Morgunblaðið - 04.12.1985, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER1985
31
Efnahagssamvinna Sov-
Mugabe hittir Gorbachev að máli
heimsókn.
Símamynd/AP
í Moskvu, þar sem hann er í opinberri
étríkjanna og Zimbabwe
Moskvu, 3. desember. AP.
SOVÉTRÍKIN og Zimbabwe hafa
undirritað samning um efnahags-
lega og tæknilega samvinnu, að því
er fréttastofan TASS sagði í dag.
Jafnframt var undirritaður samning-
ur um samvinnu Kommúnistaflokks
Sovétríkjanna og Föðurlandsfylk-
ingarinnar í Zimbabwe, sem er
fiokkur Mugabes forseta.
Ekkert var látið uppi um inni-
hald samninganna. Mugabe hefur
verið vel tekið í þessa fyrstu opin-
beru heimsókn sinni til Sovétríkj-
anna, þar sem hann hefur meðal
annars hitt Gorbachev leiðtoga
Sovétríkjanna. Hér áður fyrr voru
samskipti ríkjanna stirð.
Líbanon:
Kristnir og múhameðstrú-
armenn búast til stórátaka
Bæði Ryzhkov, forsætisráðherra kynþáttaaðskilnaðarstefnuna í
Sovétríkjanna, sem undirritaði Suður-Afríku við þetta tækifæri
samninginn fyrir hönd Sovét- og skoruðu á þjóðir heimsins að
manna, og Mugabe fordæmdu beita landið efnahagsþvingunum.
Bandaríkin:
Hagvöxtur í októ-
ber 0,3 prósent
Washington, 3. desember. AP.
HAGTÖLUR októbermánar í Banda-
ríkjunum hækkuðu um 0,3 prósentu-
stig, en það er minnsta hækkun á
fjórum mánuðum, að sögn viðskipta-
ráðuneytisins.
Hagfræðingar . telja hina litlu
hækkun í október benda til að hag-
vöxtur næstu mánuða verði sáralítill.
Hagtölur hafa sýnt hagvöxt síðustu
sex mánuðina, en aukningin hefur
ætíð verið innan við eitt prósentustig.
Mesta aukning á árinu var í janúar,
1,3 stig.
Fyrstu sex mánuði ársins nam
aukning þjóðarframleiðslunnar i
Bandaríkjunum 1,1 prósenti. Árið
1984 jókst þjóðarframleiðslan um
6,8% stig og benda því tölur til að
aukningin á þessu ári verði snöggtum
minni en í fyrra.
Beirút, 3. desember. AP.
KRISTNIR menn og múhameðstrú- Líbanons og búist er við að til mik-
armenn fylkja nú liði í suðurhluta illa átaka komi milli hinna stríðandi
Svik og prettir
í Kínverska
alþýðulýðveldinu
Peking, 3. desember. AP.
YFIRVÖLD í Kanton-héraði í Kína
hafa handtekið mann að nafni Liu
Hagran fyrir að svíkja allverulegar
fúlgur fjár af fyrirtækjum, sem
greiddu fyrir hann hótelreikninga
og opnuðu fyrir hann bankareikn-
inga í þeirri trú að Hagran næði
fyrir þau ábatavænlegum samning-
um. Þegar allt kom til alls reyndust
samningsvonir þær, sem Hagran
vakti, öldungis staðlausar.
Kvöldblaðið Yangcheng sagði á
mánudag að mál Hagrans bæri
óheilbrigðum öfughneigðum innan
Kommúnistaflokksins vitni og
væri dæmi þess að spilling og
lögleysur blómstruðu í kínversku
þjóðfélagi.
Að sögn fór Hagran til Kanton
héraðs á síðasta ári og kvaðst vera
yfirmaður úr hernum á eftirlaun-
um. Á fimm mánuðum fékk hann
2,86 milljarða Bandaríkjadollara
fyrir loforð um að útvega samn-
inga. Hann fékk ásamt fjórtán
samstarfsmönnum 6,16 milljónir
dollara greidda í reiðufé.
HagraYi fékk fé til að kaupa korn
og næla í viðskiptasamninga og
eitt fyrirtæki lét honum peninga
í té til að kaupa ál- og stálvörur,
en annað fól honum að útvega
6.000 japönsk vélhjól. Embættis-
maður við verslunarfyrirtæki þáði
mútur og batt svo um hnútana að
Hagran fékk ólöglegan banka-
reikning.
