Morgunblaðið - 27.11.1985, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER1985
25
reiðu-
ron
Yitzak Shamir
skyldi víkja úr stjórninni hafði
hann ekki rœtt málið við Yitzak
Shamir, leiðtoga Likudbandalags-
ins, sem á að taka við forsætisráð-
herraembættinu, þegar kjörtíma-
bilið er hálfnað. I samningi milli
stjórnarflokkanna er ákvæði um
að ekki sé hægt að reka ráðherra
nema báðir flokkar samþykki þá
ákvörðun. í ísraelskum lögum er
gert ráð fyrir að forsætisráðherra
hafi vald til að víkja ráðherra úr
átarfi.
Mikið fjaðrafok varð því innan
Likudbandalagsins þegar Peres
hafði skýrt frá brottviknaráform-
um sínum; ekki hvað sízt vegna
þess að fæsta óraði fyrir því að
Sharon myndi verða fáanlegur til
að bera fram umbeðna afsökunar-
beiðni. Shamir forsætisráðherra
og Peres skutu snarlega á fundi
og Peres hélt þar fast við ákvörðun
sína. Shamir lýsti því yfir eftir
fundinn, að stjórnarsamstarfið
hengi á horriminni ef Peres breytti
ekki afstöðu sinni.
Peres sem hefur þótt yfirvegað-
Ariel Sharon iðnaðarráðherra
Yitzak Peretz
ur maður og stundum kannski
einum of varfærinn sagðist í engu
myndu hvika og sagði að landslög
væru ofar samningi stjórnarflok-
kanna. Hann sagðist vilja benda á
að orð og yfirlýsingar Sharons
væru til þess eins fallnar að ala á
sundrungu innan ríkisins og koma
í veg fyrir að bati næðist einnig f
efnahagsmálum. Hann sagðist
óhræddur fara í kosningar ef
Likud léti málið ganga svo langt
að draga sig út úr stjórnarsam-
starfinu.
Einurð Shimonar Peres kom
áreiðanlega mjög flatt upp á
Likudmenn. Hún kom ekki slst
Ariel Sharon í opna skjöldu. Og
nú voru góð ráð dýr. Sharon leitaði
í skyndi til Yitzaks Shamirs, sem
hefur reynt að bera klæði á vopnin,
þegar í odda hefur skorizt innan
stjórnarinnar, meðal annars vegna
þéss honum er áfram um að fá að
setjast í stól forsætisráðherra um
hríð áður en hann dregur sig síðan
út úr þátttöku í stjórnmálum.
Shamir virtist styðja Ariel
Sharon, en yfirlýsingar hans voru
Moshe Arens
þó svo loðnar að iðnaðarráðherr-
ann gerði sér ljóst að Shamir
myndi að líkindum telja það hag-
stæðra að fórna iðnaðarráðherr-
anum fremur en rjúfa stjórnar-
samstarfið. Bak við tjöldin hófst
nú mikið makk og fundahöld voru
út og suður.
Yitzak Shamir vildi ekki beita
sér opinberlega fyrir sáttum af
ástæðum, sem síðar verður vikið
að. Það kom í hlut rabbíans Yitzak
Peretz að taka að sér að miðla
málum. Peretz er þingmaður fyrir
trúarlegan smáflokk Shas og hefur
síðan hann var kjörinn á þing
stundum verið kallaður „pólitíska
smábarnið" í Knesset. Fæstir töldu
Peretz til stórræðanna og allra
sízt í hlut ætti maður eins og Ariel
Sharon annars vegar og Peres hins
vegar, seinþreyttur maður til
vandræða, en allra manna þrjósk-
astur þegar mælirinn var loks
fullur.
Peretz fékk fljótlega talið Shar-
on á að bera fram óformlega skýr-
ingu á orðum sínum. Peres neitaði
að taka þau til greina sem full-
nægjandi og hófust nú ferðir rabb-
íans á milli forsætisráðherrans og
iðnaðarráðherrans og gengu orð-
sendingar á milli. Efni þeirra var
haldið leyndum. Fyrsta vísbend-
ingin um að Sharon tæki málið
alvarlegar en búist hefði mátt við
var að hann ákvað að afpanta ferð
sem hann hafði áformað til Banda-
ríkjanna. Yitzak Peretz hélt síð-
degis hinn þriðja dag í eina ferð
enn til búgarðar Sharons í Negev-
eyðimörkinni. Skömmu seinna
viðurkenndi einkaritari Sharons,
að ráðherrann hefði hætt við að
hætta við Bandaríkjaferðina.
Fréttamönnum þótti þá sýnt að
Sharon hefði samið einhverja þá
yfirlýsingu sem Peretz hefði borið
forsætisráðherranum og hann
hefði getað sætt sig við.
