Morgunblaðið - 12.09.1985, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1985
ÚTYARP/SJÓNVARP
Ljóðlistar-
hátíð
Kveðjur berast nú fyrstu Nor-
rænu ljóðlistarhátíðinni í
Norræna húsinu við Hringbraut
— af síðum dagblaðanna — og
ýmsar heldur í kaldara lagi. Þann-
ig mátti sjá hér í blaðinu í gær
eftirfarandi kveðjur frá Þriðju
norrænu ráðstefnunni um kvenna-
bókmenntir er nú stendur yfir í
Skælsker í Danmörku: Við lítum á
Ijóðahátíð ykkar sem viðleitni til
að halda vörð um þetta listform
sem alls staðar er ógnað, en með
ákafa ykkar gangið þið of langt
þegar þið viljið líka verja ljóðið
fyrir konum, sem hafa hneyksl-
anlega fáa fulltrúa á hátíðinni. Já,
konur geta verið miskunnarlausar
þegar fýkur í þær og miskunnarl-
ausastir eru kvenkynsbók-
menntafræðingarnir er stefna
leynt og ljóst að yfirráðum yfir
bókamarkaðinum hér á Norður-
löndum, kannski ekki nema von að
þær séu orðnar langþreyttar
blessaðar á ofríki karla i lista-
heiminum. Nóg um það. í ein-
hverri snjöllustu háðsádeilugrein
er sést hefir langa lengi í íslensku
dagblaði víkur Jóhann Hjálmars-
son skáld einnig hér í blaðinu f
gær að ýmsu er betur má fara í
skipulagi þessarar fyrstu ljóð-
listarhátíðar norrænna manna.
Þáttur sjónvarpsins
Ekki legg ég neinn dóm á fyrr-
greindar ádrepur kvennabók-
menntaráðstefnunnar í Dan-
mörku og Jóhanns Hjálmarssonar
skálds og bókmenntagagnrýn-
anda, en þó leiddu þessi áhrif huga
minn að einu framkvæmdaratriði
hátíðarinnar er tengist skrifum
mínum hér á blaðinu. Á ég þá við
hve klén tengsl ljóðlistarhátíðar-
innar eru við ríkisfjölmiðlana og
þá fyrst og fremst við áhrifamesta
fjölmiðil þjóðarinnar, íslenska
ríkissjónvarpið, en í dagskrá sjón-
varps er ekki að finna tangur né
tetur af ljóðlist þessa vikuna, ef
frá eru taldir þættirnir af sam-
tímaskáldkonunum sem Nordvis-
ion hefir látið gera góðu heilli. En
ekkert er að finna í dagskránni
um Ijóðlistarhátíðina sem slika,
mættu karlarnir að ósekju mót-
mæla þessu ofríki skáldkvenn-
anna í sjónvarpsdagskránni. En
hverju veldur að svo illa tekst til
um kynningu þessarar fyrstu nor-
rænu Ljóðlistarhátíðar í menning-
arsögunni? Ekki kann ég skýringu
á því en mætti ekki kippa þessu í
liðinn, svona eins og þegar stjórn-
mál og iþróttir eiga í hlut, til
dæmis með spjallþáttum og beinni
útsendingu frá Norræna húsinu?
Ljóðið má ekki loka inni í fila-
beinsturni, því eins og Einar Ben.
segir í Skáldmenn Islands: Al-
máttka, dýra Óðins mál, -/ hve oft
var ein hending svalandi skál/ og
lifinu langferðanesti.
Þáttur útvarpsins
Útvarpið hefir sinnt mun betur
þessari norrænu Ijóðlistarhátið en
blessað sjónvarpið, til dæmis hafa
þeir morgunútvarpsmenn kvatt til
forystumenn stjórnmálaflokka að
lesa ljóð og spjalla um kveðskap. 1
fyrradag mætti þannig Þorsteinn
Pálsson til leiks, í gærdag Svavar
Gestsson og í fyrramálið Kvenna-
listakona. Er ánægjulegt til þess
að vita að þessir áhrifamiklu ein-
staklingar skuli leggja rækt við
hið... dyra Óðins mál, enda vær-
um við Islendingar núll og nix án
bókmenntaarfsins, þau alkunnu
sannindi mega ekki gleymast i söl-
um valdsins, því einsog Einar seg-
ir í lokaerindi fyrrgreinds ljóðs
um Skáldmenn Islands: Því eitt
verður jafnan, sem mannar
mann,/einn munur, sem greinir
annan og hann,/ orðlist hans eigin
tungu.
ólafur M.
Jóhannesson
Létt spjall við
Steingrím Sigurðs-
son listmálara
Islenska hljómsveitin
með sveiflu
íslenska hljómsveitin
■i Að loknu út-
20 varpsleikriti
“■ kvöldsins verð-
ur þáttur sem nefnist
„Sveiflur" og í honum
leikur íslenska hljóm-
sveitn létta tónlist. Ein-
leikarar með hljómsveit-
inni verða þeim Björn
Thoroddsen og Vilhjálm-
ur Guðjónsson.
