Morgunblaðið - 19.06.1985, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.06.1985, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1985 Mikið í húfi að fá hæfar konur til forystustarfa — rætt við Ólöfu Benediktsdóttur um kvenréttindabaráttu fyrr og nú Þorbjörg Sverrisdóttir, Bríet Bjarnhéóinsdóttir, Laufey Valdimarsdóttir, Ólafía Jóhannsdóttir, Guðrún Pétursdóttir. Allt þekkt nöfn úr kvenréttinda- baráttu á fyrri tíð og þá ekki sízt þegar barizt var fyrir kosningarétti og kjörgengi kvenna um aldamótin. En þeir eru ekki margir sem þekktu þessar konur persónulega og spruttu upp í þeim jarðvegi sem þær plægðu. Ólöf Benediktsdóttir menntaskólakennari drakk í sig áhrif þeirra með móður- mjólkinni en þær Guðrún Benediktsdóttir sem eru tvíburar voru yngstar í barnahópi hjónanna Guðrúnar Pétursdóttur og Benedikts Sveinssonar. Um kynni sín af frumkvöðlum í íslenzkri kvenréttindabaráttu segir Ólöf m.a.: — Ég man vel eftir þeim mörg- um hverjum og mamma hafði ver- ið í þessum hópi frá unga aldri því að hún var einn af stofnendum Hins íslenzka kvenfélags 1894, þá 16 ára að aldri. Sjálfsagt hefur það verið vegna vináttu fjölskyldu hennar við Þorbjörgu Sveinsdótt- ur og Ólafíu Jóhannsdóttur að hún var stofnfélagi svo ung að árum. Segja má að Hið íslenzka kvenfé- lag hafi verið undanfari Kvenrétt- indafélags íslands sem stofnað var 1907. Aðalmarkmið Hins ís- lenzka kvenfélags var barátta fyrir réttindum kvenna, svo og stofnun háskóla. Vitaskuld var stofnun háskóla sjálfstæðismál en það er þó merkilegt að konur skyldu þó beita sér svo eindregið fyrir því máli því að á þessum tíma áttu konur þess ekki einu sinni kost að ganga í menntaskóla. Ólafía Jóhannsdóttir fékk ekki að sitja í menntaskóla en hafði í hyggju að taka þá stúdentspróf utanskóla. Það var lagður steinn í götu hennar svo hún hætti við þá fyrirætlun. En ástæðan fyrir því að konurnar höfðu háskólann á stefnuskrá sinni var eflaust ekki sízt sú að margir ungir menn komu illa farnir úr Kaupmanna- hafnarvistinni. Háskólaárin í Höfn voru ekki ætíð sá þroska- vænlegi ferill sem til var stofnað og konurnar hafa viljað leggja sitt af mörkum til að vernda þessi ungmenni og sjá til þess að þau gætu fengið sína menntun í heimahögum. Líknarmál og mál- efni þeirra sem voru minnimáttar létu konurnar í Hinu íslenzka kvenfélagi líka mjög til sín taka, og þar voru það ekki sízt Þorbjörg Sveinsdóttir, sem var ljósmóðir, og Ólafía Jóhannsdóttir, sem komu við sögu og héldu fram málstað beirra sem minnst máttu sín í þjóðfélaginu, enda sáu þær mikla eymd er þær voru að sinna störfum sínum. — Árið 1907 var Kvenréttinda- félag íslands síðan stofnað og því var einungis ætlað að vinna að kvenréttindamálum. í framhaldi af þvi var Verkakvennafélagið Framsókn stofnað og ekki var vanþörf á því þar sem mikill mun- ur var á kjörum og allri aðstöðu útivinnandi kvenna og karla á þessum tíma. Það var eitt fyrsta baráttumál Kvenréttindafélagsins að tryggja óskilgetnum börnum sama rétt og skilgetnum börnum sem skiljanlega var mikið rétt- indamál. Félagið beitti sér líka mjög fyrir jafnrétti í menntun- armálum. — Og hvcrnig var svo það and- rúmsloft sem dætur Guðrúnar Pét- ursdóttur ólust upp í? — Á heimilinu var alltaf fullt af fólki og meðal daglegra gesta var mikið af konum. Það var mikið rætt um þjóðfélagsmál og þá ekki sízt réttindamál kvenna. Við þekktum ekkert annað og tókum þetta eins og sjálfsagðan hlut, en auðvitað hafa þessar umræður haft ómæld áhrif á okkur í upp- vextinum. En enginn skyldi halda að pólitískir