fyrra dreifibréfinu, sem er frá
1940 og undirritað af yfirherfor-
ingja Breta hér á landi segir:
mögulegt er.
H.O. Curtis, hershöfðingi, yfir-
herforingi á íslandi."
Með komu Bandaríkjahers til
landsins 1941 var samið nýtt dreifi-
bréf.
„Boðskapur til íslenzku þjóðarinn-
ar!
Alvarleg árás með vopnavaldi er
yfirvofandi á íslandi.
Ég, Wm.S. Key, yfirhershöfðingi
yfir Bandaríkjahernum á tslandi,
lýsi þess vegna yfir, samkv. umboði
forseta Bandaríkjanna og með
skírskotun til samkomulags þess, er
gert var 1. júlí 1941, milli ríkis-
stjórnar íslands og ríkisstjórnar
Bandaríkjanna, þar sem Bandaríkj-
unum er falin hervernd íslands, að
ég, vegna aðstæðnanna, verð að
hafa full og algjör yfirráð, sam-
kvæmt hernaðarlögum, yfir öllum
mönnum og munum á Islandi. ís-
lenzku ríkisstjórninni mun verða
Hulunni
svipt af
eftir 40 ára
„Boðskapur um herlög!
Hér með er svo fyrir mælt, að
allir á íslandi, menn og konur, is-
lenzkir sem erlendir rfkisborgarar,
skuli háðir herlögum, og er sam-
kvæmt þeim hægt að rannsaka mál
þeirra fyrir herrétti, án áfrýjun-
arheimildar til borgaralegra
dómstóla. Jafnframt getur yfirher-
foringinn á Islandi ráðstafað öllum
mönnum og eignum þeirra.
Samkvæmt þessum boðskap hef-
ur yfirherforinginn vald til þess að
fyrirskipa þær reglur og þau
ákvæði, sem hann telur nauðsyn-
legt, með algjörri heimild brezku
ríkisstjórnarinnar, og að fela það
vald hverjum þeim mönnum, er
hann óskar. Þetta vald felur hann
hér með yfirforingjanum yfir
norð-austurhluta landsins (Akur-
eyri) og yfirforingja Seyðisfjarðar-
umdæmis.
Þessi boðskapur er gerður í bezta
skyni gagnvart íslendingum og ís-
lenzku ríkisstjórninni, sem hér með
eru í eigin þágu aðvöruð um, að því
mun verða stranglega framfylgt, að
farið verði eftir fyrirskipunum her-
stjórnarinnar. Jafnframt eru menn
fullvissaðir um það, að þeir, sem
hegöa sér samkvæmt reglum þeim
og ákvæðum, sem sett eru sam-
kvæmt boðskap þessum, verða látn-
ir sæta eins litlum óþægindum og
sýnd fyllsta virðing, enda er það
skylda mín að vernda öryggi henn-
ar og sjálfstæði.
Til þess aö hægt sé að hafa i
frammi allar þær varúðarreglur til
varnar landi yðar, er með þarf, er
mér nauðsynlegt, við framkvæmd
skyldustarfa minna, að beita hinum
ströngustu hernaðarreglum. Ég
fullvissa yður um, að þrátt fyrir
beitingu slíkra hernaðarreglna, þá
skal tekið fyllsta tillit til manna og
muna, og ekki skulu lög yðar og at-
hafnalíf né daglegt líf skert frekar
en brýnasta nauðsyn býður. Vegna
ðryggis yðar er afar áríðandi, að
allir gæti þess að trufla í engu her-
menn Bandaríkjahers, eða fram-
kvæmdir þeirra, og láti eignir setu-
liðsins óáreittar, þar sem herinn
verður óskiptur að geta gefið sig að
því að ráða niðurlögum óvinanna.
Þess vegna skora ég á alla þjóð-
holla Islendinga að styðja mig og
þá, sem vinna undir minni stjórn,
og hlýða boðskap þeim, fyrirskipun-
um og reglum, sem ég kann að
setja. Öryggi okkar allra, Islend-
inga jafnt og Bandaríkjamanna,
krefst þess, að þeir, sem gera til-
raun til að svíkja stjórn sína með
því að hjálpa óvinunum eða með því
að trufla framkvæmdir ameríska
hersins, sæti refsingu samkvæmt
herlögum og venjum.
Ólafur Ásgeirsson, þjóðskjalavörður, opnar
böggulinn með dreifibréfunum.
