Morgunblaðið - 12.09.1985, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUK 12. SEPTEMBER 1985
Símamynd/AP
Járnbrautarbrúin yfir Öreálven stó&st ekki vatnsflauminn. Annar brúarstólpanna brast og skolaðist í burt.
Talið er, að það taki a.m.k. mánuð að gera við brúna.
Svíþjóð:
Miklir skaðar af flóðum í Dölunum
Stokkhólmi, 11. september. AP.
MIKLIR vatnavextir eru í ám í Mið-Svíþjóð og eru
akrar víða undir vatni og þorp umflotin. Hefur neyð-
arástandi verið lýst yfir í mörgum bæjum og þorpum
næst ánum.
Olof Palme, forsætisráðherra, varð að gera hlé
á kosningabaráttunni í dag og fara til flóðasvæð-
anna í Dölunum og Helsingjalandi og er sagt, að
honum hafi brugðið í brún þegar hann sá hve
ástandið var alvarlegt. Fara verður allt aftur til
ársins 1916 til að finna sambærilega vatnavexti.
í Mið-Svíþjóð hefur rignt næstum hvern dag
síðan i júlí og árnar stöðugt verið að vaxa, einkum
þó Dalelfur. Það bætti svo ekki úr skák, að sl.
laugardag brast stífla við vatnsorkuver og milljónir
tonna af vatni geystust niður fljótið. Rofnuðu þá
vegir og brýr og byggingar brotnuðu.
Bóndabæir og þorp á þessum slóðum eru um-
flotin vatni og vegna þess, að mjólkurbílarnir
komast ekki til að sækja mjólkina verða bændur
að hella henni niður. Súrnar svo mjólkin þar sem
henni er kastað og leggur þá lyktina víða. Tjónið
á ökrum, skógum, vegum og brúm er metið á
hundruð milljóna skr.
Hussein við Bandaríkjamenn:
Leyfið PLO að sanna
góðan ásetning sinn
Ráðist að portú-
gölskum sendi-
herra í Beirút
— sjálfsmorðsárás gerð að varðstöð
Beirút, 11. september. AP.
VOPNAÐIR hermenn réðust að portúgalska sendiherranum, Lous Gozaga
Ferreira, er hann fór ásamt konu sinni frá kristna hlutanum í Beirút yfir
tii vesturhluta múhameðstrúarmanna, en líbanski herinn bjargaði honum.
„Þetta gerðist með skjótum hæteti og var líka fljótt afstaðiö, guði sé lof. Ég
þakka líbanska hernum af heilum hug,“ sagði Ferreiera, í samtali vð frétta-
mann AP.
Jerwufcm, II. eeptember. AP.
HUSSEIN Jórdaníukonungur sagði í
dag við sendinefnd bandarískra gyð-
inga, að stjórnvöld í Bandaríkjunum
Veður
víða um heim
Lngst Hreat
Akurayri 11 ekýfaO
Anwtnrdam 7 21 akýjaO
Aþnna W 27 heiðekírt
Barcekma vantar
Bertín 7 18 •kfioo
BrUeaet « 25 haióekirt
Chiceflo 17 21 heióekirt
Oubtín 15 20 hatOekfrt
Fenertar vantar
Frankturt S 20 hetóskírt
Oanl 11 19 haióekírt
Hetainki 7 13 ekýjeó
Hong Kong 26 29 heióekfrt
Jerúutem 16 26 hatóekfrl
Kaupmannah 10 15 heióskfrt
taa Palmae vanter
Lieeabon 20 31 akýlaó
London 14 25 heióakirt
Loa Angatee 18 22 akýjaó
Lúnemborg 19 heióekírt
Mataga 30 léttakýjað
Mallorca 30 Wttakýiaó
Miaml 26 31 ekýjaó
Montreal $ 15 haióekirt
Moekva • 15 rignfng
Maw Vork 1« 26 hatóskfrt
Oeió 6 13 heiðekírt
Perie 12 23 heiðekírt
Peking 1$ 26 heióekírt
Beykiavrk 12 rigntng
Ribde Janerro 16 27 « iS-t.l-1 neiosnin
Hómaborg 17 31 hetóeklrt
Stokkhólmur 9 14 akýjað
Bydney 13 20 rigning
Túkýó 24 26 rtgning
Vmarborg 10 ■■ * ekýjaó
• bórsböfn 12 ekýjaó
ættu að hitta samningamenn Frels-
issamtaka Palestínumanna, PLO, að
máli og gefa þeim tækifæri til að
sanna góðan ásetning sinn.
