Morgunblaðið - 12.09.1985, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1985
49 <-
Fyndnasti maður í heimi
Dario Fo hinn ítalski, leik-
stjórinn frægi og leikskáldið,
hefur oft fengið þá umsögn að
hann sé einn fyndnustu manna í
heimi. Hér á landi eru sjálfsagt
einhverjir sem gætu tekið undir
það, leikrit hans hafa að minnsta
kosti verið sýnd í leikhúsum hér
við miklar vinsældir, svo sem „Við
borgum ekki, við borgum ekki“, og
„Stjórnleysingi ferst af slysför-
um“, sem Alþýðuleikhúsið sýndi.
Eins „Hassið hennar mömmu“,
sem Leikfélag Reykjavíkur ætlaði
aldrei að losna við vegna vinsælda.
Nú er Fo búinn að semja enn
eitt leikritið. Það heitir „Kona af
tilviljun: Elísabet" og fjallar um
tvo daga í lífi Elísabetar Englands-
drottningar hinnar fyrri. Þótt leik-
ritið gerist snemma á sautjándu
öld, þykjast menn lesa út úr því
eitt og annað um það sem helst
hefur verið á döfinni á síðustu
árum, svosem hryðjuverk og spill-
ingu. Einnig ku enginn sem á
horfir geta varist því að láta sér
detta í hug morðið á Aldo Moro.
Varla munu ítölsk stjórnvöld
ærast af hrifningu yfir þessu nýja
verki Fos. Þau hafa alltaf haft
illan bifur á honum fyrir róttækar
skoðanir, og eru löngu hætt að
veita leikhúsi hans nokkra fyrir-
greiðslu.
Dario Fo og kona hans Franca Rame í hhitrerkum sínum f „Kona af tilvilj-
un: Elísabet“.
Marija með
allt á hreinu
Marija Erika Schwepper er
þýsk spákona, sem þykir
merkilega glögg á framtíð fólks.
Sumir halda því jafnvel fram að
hún hafi hana á hreinu, og sjái
ljóslifandi fyrir sér eins og bíó-
mynd.
Kona nokkur fór til Mariju sér
til skemmtunar fyrir nokkrum
árum og bað hana að spá fyrir sér.
„Þú átt eftir að skilja við manninn
Verkfreðingurinn myndarlegi ásamt
konu og barni í kurteisisheimsókn
hjá Mariju.
þinn, fara til Afríku, giftast aftur
og eignast tvö börn,“ sagði Marija
strax. Konunni þótti þessir spá-
dómar ekki beint trúverðugir, því
hún var hamingjusamlega gift og
óbyrja þar að auki.
En viti menn, tæpu ári seinna
hrundi hjónabandið í rúst og hún
skildi við manninn. Hún setti
auglýsingu í blöð um að hún vildi
komast í kynni við karlmann með
hjónaband i huga. Meðal svar-
bréfanna var bréf frá stórmyndar-
legum verkfræðingi, þýzkum en
búsettum í Líberíu. Hún flutti hið
snarasta þangað suður eftir, hitti
manninn og giftist honum. Seinna
fór hún í aðgerð vegna ófrjósemi
sinnar, sem litlar líkur voru á að
heppnaðist, en hún varð ófrísk.
Þannig rættust allir spádómarnir
á örfáum árum.
Mariju ku vera nóg að heyra
rödd fólks í síma til þess að geta
spáð mjög nákvæmlega fyrir því.
Þannig hringir fjöldi fólks í hana
daglega og spyr um hagi sína og
sinna og Marija svarar eins og hún
hafi svörin öll skrifuð niður.
COSPER
S.S"* W "" COSPER
— Réttu mér gleraugun mín, ég held að það hafi bitið á hjá mér.
Marija hefur nóg að gera við að svara
í símann enda er fólk æst í að vita
hvað framtíðin ber í skauti sínu.
r
Gordon Jackson
Gordon
þung-
lyndur
Flestir fslendingar kannast lík-
lega við breska leikarann
Gordon Jackson. Hann lék í fram-
haldsþáttunum um Húsbændur og
hjú, sem sýndir voru í íslenska
sjónvarpinu fyrir nokkrum árum.
Jackson hefur síðastliðin fjörutíu
ár leikið fjölda hlutverka i sjón-
varpi, kvikmyndum og á sviði.
Hann hefur leikið á móti stórstirn-
um eins og Marlon Brando og Steve
McQueen og þarf því varla að
kvarta. Samt segist hann ævinlega
verða þunglyndur af að sjá sjálfan
sig á hvíta tjaldinu eða í sjónvarp-
inu.
Enda ætlaði hann sér aldrei að
verða leikari. Honum fannst alltaf
meira öryggi ( því að gerast verk-
fræðingur í bílaiðnaðinum. En nú
situr hann uppi með frægðina og
verður að sætta sig við að vita sí-
fellt af sér i sjónvarpin, eða bfó,
þótt hann þurfi kannski ekki að
horfa sjálfur.
★ ★ ★ ★ ★
Eyöileggiö ekki gott
hráefni meö bitlaus-
um hníf. Kaupiö held-
ur ÞRÍFORKINN frá
SOLINGEN:
Eigum nú allar stærö-
ir og geröir
JHstjgmiblfibib
Asknftarsíminn er 83033