Morgunblaðið - 12.09.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1985
21
Óleyst verkefni
— eftir Gísla
Sigurbjörnsson
Þau eru óteljandi óleystu verk-
efnin. í blöðunum er sí og æ verið
að skrifa um þau. Fiskeldi í vötn-
um, ám og sjó er líklega mest um-
rædda verkefnið og vafalaust það
mikilsverðasta. Þá koma virkjanir
og stóriðja, álbræðsla, járnblendi
— lífefnaiðnaður og tækni. Allt
þetta og ótal margt fleira má upp
telja, að ógleymdum sjávarútvegi,
landbúnaði og alls konar iðnaði.
Reisa þarf skóla, stofnanir,
sjúkrahús, íþróttahús og fleira og
fleira. Ekki má gleyma höfnum,
vegum, brúarsmíði, jarðgöngum,
leikhúsum, útvarpshöll, banka-
byggingum, húsum — og svo má
endalaust telja. Allt lífsnauðsyn-
legt en við verðum að velja og
hafna, vit og fjárhagur verða að
ráða ferðinni, ekki pólitík og ráð-
leysi. Þetta kostar ailt peninga og
við skuidum þegar allt of mikið.
Barnalánið hjá Hambrosbank á að
endurgreiða á öðrum tug næstu
aldar. Vinna barna er bönnuð víð-
ast meðal menningarþjóða, hér er
hún leyfð og skattlögð.
Heimilispósturinn lætur þetta
allt afskiptalaust, fæst orð bera
minnsta ábyrgð. Við munum að-
eins skrifa grein um eitt af okkar
sérmálum, framtíðina í ellinni.
Heilbrigðismálin eru vandasöm
og erfitt um þau að skrifa, hér
hefur allt verið sagt enda árang-
urinn stórkostlegur. Lyfsalar eru í
hæsta flokki skattgreiðenda.
Læknar fjölmargir, 995 eru með
lækningaleyfi samkvæmt nýrri
skýrslu frá landlækni. Sumir eru
þó ekki enn með starfsleyfi,
nokkrir hættir vegna aldurs eða
lasleika. Landsmenn eru liðlega
240.000 talsins. Fleiri læknar bæt-
ast við á næstunni, enda er Há-
skóli íslands fjölmennur.
í Breiðholtinu, reyndar víðar á
landinu, eru margir aldraðir,
einnig öldruð hjón, sem þurfa
stundum á dvöl á sjúkrahúsi eða
hjúkrunarheimili að halda. Um
þessi hjón er greinin skrifuð.
Þau búa í íbúð sinni, t.d. í stóru
húsi í Breiðholtinu. Eiginkonan
þarf að fara á sjúkrahús eða
hjúkrunarheimili um stundarsak-
ir. Erfitt er að fá pláss en gerum
ráð fyrir að það takist, þá verður
annað hjónanna heima í íbúðinni,
oft hjálparvana einstæðingur. Hér
væri hægt að ráða bót á ef til væri
heimili, þar sem væri hjúkrunar-
deild fyrir þá sjúku, en einnig hús-
rúm fyrir hitt hjónanna, þar sem
heilbrigt fólk væri. Með öðrum
Gísli Sigurbjörnsson
Höfundur kemst hér ad
þeirri niöurstöðu aö
„full verðtrygging“ sé
ótvírætt „besti grund-
völiurinn fyrir skynsam-
legri langtímafjármögn-
un húsnæöislána“.
orðum, hjónin fengju bæði initi
undir sama þaki. Er ég sann-
færður um að það myndi verða til
þess, að heilsan lagaðist fyrr hjá
þeim sjúka og hinum liði betur,
heldur en að vera einn eftir í íbúð-
inni. Með því að veita þeim báðum
hjúkrun og húsaskjól í sama hús-
inu, væri oft leystur mikill vandi.
Tilraun í þessa átt hefur verið
gerð í Vestur-Berlín og er talið að
hún hafi reynst vel. Væri vissu-
lega þess virði að athuga um slíka
lausn á oft erfiðu vandamáli, en til
þess að það gæti orðið, þarf margt
að breytast. Áhugi á þessum mál-
um finnst mér vera hverfandi,
menn hugsa svo mikið um sjálfan
sig, og hitt allt verður útundan.
Hvað varðar okkur um þetta
blessað aldraða fólk? Jú, við skul-
um ekki alveg gleyma því, það er
ljótt, en vera si og æ að staglast á,
hvað hægt sé að gera fyrir það og
hvað eigi að gera fyrir það? Blöðin
eru að mestu hætt slíkum skrifum,
en Heimilispósturinn heldur sínu
striki — en hversu lengi?
Höfundur er forstjóri Elliheimilis-
ins Grundar.
Skortur á raforkuverkfræð-
ingum á Nórðurlöndum
Ársfundur Nordel, samtaka for-
vstumanna helstu raforkufyrirtækja
og -stofnana á Norðurlöndum, fór
fram í Reykjavík dagana 28. til 30.
ágúst sl. Arsfundir þessir eru haldn-
ir til skiptis á Norðurlöndunum og
eru fjórir meðlimir frá hverju landi í
samtökunum.
„Okkar ávinningur af þessu
samstarfi felst fyrst og fremst í
upplýsingastreymi," sagði Jakob
Björnsson orkumálastjóri á fundi
sem boðað var til með blaða-
mönnum í tilefni af ársfundinum.
„íslendingar eru ekki beinir aðilar
að nefndum Nordel, en við fylgj-
umst með því sem þar er verið að
ræða og tökum mið af því sem
kemur fram í þeim umræðum. En
ísland er af landfræðilegum
ástæðum ekki tengt raforkukerf-
um hinna Norðurlandanna og get-
ur af þeim sökum ekki tekið þátt f
samstarfinnu með sama hætti og
þau.“
Sem dæmi um mál, er varðar
allar Norðurlandaþjóðirnar og var
rætt á ársfundinum, nefndi
orkumálastjóri tilfinnanlegan
skort á raforkuverkfræðingum á
Norðurlöndum, þar eð stúdentar
sem ljúka námi í rafmagnsverk-
fræði kjósa sér fremur starfs-
vettvang í rafeindagreinum en
orkugreinum að námi loknu.
Umferðarslys við Akureyri:
Ekið á brúarstólpa
ALVARLEGT umferðarslys varð
við Akureyri á mánudag, þegar
ung kona missti vald á bifreið
sinni við austustu brúna á Þver-
brautinni svokölluðu, með þeim
afleiðingum að bifreiðin skall á
annan brúarstólpann. Konan slas-
aðist verulega, m.a. fót- og lær-
brotnaði. Bifreiðin, sem var ný af
gerðinni Honda, er gjörónýt, að
sögn lögreglunnar.
KARNABÆR
y Austurstræti 22 M __
sími 45800 9 ffll Mn