Morgunblaðið - 12.09.1985, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B
204. tbl. 72. árg.
FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Átökin hjaðna
í Birmingham
— Andúð milli blökkumanna og Asíubúa eykst
Kirmingham, 11. september. AP.
ÓEIRÐIR héldu áfram í fáUtkrahverfi Birmingham þriðjudagsnótt og hefur
andúðin milli Asíubúa og blökkumanna þar aukist. Lögregluyfirvöld borgar-
innar skoruðu í dag á bæjarbúa að selja fram þá ungu óeirðarseggi, sem að
látunum hafa staðið, og í kvöld var allt með kyrrum kjörum í borginni.
Blökkumenn frá Vestur-Indíum hjálpuðu lögreglu við eftirlit með hverfinu.
Lögreglan í Birmingham sagði
að ekki hefði verið jafn mikið um
róstur þriðjudagsnótt og mánu-
dagsnótt, en þá brunnu tveir menn
inni.
í nótt voru um 1.400 lögreglu-
menn kvaddir til Birmingham til
að koma í veg fyrir frekari óeirðir.
Engu að síður var kveikt í nokkr-
um verslunum og eldur lagður að
Mitterrand fer
til Muroroa
bílum. 128 manns hafa verið hand-
teknir frá því að átökin hófust
mánudagsnótt og þar af voru 92
handteknir fyrir þjófnað og
óspektir þriðjudagsnótt.
Mikil spenna ríkti á fundi sem
fulltrúar blökkumanna og Asíu-
búa héldu með sér í dag til að
draga upp stefnuskrá fyrir áfram-
haldandi sambúð kynþáttanna í
hverfinu, og leystist fundurinn
upp.
Suður-Afríka:
Bifreið stendur í Ijósum logum í óeirðunum í Handsworth-hverfi f Birmingham í dag. AP/simamynd
Strangari efnahagsaðgerðir
í
Jóhannesarborg, 11. september.
FRÉTTIN um að Nelson Mandela, leiðtogi blökkumanna í Suður-Afríku, þurfi
að gangast undir uppskurð á eftir að gera stjórnvöldum í landinu erfitt fyrir að
halda Mandela áfram í fangelsi. Dóttir Mandela, Zenani, segir að fréttirnar
um bólgu í blöðruhálskirtli og blöðrur á lifurhafi ekki fengið mikið á hann, en
hann vill fá álit sérfræðinga áður en hann gengst undir uppskurð samkvæmt
ráði fangelsislækna.
París, 11. september. AP.
FRANCOIS Mitterrand, forseti
Frakklands, heldur, ásamt Charles
Hernu, varnarmálaráðherra, til Mur-
uroa-kóralrifsins á fimmtudag til
viðræðna við sendiherra og embætt-
ismenn Frakka í nálægum eyríkjum.
Sem kunnugt er ætla Green-
peace-samtökin að senda skip á
tilraunasvæðið til að mótmæla
kjarnorkutilraunum Frakka og
hefur Mitterrand lýst því yfir að
reynt verði að stöðva skip samtak-
anna með öllum tiltækum ráðum.
För Mitterrands er talin undir-
strika hversu ákveðnir Frakkar
eru í að halda áfram tilraunum
sínum í Suður-Kyrrahafi, þrátt
fyrir aukin mótmæli. En Mitter-
rand er undir þrýstingi frá um-
hverfisverndarsinnum, sem telja
að geislun frá neðansjávarspreng-
ingum sé of há, og ríkjum í grennd
við rifið, sem vilja kjarnorkulaust
Kyrrahaf.
í dag voru greidd atkvæði í öld-
ungadeild bandaríska þingsins um
efnahagsaðgerðir gegn Suður-
Afríku. Frumvarpið var fellt, það
hlaut aðeins 57 atkvæði en þurfti
60 til þess að öðlast gildi. Demó-
kratar og repúblikanar, sem snúist
hafa á sveif með þeim, vildu boða
harðari efnahagsaðgerðir en þær,
er Ronald Reagan vill grípa til
gegn Suður-Afríku. Þetta er öðru
sinni sem frumvarpið er fellt.
Botha, forseti Suður-Afríku, til-
kynnti í dag að blökkumenn, sem
upprunnir eru í heimalöndum sem
hafa sjálfstjórn að nafninu til, fái
fullgild suður-afrísk borgararétt-
indi.
