Morgunblaðið - 12.09.1985, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1985
7-2
imnm
„Eg Fékk dsasamstec&u.ÆUum \j\b ab
Scbja. Arisona. undir?*
Ast er ..
... aö bíöa þol-
inmóöur ...
TM R#o. U.S. Pat. Off — all riflhts reserved
«1SB5 Los Angeles Times Syndicate
Mundu það vinur minn að
fvrstu 10 árin í hjúskapnum
cru reynsluár. Það var
reynsla afa hennar!
HÖGNI HREKKVÍSI
Leiðinlegt þegar fólk er
að hnýsast á slysstöðum
Ingimar F. Jóhannsson skrifar:
Góði Velvakandi!
Ég er knúinn til að skrifa þér
vegna stórhættulegra og leiðin-
legra athafna fólks í umferðinni.
Sú venja sem sumt fólk hefur er
að stöðva bifreiðar sínar þar sem
nýlega hefur orðið umferðarslys
M.G. skrifar:
Kristján Sveinsson augnlæknir,
sem lézt þann 23. maí, var einhver
ástsælasti maður þessa lands.
Hann var sístarfandi seint og
snemma á langri ævi að læknis- og
líknarstörfum og hirti ekki um
greiðslur, allra síst ef fátækir áttu
í hlut. Þúsundir manna og kvenna
fóru frá honum heilir án endur-
gjalds.
Hann var gerður að heiðurs-
borgara Reykjavíkur og var það
verðug og makleg ráðstöfun, sem
mæltist vel fyrir hjá öllum.
Útför Kristjáns heitins var
fábrotin, og mun það vafalaust
hafa verið að ósk þess látlausa
manns. Núverandi borgarstjóri og
og fylgjast með því er lögregla og
hjúkrunarfólk sinnir störfum sín-
um. Þetta fólk sem hefur þetta
sem venju að standa og glápa
svona á ætti að athuga að lítil
hjálp er í að það standi og geri öll
störf annarra erfiðari. Umferð-
arslys er sorgaratburður sem
fyrrverandi borgarstjóri báru
kistuna úr kirkju. Kirkjugestum
var boðið til kaffidrykkju á heim-
ili ættingja við Túngötu. Þar var
þröngt um manninn. Einn borg-
arráðsmaður var mættur.
Mér hefði fundist viðeigandi af
borgarstjórn að láta heiðursvörð
standa við kirkjudyrnar og bjóða
að athöfn lokinni til veizlu að Héð-
inshöfða. Hann hefði rúmað alla
sem vildu kveðja hinn mæta
mann. Þar átti og að flytja ræðu
vinar, sem þekkti Kristján gerla.
Minna mátti ekki vera. Mig furð-
aði á fálætinu, einkum þar sem ég
vissi að Davíð Oddsson borgar-
stjóri er maður röggsamur.
ókunnugir ættu ekki að hnýsast í.
Lögregla og hjúkrunarfólk hef-
ur margkvartað undan því hversu
erfitt það er að sinna þessum
störfum hópist allir þétt að vett-
vanginum þar sem slysið hefur átt
sér stað. Þessir „áhorfendur" ættu
að gera sér það ljóst.
Allir Reykvikingar þekkja þá
sjón þar sem hópur fólks þrengir
sér að slysstað, vitandi að það er
ekki á þeirra færi að veita neina
aðstoð, en samt er forvitnin svo
mikil að jafnvel illa getur farið.
Vil ég nú beina þeim orðum til
fólks að það hafi ekkert að gera á
slysstað eftir að greinilegt er að
aðstoð hefur borist.
Komi fólk hins vegar áður en
aðstoð hjúkrunarfólks ellegar
lögreglu hefur borist, þá er það
borgaraleg skylda hvers manns að
aðhafast það sem í hans valdi
stendur.
Það er áreiðanlegt að ekki er
gaman fyrir þann sem í slysi lend-
ir að hafa þennan forvitna skara i
kringum sig.
Þá ættu einnig þeir ökumenn
sem fram hjá slysstað fara á bif-
reið sinni ekki að hægja á ferðinni
vegna forvitni, því slíkt getur
einnig orsakað slys.
Rétt er að leiða hugann að þvi
að það er fyrir mestu að umferðin
gangi eðlilega fyrir sig.
Hvers virði er að vera heið-
ursborgari Reykjavíkur?
Þörf á fleiri göngustígum
í Breiðholtshverfunum
Trimmari skrifar:
Ég hef farið i nokkrar heilsu-
bótargöngur í Breiðholtshverfun-
um i góða veðrinu i sumar og þá
uppgötvað hvað hverfin eru mis-
jafnlega vel skipulögð með tilliti
til gönguferða og útivistar.
I Seljahverfinu eru t.d. margir
göngustígar, bæði malbikaðir og
steyptir, inn á milli húsaraða og á
opnum svæðum. Þeir eru ýmist
lagðir á jafnsléttu eða upp og
niður brekkur, og henta því vel
þeim sem vilja þjálfa hjartað.