flokkadrættir hafi ekki sett sinn svip á jafnréttisbar- áttuna hér áður fyrr eins og jafn- an síðar. Vinstri sinnaðar konur gengu hart fram og lögðu á tíma Kvenréttindafélagið undir sig að heita má og notuðu það stjórn- málaflokkum sínum til framdrátt- ar. Mér mislíkaði svo þetta háttal- ag að ég hét því á unga aldri að ég skyldi aldrei ganga í Kvenrétt- indafélag fslands og við það hef ég staðið. Eg hef aldrei getað hugsað mér að vera í þeirri aðstöðu að hægt væri að beita mér fyrir vagn vinstri aflanna í þessu landi. Sum- um kann að virðast þetta bera vott um ósveigjanleika en ég hef aldrei séð eftir að hafa tekið þessa af- stöðu. Ég hef getaö unnið að jafn- réttismálum á öðrum vettvangi. — En nú orðið starfa konur úr öllum flokkum saman í Kvenrétt- indafélaginu og það samstarf virðist ganga igætlega. — Já, en ég held þó að þverpóli- tískt samstarf kvenna sé alltaf erfitt og verði það hér eftir sem hingað til og betur sé hægt að vinna góðum málum framgang á öðrum vettvangi. En þessi orð má samt ekki skilja svo að ég virði ekki starfsemi Kvenréttindafélags íslands og vilji því allt hið bezta. Það er sjálfsagt mjög erfitt að koma í veg fyrir að stjórnmála- skoðanir og flokkslegir hagsmunir hafi ekki áhrif í þverpólitísku samstarfi sem svo er kallað, en ég man vel eftir því þegar þessar konur voru að koma til mömmu að þær gerðu sér far um að láta stjórnmálaskoðanir ekki hafa áhrif á sig í sambandi við kven- réttindamál. Ég hafði mjög gam- an af að fylgjast með umræðum þeirra. Þær voru skemmtilegar og greindar, ekki sízt Laufey Valdimarsdóttir, dóttir Bríetar. Um 1930 voru Laufey og mamma saman í Mæðrastyrksnefnd sem var stór þáttur í því að konur fengju einhver réttindi. Mæðrast- yrksnefnd naut styrkja frá bæjar- stjórn með því skilyrði að nefndin væri ekki pólitísk og yrði ekki not- uð í slíkum tilgangi þannig að mikið lá við. Mæðrastyrksnefnd hafði alltaf lögfræðingi á að skipa og Auður Auðuns var fyrsti lög- fræðingur nefndarinnar. Það starf sem nefndin vann að því leyti var tvímælalaust mjög mikilvægt. — Stundum hefur verið haft.á orði að þær konur sem riðu á vaðið í upphafí aldarinnar hafí verið miklar fyrir sér og að skörungsskapurinn hafí jafnvel gengið fulllangt, a.m.k. fyrir smekk þeirra sem töldu hóg- værð og vægni meðal fremstu kven- legra dyggða. Hvernig komu þær þér fyrir sjónir? — Mér líkaði vel við þær í hví- vetna og hafði ánægju af um- Ólöf Benediktsdóttir gengni við þær. Það var nú síður en svo að manni stæði stuggur af þeim þótt einhverjir hefðu á orði að þetta væru pilsvargar. Það var ekki sanngjarn orðrómur. Frægt er vegagerðartækið sem kallað var eftir Bríeti. Hún hafði mikinn áhuga á bættum samgöngum og vegagerð og beitti sér mjög fyrir kaupum á þessu tæki í bæjar- stjórninni, enda var mikil bót að tilkomu þess. Tækið var kallað eftir henni og það var gert í virð- ingarskyni við hana. Én ýmislegt snýst upp í andhverfu sína og svo fór að þessi nafngift var notuð í háðungarskyni við hana, — átti víst að gefa til kynna að hún væri svo mikill svarkur að helzt mætti líkja við þetta mikilvirka tæki. Hún var dugnaðarkona og mikil hugsjónamanneskja og ástæðu- laust og ósanngjarnt að sverta hana með þessum hætti. Bríet gat verið ákaflega skemmtileg og ég man að báðir foreldrar mínir höfðu mjög gaman af að spjalla við hana. Laufey var bæði greind og skemmtileg. Hún var tilfinn- ingamanneskja en mamma t.d. var jarðbundnari. Aðalbjörg Sig- urðardóttir er ein af þeim sem ég man vel eftir og ég minnist þess ekki að þessar