Morgunblaðið - 12.09.1985, Page 60
KEILUSALUWIWW
OPIWW 1000-00.30
EVTT KDRT AliS SttOAR
FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR.
' *** -'r*-1 ‘ iSw'VÍ'w
Erró og Laxness
Ég kunni ekki við annað en hafa hæsta fjall heims í baksýn, sagði Erró, er hann sýndi Halldóri Laxness málverk sitt af skáldinu.
Listamaðurinn málaði verkið fyrir Reykjavíkurborg. Það verður sýnt í Norræna húsinu ásamt fleiri verkum Errós. Sjá nánar á
bls. 4.
Fundur fram á nótt í bónusdeilunni:
Viðbrögð dræm við
nýjum tillögum VMSI
UNDIRTEKTIR VSÍ voru fremur
dræmar við breyttum tillögum VMSÍ
í samningaviðræðum um nýjan
landssamning um bónus, en tillög-
urnar voru lagðar fram á fundi aðila
um miðjan dag í gær. Töldu þeir þar
aðeins um nýja útfærslu að ræða á
fyrri kröfugerð, en VSÍ hefur hafnað
þeim hluta hennar sem lýtur að
föstu álagi á vinnustund í bónus, þar
sem sú krafa heyri ekki til bónus-
samninga. Fundarhlé var gert
seinnipartinn og hófst fundur aftur
klukkan 21 og stóð enn um mið-
nætti, er Morgunblaðið fór í prent-
un. Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaösins hafði þá einkum verið
rætt um fasta nýtingu í bónus í stað
marknýtingar og hafði heldur dregið
saman með aðilum.
Breytingarnar á kröfugerð
VMSÍ felast í því að í stað 30
króna fasts gjalds sem komi á
hverja unna vinnustund í bónus,
er gerð krafa um að bónusgrunnur
hækki um 10 krónur, en hann er
nú 81 króna. Þá komi 10 króna
gjald ofan á unnan vinnustund í
bónus eftir 6 mánaða starf og aðr-
ar 10 krónur til viðbótar til þeirra
sem hafa 2ja ára starfsreynslu.
Framkvæmdastjórn Verka-
mannasambandsins hélt fund í
gær og var þar gagnrýnt að fram-
kvæmdanefndin skyldi ekki hafa
verið höfð með í ráðum, þegar
teknar voru ákvarðanir um að
stöðva vinnu í bónus, en samn-
inganefnd sambandsins í bónus-
samningunum hefur farið með
þessi mál. Engar samþykktir voru
þó gerðar á fundinum, en annar
fundur framkvæmdastjórnarinn-
ar verður í næstu viku.
Þá var fundur í Vestmannaeyj-
um um bónussamninga, en ákveð-
ið að bíða átekta og sjá hverju
fram yndi í samningunum í
Reykjavík í gær, áður en frekari
fundahöld yrðu ákveðin.
Akranes og Fáskrúðsfjörður
bættust í gær í hóp þeirra staða,
þar sem bónusvinnustöðvun hefur
tekið gildi. í dag kemur samúðar-
bónusvinnustöðvun til fram-
kvæmda hjá Dagsbrún og á morg-
un hjá Framsókn í Reykjavík.
Bónusvinnustöðvun verður í dag á
Stöðvarfirði og á morgun, föstu-
dag, hafa verið boðaðar stöðvanir
á Þorlákshöfn, Höfn í Hornafirði,
Neskaupstað og á Þórshöfn. Fleiri
félög hafa boðað stöðvun í næstu
viku. Framleiðsla hefur minnkað
víða í kringum helming, þar sem
stöðvunin er komin til fram-
kvæmda.
Búist er við úrskurði Félags-
dóms í næstu viku varðandi lög-
mæti samúðarbónusvinnustöðvan-
Bann við bjórlíki í
gildi á laugardag:
Kráareig-
endur með
uppákomu í
miðbænum
EIGENDUR nokkurra veitingastaða í
miöbænum - svokallaðra kráa - hafa
sótt um leyfi til cmbættis lögreglu-
stjóra í Reykjavík til uppákomu í
miðbænum á laugardag. Með því vilja
þeir minnast þess að þá gengur í gildi
bann dómsmálaráðherra, Jons Helga-
sonar, á sölu svokallaðs bjórlíkis. Um
er að ræöa eigendur Gauks á Stöng,
Fógetans, Duus og Hellisins.
