Morgunblaðið - 19.06.1985, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNl 1985
35
Vestur-Þýskaland:
Bachmeier
látin laus
llamborg, 18. júní. AP.
MARIANNE Bachmeier, vestur-
þýska konan, sem heimsfræg
varð irið 1981 þegar hún skaut
til bana í réttarsal morðingja
dóttur sinnar, hefur verið niðuð.
Skýrði lögfræðingur hennar fri
því í dag.
Bachmeier var fyrir tæpum
tveimur árum dæmd í sex ára
fangelsi fyrir morðið á bana-
manni dóttur sinnar, manni,
sem oft hafði gerst sekur um
að misþyrma börnum. Vakti
málið gífurlega athygli og
mátti heita, að öll þýska þjóðin
stæði með Bachmeier. Töldu
flestir, að hún hefði unnið
þarft verk vegna þess, að
réttarkerfið hefði brugðist með
þvi að láta þann mann ganga
lausan, sem tvisvar áður hafði
fengið dóm fyrir að misþyrma
smábörnum.
Bachmeier hefur verið í
gæsluvarðhaldi og í fangelsi í
tæp þrjú ár en næstu tvö ár og
tíu mánuði verður hún að til-
kynna sig reglulega hjá lög-
reglunni.
Bretland:
Blaðakóng-
ur tekur við
rekstri
Sinclair
London, 18. júní. AP.
Blaðakóngurinn Robert
Maxwell hefur samþykkt að
taka að sér rekstur Sin-
clair-tölvufyrirtækið, sem er
stærsti framleiðandi heimil-
istölva í Bretlandi samkvæmt
frétt í breska dagblaðinu
Daily Mirror.
Sinclair-fyrirtækið hefur átt í
miklum fjárhagserfiðleikum á
þessu ári sökum minnkandi sölu
á heimilistölvum. Komust Clive
Sinclair, eigandi fyrirtækisins,
og Maxwell, að þessu samkomu-
lagi um helgina, en hinn síðar-
nefndi mun kaupa hlutabréf að
andvirði 15,2 milljóna dollara í
Sinclair-fyrirtækinu.
Aðeins nokkrum klukkustund-
um eftir að skýrt var frá kaup-
unum, tilkynnti Clive Sinclair að
starfsmenn fyrirtækisins hefðu
uppgötvað nýja aðferð á sviði
rafeindabúnaðar; væri nú unnt
að koma fyrir mörgum minn-
iskubbum á einni kísilflögu.
Talsmaður Sinclair-fyrirtæk-
isins kvað þó ekkert samband
vera á milli uppfinningarinnar
og hins nýja rekstrarfyrirkomu-
lags fyrirtækisins.
ERLENTV
Nicaragua:
Árás gerð á herflutningalest
Tegucigalpa, llonduraa, 17. jnni. AP.
SKÆRULIÐAR frá Nicaragua
sögðu í dag að þeir hefðu sprengt
brú í ioft upp og gert árás á herflutn-
ingalest sandinistastjórnarinnar sl.
laugardag með þeim afleiðingum að
80 hermenn hefðu særst eða fallið.
Talsmaður skæruliðanna, sem
heyra til stærsta hópi stjórnar-
andstæðinga, Lýðræðisaflinu, og
hafa aðsetur í Honduras, sagði að
einn sinna manna hefði fallið í
árásinni er gerð var skammt frá
höfuðborg Nicaragua, Managua.
Hann kvaðst hins vegar ekki
geta sagt til um hve margir hinna
80 stjórnarmanna hefðu fallið eða
særst. Enn sem komið er hefur
engin staðfesting á árásinni borist
frá öðrum aðiljum en skæruliðum.
Erum nýbúin aö fá sendingu af hinum frábæru Winther tví- og
þríhjólum frá Danmörku.
ENDING — ÁBYRGÐ — ÞJÓNUSTA
Serverslun í 60 ár
?
?{!*'
19
ending og
revnsln
UTANHUSS
MÁLNING
Olíulímmálning 18 litir
MÁLNING HINNA VANDLÁTU
hentar vel á nýjan og áður málaðan stein, svo og
á járn- og asbestklædd hús, bæði á veggi og þök.
Niðurstöður Teknologisk Institut í Danmörku sýna að:
PERMA-DRI, ,andar“* hefur lágt PAM-gildi (m2 • h ■ mm Hg/g)
ICen-Drí (SILICONE)
notast á alla lárétta áveðursfleti áður en málað er,
hentar einnig vel á múrsteinshlaðin hús og á hlaðinn stein
Greiðslukjör. SMIÐSBÚÐ
Sendum í póstkröfu. Í35SSVSSST™
Sími 91-44300
Sigurdur Palsson
byggingameistari