Morgunblaðið - 27.11.1985, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER1985
Bjarn Olav Olsen (Lv.) frá fyrir-
tækinu sem framleiöir „samtals-
vélina“, og Tore Alvik, skipu-
leggjandi umfangsmikillar hjálp-
artækjasýningar, sem haldin
verður í Bærum í Noregi á næsta
ári, kynna fréttamönnum hið nýja
hjálpartæki málheftra.
„Samtals-
vél“ handa
málheftum
MÁLHEFTIR einstaklingar eiga
( náinni framtíð von á nýjum
hjálparmiðli, nokkurs konar
„samtalsvél“, sem orðið getur
þeim að ómetanlegu gagni.
Tæki þetta var smíðað f
Noregi og getur myndað mál-
hljóð eftir forriti og haft á
takteinum 80 mismunandi
setningar, orð eða tölur. Er
bæði unnt að tengja það við
sima og nota eitt sér. Með þvi
að þrýsta á hnapp á tækinu
geta málheftir „talað“ meö
aðstoð þess. Hafa má tækið
með sér hvert sem er og það
gengur hvort sem vill fyrir
rafhlöðum eða venjulegu húsa-
rafmagni.
Talvélin var búin til hjá fyr-
irtækinu Falck Produkter i
Riser og verður meðal margra
nýjunga á mikilli hjálpar-
tækjasýningu, sem haldin verð-
ur i Bærum i Noregi i júnimán-
uði á næsta ári og nefnist
„Funksjonalen ’86“. Að henni
stendur sýningarfyrirtækið
Info-Rama i samvinnu við
samtök fatlaðra í Noregi.
Indland — Pakistan:
Kjarnorkuvígbún-
aður skapar spennu
milli ríkjanna
WaKhinglon, 25. nóvember. AP.
Pakistanar eiga nú ekki langt í
land með að koma sér upp kjarnorku-
vopnum og margt bendir til að Ind-
verjar muni bregðast við með því að
hefja kjarnorkuvígbúnað í töluverð-
um mæli. Sú stefna sem bæði ríkin
hafa tekið eykur mjög á kjarnorkuvá
í Suður-Asíu að sögn Carnegie-stofn-
unarinnar I Kandaríkjunum sem
vinnur að friðarmálefnum.
Stofnunin telur að ástand það
sem skapast hefur í Pakistan og á
Indlandi stuðli að þvf að kjarn-
orkuvopn breiðist út um heiminn
og auki líkurnar á kjarnorkuhern-
aði. Fimm þjóðir viðurkenna þegar
að þær hafi yfir kjarnorkuvopnum
að ráða: Bandaríkin, Sovétríkin,
Kína, Bretland og Frakkland. Hið
sjötta, Indland, sprengdi kjarn-
orkusprengju árið 1974 en þarlend
stjórnvöld hafa ávallt haldið því
fram að tilraunin hafi verið gerð
í friðsamlegum tilgangi. Nokkrar
aðrar þjóðir eru álitnar ráða yfir
kjarnorkuvopnum eða standa mjög
nærri því að koma þeim upp, þ.á m.
Pakistan, ísrael og Suður-Afríka.
Indland og Pakistan hafa þrisv-
ar átt í stríði síðan ríkin voru
stofnuð 1947 eftir að nýlendustjórn
Breta linnti. Eftir að Indverjar
sprengdu kjarnorkusprengju sína
1974 hófu Pakistanar umfangs-
miklar aðgerðir til að koma sér
upp kjarnorkuvopnum, og er talið
að þeir séu langt komnir við gerð
þeirra eða hafi þau jafnvel þegar
undir höndum.
Bílasprengjan í Frankfurt:
Tveir arabar grunaðir
Krankrurt, 25. nóvemSer. AP.
VESTUR-þýsk yfirvöld leita nú
tveggja araba, sem grunur leik-
ur á að komið hafi fyrir bfla-
sprengju á verslunarsvæði
bandaríska hersins í Frankfurt.
35 manns, flestir Bandaríkja-
menn, særðust í sprengingunni
á sunnudag. Rúður splundruð-
ust allt að 300 metra frá sprengj-
unni og um 40 bifreiðar
skemmdust.
Vestur-þýska lögreglan
sagði strax eftir sprenginguna
að allt benti til þess að flokkur
vestur-þýskra, vinstri sinn-
aðra hryðjuverkamanna stæði
að baki sprengjutilræðinu.
Að sögn lögreglunnar
keyptu tveir útlendingar
BMW bifreiðina, sem sprengj-
unum var komið fyrir í, og
höfðu þeir marokkönsk vega-
bréf meðferðis. Gefin hefur
verið út lýsing á mönnunum
tveimur. Þeir eru milli þrítugs
og fertugs, gætu verið arabar,
en eru örugglega útlendingar.
