Morgunblaðið - 27.11.1985, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER1985
47
Sigurður lék
á 5 undir pari
SIGURDUR Pétursson náði frá-
bærum árangri í forkeppninni um
atvinnumannaskírteini í golfi sem
fram fer f bænum La Manga á
Spáni. Sigurður lék í gær, sem
var fyrsti dagur keppninnar, á 66
höggum sem er fimm höggum
undir pari vallarins. Hann er í
fyrsta sæti ásamt sex öðrum kylf-
ingum. Ragnar Ólafsson lék á 72
höggum. Keppendur á þessu móti
eru aðeins 356 og sýnir þaö best
hversu framarlega Siguröur er í
golfi.
Dagurinn í gær var fyrsti keppn-
isdagurinn af átta og leiknar voru
18 holur. Fyrstu 9 holurnar lék Sig-
urður frábærlega. Hann fór sex
holur á einu höggi undir pari, eina
holu lék hann á höggi yfir pari og
tvær á pari. Þetta gera alls 34 högg
og þótti þessi árangur mjög góður.
Sigurður var ekki alveg á sama
Sund:
Islandsmet
Bryndísar
TVÖ íslandsmet og tvö unglinga-
met voru sett á innanfélagsmóti
UMFB í Sundhöll Reykjavíkur á
mánudagskvöld. Sveit HSK setti
nýtt íslandsmet í 4x50 m skrið-
sundi kvenna, Bryndís Ólafsdóttir
setti íslandsmet í 50 m skriðsundi
Valur-Fram
íkvöld
í KVÖLD fer fram síöasti leikurinn
fyrir jólafrí í 1. deild karla í hand-
knattleik. Valur og Fram leika í
Laugardalshöll og hefst leikurinn
kl. 20.00.
Herra-
kvöldFH
HERRAKVÖLD FH veröur haldiö
föstudaginn 29. nóvember í A.
Hansens húsi og opnar húsiö klukk-
an 19.30, en boröhald hefst klukk-
an 20. Skemmtiatriöi og góöur
matur. Allir velunnarar FH, eldri og
yngri, eru hvattir til aö mæta.
(Fréttatílkynning)
kvenna og Hannes Már Sigurös-
son, UMFB, sett nýtt piltamet í
200 metra skriðsundi. Sveit UMFB
setti svo piltamet í 4x50 m skriö-
sundi.
Stúlknasveit HSK bætti tveggja
daga gamalt met Vestra um 0,4
sekúndur. HSK synti á 1.54,1 mín.
Bryndis Ólafsdóttir synti fyrsta
sprettinn í sveitinni og setti nýtt
islandsmet, 27,5 sekúndur, og er
þetta jafnframt stúlknamet.
Hannes Már Sigurðsson, UMFB,
setti sitt fimmta drengjamet i sundi
á fjórum dögum, er hann synti 200
metra skriðsund á mánudagskvöld
á 2.07,20 mín. Gamla metiö átti
Eövarö Þór Eövarösson, sem var
2.07,56 mín.
Piltasveit Bolungarvíkur setti
nýtt piltamet í 4x50 metra skriö-
sundi, synti á 1.48,10 mín. Eldra
metiö átti sveit Ægis og var þaö
sett 1983.
máli og gerði enn betur er hann lék
næstu níu holur. Þá lék hann allar
holurnar á pari, sem gera 32 högg,
og lauk því keppni fimm höggum
undir pari. Þess má geta aö á síðari
níu holunum lék hann þaö vel aö
hann var aldrei lengra frá holu en
2'/s metra og átti ekki í erfiðleikum
meö púttiö.
Sex aörir kylfingar náöu sama
árangri og Siguröur. Alls voru 78
keppendur sem léku völlinn undir
pari í gær og sýnir þaö styrkleika
þessa móts. Keppendur á þessu
móti eru 365 og 204 þeir efstu
komast áfram í millikeppnina.
Ur millikeppninni komast siðan
100 sterkustu kylfingarnir. Eftir
fyrstu tvo dagana komast 204 kylf-
ingar áfram í keppninni. Siöan
keppa þeir í tvo daga enn og úr
þeirri keppni komast 100 bestu.
Þeir reyna síöan með sér í fjögurra
daga keppni og 50 efstu úr þeirri
keppni fá atvinnumannarétt og
geta tekið þátt í öllum atvinnu-
mannamótum næsta árs.
Eftir fyrsta dag keppninnar er
Ragnar Ólafsson, félagi Siguröar úr
GR, í 80.-90. sæti. Hann lék á 72
höggum í gær en þaö er eitt högg
yfirpari vallarins.
Líklegt er aö ef þeir félagar ætla
aö ná í millikeppnina þurfi þeir aö
leika á samtals 147 höggum. Þetta
þýöir aö Siguröur má leika á 81
höggi í dag og Ragnar á 75 höggum.
Mjög líklegt er að þeir nái þessum
árangri en þess má geta aö þeir
félagar eru fyrstu íslensku kylfing-
arnir sem reyna sig í þessari keppni
um atvinnumannarétt i golfi.
• Sigurður Pétursson lék mjög vel é Spéni í gær og er kominn með
annan fótinn í millikeppnina um atvinnumannateyfi í golfi.
Liverpool áf ram
Frá Bob Hennessy, fróttamanni Morgunbiaósins í Englandi.
LIVERPOOL tryggði sér í gær-
kvöldi sæti í fjögurra liöa úrslitum
Mjólkurbikarkeppninnar í Eng-
landi þegar liöið lagði Manchester
Aðalfundur UBK
AÐALFUNDUR knattspyrnudeild-
ar Breiðabliks, sem vera étti 25.
nóvember og var frestað, fer fram
í félagsheimili Kópavogs (2. hæð)
5. desember.
