Morgunblaðið - 12.09.1985, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1985
59
Frakkar töpuöu
AUSTUR-Þjóöverjar sigruðu
Frakkland í undankeppni heims-
meistarakeppninnar í knatt-
spyrnu, 2—0, í Leipzig í Austur-
Þýskalandi í gærkvöldi. Staðan í
hálfleik var 0—0.
Úrslit leiksins voru mjög slæm
fyrir Evrópumeistarana, Frakka,
þeir veröa nú aö vinna þá tvo leiki
sem eftir eru og eru þeir báöir á
heimavelli þeirra, gegn Jugóslöv-
um og Búlgörum sem nú eru efstir
í riðlinum. Tvö liö komast áfram úr
riölinum.
Frakkar voru betri aöilinn í leikn-
um til aö byrja meö, en Austur—
Þjóöverjar hvattir af 78.000 áhorf-
endum efldust er líöa tók á leikinn
og þaö var hinn snjalli knattspyrnu-
maöur heimamanna Rainer Ernst
sem skoraði fyrsta markiö er aöeins
níu mínútur voru búnar af seinni
hálfleik. Þaö var svo Ronald Kreer
sem skoraöi annaö mark heima-
manna rétt fyrir leikslok og tryggöi
sigur Austur-Þjóðverja.
Morgunblaöiö/Júlíus
• Maulden skorar hér sitt annað mark í leiknum gegn íslandi, án þess að góður markvörður íslands,
Ólafur Gottskálksson, komi nokkrum vörnum við. Maulden skoraði þrjú mörk í leiknum í gærkvöldi fyrir
lið sitt.
Stórt tap hjá íslenska liðinu:
Yfirburöir Englendinga miklir
ENGLENDINGAR sigruöu íslend-
inga með yfirburðum, 5—0, í
unglingalandsleik í knattspyrnu á
Valbjarnarvelli í gærkvöldi. Leik-
urinn var liður í síðari hluta Evr-
ópukeppninnar. Staöan í hálfleik
var 2—0 fyrir England.
Leikurinn fór nokkuö rólega af
staö og áttu leikmenn oft erfitt meö
aö fóta sig á rennblautu grasinu í
Laugardal.
Englendingar skoruöu sitt fyrsta
mark á 14. mín. Þaö var leikmaöur
Aston Villa, Tony Daley, sem þaö
geröi meö skalla eftir fyrirgjöf frá
Hust. Daley sem er 17 ára hefur
leikiö síöustu leiki meö aöalliöi
Aston Villa og hefur staöiö sig vel.
Skömmu síöar björguöu Islend-
ingar á línu og síöan varöi Ólafur
Gottskálksson vel skot frá
Kinomya.
Eina marktækifæri íslending-
anna fékk Alexander Högnason, en
hann klúðraöi því og skaut langt
framhjá, eftir aö íslensku strákarnir
höföu byggt upp góöa sókn.
Englendingar skoruöu síöan sitt
annaö mark er tvær mínútur voru
til loka hálfleiksins. Maulden skor-
aöi þá af stuttu færi eftir aö Daley
haföi komist upp aö endamörkum
og gefiö vel fyrir markiö. Þannig var
staöaníhálfleik.
islendingar komust betur inn í
leikinn í seinni hálfleik og var nokk-
urt jafnræöi meö liöunum fyrstu
mínúturnar. Ólafur varöi meistara-
lega skot frá Hust en stundarfjórö-
ungur var liöinn af hálfleiknum. Á
64. min. skoraöi Maulden sitt annaö
mark og þriöja mark Englendinga
og kom það eftir aö Ólafur haföi
variö gott skot, en misst knöttinn
frá sér og þar kom Maulden á fullri
ferö og átti auðvelt meö að skora í
auttmarkiö.
Tveimur mínútum eftir aö islend-
ingar fengu á sig þriöja markiö kom
besta færi þeirra. Alexander komst
þá upp aö endamörkum og gaf vel
fyrir markiö og þar myndaöist
þvaga og barst knötturinn út í teig-
inn og þar var Einar Páll Tómasson
ísland — England
í góðu færi, en hitti illa knöttinn sem
fórhiminháttyfir.
A 21. mín. skorar Daley sitt ann-
aö mark upp á eigin spýtur, lék á
tvo varnarmenn og skaut föstu
skoti sem Ólafur varöi vel, en knött-
urinn hrökk aftur út í vítateiginn og
þar var Daley mættur og skallaöi í
netiö og staöan þvi oröin 4—0.
Eindhoven
vann
PSV Eindhoven frá Hollandi
sigraði Avenir Begge frá LÚx-
emborg 2—0, í fyrri leik þesa-
ara liöa í UEFA-keppninni í
gærkvöldi. Staðan í hálfleik
var 1—0. Seinni leikurinn fer
fram í Hollandi 2. október.
Svíar
unnu
Dani
SVÍAR unnu Dani í vináttu-
landsleik í knattapyrnu, 3—0,
í Kaupmannahöfn í gærkvöldi.
Staðan í leikhléi var 1—0.
Mörk Svía gerðu Robert
Prytz, Dan Corneliusson og
Mats Magnusson. Franz Beck-
enbauer, landsliösþjálfari
Vestur-Þjóðverja, var á meöal
44.000 áhorfenda á leiknum.
Vestur-Þjóðverjar eru sem
kunnugt er í riðli með Svíum.
n»' ' :•**
_ •*
. iW - 'í ' > , 1
HSV* . J v
Morgunblaöiö/Július
• Hinn kornungi blökkumaöur Tony Daley sem leikur með Aston Villa
vakti mikla athygli í leiknum í gærkvöldi. Hann skoraöi sjálfur tvö
mörk og lagöi upp önnur tvö.
