Morgunblaðið - 21.08.1985, Side 21
MOÍtGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1985
21
Sovéski herinn í Afganistan:
Reynir að binda enda
á umsátrið um Khost
Mikiko Yoshianki, átta ára gömul stúlka, var ein þeirra fjögurra sem lifðu af flugslysið í Japan, þar sem 520 manns
fórust í síðustu viku.
Islamabad, 20. ágúst AF.
HAFT er eftir vestrænum stjórn-
arerindrekum, að sovéski herinn í
Afganistan sé nú að undirbúa
mikla sókn gegn frelsissveitum
Afgana, sem setið hafa um herlið
þeirra og afganskra stjórnvalda í
virkinu Khost, skammt frá landa-
mærum Pakistan.
Umsátrið um Khost hefur
staðið í eitt ár og á þeim tíma
hefur einungis verið unnt að
flytja vopn og vistir þangað
flugleiðis. Svæðið í grennd við
virkið er mikilvæg samgöngu-
leið frelsissveitanna.
Hinir vestrænu stjórnarer-
indrekar segja, að undanfarna
daga hafi Sovétmenn flutt mik-
ið magn vopna og hersveita frá
Kabúl til staðar í grennd við
Khost og þaðan verði væntan-
lega gert áhlaup innan tíðar.
Nefnd sett til að rannsaka JAL:
„Mamma, ekki fara að sofa
þú deyrð ef þú sofnar“
Tókýó, 20. igásL AP.
„ÉG HEYRÐI gríðarlega spreng-
ingu, farþegar fylltust skelfingu,
margir féllu í yfirlið og vélin skókst
og hristist.“ Pannig lýsir Hiroko
Yoshizaki, ein þeirra fjögurra sem
komust lífs af úr flugvélaslysinu 12.
ágúst, því sem gerðist áður en vélin
hrapaði.
Shevardnadze
Bandaríkin:
Shevardnadze
ætlar að ræða
við Reagan
SanU Barbara, Kaliforníu, 20. ágúsL AP.
RONALD REAGAN, Bandaríkjafor-
seti, segir að fundur sinn með Shev-
ardnadze, utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna, í september eigi að verða
til þess að vænka horfur á bættum
samskiptum ríkjanna að því er Larry
Speakes, talsmaður Hvíta hússins
sagði í gær.
Speakes sagði að Reagen hefði
boðið Shevardnadze til viðræðna í
síðustu viku og utanríkisráðherr-
ann hefði þegið boðið. Hann sagði
að viðræðurnar yrðu forsetanum
gagnlegar við undirbúning fyrir
fund hans með Mikhail Gorbachev
19. og 20. nóvember í Genf.
Þetta verður fyrsti fundur
Reagans og Shevardnadzes, arf-
taka Gromykos í embætti utan-
ríkisráðherra. George Shultz,
utanríkisráðherra, og Robert
McFarlane, öryggisráðgjafi, taka
einnig þátt í viðræðunum.
Sovéska fréttastofan TASS
gagnrýndi í gær fyrstu kjarnorku-
tilraun Bandaríkjamanna, sem
gerð var í Nevada á laugardag,
eftir að Sovétmenn ákváðu að
hætta slíkum tilraunum um fimm
mánaða skeið og sagði að hér sæ-
ist í verki hvers virði yfirlýsingar
Bandaríkjamanna um kjarnorku-
afvopnun væru.
Þegar Hiroko rankaði við sér
eftir slysið var hún að því komin
að missa meðvitund aftur, en þeg-
ar hún heyrði dóttur sína, Mikiko,
hrópa: „Mamma! ekki fara að sofa.
Þú deyrð ef þú sofnar!" reyndi hún
að halda sér vakandi.
Maður Hirokos og tvö barna
þeirra fórust með vélinni.
Ferðamálaráð Japan tilkynnti í
dag að víðtæk rannsókn á jap-
anska flugfélaginu JAL væri ráð-
gerð, en þotan sem hrapaði flaug
fyrir félagið.
