Morgunblaðið - 03.07.1985, Side 1
56 SÍÐUR
147. tbl. 72. árg.___________________________________MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsina -
Gorbachev og
Reagan hitt-
ast í nóvember
Moflkni, WaMhington. 2. júlí. AP.
RONALD Reagan, Bandaríkjaforaeti, og Mikhail S. Gorbachev, leiótogi Sovét-
ríkjanna, munu eiga með sér fund í Genf dagana 19.—21. nóvember nk. Þetta
var haft eftir ónafngreindum embættismönnum í Washington í dag.
Larry Speakes, blaðafulltrúi
Hvita hússins, vildi ekki staðfesta
þessa frétt í morgun, en sagði að
yfirlýsingar væri að vænta innan
skamms.
Reagan og Gorbachev hafa ekki
hist áður og ef af fundinum í Genf
verður er hann hinn fyrsti sem leið-
togar Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna eiga með sér i sex ár.
Síðasti leiðtogafundur Banda-
rikjamanna og Sovétmanna var i
Vín árið 1979 þegar Jimmy Carter
og Leonid Brezhnev hittust við und-
irritun SALT-Il-samkomulagsins
um takmörkun vigbúnaðar.
Blaðafulltrúi pólsku stjórnarinnan
Walesa tók ekki
þátt í verkfallinu
Varajá, 2. jélL AP.
JERZY llrban, blaóafulltrúi pólsku
ríkisstjórnarinnar, aagði í dag aó
gerðar befóu verið tilraunir til aó
trufla vinnu i fimm verksmiójum í
landinu í gær í mótmælaskyni vió
veróhækkun á matvælum sem þá
tók gildi.
Urban vísaði hins vegar á bug
fréttum, sem hafðar eru eftir leið-
togum Samstöðu, óháðu verka-
lýðshreyfingarinnar, að mikil
þátttaka hefði verið í mótmæla-
verkfalli í Lenín-skipasmíðastöð-
inni i Gdansk, í þremur verk-
smiðjum í Varsjá og einni í Wrocl-
aw.
Blaðafulltrúinn gaf til kynna, að
mótmæli Samstöðu hefðu runnið
út i sandinn og ekki fleiri en 60
manns hefðu tekið þátt i þeim.
Hann sagði að i Lenin-skipa-
smiðastöðinni hefðu þátttakendur
ekki verið fleiri en 20 og meðal
þeirra, sem lagt hafi hart að sér
við vinnu, hafi verið Lech Walesa,
leiðtogi Samstöðu, sem þar starf-
ar.
Walesa áréttaði i simaviðtali
við AP i dag ummæli sin i gær,
Lech Walesa
þess efnis að hann væri ánægður
með þátttöku i verkfallinu. Hann
neitaði að láta hafa nokkuð annað
eftir sér um mótmælin.
Jozef Pinior, einn af málsvörum
Samstöðu i Wroclaw, sagði hins
vegar í viðtali við AP i dag, að
þúsundir verkamanna hefðu tekið
þátt i mótmælaverkföllum þar í
gær.
AP/Slm»mynd
Mikhail Gorbachev, leiótogi sovéska kommúnistaflokksins (Lh.), telrar í htfnd Andreis Gromyko, hins nýja forseta
Sovétrikjanna (Lv.), á fundi Æósta ráósins i gær, mánudag. Á milli þeirra situr Nikolai Tikhonov, forsætisráðherra,
en fyrir aftan þá sést í Vitaly Vorotnikov og Mikhail Solomenstev.
Mannaskipti f áhrifastöðum í Kreml:
Gromyko áfram í
hópi valdamanna
Mookvu. 2. júli. AP.
BANDARÍSKIR embættismenn telja líklegt aö Andrei Gromyko, sem kjörinn
var forseti Sovétríkjanna á fundi Æósta ráósins í gær, muni áfram veróa
áhrifamikill á sviói utanríkismála. Þeir telja aó ekki sé að vænta stefnubreyt-
ingar i utanrikismálum í kjölfar þess að Eduard A. Shevardnadze hefur tekið
vió embætti utanrikisráóherra, sem Gromyko gegndi ( 28 ár.
Malcolm Toon, fyrrum sendi-
herra Bandarikjanna í Sovétrfkjun-
um, hefur látið sömu skoðun í ljós i
sjónvarpsviðtali. Hann segir, að
enda þótt embætti forseta Sovét-
ríkjanna sé fyrst og fremst viðhafn-
arstaða muni Gromyko áfram
verða valdamaður. Toon bendir á,
að Gromyko sé enn fullgildur félagi
í stjórnmálaráðinu, æðstu valda-
ísrael:
Mótmælaverkfall
lamaði atvinnulíf
Tel Atít, 2. júlí. AP.