Hlynur Birgisson komst i ákjós-
anlegt færi er 15. mín. voru til leiks-
loka, fékk góöa sendingu inn í víta-
teig og skot hans fór í markvöröinn
ogíhorn.
Er fimm mínútur voru til leiksloka
skoruöu Englendingar sitt fimmta
mark og var þar aö verki Maulden
sem geröi jafnframt sitt þriöja mark
í leiknum, er hann skoraöi af stuttu
færi eftir aö Ólafur haföi varið
hörkuskot frá Daley, en hélt ekki
knettinum og var þetta mark mjög
áþekk þriöja og f jóröa markinu.
Leikurinn var sæmilega vei leik-
inn ef miöaö er viö aöstæöur í
Laugardal, völlurinn rennblauturog
svo er völlurinn of þröngur svo
hægt sé aö nýta kantana. Englend-
ingar voru mun betri eins og loka-
tölurnar gefa til kynna, islending-
arnir böröust vel allan leikinn en
áttu viö ofurefli að etja.
Englendingar eru meö marga
skemmtilega leikmenn og þá sér-
staklega Tony Daley sem leikur
meö Aston Villa. Hann er mjög leik-
inn og fljótur og áttu íslensku strák-
arnir erfitt meö aö stööva hann,
sannarlega mikill knattspyrnusnill-
ingur á uppleiö, aöeins 17 ára
gamall. Hann á örugglega eftir aö
gera mikinn usla í vörnum and-
stæöinga Aston Villa í framtíöinni.
Miövallarleikmaöurinn Ant Greg-
ory sem leikur meö liöi Siguröar
Jónssonar, Sheffield Wednesday,
komst vel frá leiknum, mikill vinnu-
hestur.
í íslenska liöinu var Ólafur Gott-
skálksson markvörður bestur og
einnig voru þeir Ólafur Kristjánsson
og Hlynur Birgisson góöir, unnu vel
og gáfust aldrei upp, eins og reynd-
ar allir leikmenn liösins.
Staðan í riölinum er nú þannig:
Búlgaria 6 4 11 9—2 9
Júgóslavia 6 3 2 1 6—4 8
Frakkland 6 3 1 2 7—4 7
A-Þýskaland 6303 12—7 6
Lúxemborg 6006 1 —18 0
Fyrsta
stig
Tyrkja
TYRKIR náðu sína fyrsta stigi í
sínum riöli er þeir gerðu marka-
laust jafntefli við Norður-íra í
Izmir í gærkvöldi. Þetta var ieikur
í undankeppni heimsmeistara-
mótsins í knattspyrnu.
Noröur-írar eru þar með endan-
lega búnir aö missa af sæti i
úrslitakeppninni í Mexikó á næsta
ári. Þaö veröa aö öllum líkindum
Englendingar og Rúmenar sem
komast áfram úr þessum riöli.
Tyrkir höföu tapaö öllum sínum
leikjum til þessa í keppninni og
voru því ekki undir neinni pressu í
leiknum, þaö voru 35.000 áhorf-
endur sem komu til aö horfa á leik-
inn sem fram fór á Ataturk-leik-
vanginum í Izmir.
Norður-irar sóttu nær allan leik-
inn en Tyrkir vöröust vel og stóö
markvörður þeirra, Yasar, sig mjög
vel og varöi allt sem á markið kom.
Tyrkir fengu þó eina og eina
skyndisókn sem skapaöi hættu við
mark Noröur-ira sem Pat Jennings
stóö í. Fyrri leik þessara liöa lauk
meö sigri Norður-ira, 2—0, á
heimavelli.
0—0 í Bern
SVISS og írland gerðu marka-
laust jafntefli, 0—0, í Bern í Sviss
í gærkvöldi i undankeppni
heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu.
Þessi úrslit þýða að hvorugt liö-
iö kemst í úrslitakeppnina í Mexíkó
á næsta ári. Bæöi liöin uröu aö ná
sigri úr þessum leik til aö eiga
möguleika á aö ná Dönum eða
Sovétmönnum aö stigum. En þaö
eru aöeins tvö liö sem komast
áfram í riölinum og má telja líklegt
aö þaö veröi frændur okkar Danir
og Sovétmenn.
Leikurinn var nokkuö jafn er á
heildina er litiö, heimamenn sóttu
mun meir fyrsta stundarfjóröung-
inn en síöan komu irar meira inn í
leikinn og fengu oft góð marktæki-
færi en tókst ekki aö nýta þau.
Eftir því sem lengra leiö á leikinn
jafnaöist hann aftur og voru þessi
úrslit sanngjörn eftir gangi leiksins.
Vestfirðingar stofna
knattspyrnusamband
FYRIRHUGAÐ er að stofna Knatt-
spyrnusamband Vestfjarða á
næstunni og koma þannig meira
lífi í knattspyrnuna á Vestf jöröum.
Stofnfundur sambandsins verö-
ur laugardaginn 14. september og
veröur hann haldinn í Félagsheimili
Bolungarvíkur. Formanni móta-
nefndar KSÍ og fulltrúa úr stjórn KSÍ
veröur boöiö á fundinn.
Stofnun knattspyrnusambands-
ins innan Vestfjaröa er hugsuö til
aö spara feröakostnaö félaganna
innan kjördæmisins og koma á
Vestfjaröariöli á öllum flokkum og
jafnvel í 4. deild karla einnig. Feröa-
kostnaðurinn hjá einstökum félög-
um hefur veriö mjög þungur baggi
á félögunum, þaö koma til meö aö
vera 11 aöildarfélög sem standa aö
sambandinu. Strandamenn muhu
einnig veröa aöilar að þessu sam-
bandi, en þeir hafa veriö með Norð-
lendingum í riðli undanfarin ár.