Morgunblaðið - 09.05.1985, Síða 35
35
SgrlAM C prpAŒJTMM]lXHa/,TaT/TíOPOW
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1985
Jakkaföt með vesti Venjulegt verð
Okkar verð S.990,—
Nú ber vel í veiði.
Atb. Enginn kvóti á jakkafötum.
Tilboðið gildir til 18. maí.
€RRAR
SNORRABRAUT 56 SÍMI 1 35 05 GLÆSIBÆ SÍMI 3 43 50
AUSTURSTRÆTIÍO SÍMI 27211
Engum kemur á óvart mikið barna-
lán þeirra hjóna en þau eru i ald-
ursröð: Einar aðstoðarfram-
kvæmdastjóri síldarútvegsnefndar,
kona hans er María Guðmunds-
dóttir og eiga þau 3 börn. Halldóra
læknaritari í Árósum, hún er gift
Sören Pedersen og eiga þau 1 son.
Bjarni eftirlitsmaður hjá SÍF,
hann á 1 barn. Ómar forstöðumað-
ur landkynningarskrifstofu í Ham-
borg, kona hans er Guðrún Þor-
valdsdóttir og eiga þau 1 son.
Alþjóð er kunnugt hið stóra út-
gerðarfyrirtæki og verslun, sem
ber nafn tengdaföður Benedikts,
Einars Guðfinnssonar í Bolungar-
vík. Mágar Benedikts hafa nú um
árabil rekið það af alkunnum
myndarskap. Milli þeirra allra hef-
ur ávallt verið góð samfylgd og
samvinna.
Drepið hefur verið á það í þessari
grein, hve starfhæfur og starfsam-
ur Benedikt Bjarnason er. En á
góðri stund er hann allra manna
glaðastur, söngvinn og hrókur alls
Sextugur:
Benedikt Bjarnason
framkyæmdastjóri
sonar útgerðarmanns. Þar hlotnað-
ist honum frábær lífsförunautur.
Þar réðst lifsgæfa hans. Sagt er að
eplið falli sjaldan langt frá eikinni.
fagnaðar. Blá augun ljóma af inni-
legri gleði og lífsnautn, hláturinn
er léttur. Á þeirri stund er notaleg
tilfinning að vera í grennd við
Hildi og Benedikt.
í alþingishátiðarljóðum sínum
segir Davíð skáld frá Fagraskógi
m.a.:
í þúsund ár bjó þjóð við nyrstu voga.
Mót þrautum sínum gekk hún, djörf og
sterk.
í hennar kirkju helgar stjörnur loga,
og hennar líf er eilíft kraftaverk.
Á meðan þjóðin á þegna á borð
við Benedikt Bjarnason skýrist það
sem skáldið kallar kraftaverk i
Ijóði sínu.
Fyrir hönd starfsbræðra Bene-
dikts í kaupmannastétt eru honum
og Hildi færðar árnaðaróskir. Megi
þeim allt vel farnast.
Þau hjón dvelja um þessar
mundir hjá syni og tengdadóttur í
Hamborg.
Sigurður E. Haraldsson
SJÓMANNATILBOD
jakkaföt á lokaballið
í dag á Benedikt Bjarnason
framkvæmdastjóri í Bolungarvík
sextugsafmæli. Að sjálfsögðu gefa
afmæli, þegar menn eru enn í miðri
starfsönn, ekki tilefni til úttektar á
lífi og starfi. I þessari stuttu af-
mælisgrein fer því fjarri að reynt
verði að skrá æviatriði þessa mæta
manns. Einungis staðnæmst í
áfangastað í því augnamiði að
fagna lífsför, sem margir hafa not-
ið með ýmsum hætti.
Benedikt er fæddur í Bolungar-
vík 9. maí 1925, sonur hjónanna
Halldóru Benediktsdóttur frá
Brekkubæ í Nesjum og Bjarna Ei-
ríkssonar frá Hlíð í Lóni. Faðir
hans var íþróttamaður á yngri ár-
um og hvatamaður alla tíð til
íþróttaiðkana og líkamsræktar.
