Morgunblaðið - 29.12.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.12.1985, Blaðsíða 1
56 SIÐUR 293. tbl. 72. árg. SUNNUDAGUR 29. DESEMBER 1985 Prentsmiðja Morgunblaósins Brimaldan brotnar á Álftanesi á Mýrum Morpinblaðið/RAX Viðbrögðin við atburðunum í Róm og Vín: Baráttan við hryðju- verkamenn verði efid Vestur-Afríka: Vopnahlé á miðnætti London, 28. desember. AP. Utanríkisráðherra Nígeríu, Bolaji Akinyemi, átti fund með Thomas Sankara, forseta Burkina Faso, f gærkvöldi í því skyni að reyna að binda endi á landamæraátökin milli Burkina Faso og nágrannaríkisins, Mali. Landamærastríðið milli rikjanna braust út á miðvikudag, en i fréttatil- kynningu, sem lesin var i útvarpinu í Senegal i gærkvöldi og sögð vera frá Einingarsamtökum Afríku, OAU, sagði, að stjórnir hinna stríðandi ríkja hefðu fallist á að verða við tilmælum nokkurra þjóðarleiðtoga í Vestur-Afríku um að gera vopnahlé. Samkvæmt fréttatilkynningunni átti vopnahléið að ganga i gildi á mið- nætti. Líbanon: Er friður á næsta leiti? Damaskus, Sýrlandi, 28. deHember. AP. STRÍÐSHERRARNIR í Líbanon, kristnir jafnt sem múhameðstrúar, komu í dag til Damaskus í Sýrlandi til að undjrrita vopnahléssáttmála, sem sýrlenska stjórnin hefur sett saman. Með honum á að binda enda á borgarastyrjöldina í Líban- on, sem staðið hefur í áratug. Walid Jumblatt, leiðtogi drúsa, og Nabih Berri, leiðtogi shíta, komu til Damaskus snemma í morgun en Elie Hobeika, leiðtogi kristinna manna, kom ekki fyrr en að áliðnum degi og hafði tafist vegna mikilia snjóa og ófærðar í Líbanonsfjöllum. Hafa þessir menn ekki fyrr hist allir þrír. Ekki hefur verið greint nákvæm- lega frá efni samningsins en þó er vitað, að Sýrlendingar munu sjá um, að vopnahléið verði virt og ný stjórn í Líbanon á að vinna að pólitískum umbótum. Eru þær helstar, að mú- hameðstrúarmenn hafi jafn mikil völd og kristnir í ríkisstjórn, her og dómsmálakerfinu, en kristnir menn hafa jafnan ráðið meiru síðan landið fékk sjálfstæði frá Frökkum árið 1943. í Beirút er nú allt með kyrrum kjörum og hefur verið í þrjá daga. Róm, Vín, 28. desember. AP. EMBÆTTISMENN á ÍUlíu I sögðu í dag, að ástæða væri til að óttast fleiri hryðjuverk í kjölfar atburðanna í Róm og Vín í gær | þegar 18 manns féllu í árás I hermdarverkamanna á flugstöðv- arnar í borgunum og a.m.k. 117 slösuðust. Þjóðarleiðtogar og rík- I isstjórnir víða um heim hafa enn einu sinni harmað, að saklausu fólki skuli hvergi óhætt fyrir of- beldismönnum og hafa margir á orði, að ekki megi lengur dragast, að spyrnt sé við fótum af alefli. „Enn einu sinni hefur blóðugt ofbeldið sett svip sinn á jólahátíð- ina,“ sagði Bettino Craxi, forsæt- isráðherra Ítalíu, þegar hann var á leið til fundar með ráðherrum og embættismönnum ríkisstjórn- arinnar en þar átti að ræða um ráðstafanir gegn hryðjuverka- mönnum. Er búist við, að eftirlit verði aukið með útlendingum og einkum þeim, sem eru af arabísk- um uppruna. Fólk frá Arabalönd- um er vegabi éfsskylt á Ítalíu að undanteknum Marokkómönnum og hefur það oft komið fyrir, að hryðjuverkamenn komast til landsins með falsað marokkanskt vegabréf. Sjö eða átta hryðjuverkamenn tóku þátt í árásunum á flugstöðv- arnar, þrír í Vín og fjórir eða fimm í Róm. Lögreglumenn felldu fjóra en vafi leikur á um einn þeirra, sem eru í haldi lögregiunn- ar. Er hann frá Arabalöndum en eins líklegt þykir, að hann hafi aðeins átt leið um flugstöðina í Róm. Meðal hinna föllnu í Róm að öðru leyti eru þrír eða fjórir Bandaríkjamenn, þrír Grikkir, tveir Mexíkanar, einn Itali og einn Alsírmaður. í Vín létu tveir menn lífið, Austurríkismaður og annar, sem ekki hafði tekist að bera kennsl á þegar síðast fréttist. Jóhannes Páll páfi og De Cuell- ar, framkvæmdastjóri SÞ, hafa fordæmt hryðjuverkin og svo hafa einnig gert þjóðarleiðtogar og ríkisstjórnir víða um heim. PLO, Frelsissamtök Palestínumanna, leggja mikla áherslu á, að þau hafi hvergi komið nærri þessum glæpaverkum og segir í yfirlýs- ingu frá þeim, að hryðjuverkin séu tilræði við málstað palest- ínsku þjóðarinnar. Horst Ehmke, einn af leiðtogum v-þýskra jafn- aðarmanna, hvatti í dag allar ríkisstjórnir til að sameinast gegn hryðjuverkamönnum og að komið yrði í veg fyrir, að nokkur ríkis- stjórn skyti yfir þá skjólshúsi. Kvikmyndin London. 28. desember. AP. LUNDUNABLAÐIÐ The Times minnist í dag, laugardag, 90 ára afmælis kvikmyndarinnar. „Jafnvel þótt hart sé um það deilt enn þann dag í dag, hverjir hafi verið frumherjarnir á þessu sviði, er viðurkennt, að kvikmynd- in hafi fyrst orðið almenningseign í París hinn 28. desember árið 1895,“ segir blaðið. Þann dag, sem var laugardagur, kom kvikmyndavélin, sem var uppfinning bræðranna Auguste og Louis Lumiere, í fyrsta sinn fyrir almenningssjónir — gegn greiðslu — og fóru kvikmynda- sýningarnar fram í kjallara stórs veitingahúss við Capucines- stræti. „Dagarnir milli jóla og nýárs voru venjulega langvænlegasti tíminn til kynningar á nýjungum, því að þá voru göturnar iðandi af fólki í leit að afþreyingu," segir kvikmyndagagnrýnandi The Tim- es, David Robinson. Fyrsta daginn seldust aðeins 33 miðar. En fiskisagan flaug hratt og innan þriggja vikna mátti sjá langar biðraðir fólks fyrir utan veitingahúsið. Sýning- artíminn var 20 mínútur og fjöll- uðu myndirnar um barnunga níræð dóttur Auguste Lumiere; verka- menn sem voru að brjóta niður vegg; og járnbrautarlest. Hreyfimyndir höfðu verið sýnd- ar í svonefndum „gægjukössum“ allt frá þvi á fjórða áratug aldar- innar, en Lumiere-bræðrunum, sem framleiddu ljósmyndavörur, tókst fyrstum að gera slíkar myndir til sýningar á tjaldi. Louis Lumiere lést árið 1948 og bróðir hans 1954. „Báðum auðnað- ist þeim að sjá hið frumstæða tækniundur sitt umbreytast í gífurlegan iðnað og verða að list,“ segir Robinson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.