Morgunblaðið - 12.09.1985, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐJÐ, FIMMTUDAGUR 12. 'SEPTEMBER 1985
ste,tarssMBAND BÆNUM
AÐALFUNDUR 1985
Mor)(unbl«óiA/Hel|p Bjirnason
Stjórn Stéttarsambandsin.s ásamt landbúnaóarrádherra á fundinum. Magnús Sigurðsson fundarstjóri í rædustóli,
þá koma: Böóvar Pálsson, Ingi Tryggvason, Jón Helgason landbúnaóarráóherra, Þorsteinn Geirsson, Guómundur
Ingi Kristjánsson, Þórarinn Þorvaldsson og Gísli Andrésson.
Þrír fulltrúar afurðastöðvanna, sem voru meóal gesta á fundinum: f.v.:
Matthías Gíslason fulltrúi forstjóra Sláturfélags Suðurlands, Gunnlaugur
Björnsson fráfarandi framkvæmdastjóri Grænmetisverslunar landbúnaóar-
ins og Óskar H. Gunnarsson forstjóri Osta- og smjörsölunnar.
Ályktanir aðalfundar Stéttarsambandsins:
Framleiðslunni verði skipt milli
héraða miðað við búmark 1980
AÐALFUNDUR Stéttarsambands
bænda á Laugarvatni samþykkti
afurðasamninga landbúnaðarráó-
herra og saraninganefndar Stéttar-
sambandsins „í trausti þess að
birgða- og verðvöntunarvandamálið
nú 1. september verði leyst áfalla-
laust fyrir bændur“, með tilvísunar
til bókunar með samningnum. í
framhaldi af þessum samningi var
samþykkt að skipta umsömdu magni
á milli héraða miðað við heildar-
búmark eins og það var í árslok
1980, lækkað hlutfallslega niður að
umsömdu magni. Ekki var tekin
afstaða um hvernig skipta ætti
magninu á milli einstakra bænda og
því vísað til stjórnar.
Fjöldi annarra tillagna var
samþykktur á fundinum, m.a.
ábendingar um lækkun búvara i
verði til neytenda, að leitað verði
leiða til að auka nýtingu á raf-
magni til grasþurrkunar í gras-
kögglaverksmiðjum og á bænda-
býlum, að g- og j-lán hjá Stofn-
lánadeild verði lengd um 10 ár,
athugað verði með lengingu slát-
urtíma sauðfjár, fagnað var frum-
kvæði fjármálaráðherra í stöðvun
búvöruinnflutnings til varnarliðs-
ins og lagðar til breytingar á
greiðslum fyrir ull.
Lýsti fundurinn ánægju með þá
fyrirgreiðslu sem ákveðin hefur
verið til uppbyggingar loðdýra-
rækt í landinu, en benti jafnframt
á vanda þeirra sem hófu búskap án
hennar. Lögð var áhersla á að
Framleiðnisjóður veiti auknu fjár-
magni til að leysa fjárhagsvanda
fóðurstöðva og til að byggja nýjar.
Samþykkt var að heimila stjórn
sambandsins að byggja þrjú or-
lofshús á þessu og næsta ári, tvö
hús á landi Stéttarsambandsins i
Ásgarði í Grímsnesi og eitt á Hól-
um í Hjaltadal. Einnig skuli stefnt
að því að Stéttarsambandið leiti
eftir aðstöðu til byggingar orlofs-
húsa í öðrum landshlutum ef
reynslan sýni að fleiri húsa sé þörf.
Allra leiða verði
leitað við markaðsöflun
fyrir dilkakjöt
Fundurinn beindi því til stjórn-
valda að leitað verði allra mögu-
á að skv. lögum nr. 46-1986 er ráð-
inu ekki lengur ætlað frumkvæði
um markaðsöflun fyrir búvörur og
er því eðlilegt að beina þessum
tilmælum til ráðuneytisins. Fram-
leiðsluráð leggur til að staðið verði
að þessu máli á þann hátt að dr.
