Morgunblaðið - 12.09.1985, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1985
Gítartónleik-
ar í Áskirkju
FIMMTUDAGINN 12. sept. kl.
20.30 halda gítarleikararnir Símon
ívarsson og Siegfried Kobilza frá
Austurríki tónleika í Áskirkju í
Reykjavík. Eru þetta einnig loka-
tónleikar þeirra hér á landi að
þessu sinni.
léku á nokkrum tónleikum við
góðar undirtektir. Símon ívars-
son og Siegfried Kobilza hafa
þrisvar sinnum áður haldið tón-
leika saman hér á íslandi og nú
síðast í vor er þeir fóru í tón-
leikaferðalag um landið.
Á efnisskránni er létt klassísk
tónlist eftir þekkt tónskáld, má
þar m.a. nefna Beethoven, J.C.
Bach, M. Praetorius, Boccherini
og fleiri. Siegfried Kobilza hélt
velheppnað gítarnámskeið í
Reykjavík í byrjun sejjtember í
samvinnu við Símon Ivarsson á
vegum Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar. í framhaldi af
því héldu þeir Símon og Sieg-
fried til Vestfjarða þar sem þeir
Siegfried Kobilza hefur víða
haldið tónleika í Evrópu og nú
nýverið lék hann á hinni frægu
tónlistarhátíð í Salzburg „Salz-
burger Festspiele". Einnig hefur
hann leikið inn á tvær hljóm-
plötur.
Símon ívarsson hefur marg
oft haldið tónleika víða um
landið á undanförnum árum og
leikið einnig í sjónvarpi og út-
varpi.
Hér sjást nokkrir „böðlar“ með einn bnsann á leið til „vígslu'
MorgunblaðiA/Þorkell
Busar siðaðir í Kvennaskólanum
í GÆR var inntaka nýliða haldin
hátíðleg í Kvennaskólanum í
Reykjavík.
Athöfnin fór þannig fram að
fyrst var busunum safnað sam-
an í skólastofum, en síðan leidd-
ir til vígslu í sal skólans. Ný-
nemarnir voru leiddir í gegnum
salinn framhjá eldri nemendum
sem hæddu þá óspart. Því næst
var þeim gefinn kjarngóður
heilsudrykkur, sem innihélt lýsi
og ýmislegt annað sem eldri
nemar töldu nauðsynlegt til að
örva þroska þeirra.
Að lokinni drykkju var ný-
nemum veitt skjal er tiltók að
viðkomandi hefði verið tekinn í
tölu fullgildra nemenda við
Kvennaskólann. Loks var ný-
nemunum gert að gleðja eldri
nema með söng, þ.e. þeir sem
höfðu hagað sér skikkanlega.
Hinir sem minna kunnu fyrir
sér í mannasiðum voru settir á
einskonar námskeið í þeim efn-
um.
Gunnar Karls-
son sýnir
í Flotta
galleríinu
GUNNAR Karlsson opnaði þriðju-
dag kl. 13 aðra einkasýningu sína í
Flotta galleríinu, salnum á Vestur-
götu 3. Sýnir hann í þetta skipti
akrýlmálverk máluð í heitum litum
og miklum kulda austur í Finnlandi
þegar hann dvaldi í norrænu lista-
miðstöðinni í Helsinki veturinn
83-84.
Eitt verka Gunnars á sýningunni.
Gunnar stundaði nám í Mynd-
lista- og handíðaskólanum á árun-
um 75—79 og í konunglegu Lista-
akademíunni i Stokkhólmi 80—82
Hefur hann verið búsettur í
Stokkhólmi undanfarin ár sýnt og
selt og fengið styrki.
Sýningin verður opin frá kl. 1
til 6 alla daga og eitthvað fram
yfir helgi.
(Frétlatilkynning)
nSINLENTV
Ingvar Þorvaldsson með tvö verka sinna. Morgunblaðið/Árni Sœberg
Asmundarsalur:
Ingvar Þorvaldsson
sýnir vatnslitamyndir
INGVAR Þorvaldsson sýnir um
þessar mundir 25 vatnslitamynd-
ir í Ásmundarsal við Freyjugötu.
Sýningin var opnuð hinn 7. þ.m.
og henni lýkur að kvöldi sunnu-
dagsins 15. þ.m. Hún er opin um
helgar frá kl. 14 til 22 og kl. 16
til 22 virka daga.
í stuttu spjalli við Ingvar
kom fram að myndirnar á sýn-
ingunni væru í anda þess sem
kallað væri raunsæi en annars
sagði hann erfitt fyrir sig að
flokka verk sín. Þetta væru
myndir af landslagi, myndir
frá höfninni og myndir af hús-
um, málaðar á síðustu tveimur
árum.
Ingvar kvaðst hafa lagt
stund á listmálun í rúm 15 ár
og hefði hann haldið 16 einka-
sýningar á þeim tíma bæði í
Reykjavík og úti á landi, meðal
annars á Akureyri og Húsavík.
Hann kvaðst hafa lagt stund
bæði á olíumálverk og vatns-
liti, en nú á seinni árum hefði
hann helgað sig vatnslitunum.
Þeir ættu vel við sig og það
væri spennandi að vinna með
þeim. Hann kvaðst vinna
þannig að hann færi 'ut í nátt-
úruna og gerði skissur sem
hann fullgerði síðan heima
hjá sér.
Ingvar er lærður húsamálari
og vinnur að iðn sinni jafn-
framt listinni. Hann var að
lokum spurður hvernig þetta
færi saman: „Mér finnst það
fara vel saman. Þó þetta sé
um margt ólíkt er þetta þó að
ýmsu leyti skylt og maður er
að fást við sömu efnin. Mér
hefur gengið vel að samræma
þetta enda sýnir sagan okkur
að þetta hefur fylgst að í gegn-
um aldirnar. Margir gömlu
meistaranna í myndlist voru
jafnframt húsamálarar," sagði
Ingvar Þorvaldsson að lokum.
-.—r „J- ^
Myndbrengl
í þriðjudagsblaði Morgunblaðsins í frásögn af bónusvinnustöðvun á
Eskifírði urðu þau mistök að röng mynd birtist af tveimur viðmælendum
fréttaritara Morgunblaðsins. Hér birtist rétt mynd af þeim Stefaníu
Árnadóttur og Guðnýju Stefánsdóttur við vinnu sína í frystihúsinu.
Hluti myndanna, sem boðnar verða upp í kvöld.
Klausturhólar:
Málverkauppboð í kvöld
KLAUSTURHÓLAR efna til mál- kvöld. Meðal annars verða boðnar
verkauppboðs í Súlnasal Hótel Sögu upp myndir eftir Kristínu Jóns-
í kvöld klukkan 20.30. Myndirnar dóttur, Jón Stefánsson, Ásgrím
verða til sýnis á sama stað í dag Jónsson, Jóhannes Kjarval og Finn
klukkan 14 til 18. Jónsson.
Boðin verða upp 70 númer í