Morgunblaðið - 07.06.1985, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÓSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1985
11
Allir komnir á bak og nú er hægt að leggja af stað.
150 ráðstefnugestum
I6M boðið á hestbak
„ÞAÐ var eiginlega kraftaverk að
hægt var að safna svo mörgum
hros.sum saman,“ sagði Örn Ing-
ólfsson framkvæmdastjóri Hesta-
mannaféiagsins Fáks, er hann var
spurður hvernig gekk að koma 150
manns á hestbak sl. þriöjudag.
K'tta voru útlendingar, sem komu
hingað til lands til þess að sitja
ráðstefnu á vegum IBM.
Fáksmönnum tókst að safna
saman milli 70 og 80 hrossum og
var lögð áhersla á að þau væru öll
róleg og traust því langflestir
knapanna voru óvanir hesta-
mennsku. Síðan var fóikinu skipt
niður í 10 manna hópa og farið i
útreiðartúr frá hesthúsunum í
Víðidal að Höfðabakkabrú og aft-
ur til baka.
n,2 Fjörutíu til fimmtíu Fáks-
félagar mættu til leiks og voru
fólkinu til aðstoðar.
Örn sagði að allt hafi tekist
einstaklega vel og voru knaparnir
mjög ánægðir með reiðskjótana
og útreiðartúrinn.
Horgunbla&iA/Júllus
Einn hópurinn að koma til baka úr útreiðartúrnum og ekki er annað að
sjá en að allt gangi vel.
„A View to a KiH“
sýnd í Bíóhöllinni
ÁKVEÐIÐ hefur verið að nýjasta kvikmyndin um breska njósnarann James
Bond, „A View to a Kill“, verði frumsýnd í Bíóhöllinni í Reykjavík í lok júní.
Nokkur atriði í myndinni voru tekin hér á landi í fyrrasumar.
Sölustjóri United International ingu myndarinnar í huga. Fjögur
Pictures kom hingað til lands til hús komu til greina og var ákveðið
að skoða kvikmyndahús með sýn- að myndin yrði sýnd í Bíóhöllinni.
Morgunblaöiö/Vilborg Einarsdóttir
Frá upptöku Bond-myndarinnar „A View to a Kill“ fýrir rétt tæplega ári í
jökullóninu í Skaftafellssýslum.
Stjórnarfriimyarp:
Jarðræktarlög
Landbúnaðarráðherra hefur lagt
fram frumvarp til laga um breytingu
á jarðræktarlögum. Frumvarpið er
flutt til að laga gildandi lög að ríkj-
andi ástandi í landbúnaði og þeirri
stefnu sem mörkuð er með frum-
varpi um framleiðslu, verðlagningu
og sölu á búvörum.
Helstu breytingarnar eru, eins
og segir í greinagerð:
• a) Dregið er úr framlögum,
sem stuðlað geta að aukn-
ingu búvöruframleiðslu í
hefðbundnum búgreinum,
svo sem framræslu og græn-
fóðurrækt.
• b) Efldur er stuðningur við
heimaafla, svo sem endur-
ræktun, bætta heyverkun og
geymslu garðávaxta.
• c) Efldur er stuðningur við nýj-
ar og vænlegar búgreinar,
svo sem loðdýrarækt.
Áskriftcirsíminn er 83033
Á AD ENDURNÝJA ÞANN GAMLA
-FÁ SÉR EITTHVAD
MEIRA SPENNANDI?
Það þarf ekki að verða mjðg erfitt
D hefjir þú söfnun nú,
0 safnir ó Plúslðnareikning með Ábót,
E og fðir svo Plúslán.
Um þetta getur þú samið við okkur.
Hittu Ráðgjafann f Útvegsbankanum
D og segðu honum hvað til stendur.
0 Þið finnið það út sameiginlega hve
mikið þú getur sparað mánaðarlega,
0 í hve langan tíma og
□ í hversu hátt lán þú stefnir að sparn-
aðartfma loknum.
Þú getur því strax farið að hlakka til.
Hefurðu skoðað nýju módelin?
PLÚSLÁN
MEÐ ÁBÓT
ÚTVEGSBANKINN
EINN BANKI • ÖU MÓNUSTA