konur létu pólitík hafa áhrif á sig þegar réttindamál kvenna voru annars vegar. Þær voru á einu máli um að nauðsyn- legt væri að virkja konur til þátt- töku í stjórnmálum og þær voru líka sammála um að það væri ekki nóg að fá konur til að gefa kost á sér til slíkra starfa — það yrðu líka að vera hæfar konur. Sem sé að ekki ætti að kjósa konu einung- is af því að hún væri kona heldur af því að hún væri hæf og stæði körlum ekki að baki i því efni. Þetta atriði lögðu þær mikla áherzlu á og sjálf held ég að það sé afar mikilvægt. — Nú er tiltölulega stutt síðan konur fóru að hafa veruleg afskipti af stjórnmálum. Af hverju heldur þú að þeim hafí gengið svo erfíðlega að hasla sér völl? — Það sem lengst af hefur háð konum í stjórnmálum er eflaust sú staðreynd að þær höfðu ekki sambærilega menntun og reynslu í stjórnsýslu og karlar. Fyrir 40—50 árum voru það t.d. þessi mismun- andi skilyrði til að vinna fyrir sér sem mjög háðu konum. Áðstaða kvenna og karla var þá mjög mis- munandi, þannig t.d. að strákar gátu hæglega staðið straum af kostnaði við nám með því að fara á togara um tíma og moka upp peningum á meðan stelpurnar máttu þakka fyrir að fá vinnu í búð eða banka, en slík störf voru miklu verr launuð. Starfsval þeirra sem höfðu tækifæri til að afla sér menntunar mótaðist mjög af því að flestar áttu fyrir höndum að verða mæður og húsfreyjur og lögðu því fyrir sig störf sem gáfu kost á því að unnt væri að minnka eitthvað við sig um tíma þegar einkaástæður kröfðust þess, en þetta er nokkuð sem karlar hafa aldrei þurft að taka tillit til. Sem dæmi um störf sem hentug þóttu konum að þessu leyti voru hjúkr- un og kennsla. Ég lagði fyrir mig kennslu m.a. af því að það var eitt af fáum störfum i þjóðfélaginu þar sem karlar og konur fengu sömu laun fyrir sömu vinnu. — Varðstu nokkurn tíma vör við það í uppeldinu að þér og systrum þínum væri ætlað annars konar hlutskipti en bræðrunum? — Nei, aldrei. Það var litið á það sem sjálfsagðan hlut að við systur færum í menntaskóla ekki síður en þeir og síðan í fram- haldsnám, þannig að við yrðum ekki háðar því að láta aðra sjá fyrir okkur. Að loknu stúdents- prófi innritaðist ég í læknadeild en strax eftir fyrsta tímann gerði ég mér grein fyrir að nám og starf í þeirri grein hentaði mér ekki. Ég hafði hug á því að fara í norrænu en það var mjög langt nám og því tók ég heldur þann kost að fara í ensku og dönsku og ljúka BA-prófi 70 ár frá því að konur fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis í DAG, 19. júní 1985, eru liðin 70 ár frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Baráttan fyrir þessum réttindum sem við í dag teljum sjálfsögð mannréttindi hafði verið löng og ströng. Á seinni hluta nítjándu aldar fóru konur að vakna til vitundar um stöðu sína og gera sér grein fyrir að þær hefðu ekki sömu laga- legu réttindi og karlar í þjóðfé- laginu. í bókum Gísla Jónssonar „Konur og kosningar" og Estherar Guðmundsdóttur „Konur og stjórnmál" og fleiri heimildum er greint frá þessari baráttu og um- fjöllun Alþingis á þessu réttinda- máli. Um þessar mundir er Sig- ríður Erlendsdóttir sagnfræðing- ur að skrá sögu Kvenréttindafé- lags íslands, en Kvenréttindafé- lagið, sem stofnað var 1907, hafði það markmið fyrst og fremst að vinna að því að íslenskar konur fengju fullt jafnrétti á við karla, kosningarétt og kjörgengi, rétt til embætta og atvinnu, með sömu skilyrðum og þeir. Það og Hið ís- lenska kvenfélag, sem stofnað var 1894, voru fyrstu samtök kvenna, sem börðust fyrir stjórnmála- iegum