Morgunblaðið - 27.11.1985, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER1985
45
I Þórður J. Magnús-
son — Kveðjuorð
Fæddur 24. september 1910
Dáinn 15. nóvember 1985
Það er erfitt að átta sig á því,
að Þórður félagi okkar sé horfinn
úr hópnum og komi ekki á fundi
meir. Það eru ekki nema örfáir
dagar síðan hann var með okkur
og tók þátt í umræðunum um
störfin sem eru framundan, af
brennandi áhuga svo sem hans var
ávallt vandi. Þórður hefur verið
félagi í Lionsklúbbi Kópavogs i
rúm 20 ár og ávallt reynst hinn
nýtasti í öllu starfi, enda gegnt
ýmsum trúnaðarstörfum í klúbbn-
um. Við minnumst hans sérstak-
lega fyrir margar hressilegar
ræður, skemmtilega gagnrýni og
hnyttin tilsvör. Hann var líka
ávallt þar að finna sem mest var
starfað og þörfin brýnust að hönd
væri lögð á plóg. Þórður var sann-
ur lionsmaður. Næst síðasta kvöld-
ið sem hann lifði sat hann fund
með okkur, félögum sínum, og
lagði þá sitt til málanna að venju,
enda var hann með ráðhollari
mönnum. Þetta kvöld varð sá
skemmtilegi atburður, að Tryggvi
Magnús sonur Þórðar gerðist fé-
lagi í klúbbnum við formlega at-
höfn. Þannig tekur hver kynslóðin
við af annarri, þannig heldur lífið
áfram.
Það einkenndi Þórð öðru fremur,
að hann var mikill félagshyggju-
maður. Ef litið er yfir ævistörf
hans sést, hve hann lagði gjörva
hönd á margt, sem félagsmálum
er tent. Hér á ekki að rita neina
ævisögu, en drepið á nokkur helstu
atriði á lífsferlinum.
Þórður Jóhann fæddist á Suður-
eyri við Súgandafjörð 24. sept.
1910, sonur hjónanna Magnúsar
Kristjáns Halldórssonar, skip-
stjóra, og konu hans, Ingibjargar
Guðrúnar Guðbjartsdóttur. Hann
ólst upp á Flateyri lengst af, gekk
þar í vélskóla, en hafði áður numið
að Laugarvatni og siðar var hann
vetur í Samvinnuskólanum. Störf-
in sem Þórður hefur gegnt um
ævina eru mörg og margvísleg.
Hann hefur verið háseti og véla-
maður til sjós, verkstjóri við fisk-
vinnu í landi og hann hefur verið
kaupfélagsstjóri í nokkur ár fyrir
vestan. En lengst hefur Þórður
unnið sem sölustjóri hjá búvöru-
deild SÍS í Reykjavík eða um 30 ár
að hann lét af störfum 1981 vegna
aldurs. ótaldar eru fjölmargar
trúnaðarstöður, sem Þórður hefur
gegnt. Hann hefur setið í stjórn
íþróttafélags og verkalýðsfélags,
hann hefur verið í hreppsnefnd og
sóknarnefnd og hann var sjúkra-
samlagsformaður bæði vestur á
Flateyri og um árabil hér í Kópa-
vogi. Hann hefur verið í stjórn og
trúnaðarráði starfsmanna SÍS og
nokkur síðustu árin var hann i
stjórn Sambandsins sem fulltrúi
starfsfólksins. Hann var í stjórn
Norræna félagsins í Kópavogi og
eitt árið var hann formaður Lions-
klúbbs Kópavogs.
Enn er þó ótalið eitt hið siðasta
verk Þórðar, en hann skrifaði og
átti í handriti sögu heilbrigðis-
mála i Kópavogi, en hann skrifaði
og átti í handriti sögu heilbrigðis-
mála i Kópavogi. Mun sú saga
ætluð sem þáttur í hinu mikla
ritverki, Saga Kópavogs, sem nú
er að koma út i 3 bindum á vegum
Lionsklúbbs Kópavogs.
óhætt mun að fullyrða, að Þórð-
ur hafi verið mikill gæfumaður i
starfi sinu og lífi allt fram til
síðasta andartaks. Þó mun gæfa
hans hafa verið stærst er hann
fékk konu sinnar, önnu Tryggva-
dóttur frá Þingeyri. Þau gengu í
hjónaband 1943, en hafa lengst af
búið hér syðra eða síðan 1949. Þau
eignuðust einn son, Tryggva Magn-
ús, sem nú hefur sest í sæti föður
síns hér í klúbbnum okkar.
Þórður var maður starfs og
gleði, en beið þó óttalaus kveðju-
+
Móöir mín og tengdamóöir,
GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Bérugötu 31,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju kl. 15.00, fimmtudaginn
28. nóvember. Blóm afbeöin.
Hafsteinn Jónsson, Áróra Páladóttir.
t
Þökkum af alhug auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
MAGDALENU SVEINBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR,
Merkurgötu 12,
Hafnarfiröi.