Frá og með laugardegi verður -
„óheimilt að framreiða öl, sem áður
hefur verð blandað áfengi. Veitinga-
mönnum, sem hafa með höndum
veitingar áfengis, er skylt að gæta
þess, að veitingar og umgengni séu
með menningarbrag," eins og stend-
ur í reglugerð dómsmálaráðuneytis-
ins. í samtali við Morgunblaðið í
gær, sagði Guðvarður Gíslason,
framkvæmdastjóri Gauks á Stöng,
að með uppákomu vildu kráareig-
endur leggja áherzlu á að áfram
geti gestir pantað svokallað bjórlíki
og verði það þá blandað að þeim
viðstöddum.
Snýst til
norðanáttar
REIKNAÐ er með að sunnan- og
suðaustanáttirnar sem hafa verið
ríkjandi undanfarna daga séu á
undanhaldi og í gærkvöldi spáði
Veðurstofan að í nótt og í dag
snerist vindur smám saman til
norðlægrar áttar aftur, með kóln-
andi veðri.
Nokkur hlýindi voru norðan-
lands og austan í byrjun vikunn-
ar og komst hiti á Akureyri í
tæp 15 stig á þriðjudaginn.
Hvalfjörður:
Kræklings-
rækt undir
herskipa-
bryggjunni
HAFIN er tilraun með kræklingsrækt
(krákuskel) í Hvalfirði. Fyrirtækið
Napi, sem fimm áhugamenn um
kræklingsrækt stofnuðu í vor, stendur
fyrir þessum tilraunum og eru krækl-
ingshengjurnar festar á gömlu her-
skipabryggjuna í Hvítanesi.
Úlfar Antonsson líffræðingur,
sem er einn fimmmenninganna,
segir að ekkert vandamál sé að
framleiða krækling hér á landi en
viss vandamál geti verið við sölu
hans. Innanlandsmarkaðurinn sé
lítill og því þurfi að byggja á út-
flutningi á erlenda markaði. Á
vegum fyrirtækisins er nú unnið að
markaðskönnun og ræðst framtíð
kræklingsræktarinnar af niðurstöð-
um hennar.
í Hvalfirði og víðar hér við land
er mikið af kræklingi en hann hefur
ekki verið ræktaður hér áður svo
vitað sé, fyrir utan tilraun Hafrann-
sóknastofnunar í Höfnum fyrir
mörgum árum, en sú tilraun eyði-
lagðist í slæmu veðri.
Sjá „Fimm fiskeldisstöðvar í Hval-
firði“,ábls. 34-35.
Glettingur hf. í Þorlákshöfn:
Enskar stúlkur ráðnar
Innlendur vinnukraftur ekki fáanlegur
6 ENSKAR stúlkur eru væntanleg-
ar hingað til lands næstkomandi
mánudag til að vinna í fiski hjá
Glettingi hf. í Þorlákshöfn. Aðrar
6 eru væntanlegar síðar í mánuðin-
um. Hefur fyrirtækið ekki séð sér
fært að fá nægilegan mannafla til
vinnslunnar á annan hátt.
Pétur Björnsson, starfsmaður
J. Marr & Son í Hull, hafði meðal
annarra hönd í bagga við ráðn-
ingu stúlknanna. Hann sagði í
samtali við Morgunblaðið, að
forsaga málsins væri sú, að fyrir
nokkru hefði hann útvegað
tveimur fyrirtækjum á íslandi
enska fiskflakara í vinnu. Þeir
hefðu verið í Glettingi og hjá Jóni
Ásbjörnssyni. Stjórnendur
Glettii g hcfði itrekað augíýst
eftir fólki heima til starfa i fisk-
vinnslunni en án árangurs Þeir
hefðu þá gripið til þess ráðs, að
senda flakarana í V-'':'nrfr: til
Hull t’ að ná í alú:*.-: . ....au.
Þeir hefðu haft samband við blöð
og útvarp á Humber-svæðinu og
auglýst á þann hátt. J. Marr &
Son hefði veitt þeim aðstöðu til
að taka á móti umsóknum og það
hefði hreinlega orðið sprenging
í skiptiborði fyrirtækisins, svo
mikil hefði svörunin verið. Mikið
væri gert úr þessu á svæðinu,
bæði í blöðum og útvarpi og
þætti mörgum það merkilegt að
íslenzk fyrirtæki réðu enskar
stúlkur í vinnu, sérstaklega með
tilliti til þorskastríðsins og af-
lciðinga þess fyrir Hull og
Grimsby.
Pétur sagði, að stúlkurnar
fengju ferðir, fæði og húsnæði
greitt, en að öðru leyti fengju
þær sömu laun og annað starfs-
fólk. Þetta væru duglegar stúlk-
ur, vanar fiskvinnslu og ættu því
fyllilega að vera vinnunni vaxn-
ar.
anna.