ATVINNULlF í ísrael lamaóist í dag er hálf ðnnur milljón félaga i
Histadrut, verkalýðssambandi landsins, lagði niður vinnu til að mót-
mæla harkalegum efnahagsráósttffunum stjórnvalda. Verkfallió stend-
ur í sólarhring og tekur til verksmiója, banka, verslana, skóla, stjórn-
arskrifstofa og útvarps og sjónvarps.
Til harðra átaka kom i Jerú- ingar launa og banni við hækkun
salem i gærkvöldi er þúsundir
andstæðinga rikisstjórnarinnar
efndu til mótmælafundar.
Nokkrir lögreglumenn og mót-
mælendur slösuðust og fimmtán
manns voru handteknir.
Ráðstafanir þær, sem rikis-
stjórnin hefur gripið til í þvi
skyni að ráða niðurlögum 300%
verðbólgu, felast m.a. ( miklum
niðurskurði rfkisútgjalda, geng-
islækkun, afnámi visitölubind-
I Og'
Þingið i ísrael hefur samþykkt
þessar ráðstafanir með 70 at-
kvæðum gegn 19. Þingmenn sósi-
alista og kommúnista lögðust
einkum gegn þeim.
Tveir Itfgreglumenn flytja meðvit-
undarlausan Jerúsalembúa á brott
eftir mótmælafundinn þar í fýrra-
kvtfld. Maóurinn slasaóist f áttfk-
um vió Itfgregluna.
AP/Slm»mynd
stofnun sovéska kommúnista-
flokkksins, og muni lfklega v« rða
helsti ráðgjafi Mikhails Gorbachev,
flokksleiðtoga, um utanrikis- sem
innanríkismál. Með skipun Grom-
yko í forsetaembætti sé verið að
sýna honum virðingu og þakklæti
fyrir störf í þágu Sovétrfkjanna um
árabil. Vernon Walters, núverandi
sendiherra Bandarfkjanna f
Moskvu, hefur tekið i sama steng
um þetta atriði.
Shevardnadze, hinn nýi utanrík-
isráðherra, hefur getið sér gott orð
fyrir stjórnarstörf í Georgiu, þar
sem hann hefur verið flokksleiðtogi,
en hann er að heita má óþekktur
utan Sovétríkjanna. Er hann álit-
inn nýgræðingur á vettvangi utan-
ríkismála og sagt, að hann tali ekk-
ert erlent tungumál.
Sjá: „Gromyko foraeti f
kjölfar sviptinga" og „Lítt
þekktur leiótogi tekur vlð.. “
á bU. 26-27, og forystugrein
„Gromyko á toppinn" á mió-
opnu.
Afganistan:
Felldu 200 fall-
hlífarhermenn
d, 2. jútl. AP.
LIÐSMENN frelsissveitanna í Afganistan, sem berjast gegn stjórnarhernum i
landinu og sovéska innrásarhernum, felldu 200 fallhlifarhermenn vfkingasveita
(efri hluta Panjshir-dals i síðasta mánuði. Þetta var f dag haft eftir ónafngreind-
um vestrænum stjórnarerindrekum í Pakistan, en heimildum ber ekki saman
um hvort hermennirnir voru afganskir eóa sovéskir.
Heimildarmennirnir segja að
vikingarnir hafi komið i flugvélum
og svifið f fallhlifum niður i dalinn
16. júni. Hafi þeim verið ætlað að
styrkja sóknina, sem þá stóð yfir
gegn frelsissveitunum i dalnum.
Liðsmenn sveitanna hafi hins vegar
beðiö komu hermannanna og skotið
marga þeirra til bana meðan þeir
svifu f loftinu. Aðra hafi þeir vegið
á jörðu niðri.
Enn fremur er haft eftir hinum
vestrænu sendifulltrúum, að liðs-
menn frelsissveitanna hafi sama
daginn og þeir felldu fallhllfarher-
mennina, skotið sovéska orrustu-
flugvél niður skammt frá Bazarakh
i Panjshir-dal. Vélin hrapaði á sov-
éska herflutningalest og létu fjörtiu
sovéskir hermenn lífið og margir
særðust. Miklar skemmdir urðu á
herbifreiðum Sovétmanna.