Hann sagðist einnig reiðubúinn
að veita íbúum heimalandanna tvö-
faldan ríkisborgararétt.
Botha sagði að saga heimaland-
anna væri órjúfanlega tengd sögu
Suður-Afriku og hér sýndi hann í
verki að hann vildi lausn á deilun-
um um aðskilnaðarstefnuna.
Þar með er ekki sagt að svartir
fái atkvæðisrétt í Suður-Afríku, og
sagði Desmond Tutu um tilslakanir
Botha að hann hefði alltaf litið á
sig sem Suður-Afríkubúa-
I Höfðaborg var lögreglumaður
stunginn til bana við jarðarför
fórnarlambs óeirðanna þar að und-
anförnu. Að sögn lögreglu hóf lög-
reglumaðurinn, sem var af blönd-
uðum kynþætti, skothríð á lík-
fylgdina og særði einn syrgjenda
ar á hann var ráðist.
dag var fjögurra ára stúlka
skotin til bana af óeirðalögreglu,
þar sem hún var að leik fyrir utan
heimili sitt í höfuðborg landsins,
Pretoriu.
Dóttur forseta E1 Salvador rænt:
Engar vísbendingar um ræningjana
San .Sahador, 11. aeptember. AP.
SEX vopnaöir menn rændu dóttur Joses Napoleons Duarte, forseta El
Salvador, á þriöjudag þegar hún var á leiö í háskólafyrirlestur. Bílstjóri
hennar var myrtur og lífvöröur hennar særöur.
Ræningjarnir, sem voru borg-
aralega klæddir, hófu skothríð á
lífverði Ines Guadelupe Duarte
Duran, drógu hana frá bifreið
hennar og neyddu hana inn í
sendiferðabíl, að því er nánasti
ráðgjafi forsetans, Julio Adolfo
Rey Prendes, sagði á þriðju-
dagskvöld. Hún var ómeidd þegar
síðast sást til hennar.
Prendes sagði að ekkert hefði
heyrst frá ræningjunum og eng-
inn hefði lýst yfir ábyrgð sinni á
verknaðinum.
Höfuðsmaður, sem fer með ör-
yggi forsetans, sagði að hér hefðu
skæruliðar ugglaust verið að
verki, en útvarpsstöð skærulið-
anna, Venceremos, minntist ekki
á mannránið í fréttatíma sínum í
morgun.
Duarte Duran er fráskilin
þriggja barna móðir. Hún leggur
stund á fjölmiðlafræði og auglýs-
ingagerð við háskólann i San
Salvador.
Hún stjórnaði kosningabaráttu
föður síns 1984 og stjórnaði út-
varpsstöð í San Salvador, sem
kennir sig við frelsi.
Prendes neitaði að leiða getum
að því með hvaða skilyrðum hún
yrði látin laus, en hann sagði að
forsetinn, sem hefur sinnt störf-
um sínum heima fyrir undanfarið
vegna veikinda, hefði verið
hrærður, en ákveðinn, vegna
ránsins.
Vitni sögðu frá því að öryggis-
viðbúnaður hersins hefði verið
óvenju mikill í dag og settar
hefðu verið vegatálmanir þar sem
götur liggja út úr borginni. Leit
að Duarte Duran hefur engan
árangur borið.
AP/Slmmmynd
Öryggisverðir leita vísbendinga og ummerkja eftir ræningja Ines Duarte
Duran, dóttur forseta El Salvador, ( skriöu í San Salvador, höfuðborg
landsins.
Hafa nú að minnsta kosti 709
manns fallið síðan óeirðir hófust
vegna aðskilnaðarstefnunnar fyrir
þrettán mánuðum.
Portúgal:
100 manns
farast í
lestarslysi
Viaeu, Portúgal, II. september. AP.
HRAÐLEST á leið til Frakklands
rakst í dag á járnbrautarlest í inn-
anlandsferðum í grennd við þorpið
Viseu í Portúgal og fórust rúmlega
100 manns, en 140 særöust aö því er
talið er.
Þegar lestirnar skullu saman
urðu vagnar þeirra alelda á
skömmum tíma og kviknaði í
trjám meðfram teinunum.
Mario Soares, forsætisráðherra
Portúgals, sem flaug á slysstað,
sagði að þetta væri mesta járn-
brautarslys sem átt hefur sér stað
í landinu.