Aöalfundurinn hefst kl. 20.00.
Félagsmenn eru hvattir til aö mæta
áfundinn.
Getrauna- spá MBL. I > Q í c j i Dagur l Sundsy Mirror SundsyPsople Sundjy Exprsss News of the World Sunday Telegraph SAMTALS
1 X 2
Aston Villa - Tottenham 1 2 1 2 1 X X - - - X - 3 3 2
Ipswich - Sheffield Wed. X 2 X X X 2 2 - X 2 2 X 0 6 5
Luton - Man. City. 1 1 1 1 1 1 1 - 1 1 1 1 11 0 0
Man. Utd. - Watford 1 1 1 1 1 1 1 - - - 1 - 8 0 0
Newcastle - Leicester X 1 1 1 1 X 1 - 1 1 1 1 9 2 0
QPR - Coventry 1 1 X 1 1 1 1 - 1 1 1 1 10 1 0
Southamton - Everton 2 X 2 X X X 1 - - - X - 1 5 2
Bradford - Portsmouth 2 2 2 2 2 2 X - 2 2 X X 0 3 8
Fulham - Oldham 1 1 1 1 1 1 1 - X X 2 X 7 3 1
Grimsby - Blackburn 1 2 X 1 X X 1 - 1 X X X 4 6 1
Leeds - Norwich 1 2 1 2 1 1 X - X 2 2 2 4 2 5
Stoke -Sunderland X 1 X X X X 1 - 2 X 2 2 2 6 3
United að velli é Anfield Road í
Liverpool. Úrslit leiksins uröu 2:1
fyrir Liverpool og skoraöí Jan
Mölby bæði mörk Liverpool í
leiknum. Chelsea og Everton
geröu jafntefli og þurfa því aö
leika aftur og fer sé leikur fram é
Goodison Park, heimavelli Ever-
ton.
Leikur Liverpool og Manchester
United var mjög vel leikinn af
beggja hálfu og skemmtilegur á aö
horfa. United náöi forystunni strax
á 7. mínútu er varnarmaöurinn Paul
McGrath skoraöi glæsilegt mark.
Hann fékk boltann á eigin vallar-
helmingi, iék í átt aö marki Liver-
pool og skoraöi meö fallegu vinstri-
fótarskoti skammt utan vítateigs.
Liverpool geröi síöan út um leik-
inn á tveggja mínútna kafla í síöari
hálfleik. Mölby skoraöi fallegt mark
á 55. mínútu er hann lék af eigin
vallarhelmingi einn og óáreittur og
skoraöi meö skoti af vítapunkti.
Hann skoraöi einnig síöara markiö
er dæmd var umdeild vitaspyrna á
United. Kevin Moran handlék
knöttinn og eftir aö dómarinn hafði
rætt viö línuvörö sinn benti hann á
vítapunktinn en menn töldu þó aö
Moran hefði veriö utan viö teiginn.
Mölby skoraði örugglega úr vítinu.
Whiteside og Blackmore úr Man.
Utd. voru bókaöir í leiknum en þess
má geta aö liöiö var nú nokkuö
breytt frá fyrri leikjum þar sem sex
fastamenn vantaði í liöiö. Mikiö er
um meiösii hjá liöinu og í gær léku
þeir Robson, Duxbury, Moses, Al-
biston, Hughes og Barn ekki meö.
Everton náði jafntefli gegn
Chelsea á Stanford Bridge þrátt
fyrir aö þeir léku einum færri í einar
60 mínútur. Kerry Dixon skoraöi
fyrsta mark leiksins eftir aöeins 55
sekúndur fyrir Chelsea en Kevin
Sheedy jafnaöi fyrir Everton um
miöjan fyrri hálfleikinn en var síöan
rekinn af leikvelli fyrir aö brúka
munn viö dómarann.
Pat Nevin skoraöi seinna mark
Chelsea í þessum leik en síöara
mark Everton geröi Paul Brasewell.
Liöin leika annan leik 10. desember
á Goodison Park, heimavelli Ever-
ton.
Arsenal og Southampton léku
annan leik sinn í fjóröu umferöinni
t gær en liöin skildu jöfn síöast er
þau mættust. Arsenal sigraöi ör-
ugglega í gærkvöldi, 1:3, og er þar
meö komið í undanúrslit keppninn-
ar.
Þaö var Martin Keown sem skor-
aöi fyrsta mark Arsenal en síöan
bættu þeir Charlie Nicholas og
Stewart Robson viö tveimur mörk-
um. Eina mark Southamton geröi
’gamla kempan David Armstrong úr
vítaspyrnu.
Ipswich vann stórsigur á Swin-
don í gær. Sex mörk gegn einu
maki Swindon tryggöi þeim áfram-
hald í keppninni. Terry Butcher og
Michael Cole skoruöu tvívegis fyrir
Ipswich en þeir Mark Brennan og
Kevin Wilson og geröu hin mörkin.
Eina mark Swindon var sjálfsmark.
Nú er tjóst hvaöa lið leika í und-
anúrslitum keppninnar. QPR leikur
viö Everton eöa Chelsea, Liverpool
mætir Ipswich, Oxford leikur viö
sigurvegara úr viöureign Totten-
ham og Portsmouth en sá leikur
veröur í kvöld og Aston Villa eöa
WBA leika viö Arsenal. Leikur As-
ton Villa og WBA er einnig í kvöld.