Morgunblaðið - 12.09.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1985
25
þar sem hann gat ekki farið í ár
vegna tímaskorts og heilsuleysis.
Kórinn hélt áfram tónleikahaldi
sínu fram undir hádegi þar til al-
menningurinn var orðinn tómur
og bændur höfðu allir fundið sitt
fé og dregið það í dilka. Þá héldu
menn heim á leið með fjárhópa
sína og tók það t.d. bændurna, sem
bjuggu lengst frá réttinni, 5—6
tíma að koma fénu heim.
í réttum í 85 ár
Hrútafjarðarrétt var lokið og þá
var eins gott fyrir blaðamann að
fara að koma sér af stað ef hann
ætlaði að ná í Miðfjarðarrétt, því
Hrútfirðingar hugðust teppa þjóð-
veginn næstu klukkutímana með
fjárrekstri sínum.
Miðfjarðarrétt var mun stærri
og fjölmennari. Fjallkóngar voru
fjórir: Rafn Benediktsson fór með
hóp um Núpsheiði, Friðrik Böðv-
arsson tók Tunguna sem er vestari
hluti Aðalbólsheiðar, Jóhannes
Kristófersson fór um Kjálkann,
sem er austari hluti heiðarinnar,
og Þorsteinn Helgason fór með
leitarflokk um Húksheiði. Réttar-
stjórinn, Björn Einarsson á Bessa-
stöðum, sagði að hluti af mann-
skapnum hefði lent í þoku annan
morguninn eins og Hrútfirðingar
og tafist i eina tvo tíma, en það
hefði ekki háð þeim. Leitarmenn
komu til byggða milli kl. 19.00 og
20.00 á laugardagskvöld. Féð var
geymt í girðingum í Vesturárdal,
Núpsdal og í Austurárdal. Stóð-
Guðjón Einarsson frá Huppahlíð.
rétt hófst síðan klukkan 7.00
sunnudagsmorgun og kom fyrsti
fjárreksturinn klukkan 10.15.
Hann Skúli Benediktsson var
manna fyrstur til að verða á vegi
blaðamanns i Miðfirðinum og
sagðist hann ekki hafa komið i
réttirnar í 20 ár. „Mér finnst tím-
Bjðrn Einarsson á Bessastöðum var
réttarstjóri í Miðfjarðarrétt.
arnir hafa breyst nokkuð miðað
við það sem áður var.“
Guðjón Einarsson frá Huppa-
hlíð í Miðfirði varð níræður í júlí
sl. og gat ekki hugsað sér að
sleppa réttunum. „Mig hefur ekki
vantað á eina einustu rétt siðan ég
var 5 ára gamall, nema hvað ég
var haustið 1925 i Fljótstungurétt
í Mýrasýslu. Breytingin í gegnum
árin hefur verið töiuverð, sérstak-
lega eftir áð girt var milli Borg-
firðinga og Miðfirðinga árið 1947.
Fyrir þann tíma var samgangur-
inn mikill og fjárréttir stóðu jafn-
vel á annan dag ef eitthvað var að
veðri. Nú kemur mikið af aðkomu-
fólki i réttirnar, en hér áður fyrr
kom aðeins fólk úr næstu sveitum
riðandi á hestum sinum.“ Guðjón
hætti að búa fyrir 14 árum. Hann
sagði að búið hefði verið á allt að
60 bæjum í Miðfirðinum hér áður,
en nú væru fjöldamargir þeirra
farnir í eyði.
„Krakkar mínir, út úr almenn-
ingnum ... allir frá,“ hrópaði
réttarstjórinn og almenningurinn
fylltist enn einu sinni af fé. Ungir
sem gamlir hófust handa,
skemmtu sér konunglega og unnu
hörðum höndum. „Dúddi, eigum
við að segja blaðamanninum frá
hrossunum á Barði ... ah, ah,
ah?“ segir rödd ein í næsta dilk.
Blaðamaður sperrir eyrun og bíð-
ur. „Já, hann Dúddi vinur minn
lenti í að elta hrossin. Það var
þriggja tíma ævintýraleg
orrusta.“ „Elskan mín, slepptu
þessu með hrossin,“ segir Dúddi.
„Ég vil ekki eiga við þetta núna
u
„Stelpur, stelpur, ekki stinga
mig af. Ég ætla að dansa við ykkur
á ballinu," heyrist í fjarska og
senn líður að lokum réttardags í
Miðfirði.
VEGNA HAGSTÆÐRA SAMNINGA VIÐ FRAMLEIOENDUR
STÓRKOSTLEG .
VERÐLÆKKUN HJA
▲
NISSANSUNNY
ðkr.370.000.-
NISSAN MICRA
íkr.317.000.-
NISSANPULSARCHERRY
4 kr.336.000.-
Aöeins þessi eina sending. Tökum flesta notaöa bíla upp í nýja.
Munið okkar landsfrægu kjör. Bílasýning laugardag og sunnudag ki. 14'
INGVAR HELGASON HF
Sýningarsalurinn/Rauðageröi, simi 33560.
■
17.
LÍNUEFNI
BLÝ-TEINATÓG
FLOTTEINN
NÆLON-TÓG
STÁLVÍR
allskonar
SNURPUVÍR
28m/m 6x24x7
800 mtr. rúllur
KARAT
LANDFESTATÓG
50% aukinn styrkleiki
BAUJUSTENGUR
ÁL, BAMBUS, PLAST
BAUJULUKTIR
ENDURSKINSHÓLKAR
ENDURSKINSBORÐAR
LÍNUBELGIR
NETABELGIR
BAUJUBELGIR
ÖNGLAR — TAUMAR
MÖRE-
NETAHRINGIR
NETAKEÐJA
NETALÁSAR
NETAKÓSSAR
LÓÐADREKAR
BAUJUFLÖGG
NETAFLÖGG
HSKKÖRFUR
FISKGOGGAR
FISKSTINGIR
SALTSKÓFLUR
ÍSSKÓFLUR
FLATNINGSHNÍFAR
FLÖKUNARHNÍFAR
BEITUHNÍFAR
KÚLUHNÍFAR
SVEDJUR
VASAHNÍFAR
STÁLBRÝNI
HVERFISTEINAR
í KASSA OG LAUSIR
RAFMAGNS-
HVERFISTEINAR
GÚMMÍ - OG
PLASTSLÖNGUR
ALLAR GEROIR OG STÆROIR
LAKK- OG MÁLN-
ING ARUPPLE Y SIR
NÚ EINNIG!
FULLKOMIN
MÁLNINGAR-
ÞJÓNUSTA
ALLIR LITIR OG
ÁFERÐIR Á VEGGI,
GÓLF, GLUGGA,
VINNUVÉLAR OG
SKIP.
ANANAUSTUM
SÍMI 28855
Opið laugardaga 9—12