Aðeins annar þeirra talar
þýsku.
Nýr skákmeistari
Dr. Hans Berliner, prófessor í tölvuvísindum við Carnegie-Mellon-
háskólann í Pittsburgh stendur hér við nýja skáktölvu, sem hann hefur
hannað. Þetta á að vera sterkasta skáktölvan, sem enn hefur verið
búin tíl. Hún getur sundurgreint 175.000 leiki á einni sekúndu, eða
helmingi hraðar en nokkur skáktölva, sem vitað er um.
Er aðstoðarmaður Begins
flæktur í Pollard-málið?
Castro vill í stríð við
Suður-Afríkustjórn
Tel Afk, 26. nóvember. AP.
BÆÐI dagblöð og útvarp í ísrael
greindu frá því á þriðjudag að fyrrver-
andi ráðgjalí Menachems Begin, fyrr-
um forsætisráðherra ísraels, hefði
fengið Jonathan J. Pollard, starfs-
mann bandaríska sjóhersins, til að
njósna (þágu ísraela.
Útvarpið og dagblöðin tvö, Haar-
etz og Yediot, greindu frá nafni
mannsins, Rafaels Eytan, sem var
ráðgjafi stjórnar Begins um hryðju-
verk. Frásögn þessi var reist á frétt-
um í Washington Post, en þar var
maðurinn aftur á móti ekki nafn-
greindur þar sem engar áreiðanleg-
ar heimildir bæru því vitni að Eytan
væri viðriðinn málið.
ísraelska dagblaðiö Hadashot
segir frá þvf að árið 1974 hafi Poll-
ard unnið sem sjálfboðaliði f kibb-
utz. Þar hafi hann boðist til að
hjálpa ísraelsku leyniþjónustunni
og eftir að ferill hans hafði verið
rannsakaður hafi hann verið ráðinn
útsendari ísraela.
London, 25. nóvember. AP.
Fidel Castro, Kúbuleiötogi, hefur farið fram á þaö viö
Sovétmenn, aÖ þeir leyfi honum að lýsa yfir stríði á hendur
Suður-Afríkustjórn.
server á sunnudag.
Sagði frá þessu í breska blaöinu Ob-
Observer hefur fyrir fréttinni
háttsettan en ónafngreindan
mann ( sveit Kúbumanna í
Moskvu en að hans sögn er til-
gangurinn með stríðsyfirlýsing-
unni sá að snúa baráttunni gegn
Suður-Afríkustjórn upp í „alls-
herjarstríð svipað því, sem háð
var gegn Hitler". Segir Observ-
er, að ráðamenn á Kúbu telji,
að þannig verði unnt að hrekja
Suður-Afríkumenn og stuðn-
ingsmenn þeirra frá Angóla,
Namibfu og Mósambik og grafa
undan stjórninni í Pretoríu.
Kúbumenn munu hafa lagt á
það mikla áherslu við Sovét-
menn, að stríðsyfirlýsing á
hendur Suður-Afríkustjórn
myndi auka mjög hróður þeirra
í þriðja heiminum en gera veg
Atlantshafsbandalagsins, Ev-
ÓlA PRÍK LAfJOAI? AÐ VfRA eÍNí
0& 00 GfBFk
&WN0/A 'klxtM'mi
Ný plata um Öla væntanleg!
Hverri plötu og snældu
fýlgir textablað og líka
myndabók um Óla
rópubandalagsins og Breska
samveldisins að sama skapi
minni.
í Observer segir, að Kúbu-
menn viðurkenni fyrir sjálfum
sér, að stríðsyfirlýsingin geti
verið dálítið tvíeggjuð. Óttast
þeir einkum þetta fernt:
Að Bandaríkjamenn hætti
öllum samningaviðræðum við
Sovétmenn; að Suður-Afríku-
stjórn beitti öllum hernaðarleg-
um og efnahagslegum mætti
sínum gegn nágrannaríkjunum;
að Bandaríkjamenn réðust á
Kúbumenn ef þeir drægju ekki
stríðsyfirlýsinguna til baka og
að Suður-Afríkustjórn beitti
kjarnorkuvopnum, einkum gegn
Angólamönnum.
Leiðrétting
Jón Ásgeir Sigurðsson var rang-
lega sagður höfundur greinarinnar
„Sovéskir „geðlæknar’ og samtök
gegn kjarnorkuvá" sem birtist f
þættinum Af erlendum vettvangi
sl. þriðjudag. Eins og þar kemur
fram var um að ræða samantekt
úr L’Express. Biðst Morgunblaðið
afsökunar á þessum mistökum.
ERLENT