Bjarni stundaði kennslu á heima-
slóðum á Suðausturlandi. f bók
Eysteins Jónssonar fyrrum ráð-
herra, sem út kom fyrir síðustu jól,
getur Eysteinn þess að Bjarni
kenndi honum í barnaskóla. Ey-
steinn segir í bók sinni að hann
hafi haft miklar mætur á læriföður
sínum, enda þótt oft væri sett mik-
ið fyrir. Eysteinn drepur á það að
Bjami var af traustum ættstofnum
austanlands, í móðurkyn af hinni
alkunnu Viðfjarðarætt en meðal
forfeðra hans voru einnig menn,
sem þekktir voru sakir hreysti-
mennsku.
Foreldrar Benedikts fluttu til
Bolungarvíkur, þar sem faðir hans
tókst á hendur verslunarstjórn
hinnar Sameinuðu íslensku versl-
unar þar vestra. Árið 1927 stofnaði
Bjarni til eigin atvinnurekstrar í
Bolungarvík.
Benedikt ólst upp í Bolungarvík,
stundaði þar skólanám og vann
fyrstu handtökin við fyrirtæki föð-
ur síns 13 ára að aldri. Hann lauk
námi í Verslunarskóla íslands 1945
með frábærum námsárangri. Bene-
dikt stóð nú á krossgötum. Hinn
mikilhæfi skólastjóri í Verslun-
arskólanum, Vilhjálmur Þ. Gísla-
son, hvatti hann mjög til áfram-
haldandi náms. Það var að sjálf-
sögðu freistandi kostur. En ákvörð-
un hins tvítuga skólasveins var sú
að snúa heim. f því birtist glöggt
það sem ég hygg hafa einkennt
Benedikt meira en allt annað: Ein-
stök skyldurækni og trúmennska.
Hann vildi styðja við bak föður
síns, þótti þess þörf eins og málum
var komið.
Frá árinu 1958 hefur Benedikt
rekið útgerðar- og verslunarfyrir-
tækið í Bolungarvík, sem enn ber
nafn föður hans. Hann hefur sem
kaupmaður lagt sig fram um að
tryggja viðskiptavinum sínum góð-
ar vörur á eins hagstæðu verði og
kostur var hverju sinni. Við félagar
hans í kaupmannastétt þekkjum
vel harða málafylgju Benedikts,
þegar hagsmuni verslunarfyrir-
tækja um hinar dreifðu byggðir
landsins ber á góma. Hvert einasta
atriði, sem máli skiptir, er tekið til
meðferðar, allt í því augnamiði að
unnt sé að veita góða þjónustu við
hagstæðu verði.
Undirritaður er ekki í aðstöðu til
að fjalla af sömu þekkingu um út-
gerð Benedikts. Þegar gengið er um
athafnasvæði hans þar vestra má
þó ljóst vera, af hve mikilli snyrti-
mennsku og alúð hvert verk er unn-
ið. Állt utanhúss sem innan er til
fyrirmyndar. Einhvern tíma var
sagt um mikilhæfan klerk, að hann
prédikaði á stéttunum. Það væri
efalaust hollur lærdómur mörgum
að litast um á starfsvettvangi
Benedikts Bjarnasonar. Sama er
hvert litið er, allt er fágað og snyrt.
Það er lærdómsrík prédikun.
En hinn starfsami atvinnurek-
andi, sem vandar hvert handtak
eins og hér hefur verið lýst, hefur
axlað fleiri skinn. Ef rekja ætti
störf hans að félagsmálum yrði það
ærin upptalning og raunar ótrúleg.
í nær fjóra áratugi hefur hann
unnið í þágu helgidóms í Bolung-
arvík, setið um árabil í sóknar-
nefnd og sungið í kirkjukórnum.
Hann er einnig félagi í Karlakór
Bolungarvíkur. Hann hefur verið
formaður skólanefndar, á sæti í
stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur, f
stjórn Lífeyrissjóðs Bolungarvíkur.
Formaður stjórnar félagsheimilis
og áður í byggingarnefnd þess.
Fjölmörgum fleiri ábyrgðarstörf-
um hefur Benedikt gegnt, sem ekki
verða rakin hér. Er þá ótaiinn sá
vettvangur, sem undirritaður þekk-
ir best. Hann var hvatamaður að
stofnun Kaupmannafélags Vest-
fjarða 1977 og formaður þess
fyrstu 7 árin. Eftir kynni af störf-
um Benedikts sem formaður í fé-
lagi kaupmanna, sætir það ekki
undrum að sóst hefur verið eftir
svo einstökum manni til starfa í
almannaþágu.
Á jóladag 1949 gekk Benedikt að
eiga Hildi Einarsdóttur Guðfinns-