Hussein sagði, að PLO mundi
gangast undir að viðurkenna
ályktun Sameinuðu þjóðanna, þar
sem ísrael er viðurkennt skilyrð-
islaust, svo fremi sem Richard
Murphy, sérlegur sendifulltrúi
Bandaríkjastjórnar, kæmi á fund
PLO-manna til viðræðna.
Einn af sendinefndarmönnun-
um, Henry Rosovsky, sagði, að
stæði PLO ekki við þetta, mundi
Jórdaníukonungur hætta liðveislu
við samtökin í samningaumleitun-
um þeirra.
Israelskur embættismaður
hafði eftir Shimon Peres forsæt-
isráðherra, að loforð PLO væru
„vafasöm" í ljósi síðustu atburða.
London, 11. september. AP.
BANDARÍKJADOLLAR hélt áfram
að hækka í verði í dag gagnvart öll-
um helstu gjaldmiðlunum sökum
spár um aukinn hagvöxt í Bandaríkj-
unum. Búist er við að tölur um heild-
sölu og iðnframleiðslu, sem birtar
verða á fostudag, muni gefa gleggri
mynd af efnahagsástandi I Banda-
ríkjunum. Gull féll í verði í dag.
Dollarinn kostaði 243,325 jap-
önsk yen í London síðdegis, en
kostaði 243,00 yen í gær. Sterl-
ingspundið kostaði 1,30775 doll-
I Líbanon fórst líbönsk ungl-
ingsstúlka í sjálfsmorðsárás er
hún ók bíl hlöðnum sprengiefni inn
í varðstöð mannaða suður-líbönsk-
um hermönnum. Þjóðernisflokkur
Sýrlands fullyrðir að 20 menn hafi
farist í sprengingunni, 18 Líbanir
og tveir fsraelsmenn. Hernaðar-
yfirvöld í Tel Aviv sögðu hins
vegar að enginn hefði farist í árás-
inni nema stúlkan, en tveir menn
hefðu særst.
Flugslysið í Japan:
Vísbendingar
finnast um
málmþreytu
Tókýó, 11. september. AP.
FUNDÍZT hafa vísbendingar um
málmþreytu í aftara þrýstingsskil-
rúmi japönsku júmbóþotunnar, sem
fórst í innanlandsflugi í Japan fyrir
mánuði, með 520 manns, að því er
japanskir fjölmiðlar hafa eftir sér-
fræðingum, sem vinna að rannsókn
slyssins.
Málmþreyta getur valdið
skyndilegum bresti í málmi, en
talið er einmitt að stélkambur
þotunnar hafi rifnað af er skil-
rúmið gaf sig og loft úr farþega-
klefanum æddi upp í stélið. Loft í
farþegaklefanum er undir miklum
þrýstingi, en enginn loftþrýstingur
er I stélinu.
ara, en kostaði í gær 1,3150 doll-
ara.
Gengi dollarans var annars á þá
leið, að fyrir hann fengust: 2,9570
v-þýsk mörk (2,9420), 2,4370
svissneskir frankar (2,4262),
9,0050 franskir frankar (8,%50),
3,3175 hollensk gyllini (3,3020),
1.964,00 ítalskar lírur (1.956,00) og
1,37225 kanadískir dollarar
(1,37195).
Gullúnsan kostaði síðdegis
320,50 dollara en kostaði í London
í gær 321,75 dollara.
Ferreira sagði að bíll sinn hefði
rétt verið kominn yfir „grænu
línuna" sem skiptir borgarhlutun-
um þegar hann var stöðvaður af
tveim eða þrem vopnuðu mönnum.