Fyrsta verkið sem
hljómsveitin flytur að
þessu sinni heitir „Partit-
etta di Liverpool" og er
eftir Ríkharð Örn Páls-
son. Eins og nærri má
geta af nafni verksins má
reikna með að áhrifa
þeirra bítla, Lennons og
McCartney, gæti i því, en
það mun vera um stef eft-
ir þá fyrrum félaga.
Annað verkið er eftir
annan einleikara kvölds-
ins, Vilhjálm Guðjónsson,
og var það samið fyrir tvo
rafgítara og hljómsveit.
Þriðja verkið í þessum
„Sveiflum" verður eftir
ólaf Gauk og nefnist það
Broadway í 60 ár. Líklega
er ekki verið að fjalla um
það Broadway sem Reyk-
víkingar þekkja í Mjódd-
inni, líklegra er að verið
sé að semja verk til heið-
urs götu einni í New York
þar sem menningarlíf á
sviði leiklistar, tónlistar
og dans fer fram.
■i Það verður
00 gestagangur
— hjá Ragnheiði
Davíðsdóttur í dag og að
þessu sinni kemur Stein-
grímur Sigurðsson, list-
málari, til hennar í heim-
sókn.
Ragnheiður sagði í ör-
stuttu spjalli, að Stein-
grímur væri alveg sér-
staklega skemmtilegur
maður og hún hefði veitt
honum athygli alveg frá
því að hún var lítil stelpa.
Nú hefði hún sem sagt
fengið hann í heimsókn til
sín og um leið fengið tæki-
færi til að kynnast honum
betur, og einnig tækifæri
til að kynna hann fyrir
þeim útvarpshlustendum
sem ekki þekktu til hans.
Ragnheiður bætti því
við að Steingrímur hefði
ferðast mikið um landið
og haldið sýningar víðs-
vegar og því mætti eflaust
búast við skemmtilegum
frásögnum af ferðum
hans. Þá væri ekki ólík-
legt að hann viðraði ein-
hverjar skoðanir sínar, en
Steingrímur er sagöur hafa
óvenjulegar skoðanir. Hann
veröur gestur Ragnheiöar
Davíðsdóttur í þættinum
„Gestagangur“.
hann þykir kannski hafa
svolítið skrýtnar skoðanir
á lífinu og er ekkert að
fara í launkofa með þær.
Leikrit um gyðingaofsóknir f Ungverjalandi
■i Fimmtudags-
00 leikritið er að
*™ þessu sinni eft-
ir ungverska leikritahöf-
undinn George Tabori og
heitir það „Móðir mín
hetjan“. Þýðinguna gerði
Jón Viðar Jónsson en leik-
stjóri er Hallmar Sigurðs-
Leikritið fjallar um
sannsögulegan atburð á
tímum gyðingaofsókna
nasista í Ungverjalandi
og lýsir því er móðir Tab-
oris er handtekin og sett í
lest sem er á leið til
Auschwitz en með ein-
dæma hugrekki og still-
ingu tekst henni að bjarga
sér úr klóm varðanna.
Leikendur eru: Þor-
steinn Gunnarsson, Guð-
rún Þ. Stephensen, Sig-
urður Skúlason, Bríet
Héðinsdóttir, Baldvin
Halldórsson, Erlingur
Gíslason, Bjarni Stein-
grímsson, Guðmundur
Ólafsson, Eggert Þorleifs-
on og Guðný Helgadóttir.
Tæknimenn eru Runólf-
ur Þorláksson og Ástvald-
ur Kristinsson.
Höfundurinn, George
Tabori, fæddist f Búda-
pest árið 1914, sonur
blaðamanns af gyðinga-
ættum sem síðar lést í
fangabúðum nasista. Tab-
ori sjálfum tókst með
naumindum að flýja land.
Hann er nú þekktur leik-
ritahöfundur og hefur
m.a. hlotið alþjóðleg
bókmenntaverðlaun fyrir
leikrit sín.
son.
ÚTVARP
FIMMMTUDAGUR
12. september
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
Morgunútvarp. 7.20 Leik-
fimi. Tilkynningar
7.55 Málræktarpáttur. Endurt.
pðttur Helga J. Halldórsson-
ar frá kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.15
Veðurtregnir.
Morgunorð: Ragnar Snær
Karlsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Glatt er I Glaumbæ" eftir
Guöjón Sveinsson, Jóna Þ.
Vernharösdóttir les (12).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).Tónleikar.
10.45 Málefni aldraöra. Þáttur I
umsjá Þóris S. Guðbergs-
sonar.