Rannsóknin mun aðallega bein-
ast að viðhaldi flugvéla JAL, að
því er fulltrúi ferðamálaráðu-
neytisins sagði í framburði sínum
fyrir japanska þinginu í dag.
Ferðamálaráðherra Japan,
Tokuo Yamashita, bar einnig vitni
fyrir þinginu í dag og sagði hann
að bæði lögreglan og rannsókn-
arnefnd ferðamálaráðs hefðu rétt
hafið störf og hann gæti ekki sagt
til um það á þessu stigi málsins
hvenær orsakir slyssins kæmu í
Ijós.
Fyrir tilviljun flaug Yamashita
með sömu vél og fórst tveimur
klukkustundum áður en hún lagði
í hina örlagaríku ferð til Osaka.
Vélar flugfélagsins hafa lent í
tíu slysum undanfarin þrettán ár
og hafa 731 manns farist í þeim.
JAL býr yfir stærsta flota breið-
þota af gerðinni 747 og á japanska
ríkið 34,9 prósent hlutabréfa í
fyrirtækinu.
Enn er unnið að björgunarstörf-
um á slysstað og hafa 489 lík fund-
ist og kennsl verið borin á 409, að
sögn lögreglunnar.
Rannsóknarnefnd hefur haldið
áfram rannsókn á flaki vélarinnar
og flug- og hljóðrita hennar. Ein
kenning um orsakir slyssins er að
þrýstiloft hafi streymt innan úr
vélinni og valdið því að stélhlutinn
brotnaði og flugmennirnir hafi við
það misst stjórn á vélinni. Tækni-
maður JAL hefur sagt að ytri
þrýstingur eða miklir sviptivindar
hefðu getað laskað þennan hluta
vélarinnar.
Fljúgandi
furðuhlut-
ir yfir
Ameríku
Buenos Aires, 19. ágúst. AF.
FARÞEGAR og áhöfn arg-
entínskrar farþegaþotu sáu á
sunnudag tvo fljúgandi
furðuhluti yfir Santiago del
Estero-héraði í Argentínu að
því er þarlend blöð greindu
frá.
Dagblaðið Clarin í Buen-
os Aires birti myndir af
hlutunum en ljósmyndari
blaðsins var um borð í far-
þegaþotunni. Furðuhlut-
irnir voru óskýrir, en
bjartir á nátthimninum á
myndunum.
Clarin lýsti hlutunum og
sagði að annar hefði verið
hnattlaga en hinn eins og
banani, þeir hefðu farið í
hlykkjum eftir himninum
á miklum hraða og skipt
litlum.
Blaðamaður annars
dagblaðs var einnig um
borð í vélinni og leiddi
hann að því getum hvort
hér-væri um sömu fyrir-
bæri að ræða og sáust yfir
Chile á laugardag.
Vikuritid Stern:
Áætlanir um hryðjuverk í
34 bandarískum herstöðvum
Hamborg, 20. ágúst AF.
VIKURITIÐ Stern í Vestur-l>ýska
landi kveðst hafa fyrir þvi heimildir,
að vinstri sinnaðir hryðjuverkamenn
hafi uppi áætlanir um að vinna
hermdarverk í 34 herstöðvum Banda-
ríkjamanna í Evrópu og höfuðstöðv-
ura Atlantshafsbandalagsins í Belgíu.
Blaðið segir, að lögreglan í
Vestur-Þýskalandi hafi komist á
snoðir um þessar fyrirætlanir og
gert ráðstafanir til að hindra að
hryðjuverkamönnunum heppnist
áform sín. Blaðið segir að lögreglan
hafi í höndum sannanir fyrir því að
hryðjuverkasamtök í Vestur-
Þýskalandi, Frakklandi, Ítalíu,
Belgíu og Portúgal hafi samstarf
sín á milli.