Nokkru síðar greindi svo Shim-
on Peres frá því að hann hefði
ákveðið að taka „skýringar“ Shar-
ons til greina og málið væri þar
með úr sögunni.
Hver var ástæðan
fyrir að Likud
studdi ekki Sharon?
Eins og áður hefur komið fram
var stuðningur Likud við Sharon
ákaflega hálfvolgur. Menn hafa
velt fyrir sér hvaða ástæður lægju
þar að baki og hallast að þvi að
mestu ráði sú valdabarátta sem
er háð innan forystuliðs Likuds
og hefur veikt hann mjög í stjórn-
arsamstarfinu. Almenningur telur
að sá bati sem hefur þrátt fyrir
allt orðið í efnahagsmálum í ísrael
megi þakka styrkri stjórn Verka-
mannaflokksins og styrkri stjórn
Shimonar Peresar. Auk þess hefur
ráðherrum Verkamannaflokksins
tekizt að leggja persónulegan
metnað og ágreining til hliðar og
sýnt athyglisverða djörfung í mót-
un nýrrar efnahagsstefnu. Aug-
ljóst er sömuleiðis að hinn almenni
borgari í ísrael nú er loks fús að
taka á sig þær byrðar sem efna-
hagsráðstöfununum hefur fylgt og
þann fúsleika má sjálfsagt rekja
til þess að stjórnin hefur unnið af
heiðarleik og hreinskilni að þessu
máli.
En innan Likudbandalagsins
hefur svo allt lofað í innanflokks-
ágreiningi og deilum og ekki hefur
tekizt að sýna samstöðu sem er
nauðsynleg. Þrír menn keppa leynt
og ljóst að því að ná undirtökunum
í flokknum: þar er Ariel Sharon
iðnaðarráðherra sá sem hæst læt-
ur í sér heyra, en David Levy,
aðstoðarforsætisráðherra er fast-
ur fyrir og ætlar sér að verða
eftirmaður Shamirs. ónefndur er
svo Moshe Arens, sem var kallaður
úr sendiherrastöðu í Washington
til að verða varnarmálaráðherra
eftir að Sharon var vikið frá eftir
innrásina í Líbanon og það sem í
kjölfar hennar fylgdi.
Margir sem ég ræddi við sögðu
að svo gæti farið að þeir Sharon
og David Levy myndu á endanum
bíða lægri hlut og Moshe Arens
hljóta hnossið. Arens er meðal
mestu hörkumannanna i ísraelsk-
um stjórnmálum og langtum
andsnúnari öllum samningum við
Araba en flestir aðrir flokks-
bræður hans til samans. En hann
vinnur öðru vísi en þeir, hann er
hægtlátur og innhverfur, mál-
snjall og traustur og umfram allt
talinn óvenjulega heiðarlegur póli-
tíkus. „Sharon hefur enga tilfinn-
ingu fyrir því, hvenær rétt er að
tala — Arents hefur hins vegar
óbrigðult skyn hvenær á að tala
hljótt og hvenær á að brýna raust-
ina“ sögðu margir í mín eyru.
En ein meginástæðan fyrir því
að Likud studdi ekki Sharon nú
tengist einmitt þessu: Yitzak
Shamir vill mikið á sig leggja til
að enda feril sinn sem forsætisráð-
herra. Keppinautar hans Arens og
Levy átta sig á að tíminn nú hefði
verið mjög óheppilegur til að rifta
stjórnarsamstarfinu og hefði að-
eins orðið til að rífa niður það sem
þó hefur tekizt að byggja upp.
Viðbúið er að fylgishrun hefði
blasað við Likud í þeim kosningum
sem hefði orðið að efna til ef
Shamir hefði sett á oddinn að
Peres hætti við að reka Sharon.
Þegar á allt er litið hefur þetta
orðið til að styrkja stöðu Shimon
Peres og Verkamannaflokksins og
opnað augu Likudmanna endan-
lega fyrir því að Shimon Peres
hefur efni á því að taka hispurs-
lausar ákvarðanir, því að hann
nýtur stuðnings í efnahagsmálum
og meðal þorra manna er einnig
áhugi á því friðarfrumkvæði sem
hann hefur haft.
Texti: JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR
F.h. Sigurður Ringsted, útibússtjóri og Guðjón Steindórsson, skrifstofustjóri.
Iðnaðarbankinn á
Akureyri 20 ára
Síldarsöltun nánast lokið
UM ÞESSAR mundir eru liðin 20 ár
frá því að Iðnaðarbankinn á Akureyri
var opnaður á Geislagötu 14. en það
var 21. nóvember 1965. I tilefni
afmælisins efnir Iðnaðarbankinn til
myndlistarsamkeppni í barnaskólum
Akureyrar. Mörg verðlaun verða
veitt og munu úrslit verða kynnt
bráðlega.