11.00 .Ég man pá tlö". Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Her-
mann Ragnar Stefánsson.
11.30 Létt tónlist.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
1230 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
14.00 „Nú brosir nóttin",
æviminningar Guömundar
Einarssonar. Theódór Gunn-
laugsson skráöi. Baldur
Pálmason les.
14J0 Miödegistónleikar:
15.15 Af Austurlandi. Umsjón
Eínar Georg Einarsson.
1540 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir
16.20 A frlvaktinni. Þóra Mar-
teinsdóttir kynnir óskalög
sjómanna.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Barnaútvarpiö. Stjórn-
andi: Kristln Helgadóttir.
17Æ0 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins
19.00 Kvöldfréttir Tilkynningar.
Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Leikrit: „Móöir mln, hetj-
an" eftir Georg Tabori. Þýö-
andi: Jón Viöar Jónsson.
Leikstjóri: Hallmar Sigurös-
son. Leikendur: Þorsteinn
Gunnarsson, Guðrún Þ.
19.15 Adöfinni
Umsjón: Marlanna Friöjóns-
dóttir.
19.25 Bráðum kemur betri tlð
(Alting er næste ár)
Dönsk barnamynd um lltinn
kúasmala og fjölskyldu hans
I Afrlkurlkinu Zimbabwe.
Þýöandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. (Nordvision —
Danska sjónvarpiö)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
21.05 Kosningar I Svfþjóð
Fréttaþáttur frá Boga
Stephensen, Brlet Héöins-
dóttir, Baldvin Halldórsson,
Erlingur Glslason, Sigurður
Skúlason, Bjarni Steln-
grlmsson, Guömundur
Ölafsson, Eggert Þorleifss-
on, Guöný Helgadóttir og
Kolbrún Erna Pétursdóttir.
Planóleikari: Katrln Sigurð-
ardóttir.
21.30 „Sveiflur", Islenska
hljómsveitin leikur létta tón-
list. Einleikarar: Björn Thor-
oddsen og Vilhjálmur Guð-
jónsson. a. „Partitetta dl Liv-
erpool" eftir Rlkarð örn
Pálsson um stef eftir Lennon
og McCartney. b. Konsert
fyrir tvo rafgltara og hljóm-
sveit eftir Vilhjálm Guðjóns-
Agústssyni.
21.05 Skonrokk
Umsjónarmenn Haraldur
Þorsteinsson og Tómas
Bjarnason.
21.30 Gatsby
(The Great Gatsby)
Bandarfsk blómynd frá 1974
gerö eftir frægustu skáld-
sögu F. Scotts Fitzgeralds.
Leikstjóri Jack Clayton.
Aöalhlutverk: Robert Red-
ford, Mia Farrow, Sam Wat-
erman, Bruce Dern og Karen
Black.
Arið 1925 kemur ungur
son. c. „Broadway I sextlu
ár" effir Ólaf Gauk.
Kynnir: Magnús Einarsson.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins
22.35 Trúðar, ský og svartir
svanir. Umsjón: Anna
Ólafsdóttir Björnsson.
23.00 Kvöldstund I dúr og moll.
Umsjón: Knútur R. Magnús-
son.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
maöur til New York til að
læra veröbréfaviöskipti og
leigir sér hús á Long Island.
Hann kemst I kynni víð
auðugan en leyndardóms-
fullan granna sinn, Gatsby
að nafni, vegna frændsemi
viö æskuunnustu hans sem
nú er gift öðrum manni.
Samskipti þessa fólks og
vina þeirra einkennast af
glaumi og glæsibrag á yfir-
borðinu en leiöa þó til voveif-
legra atburöa.
Þýöandi Óskar Ingimarsson.
23.50 Fréttir I dagskrárlok
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson og Asgeir Tómas-
son.
14.00—15.00 Dægurflugur
Nýjustu dægurlögin.
Stjórnandi: Leópold Sveins-
son.
15.00—16.00 Ótroönar slóöir
Kristileg popptónlist.
Stjórnandi: Andri Már Ing-
ólfsson og Halldór Lárusson.
16.00—17.00 Jazzþáttur
Stjórnandi: Vernharður Linn-
et.
17.00—18.00 Gullöldin
Lög frá 7. áratugnum.
Stjórnandi: Þorgeir Ast-
valdsson.
Þriggja mlnútna fréttir sagö-
ar klukkan: 11:00, 15:00,
16:00 og 17:00.
Hlé.
20.00—21.00 Vinsældalisti
hlustenda rásar 2
10 vinsælustu lögin leikin.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
21.00—22.00 Gestagangur
Gestlr koma I stúdió og velja
lög ásamt léttu spjalli.
Stjórnandi: Ragnheiöur Dav-
(ðsdóttir.
22.00—23.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00—00.00 Kvöldsýn
Stjórnandi: Júllus Elnarsson.
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
13. september