Morgunblaðið - 12.09.1985, Síða 20

Morgunblaðið - 12.09.1985, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1985 Námskeið fyrir söng- fólk og píanóleikara TVEGGJA vikna námskeið fyrir söngfólk og píanóleikara hófst i mánudag í Stekk, sal Tónlistar- skólans í Reykjavík á Laugavegi 178. Söngnámskeiðinu stjórnar prófessor Svanhvít Egilsdóttir, sem kennt hefur við Tónlistar- háskólann í Vínarborg sl. 24 ár. Píanókennarinn er breskur, Charl- es Spencer að nafni, og starfar hann einnig í Vínarborg. Svanhvít hefur um árabil hald- ið söngnámskeið reglulega í Finnlandi og í Vínarborg. Þátt- takendur á námskeiðinu hér eru sextán. Sjö þeirra eru nemendur Svanhvítar í Vínarborg sem sér- staklega eru hingað komnir vegna námskeiðsins. Aðrir þátt- takendur eru fyrrverandi nem- endur Svanhvítar og fólk í söngnámi. Aðeins tveir taka þátt í námskeiðinu í píanóleik og er annar þátttakendanna erlendur. Námskeiðin hefjast kl. 9 á hverjum morgni og standa fram eftir kvöldi. Þáttakendur í nám- skeiðunum hljóta bæði þjálfun hver í sínu lagi og einnig saman, þannig að píanóleikararnir leika undir hjá söngfólkinu. Dóra Reyndal, kennari í Söngskólan- um í Reykjavík, er meðal þátt- takenda í söngnámskeiðinu. Kvað hún námskeiðin afar gagn- leg og væri almenn ánægja með- al þátttakenda. Námskeiðunum lýkur sunnudaginn 22. september með tónleikum sem að öllum lík- indum verða haldnir í Norræna húsinu. Seamus Heaney og Gunnar á Hlíðarenda mörku er okkur að góðu kunn, hefur áður flutt ljóð sín í Nor- ræna húsinu. Það er eitthvað mjög sannfærandi við þessa skáldkonu, ljóð hennar herma frá innilokun þar sem til dæmis er lagt upp úr andstæðum eins og skrifstofufólki og fiðrildum. í Ijóðum hennar er líka andrúms- loft í anda Orwells, skáldsögu hans 1984. Stóru og sterku þjóð- irnar hafa uppi ráðagerðir um framtíð mannsins og þær skelfa Marianne Larsen. í Norræna húsinu minnti hún á tímabæra staðreynd: Konur eru ekki hund- ar. Finnska skáldið Pentti Saar- itsa tók í ljóðum sínum undir með Marianne Larsen að ástæða væri til að óttast. Ljóð Saaritsa eru hnitmiðuð, raunsæ, en líka í anda hins frjóa hugmyndaflugs. Leið hans liggur einhver staðar mitt á milli sterkrar skynjunar hversdagsleikans og ljóðræns margræðis. Meðal yrkisefna hans er dansinn og heimurinn og dansinn. Eða eins og Pentti Seamus Heaney Saaritsa kvað: „Enginn sagði að þessi dans myndi duna svo lengi.“ Kolbeinn Bjarnason flautu- leikari laðaði fram hugljúfa tóna handa gestum ljóðahátíðarinnar og var honum fagnað. Á fyrsta Ijóðakvöldinu lék Pétur Jónas- son gítarleikari. Þessi tónlistar- innskot eru vel til fundin. ■1 \ Spencer henni við hlið, ásamt tveimur þátttakendum á námskeiðinu. Hvernig ( lístþérá? Ehthandfdng ístaóþriggja Bókmenntir Jóhann Hjélmarsson Norræna húsið: Norræn Ijóðlistarhátíð. Ljóðakvöld: Georges Astalos, Seamus Heaney, Marianne Larsen, Pentti Saaritsa, Sigurður Pálsson. TónlLst: Kolbeinn Bjarnason. Annað kvöld Norrænu ljóðlist- arhátíðarinnar hófst með lestri Sigurðar Pálssonar sem „knúinn funhita" las úr ljóðaflokki sínum Segðu mér að sunnan. Sigurður sagði frá fundi á ljóðvegum „milli þín og heimsins" og benti á að „orð eru líka lyklar að hlekkjum“. í ljóðum Sigurðar var tunglið blindfullt. En það gerðist líka meira. Sigurður las draumljóð, „orð sem mig hefur dreymt“, samanber orðið væng- bjartur tileinkað minningu Vil- mundar Gylfasonar. Sigurður kom við í Færeyjum þar sem síminn syngur og Erlendur Pat- ursson gengur um Færeyjar holdi klæddar. Eftir nýjum ljóð- um að dæma er ljóðræn tjáning Sigurðar Pálssonar að verða enn opnari, ekki síst í Reykjavíkur- ljóðum, stemmningum úr borg- inni. Sigurður byggir ljóð sín sem fyrr mikið á hrynjandi endurtekningum og orðaleikjum. írska skáldið Seamus Heaney þykir með merkari skáldum um þessar mundir. Hann flutti ljóð sem fjölluðu um það hvernig skófla breytist í penna hjá nýrri kynslóð ættaðri úr sveit og las minningar úr bernsku, ljóð gædd upprunalegum hljómi, fyndin og oft skemmtileg. Hann er vanur upplesari, enda þurfti hann lítið að styðjast við blöð og bækur og hann hefur leikhæfileika sem gera þennan fremur hljóðláta Þennan stól prýöa allir kostir sem prýtt hafa skrifstofu- stólana okkar til þessa og að auki er hann einfaldari í stillingu. í staö þriggja handfanga áöur stillir þú bak stólsins, setu og hæö hans meó einu handfangi. Hannaöur í samvinnu viö sjúkraþjálfara. STALIÐJAN"f SMIÐJUVEGI 5, KÖPAVOGI, SÍMI 43211 mann eftirminnilegan. Hann las nokkur ljóð úr North, bók sem fjallar í senn um Norður-Irland og norðurhluta heims. I þeirri bók er ljóð um Gunnar á Hlíðar- enda sem Heaney las og var lær- dómsríkt að kynnast túlkun hins irska skálds á Njálu sem víða er bók bóka. Georges Astalos fæddist í Búkarest, en hann skrifar á frönsku. Astalos flutti fáein ljóð um vötn og höf, fiska, krabba og mannlega uppreisn sem felur m.a. í sér losta, ástríðu. „Ég náði að skynja uppreisn holdsins,” segir Astalos í ljóði sem Thor Vilhjálmsson þýddi „á handa- hlaupum", eins og hann komst að orði, það er ný tegund þýð- inga, að minnsta kosti í tengsl- um við ljóðlistarhátíð þar sem betur þarf að huga að þýðingum Okkar stolt íslensk framleiósla. Marianne Larsen og annarri kynr.ingu bókmennta en rétt gefa sér tíma til að setj- ast niður og snara. Astalos er eftir þeim sýnis- hornum að dæma sem hann las skáld sem yrkir að nokkru leyti í anda súrrealisma, en hefur margt að segja frá eigin brjósti. Flutningur hans var afar vand- aður. Marianne Larsen frá Dan-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.