Morgunblaðið - 09.05.1985, Síða 64
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1985
btt nort aus sniyyi
Kjarafélag
verkfræð-
inga gengur
úr BHMR
í haust
VERKFRÆÐINGAR í opinberri
þjónustu, sem eru í Kjarafélagi verk-
frKðinga, ákváðu samhljóða á aðal-
fundi félagsins sl. mánudag að segja
sig úr Launamálaráði Bandalags há-
skólamanna (BHM—R). í félaginu
eru um 180 manns.
„Kveikjan að þessari ákvörðun er
mikil og almenn óánægja félags-
manna með launakjör sín,“ sagði
Þórarinn Ólafsson, formaður fé-
lagsins. „Innan BHM höfum við
ekkert komist áfram i okkar kjara-
baráttu. Munurinn á launum okkar
og verkfræðinga, sem starfa hjá
einkafyrirtækjum, fer sífellt vax-
andi og meö nýgengnum kjaradómi
jókst hann enn meira.“
Þórarinn sagði að eftir kjara-
dóminn hefðu einstakir félagsmenn
meira að segja lækkað í launum og
skulduðu því ríkissjóði ofgreidd
laun frá í mars. „Ég á að vísu von á
að það verði leiðrétt," sagði hann.
Samkvæmt lögum verður það
fjármálaráðherra að ákvarða laun
verkfræðinganna eftir að þeir hafa
sagt skilið við Launamálaráð
Bandalags háskólamanna. Það ætti
að geta orðið eftir 30. september
næstkomandi en þá lýkur reikn-
ingsári BHMR. „Laun okkar geta
ekki orðið lakari en nú er þótt þau
verði framvegis ákveðin af ráð-
herra,“ sagði Þórarinn Ólafsson.
Eftir nýgenginn kjaradóm taka
verkfræðingar í þjónustu ríkisins
laun samkvæmt launaflokkum 136
til 146. Lægstu laun í 136. launa-
flokki eru 24.862 krónur en hæstu
(eftir j8 ára starf) 33.834 krónur.
Lægstu laun í 146. flokki eru 33.413
krónur en hæstu laun, fyrir tækni-
forstjóra með 18 ára starfsaldur,
eru 45.471 króna.
Fálkaeggin á
sínum staö
GRUNSEMDIR um að fálkaeggj-
um hefði verið stolið úr hreiðri í
Mývatnssvéit reyndust ekki á rök-
um reistar. Menn sigu niður að
hreiðrinu i gær og reyndist fálki
liggja á eggjum. Óttast var að
hreiðrið hefði verið rænt, þar sem
menn hafa ekki séð til fálkanna
undanfarna daga.
Birgðir SH 9.200 smálestir:
Útflutningur í apríl að
verðmæti 1,1 milljarður
SÖLUMIÐSTÖÐ hraöfrystihúsanna flutti út 10.500 smálestir
af frystum sjávarafurðum í aprílmánuði að verðmæti 1.108
milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum Guðmundar H.
Garðarssonar, blaðafulltrúa SH, er þetta langmesti útflutn-
ingur SH í einum mánuði, en til samanburðar má geta þess
að meðalútflutningur á mánuði í fyrra var tæplega 7 þúsund
smálestir. Birgðir Sölumiðstöðvarinnar hafa ekki í langan
tíma verið jafnlitlar eða 9.200 smálestir.
Aprílútflutningurinn, 10.500
smálestir, skiptist þannig að
7.500 smálestir voru fluttar
utan til Bandaríkjanna, 1.700
smálestir til Sovétríkjanna og
1.300 smálestir til Vestur-
Evrópu og Japans. Þess má
geta að Hofsjökull lestaði tvisv-
ar í apríl til Bandaríkjanna og
flutti samtals 4.500 smálestir.
Guðmundur H. Garðarsson
sagði að ástæður þessa væru, að
sala á Bandaríkjamarkaði hefði
gengið mjög vel sem af væri
þessu ári, svo og afskipanir til
Sovétríkjanna. Á Banda-
ríkjamarkaði er nú skortur á
vissum fisktegundum og má
þar nefna karfa og ýsu. Heild-
arsalan hjá Coldwater Seafood
Corporation, sölufyrirtæki SH í
Bandaríkjunum, var fyrstu
fjóra mánuði ársins tæplega
28.500 smálestir og hafði aukizt
um 0,1 %. Hins vegar varð tals-
verð aukning á sölu flaka, en á
fyrstu fjórum mánuðum ársins
seldust 13.000 smálestir flaka
og seldi fyrirtækið á þessum
tíma fyrir 82,9 milljónir dollara
alls. Hafði verðmætið aukizt
um 8% miðað við sama tíma í
fyrra.
KEILUSALURINN
OPINN 10.00-00.30
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Vertíðin:
Söltun
þorsks
er 50%
meiri en
í fyrra
FRAMLEIÐSLA blaulsaltað.s þorsks
frá áramótum til loka aprfl var um
50% meiri en á sama tíma á síðasta
ári. Söltun þetta tímabil nú svarar til
um 90.000 lesta af þorski upp úr sjó,
sem er um tveir þriðju hlutar alls
þorskaflans á þessum tíma, en hann
nam um 131.600 lestum.
Frá áramótum til aprílloka voru
framleiddar um 28.000 lestir af
blautsöltuðum þorski, en á sama
tima síðasta ár nam framleiöslan
18.000 lestum. Framleiðslan er að
mestu seld og er unnið að afskip-
unum eins fljótt og pökkun og aðr-
ar aðstæður leyfa, að sögn Sigurð-
ar Haraldssonar, skrifstofustjóra
Sölusambands íslenzkra fisk-
framleiðenda.
Sigurður sagði í samtali við
Morgunblaðið, að þegar hefðu
4.300 lestir verið fluttar út til
Spánar, 2.200 lestir til Ítalíu, 1.000
til Grikklands, en ennþá aðeins
1.800 lestir til Portúgal, er gert
væri ráð fyrir útflutningi á um
15.000 lestum til viðbótar þangað
á næstu 7 vikum auk 1.700 iestum
til Spánar. Ennfremur væri gert
ráð fyrir því, að afskipun fram-
leiðslunnar til loka apríl yrði að
mestu lokið í lok júní. Enda þótt
gert hefði verið ráð fyrir nokkurri
aukningu á saltfiskframleiðslu á
þessu ári, hefði hún orðið talsvert
meiri en spáð hefði verið og væri
nú unniö að frekari sölu fram-
leiðslunnar.
Siglufjörður:
Rússneskt
skip strandar
við bryggjuna
RÚSSNESKT flutningaskip
strandaði við höfnina í Siglufirði
um hádegisbilið í gær. Þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir hafði
ekki tekizt að losa það seint í
gærkvöldi. Vonast var til að á
háflóði nokkru eftir miðnættið
mætti takast að losa það.
Skipið var að koma til
Siglufjarðar til að landa um
200 lestum af rækju, sem
vinna á hjá Sigló hf. Skipinu,
sem er tæpar 6.000 lestir af
stærð, var siglt full austarlega
að bryggjunni með þeim af-
leiðingum sem áður greinir.
Skjöldur, 200 lesta bátur frá
Siglufirði, reyndi að draga
skipið út en án árangurs. Síð-
degis í gær hafði um 100 lest-
um af vatni verið dælt úr
flutningaskipinu og átti að
reyna aftur að draga það út á
háflóði um klukkan 1.25 í nótt.
Skipið virðist óskemmt enda
er þarna fremur mjúkur leir-
botn og engin hætta steðjar aö
áhöfn þess að sögn hafnar-
varðarins í Siglufirði.