Bretland:
Umdeilt frumvarp um
verslun á sunnudögum
London, 3. desember. AP.
LÁVARÐADEILD breska þingsins
felldi í gærkvöldi brevtingartillögur
við frumvarp stjórnar Margrétar
Thatcher um að öllum verslunar-
höftum verði aflétt á sunnudögum á
Bretlandi. Þetta er mikið áfall fyrir
kirkjunnar menn á Bretlandi, sem
og stéttarfélög og smákaupmenn, en
þessir hópar hafa barist harkalega
gegn frumvarpinu.
Hugh Montefiore, biskup af
Birmingham, lagði fram breyting-
artillögurnar, sem kveða á um
takmörkuð höft á verslun á sunnu-
dögum. Stjórnin lagði frumvarp
sitt fram í lávarðadeildinni. Lá-
varðarnir hafa vald til að seinka
frumvarpinu um eitt ár, en þeir
geta ekki fellt frumvarpið. Lá-
varðadeildin telur 1.148 þingmenn
og sitja þar ævilangt lávarðar og
aðalsmenn, sérstakir, skipaðir
heiðursmenn og biskupar bresku
kirkjunnar. Fulltrúar í deildinni
sitja þar ævilangt og gegna ráð-
gjafarhlutverki.
Talið er að frumvarpið um að
verslanir fái að hafa opið að vild
á sunnudögum hljóti harðar við-
tökur þegar það verður lagt fram
á neðri deild þingsins í vor. Margir
þingmenn Verkamannaflokksins
eru alfarið á móti frumvarpinu og
hallir undir málstað stéttarfélags
verslunarstarfsmanna og stéttar-
félags verkamanna í verslunum og
dreifingu. Ýmsir þingmenn
íhaldsflokksins eru lítt hrifnir af
frumvarpinu og óttast að hvíldar-
dagurinn missi allan helgiblæ ef
verslanir eru opnar án nokkurra
takmarkana.
Montefiore sagði, er hann kynnti
breytingartillögu sína í lávarða-
deildinni, að smáverslanir myndu
eiga undir högg að sækja í sam-
keppninni við stærri verslanir og
starfsmenn í verslunum vildu frá-
leitt missa frídag. Þá óttuðust
kirkjuyfirvöld að opnar verslanir
á sunnudugum myndu kynda undir
óeiningu innan fjölskyldna, sem
ætti síst við nú, þegar einu af
hverjum þremur hjónaböndum
lyktaði með skilnaði.
Frumvarpið á aðeins við Eng-
land og Wales. Verslanir á Skot-
landi eru þegar opnar á sunnudög-
um.
Miklu fé varið til al-
næmisvarna í Bretlandi
fylkinga áður en varir.
Bæði óháða dagblaðið An-
Nahar og vinstri blaðið As-Safir
vöruðu við því í gær að miklir
bardagar milli suður-líbanska
hersins (SLA) og Frelsissamtaka
alþýðunnar (PLA) stæðu fyrir
dyrum. SLA uppistendur mestan-
part af kristnum mönnum og PLA
eru samtök vinstri manna og mú-
hameðstrúarmanna. PLA hrakti
kristna menn brott frá strand-
svæðum suður af Beirút í apríl og
síðan hefur af og til skorist í odda
milli PLA og SLA.
London, 3. desember. AP.
BRETAR munu verja rúmlega 6
milljónum sterlingspunda til að hefta
útbreiðslu ónæmistæringar á næsta
ári. Að sögn Normal Fowler, ritara
félagsmálaráðuneytisins, verður tæp-
lega helmingi upphæðarinnar varið
til fræðslustarfsemi um sjúkdóminn
og hvernig hægt sé að varast hann.
Þá verður miklu fé varið til með-
ferðar þessara sjúklinga og ráðgjaf-
ar fyrir þá sem smitast hafa af sjúk-
dómnum. Frá árinu 1982 þar til í
október á þessu ári hefur 241 maöur
í Bretlandi fengið ónæmistæringu á
alvarlegasta stigi og hafa 134 þeirra
þegar látist. „Ríkisstjórnin lítur á
baráttuna gegn útbreiðslu þessarar
hættulegu veirusýkingar sem algjört
forgangsverkefni," sagði Fowler.