„Þeir rifu upp afturhurðina og
reyndu að draga mig út. Bílstjóri
minn, sem er fyrrverandi undirfor-
ingi í hernunr, var að reyna að
komast að samkomulagi við menn-
ina, þegar líbanskir hermenn
komu mér til hjálpar. Við héldum
áfram undir vernd hersins, og
sáum þar síðast til að líbanskir
hermenn deildu við árásarmenn-
ina,“ sagði sendiherrann. Ferreira
var á leið til starfa í sendiráðinu
í vesturhluta Beirút, þegar atvikið
átti sér stað.
Reagan vill
að Danir
efli varnir
Vesturlanda
Washington, 11. september. AP.
RONALD Reagan hvatti Poul
Schliiter, forsætisráðherra Dan-
merkur, til að leggja sitt af mörkum
til að efla varnir Vesturlanda, á
fundi sem leiðtogarnir tveir áttu í
Washington í gær.
Reagan sagði að ætti friður að
ríkja í heiminum næstu öldina,
yrði að efla varnarkerfi Vestur-
landa, því friður fengist ekki með
almannatengslaherferðum, né
góðum óskum. Schlúter sagðist
vonast til þess að leiðtogafundur
Reagans og Mikhails Gorbachev í
nóvember myndi marka upphaf
bættra samskipta stórveldanna,
sem kæmu Bandaríkjunum, Sov-
étríkjunum, aðildarríkjum Atl-
antshafsbandalagsins og heimin-
um öllum að góðum notum.
Leiðtogarnir fordæmdu báðir í
ræðum sínum verndarstefnu í
viðskiptamálum og hvöttu til
frjálsra markaðsviðskipta og auk-
inna alþjóðlegra samskipta á sviði
verslunarmála.
Njósnamálið í V-Þýskalandi:
Ritari forsetans játar
á sig njósnir frá 1970
Bonn og Koblenz, 11. september. AP og Observer.
MARGRÉT Höke, fyrrverandi ritari Richard Von Weizacker, forseta
Vestur-I*ýskalands, sem sökuð er um njósnir í þágu Austur-Þjóðverja,
hefur nú játað að hafa stundað njósnir allt frá 1970. Þá var einnig háttsett-
ur embættismaður í innanríkisráðuneyti V-Þjóðverja dæmdur f S'/i árs
fangelsi í dag fyrir njósnir.
Höke var handtekin fyrir
tveimur vikum og segist hún hafa
fengið A-Þjóðverjum í hendur
ýmsar leynilegar upplýsingar síð-
an 1970, en hefur neitað að stað-
festa að yfirmaður hennar hafi
verið Franz Becker, sem starfaði
fyrir öryggisráðuneyti A-Þjóð-
verja í Bonn. Becker þessi er tal-
inn hafa verið njósnari, sem sér-
hæfði sig í ástarsamböndum við
einmana konur í ábyrgðarstöðum
í þeim tilgangi að ná frá þeim
leynilegum upplýsingum. Hann
kynntist Höke árið 1968, en þá
hafði hún þegar aðgang að öllum
helstu leynigögnum v-þýska
ríkisins.
Þá var Franz Arthur Roski,
fyrrum háttsettur embættismað-
ur i innanríkisráðuneyti
V-Þýskalands, dæmdur í 5Vfe árs
fangelsi í dag, fyrir að hafa
njósnað í þágu A-Þjóðverja í 13
ár. Roski fór með málefni pólit-
ískra flóttamanna í Vestur-
Þýskalandi og játaði hann á sig
njósnir á fyrsta degi réttarhald-
anna 27. ágúst sl. Hann sagði
hins vegar að hann hefði ekki
hafið njósnirnar fyrr en komm-
únískir embættismenn hefðu hót-
að honum öllu illu vegna gjald-
eyrissvika, sem áttu sér stað í
A-Þýskalandi 1971 þegar Roski
var þar í heimsókn.
Dómarinn í máli Roski, sagði
að hann hefði alit frá þvi hann
var handtekinn í júlí í fyrra verið
mjög samvinnuþýður og hefði
verið tekið tillit til þess þegar
dómsúrskurðurinn var kveðinn
upp. Roski hefði getað hlotið allt
að lífstíðarfangelsi. Dómarinn
sagðist einnig vonast til þess að
málsmeðferðin yrði hvatning til
annarra, sem hefðu njósnir á
samviskunni, um að gefa sig fram
við lögregluna.
Gengi gjaldmidla