Sigurgeiri Þorgeirssyni verði gert
kleift með leyfi frá störfum sínum
sem ríkisstarfsmaður að vinna að
þessu verkefni næstu mánuði.
Jafnframt verði tryggt að fé fáist
úr Framleiðnisjóði landbúnaðar-
ins til að kosta þetta verkefni sbr.
37. grein laga nr. 461985.“
Endurgreiddir verði
75/80 hlutar hins sér
staka fóðurgjalds
Aðalfundurinn lagði til að end-
urgreiddir verði 75/80 hlutar hins
sérstaka kjarnfóðurgjalds vegna
afurða nautgripa og sauðfjár, í
samræmi við tillögu Framleiðslu-
nýjar leiðir
■ f' S ÞRÓUNARFÉLAG ÍSLANDS HF.
Áskrift hlutafjár stendur
nú yfir og liggur stofn-
skjal félagsins frammi í
ölium bönkum og útibú-
um þeirra ásamt kynn-
ingarbæklingi.
í bæklingnum eru eyðu-
blöð til þess að skrifa sig
fyrir hlutafé og sækja um
lán úr ríkissjóði til hluta-
fjárkaupa.
Athygli er vakin á því, að
þeir sem vilja fá svör við
því áður en áskriftar-
frestur rennur út, þann
30. september, hvort
lánsumsóknir þeirra séu
lánshæfar, þurfa að
senda umsóknir sínar
fyrir 16. september næst-
komandi.
betri lífskjör
Mikið pappírsflóð var á þessnm fnndi eins og mörgum öðrum. Hér er sýnis-
hornafþví.
legra leiða til markaðsöflunar
fyrir íslenskt dilkakjöt innanlands
sem utan, svo ekki þurfi að fækka
sauðfé í landinu meira en orðið er,
og lýsir fullum stuðningi við álykt-
un Framleiðsluráðs frá 28. ágúst
1985 um markaðsöflun. Þá telur
fundurinn að fullkomin þörf sé á
könnun þess hvort óheilbrigði í
fjárstofnum landsmanna kunni að
hafa neikvæð áhrif á markaðsöfl-
un. Sé svo beiti Stéttarsambandið
sér fyrir róttækri aðgerð hvað
varðar hreinsun stofnsins af sjúk-
dómum.
Ályktun Framleiðsluráðs sem
vitnað er til er svohljóðandi:
„Framleiðsluráð landbúnaðarins
skorar á landbúnaðarráðherra að
beita sér fyrir því að markaðsleit
fyrir kindakjöt í Bandaríkjunum,
í framhaldi af könnun dr. Sigur-
geirs Þorgeirssonar og Gunnars
P. Ingólfssonar í sumar, verði fylgt
eftir af fremsta megni á næstu
mánuðum. Framleiðsluráð bendir
ráðs landbúnaðarins þar að lút-
andi. í tillögu Framleiðsluráðs er
gert ráð fyrir að endurgreiðslan
verði 1 tvennu lagi, fyrst verði
greitt sem svarar 60/80 hlutum
sérstaks fóðurgjalds af ákveðnu
magni fóðurs til framleiðslu kg.
eða lítra afurðar, j)ó einungis inn-
an framleiðslukvóta. 15/80 hlutar
gjaldsins verði gerðir upp í lok
verðlagstímabils afurðar m.a. með
tilliti til framleiðsluréttar og stöðu
fóðursjóðs.
Aðalfundurinn vildi einnig að
kannaðar verði leiðir til að taka
sem fyrst upp aðferðir við kjarn-
fóðursköttun sem hindra óþarfa
fjárbindingu vegna samnings-
bundinnar búvöruframleiðslu. Þá
var í annarri ályktun skorað á
landbúnaðarráðherra að beita sér
fyrir því að verulegur hluti grunn-
gjalds á kjarnfóður renni til Fram-
leiðnisjóðs landbúnaðarins sem
aukafjárveiting á næsta ári.
-HBj.