íbúar hverfisins nota þessa
stíga talsvert, hefur mér virst,
a.m.k. sjást þess merki á steyp-
unni að þar hafa bæði hjólreiða-
menn og ferfætlingar verið á ferð
áður en steypan harðnaði. Éinnig
má sjá brotnar gosdrykkjaflöskur
og sælgætisumbúðir en varla get-
ur það samt verið eftir þá sem eru
að trimma sér til heilsubótar.
Það sem mig langar að fá að
vita í framhaldi af þessu er hvers
vegna stígar sem þessir hafi ekki
verið lagðir í Bakka- og Stekkja-
hverfi og Fella- og Hólahverfi?
Nú eru þessi hverfi öll álíka
gömul, Seljahverfi þó eitthvað
yngra. Og þó að landslagið í Selja-
hverfi bjóði upp á skemmtilegar
gönguleiðir, eru einnig margir
möguleikar I hinum hverfunum
sem ekki eru nýttir. Þar eru stígar
miklu færri og þeir fáu sem gerðir
hafa verið virðast gerðir út í blá-
inn og tengjast ekki hver öðrum.
Það má þó ekki skilja orð mín
sem svo að nauðsynlegt sé að
steypa gangstéttir eða malbika
hlaupastíga undir fæturna á
skokkurum. Það ku meira að segja
vera hollara fyrir bakveika að
ganga á grasi.
Það kom mér hins vegar frekar
spánskt fyrir sjónir að sjá í Blesu-
gróf malbikaðan stíg þar sem áður
hafði verið ágætur malarstígur
(raunar gamall akvegur sem ekki
fékkst endurnýjaður þegar á árum
áður umferð var þar sem mest).
Mig langar að biðja Velvakanda
að fá svör við því hjá réttum aðil-
um hvort gangstígagerð í Breið-
holti sé lokið. Ef svo er, er þá ekki
hægt að tengja saman þá búta
sem fyrir eru með því að slétta á
milli þeirra eða lagfæra á annan
hátt? Með þeim hætti mætti koma
í veg fyrir að fólk þyrfti að ganga
eftir umferðargötum.
Á Arnarbakka er t.d. skortur á
gangbrautum þrátt fyrir mjög
hraða umferð þar. Þar að auki
liggur gatan í hring og erfitt fyrir
gangandi vegfarendur að sjá hvort
bíll er skammt undan eða ekki.
Þegar bílarnir aka hratt er fyrir-
varinn oft stuttur sem menn hafa
Jóhannes Gunnarsson skrifar:
Vegna ummæla Katrínar Eyj-
ólfsdóttur í Velvakanda 7. sept-
ember sl. um nýgerða verðkönnun
á skólavörum, vill Verðlagsstofn-
un taka fram eftirfarandi:
Þegar starfsmenn Verðlags-
stofnunar fóru í bóka- og ritfanga-
verslanir til að kanna verð á
nokkrum skólavörum, skráðu þeir
verð á vörunum á sérhannað eyðu-
blað þar sem fram kom vöruheiti,
vörumerki og vörunúmer á hverri
einstakri vöru. Neðst á blaðinu
var eftirfarandi yfirlýsing: „Und-
irritaðir hafa kannað verð á
ofangreindum vörum í versluninni
... og er verðið hér að framan í
samræmi við það.“ Undir þessa yf-
irlýsingu skrifuðu starfsmenn
Verðlagsstofnunar og fulltrúar
allra þeirra verslana sem könnun-
in náði til. Staðfestu þeir þar með
til að forða sér, enda hefur hurð
oft skollið nærri hælum á þessum
stað og nokkrum sinnum orðið
slys. Þá má einnig taka það fram
að þetta er gata sem íbúar norðan
hennar þurfa að fara yfir til að
sækja skóla og verslanir.
Lesendur Velvakanda eru
stundum hvattir til að þess að
skrifa og stofna til umræðna um
einhver mál. Vona ég að þetta bréf
verði til þess að við í Breiðholtinu,
sem notumst við þessa göngustíga,
fáum frekari upplýsingar um
áform borgaryfirvalda á þessum
stað.
Því miður verður svar við fyrir-
spurn bréfritara að bíða til morg-
uns.
að allar upplýsingar sem komu
fram á eyðublaðinu um verð vör-
unnar væru réttar.
Því miður kom síðar i ljós, að í
tveimur tilvikum voru veittar
rangar upplýsingar. Þess má geta,
að í öðru tilvikinu hafði starfs-
maður Verðlagsstofnunar sam-
band við viðkomandi verslun á
nýjan leik til að kanna verðið nán-
ar, enda var það allt annað en i
öðrum verslunum. Starfsmaður
verslunarinnar itrekaði að áður-
gefnar upplýsingar væru réttar.
Síðar kom í ljós að það var rangt.
Af þessu tilefni vill Verðlags-
stofnun brýna fyrir þeim verslun-
armönnum sem veita fulltrúum
stofnunarinnar upplýsingar, að
þær séu án nokkurs vafa réttar
svo firra megi alla aðila þeim
vandræðum og leiðindum sem
birtingar rangra upplýsinga hefur
í för með sér.
Brýnt að gefnar séu
réttar upplýsingar