Starfsemi Iðnaðarbankans hef-
ur vaxið jafnt og þétt og árið 1984
var opnuð afgreiðsla í nýju hús-
næði í Hrísalundi 1. Um leið var
húsið á Geislagötu endurnýjað. Við
opnun bankans 1965 voru starfs-
menn 3 en eru nú orðnir 23, þar
af þrír í afgreiðslunni að Hrísa-
lundi 1. í janúar sl. var tekinn í
notkun töivubanki í útibúinu við
Geislagötu, sem opnar þjónustu
bankans allan sólarhringinn. Úti-
bússtjóri Iðnaðarbankans á Akur-
eyri hefur frá upphafi verið Sig-
urður Ringsted. Skrifstofustjóri er
Guðjón Steindórsson.
(Fréttatilkynning)
SÍLDARSÖLTUN er nú nánast lok-
ið. Saltað hefur verið í 251.000 tunn-
ur og hefur aðeins eitt ár, 1980, verið
saltað meira af Suðurlandssfld.
245.000 tunnur fara til Sovétríkj-
anna, Svíþjóðar og Finnlands og lít-
ils- háttar magn til Vestur-Þýzka-
lands, Bandaríkjanna og Danmerkur
auk þess, sem saltað er til notkunar
innanlands.
Hér fer á eftir listi yfir skiptingu
söltunar eftir söltunarstöðum og
söltunarstöðvum.
ÓLAFSFJÖRÐUR:
Stígandi 1.680
HÚSAVÍK: Fiskiðjusam. Hv. hf. 1.680 177
RAUFARHÖFN: Fiskavík hf. 177 1.849
VOPNAFJÖRÐUR: Tangi hf. 1.849 8.430
BORGARFJÖRÐUR EYSTRI: Söltunarstöðin Borg 8.430 1.592
SEYÐISFJÖRÐUR: Norðursíld hf. Strandarsíld s/f 1.592 10.555 8.011
NESKAUPSTAÐUR: Máni Síldarvinnslan hf. 18.566 6.975 6.825
ESKIFJÖRÐUR: Askjahf. 13.800 2.944
Eljan hf. 5.948
Friðþjófur hf. 11.923
Jón Kjartansson hf. 8.949
Sæberg hf. 4.566
Þór hf. 3.714
38.044
REYÐARFJÖRÐUR:
Austursíld hf. 3.133
Fiskverkun GSR h/f 4.835
Hraun 237
Kópur hf. 3.174
Verktakar hf. 8.333
19.712
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR:
Árný 20
Pólarsíld hf. 16.920
Sólborg hf. 4.036
Sæbjörg 606
STÖÐVARFJÖRÐUR: 21.582
Hraðfr.hús HSS hf. 8.559
BREIÐDALSVÍK: 8.559
Hraðfr.hús HBB hf. 9.972
DJÚPIVOGUR: 9.972
Búlandstindur hf. 16.180
HORNAFJÖRÐUR: 16.180
Fiskimj. Hornafj. hf. 14.109
Stemma h/f 5.550
19.659
VESTMANNAEYJAR:
Fiskiðjan hf. 2.464
Hraðfrystistöðin hf. 1.823
Isfélagið hf. 1.235
Klifsf. 222
Vinnslustöðin hf. 2.134
7.878
ÞORLÁKSHÖFN:
Auðbjörg hf. 365
Bjarg sf. 344
Glettingur hf. 7.568
Hafnarnes hf. 686
Meitillinn hf. 1.250
Suðurvör hf. 5.709
15.922
GRINDAVÍK:
Fiskanes hf. 5.838
Gjögur hf. 4.397
Hóphf. 2.396
Hópsnes hf. 3.600
Hrfh. Þórkötlust. hf. 1.400
Þorbjörn hf. 7.361
24.992
SANDGERÐI:
Fiskverkun Arneyjar 1.896
Miðnes hf. 611
2.507
KEFLAVÍK:
Fiskv. Guðm. Axelss. 1.793
Fiskv. Hilmars & Odds 2.435
Keflavík hf. 1.644
Örn & Þ. Erlingss. 719
6.591
INNRI-NJARÐVÍK:
Brynjólfur hf. 2.289
HAFNARFJÖRÐUR: 2.289
Hafnfirðingur hf. 1.024
1.024
REYKJAVÍK:
Ingimundur hf. 1.419
1.419
AKRANES:
H. Böðvarss: & Co hf. 8.201
8.201