þögn
Forseti Bandaríkjanna hefur lof-
að hátíðlega að virða sjálfstæði og
fullveldi Islands. Þess vegna megið
þér vera þess fullviss, að strax og
hættan er um garð gengin, munu
hinar ströngu hernaðarreglur, sem
nauðsynlegar eru gagnvart óvinun-
um, afnumdar og stjórn yðar fengið
í hendur vald sitt óskert.
Wm.S. Key, yfirherforingi
Bandaríkjaliðsins á Islandi."
Dreifibréfið frá forsætisráðherra
Islands er á þessa leið:
„Til íslenzku þjóðarinnar!
Alvarleg árás með vopnavaldi er
yfirvofandi á fslandi.
Með samningi samþykktum á Al-
þingi tslendinga þann 10. júlí 1941
og staðfestum samdægurs af ríkis-
stjóra í ríkisráði, fól íslenzka ríkis-
stjórnin Bandaríkjunum hervernd
íslands.
Hafa Bandaríkin þannig tekið að
sér hervernd íslands og einnig að
varðveita frelsi og sjálfstæði lands-
ins.
Yfirforingi herliðs Bandaríkj-
anna á Islandi hefur nú tilkynnt
íslenzku ríkisstjórninni, að slík al-
varleg árás sé yfirvofandi og að
nauðsynlegt muni vera fyrir hann,
til þess að uppfylla skyldu sína um
vernd ættlands vors, að yfirtaka að
fullu og öllu eftirlit með öllum
mönnum og eignum atlslandi og
„Boðskapur um herlög, sem dreifa itti til
almennings ef árás var yfirvofandi.
gera að öðru leyti sérstakar ráð-
stafanir til þess að tryggja öryggi
vort.
Bandaríkin hafa hátíðlega lofað
að viðurkenna sjálfstæði og full-
veldi Islands. Ég er þess öruggur,
að í samræmi við þetta heit muni
yfirherforingi Bandaríkjaliðsins á
íslandi inna af hendi skyldur sinar.
Ég veit, að vér megum treysta því,
að Bandaríkin muni, með fullri
virðingu fyrir íslenzkum stjórn-
völdum, leggja allt vald I hendur
ríkisstjórnarinnar, þegar núverandi
hættuástand er liðið hjá.
Þess vegna leggur ríkisstjórnin
fyrir íslenzku þjóðina og alla emb-
ættismenn íslenzka ríkisins að
veita yfirherforingja Bandaríkja-
liðsins alla aðstoð, og að hlýða
boðskap þeim, fyrirskipunum og
reglum, er hann kann að setja.
Björn Þórðarson, forsætisráð-
herra.“
I bögglinum var einnig að finna
„Reglur og ákvæði, sett samkvæmt
herlögum” og dreifa átti samtímis
hinum bréfunum. Reglurnar eru á
þessa leið:
1. Innivi.st.
Öllum borgurum er fyrirskipuð
innivist: sérhverjum, sem fyrir-
finnst utan eðlilegs dvalarstaðar
síns frá kl. 21 til kl. 7 verður refsað
samkvæmt herlögum. Vissar und-
antekningar verða gerðar um
lækna, hjúkrunarkonur og aðra
starfsmenn, sem verða að sækja um
sérstakt skírteini, er heimilar þeim
að dveljast úti meðan innivistar-
tímabilið stendur yfir. Þeir, sem
búa í Reykjavík eða nágrenni henn-
ar skulu sækja um skírteini á
Laugaveg 16.
2. Borgaralegar talsímastöðvar.
Allar talsímastöðvar á hernumd-
um svæðum skulu halda áfram
starfrækslu undir yfirumsjón
brezka setuliðsins. Refsað verður
stranglega fyrir sérhverja tilraun
borgaralegra starfsmanna til
skem mdarstarfsem i og fjarveru frá
skyldustörfum eða vanrækslu.
3. Þráðlaus senditæki.
Loka ber fyrir öll þráðlaus sendi-
tæki, setja þau úr sambandi og af-
henda tækin strax næsta borgara-
legu yfirvaldi. Hver, sem fyrir-
finnst með radíó-senditæki 24
klukkutímum eftir að þessi fyrir-
skipun hefur verið birt, mun verða
látinn sæta þungri refsingu.
4. Vitar.
Loka ber strax fyrir alla radíó-
vita.