réttindum kvenna. Fólk í dag gerir sér eflaust ekki grein fyrir þeim mikla réttinda- mun, sem ríkti á milli kynjanna hér áður fyrr. Fyrir 1850 nutu dætur t.d. ekki sama erfðaréttar og synir og þær nutu yfirleitt ekki sömu tilsagnar og piltar við nám þó að öll börn á íslandi ættu að læra að lesa. Það var fyrst 1907 sem lög voru sett um skólaskyldu hér á landi og voru þó öll börn á aldrinum 10 til 14 ára skylduð til náms og til að taka próf. 1886 fengu konur réttindi til að ganga undir próf Hins lærða skóla I Reykjavik, Prestaskólans og Læknaskólans og til að njóta kennslu í þessum síðar töldu skól- um. í Hinum lærða skóla urðu þær að lesa undir próf utan skóla. 1911 fengu þær sama rétt og karlar til að njóta kennslu og Ijúka fullnað- arprófi í öllum menntastofnunum landsins og þá fyrst fengu þær rétt til embætta og til námsstyrks. Sveitarstjórnir Á síðasta fjórðungi nítjándu aldar fór fram umræða um hvort veita ætti konum kosningarétt til sveitarstjórna. Var það að lokum samþykkt 1882 að „ekkjur og aðr- ar ógiftar konur sem standa fyrir búi eða á einhvern hátt eiga með sig sjálfar, skuli hafa kosninga- rétt þegar kjósa á í hreppsnefnd, sýslunefnd, bæjarstjórn og á safn- aðarfundum, ef þær eru 25 ára og að öðru leyti fullnægja þeim skil- yrðum sem lög ákveða fyrir þess- um réttindum". Vakti þessi laga- setning athygli víða um lönd og þótti bera vott um frjálslyndi ís- lendinga. í Danmörku máttu kon- ur t.d. bíða til 1908 eftir þessum réttindum. 1902 fengu þær konur, sem höfðu kosningarétt, kjör- gengi, — 1907 fengu konur í Reykjavík og Hafnarfirði kosn- ingarétt og kjörgengi til bæjar- stjórnarkosninga með sömu skil- yrðum og karlar. Tekið var sér- staklega fram að „konur kjósenda hefðu kosningarétt, þó þær séu eigi fjár sín ráðandi vegna hjóna- bands síns“. Konur á öllu landinu fengu þessi réttindi með sömu skilyrðum 1909. Baráttan fyrir þessum réttind- um og réttindum til menntunar og embætta ruddi brautina þannig að nú þótti kominn tími til að veita konum kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Löggjafarsamkoman Eins og áður segir var það 1915 sem konur fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Kosninga- rétturinn var þó þeim takmörkun- um háður að aldurstakmarkið var 40 ár í fyrstu kosningunum eftir gildistöku laganna, en skyldi siðan lækka um eitt ár á hverju ári, þar til það yrði 25 ár. Árið 1920 voru þessar aldurstakmarkanir felldar niður. Konur og karlar við kjörborðið Kosningaþátttaka kvenna var fremur dræm fyrst eftir að þær fengu kosningarétt. í Alþingis- kosningum 1916 kusu 69,1% karla en 30,2% kvenna. Nú er sáralítill munur eftir kynjum í kosninga- átttöku í almennum kosningum. Alþingiskosningunum 1983 kusu 89,4% karlaog87,l% kvenna. Konur á Alþingi Árið 1922 var fyrsta konan kos- in á Alþingi. Það var Ingibjörg H. Bjarnason, forstöðukona Kvenna- skólans í Reykjavík, og var hún kosin af sérstökum kvennalista. Ingibjörg gekk í Ihaldsflokkinn 1924 og sat á þingi til 1930. Frá 1922 og fram til dagsins í dag hafa 17 konur setið á Alþingi. Af þessum 17 alþingiskonum hafa 7 tilheyrt Sjálfstæðisflokknum, 3 Samtökum um kvennalista, 2 Ál- þýðubandalagi, 2 Bandalagi jafn- aðarmanna, 1 Alþýðuflokknum, 1 Framsóknarflokknum og 1 Sósíal- istaflokknum. Hér eru varaþing- menn ekki taldir með. Tvær þessara kvenna hafa gegnt ráðherraembætti, — þær Auður Auðuns og Ragnhildur Helgadóttir. Tvær konur hafa gegnt forsetaembætti á Alþingi, — þær Ragnhildur Helgadóttir og -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.