Daníel Kristinsson,
Þórir Óskarsson,
Sgurgunnar Óskarsson,
Guðlaug Óskarsdóttir,
Dýrley Siguröardóttír,
Ingibjörg Þorgeirsdóttir,
María Hansen,
Sæmundur Ingólfaaon,
barnabörn og langömmubörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vlnarhug viö andlát og
útför eiginmannsmins,
JÓHANNS SKAPTASONAR,
fyrrverandi aýalumanna Húaavfk.
Sigrfóur Vföia Jónadóttir,
Veaturgötu 160, Akraneai.
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minning-
argreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrir-
vara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður.
Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að
frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minning-
arorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að
vera vélrituð og með góðu línubili.
Eggert Laxdal
fráNesi — Minning
stundarinnar, sem hann vissi að
var ekki langt undan. Hann var
ekki drykkjumaður en kneyfði þó
fagnafull guðanna í kjörvínum
lifsins. Hann gæti því sagt líkt og
Ómar Khayyam forðum daga:
.. .Og loks er engill býður dekkri drykk
ég drekk ei síður hiklaust veigar þær.
Við félagar Þórðar í Lionsklúbbi
Kópavogs flytjum ástvinum hans
hjartanlegar samúðarkveðjur.
Sjálfir tregum við ágætan félaga.
Það mun ávallt verða bjart yfir
minningu hans í hugum okkar.
Félagar í Lionsklúbbi Kópavogs
Frændi, þegar fiðlan þegir, ljóð
Halldórs Laxness, kemur mér í
hug, er ég hugsa til frænda míns
Dúdda. Hans fiðla mun aldrei
þagna þó hrökkvi strengur. Ég
þakka frænda mínum fyrir það
sem hann var mér alla tíð og megi
friðarkveðja fylgja honum.
Ömmu minni og Tryggva Magn-
úsi sendum við samúðarkveðjur og
hugur okkar dvelur hjá þeim.
Ragnhildur G. Finnbjörnsdóttir
Látinn er í Noregi Eggert Laxdal
frá Nesi í Höfðahverfi í Suður-
Þingeyjarsýslu. Hann varð bráð-
kvaddur 21. október 1985 á heimili
sínu, aðeins 61 árs gamall.
Það er margs að minnast þegar
litið er yfir farinn veg, en allt tekur
enda. Nú er kominn vetur, allt
hefur fölnað og annað hlutskipti
tekur við. Þannig hefur það ætíð
verið.
Eggert mágur minn var lýsandi
dæmi glaðværðar og trúmennsku
í hvívetna.
Ég kynntist Eggert þegar hann
var átján ára gamall á Akureyri.
Þar vann hann um tíma. Síðan fór
hann til sjós í Vestmannaeyjum.
Þar kynntist hann unnustu sinni,
Svövu Gunnarsdóttur. Þau stofn-
uðu heimili og fluttust í Vík í
Mýrdal. Þar starfaði hann við Lór-
anstöðina á Reynisfjalli. Eignuð-
ustu þau tvö börn, Sigurdísi og
Gunnar, sem búsett eru í Kópavogi
og Reykjavík. Eftir nokkurra ára
hjónaband slitu þau samvistir. Þá
kynntist Eggert eftirlifandi konu
sinni, Beret, af norsku þjóðerni.
Þau bjuggu tíu ár á íslandi. Eign-
uðust þau tvær dætur, Birget og
Grohild. Síðan flytur fjölskyldan
búferlum til Noregs. Þar bjó Egg-
ert í þrettán ár fram að andláti
sínu.
Hann átti fagurt heimili í
Haugasundi. Þar er mikil nátt-
úrufegurð. Eggert var mikill nátt-
úruunnandi. Hann vildi helst ferð-
ast yfir fjöll og dali. Útilegur, lax-
og silungsveiði var sport að hans
skapi, enda voru þau hjón farin
að undirbúa íslandsför á sumri
komanda.
Eggert var Islendingur í húð og
hár og leitaði hugur hans oft heim
á Frón.
Nú hefur honum verið valin
önnur leið, sem verður áreiðanlega
bæði björt og fögur. Það er erfitt
fyrir þá, sem standa eftir á strönd-
inni og horfa á eftir ástvini sínum
yfir móðuna miklu að sætta sig
við hvarf góðs vinar.
Minningin um góðan dreng verð-
ur aldrei frá okkur tekin.
Ég votta innilega samúð mína
börnum, eiginkonu og systkinum.
Guð styrki ykkur og huggi.
Sigrídur Latdal
BARNASKIÐAGALLAR
Skíðagallar
Barna tvískiptir meö
smekkbuxum. Str. 98,
105,110,120,130 sm.
Litir: Grátt/svart.
Rautt/grátt.
Verö 2.795,-.
Skíðagallar
Barna- og unglinga tví-
skiptir meö smekkbux-
um.
Str. 128 til 164 sm.
Litir: Grátt/rautt.
Rautt/grátt.
Verö 3.750,-.
Skíða- og úti-
samfestingar barna
Str. 90smtil 128 sm.
Litir: Grátt/rautt.
Blátt/grátt.
Rautt/blátt.
Verö 2.450,-.
Póstsendum
5% staögreiösluafsláttur
VISA
hummel^
Ármúla 38. Sími 83555.