5. Flugferðir.
Almennar flugferðir eru bannað-
ar. Hernaðaryfirvöldin munu taka í
sínar hendur öll borgaraleg flugför.
6. Ljós.
Það skoðast sem afbrot að láta
sjást ljós, hvort sem er innan húss
eða utan. Slíkur verknaður getur
valdið grun um að haft sé samband
við óvinina, en við sllku liggja hinar
þyngstu refsingar.
7. Samband við óvinina.
Hver, sem verður uppvís að því að
hafa samband eða viðskipti við
óvinina, verður handtekinn og
leiddur fyrir herrétt og látinn sæta
þyngstu refsingum.
8.
Landsmenn eru alvarlega
Friöþæging eða
fóstbræðralag?
Bréfkorn til bróður Kristófers
— eftir Jón Baldvin
Hannibalsson
„Þú segist vera á móti
því þingræði, sem „get-
ur af sér pólitíkusa á
borð við“ mig. í staðinn
viltu kjósa „oddvita rík-
isstjórnar“ beint. Skoð-
anakannanir benda til
að formaður Alþýðu-
flokksins mundi vinna
þær kosningar. Það er
vandlifað í henni veröld.
Kæri Kristófer!
Þakka tilskrifið.
Það gefur tilefni til eftirfarandi
athugasemda:
1. Þú segir enga „þörf fyrir einn
stjórnmálaflokkinn enn“. Sam-
mála. BJ er skv. skilgreiningu
stjórnmálaflokkur (býður fram I
kosningum — skiptir sér af
stjórnmálum). Að gefnum for-
sendum telur þú BJ óþarfan
stjórnmálaflokk. Þetta er ná-
kvæmlega það sem ég vildi sagt
hafa. Jafnaðarmenn eiga að skipa
sér í einn stjórnmálaflokk.
Snuð?
2. Þú gerir mér upp þá skoðun, að
„enginn munur" sé á BJ og Al-
þýðuflokknum.
Það er ekki rétt eftir mér haft.
Mér virðist hins vegar skoðana-
ágreiningur vera svo lítill, að
hann réttlæti ekki að jafnaðar-
menn dreifi kröftunum. Það sem
sameinar menn í stjórnmálaflokk-
um eru grundvallarsjónarmið —
lífsskoðanir. En í stórum og lýð-
ræðissinnuðum fjöldaflokki eru
Jón Baldvin llannibalsson
ævinlega skiptar skoðanir um
leiðir. Kjarni málsins er sá, að
slíkan skoðanaágreining á að út-
kljá í umræðu — eftir lýðræðis-
legum leikreglum.
Auðvitað er munur á BJ og Al-
þýðuflokknum, t.d. stærðarmunur.
Skv. skoðanakönnunum styður 4ði
hver Íslendingur Alþýðuflokkinn,
en aðeins 1 af 20 BJ. Þetta eitt út
af fyrir sig er talsverður munur,
þar sem markmið stjórnmálabar-
áttu er að hrinda stefnumálum í
framkvæmd.
Það er ekki nóg að vera á móti
kerfinu, ef þú hefur enga burði til
að láta verkin tala. Mótmæli mót-
mælanna vegna verða eins konar
friðþægingarhjal (til að friða eig-
in samvizku) — eins og hjá komm-
unum. Það er ekki pólitík — held-
ur pólitískt snuð. Ópíum handa
(mennta)mönnum.
Ef hins vegar samruni jafnað-
armanna beggja flokka leiddi til
þess, að jafnaðarmenn einir yrðu
stærri flokkur en Sjálfstæðis-
flokkurinn, mundi það valda póli-
tískum umskiptum. Það mundi
tryKgja jafnaðarmönnum stjórn-
arforystu, og þar með afl þeirra
hluta sem gera skal. Drífum f þvi.
Fagrar heyrði ég
raddirnar
3. Þú segir að við viljum „þagga
niður í“ ykkur. Guð forði mér frá
því. Það er þvert á móti. Við vilj-
um málefnalega umræðu, sam-
starf, samruna, til þess að rödd
jafnaðarstefnunnar megi hljóma
með sterkari róm f margradda
hljómkviðu lýðræðislegra skoð-
anaskipta í landinu.
Við spyrjum: Er það ekki fleira,
sem sameinar okkur, en sundrar?
Svarið er: Jú.