Meðal þeirra herstöðva, sem
Stern nefnir eru stöðvar leyni-
þjónustu Bandaríkjahers í Múnch-
en, flugbækistöð þeirra í Rhein-
Main, fyrir utan Frankfurt, og
herstöðvarnar í Bad Toelz og
Garlstedt.
Arno Falk, formælandi vestur-
þýsku rannsóknarlögreglunnar í
Wiesbaden, staðfesti í dag, að lög-
reglan hefði gert lista yfir
herstöðvar og hernaðarleg mann-
virki, sem gætu orðið fyrir árás
hryðjuverkamanna. Hann vildi
hins vegar ekki gefa neinar upplýs-
ingar um hvaða stöðvar væru á
listanum.
Stern segir, að auk herstöðvanna
sjálfra séu háttsettir yfirmenn í
herjum Bandaríkjamanna, Frakka
og Vestur-Þjóðverja á listanum yf-
ir hugsanleg skotmörk hryðju-
verkamanna.
írland:
„Kraftaverkastytta“ laðar
að sér þúsundir manna
BallinspitUe, AP.
ÞÚSUNDIR manna hafa á undan-
förnum vikum ferðast til smá-
þorpsins Ballinspittle á írlandi til
að sjá „kraftaverkastyttu" af
Maríu mey, en fjöldi manns stað-
hæfir að hún hafi hreyfst af
sjálfsdáðum.
Enda þótt biskupinn í Cork,
Michael Murphy, sé enn fullur
efasemda um að hér hafi verið
um kraftaverk að ræða og hafi
lýst yfir því að leita þurfi ver-
aldlegra skýringa á málinu
þangað til annað komi í ljós, hef-
ur trúað fólk flykkst til Ballin-
spittle unnvörpum.
Höggmyndin af Maríu mey
var gerð fyrir þrjátíu árum, og
hafði ekki hlotið mikla athygli
fyrr en í síðasta mánuði: þá
kváðust nokkrir íbúar þorpsins
hafa séð styttuna hreyfast. Síð-
an orðrómurinn komst á kreik
hefur straumur fólks legið til
Ballinspittle, og á fimmtudag í
síðustu viku komu alls 13 þúsund
manns í þeim erindagjörðum að
sjá höggmyndina, sem er úr
graníti. Er þetta mesti fjöldi
sem komið hefur þangað á einum
degi, en í upphafi mánaðarins
voru 15 þúsund manns í Ball-
inspittle yfir helgi í sama til-
gangi.
Sálfræðingur við Cork-há-
skóla, Jurek Kirakowsky, segir
að eðlileg skýring sé á þeim um-
mælum fólks að styttan hafi
hreyfst: hér sé um að ræða tál-
sýnir hugans. Hann segir að fólk
hafi látið blekkjast af því að
bakgrunnur höggmyndarinnar
sé grár. Flestar styttur af þess-
um toga séu þannig gerðar að
þegar litið er upp á þær við
ljósaskipti renni grái liturinn
saman við himininn. Endurskin-
ið af hinum uppljómaða geisla-
baugi styttunnar geri það síðan
að verkum að erfiðara sé að sjá
höfuð og axlir hennar í réttu
hlutfalli við steinrunnið andlit
hennar í bakgrunni.
Hins vegar standa bæjarbúar
fastir á sínu: að höggmyndin
hafi hreyfst til, og enginn vafi sé
á því. Ein kona kvaðst meira að
segja hafa séð kross úr silfri
uppljómast á nærliggjandi hæð
þegar styttan færðist úr stað.
Það þarf því ekki að koma á
óvart að bæjarbúar hafa skipað
sérstaka nefnd til að rannsaka
málið. Nefndin fer einnig með
það hlutverk að skipuleggja mót-
töku trúaðra í Ballinspittle, og
hefur verið komið fyrir bekkjum
í námunda við styttuna. Einnig
hefur verið komið þar upp síma-
klefum og salernum, enda hefur
áhuginn á höggmyndinni vaxið
með hverjum deginum.