Morgunblaðið - 29.12.1985, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. DESEMBER1985
Plurfw Utgefandi Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aðstoöarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 40 kr. eintakiö.
Hryðjuverk
á jólum
Arás arabískra hryðju-
verkamanna á saklausa
borgara í flughöfnum við Róm
og Vínarborg á þriðja í jólum
er níðingsverk, sem ríkis-
stjórn ísraels segist ætla að
hefna. Sjö eða átta ódæðis-
menn köstuðu handsprengj-
um og létu vélbyssuskothríð
dynja á viðskiptavinum ísra-
elska flugfélagsins E1 Al.
Sumir sjónarvottar segja að
vísu, að skotið hafi verið á
allt sem fyrir var. í Róm féllu
14 manns og 3 í Vínarborg,
en rúmlega hundrað særðust.
Arásirnar voru gerðar sam-
tímis á flugvöllunum. Svo
virðist sem allir ofbeldis-
mennirnir hafi annað hvort
náðst eða verið drepnir.
Ofríkisverk þeirra, sem
sætta sig ekki við sæmilegar
leikreglur í mannlegum sam-
skiptum, hafa sett svip á
þetta ár. Á fyrri hluta þess
höfðu þjóðaleiðtogar á Vest-
urlöndum uppi stór orð, um
að þeir ætluðu að taka hönd-
um saman í baráttunni við
hermdarverkamenn. Síðar á
árinu var það talið marka
tímamót í átökum ríkis-
stjórna við þessa hrotta, að
Bandaríkjamönnum tókst að
hafa hendur í hári þeirra, sem
rændu ítalska skipinu Achille
Lauro. Bandarískar orrustu-
þotur flugu í veg fyrir
egypska vél og neyddi hana
til að fljúga með ræningja
skipsins til Sikileyjar. Banda-
ríkjastjórn þótti ríkisstjórn
Ítalíu sýna of mikla linkind
gagnvart forsprakka sjóræn-
ingjanna, þegar hún leyfði
honum að fara úr landi.
Stjórnvöld í Austurríki hafa
ekki verið sökuð um of mikla
hörku í garð þeirra forvígis-
manna PLO eða annarra, sem
telja sér öll fólskuverk heimil
til að klekkja á ísraelum. Nú
eru það höfuðflugvellir þess-
ara tveggja ríkja, sem breyt-
ast i blóðvöll.
Tilviljun ræður því ekki, að
jólahátíðin er valin til að
vinna grimmdarverk af þessu
tagi. Þeir, sem fyrir þeim
standa, eru haldnir hömlu-
lausri þörf fyrir að ganga
fram af öðrum. Er nokkuð í
meiri andstöðu við hugmynd-
ir kristinna manna um það,
hvernig fæðingu frelsarans
skuli fagnað en miskunnar-
laus árás á saklaust fólk?
Yngsta fórnarlambið að þessu
sinni var 11 ára stúlka. Þegar
Achille Lauro var rænt, töldu
glæpamennirnir sig knúna til
að drepa fótlama mann í
hjólastól.
ísraelar segjast ætla að
hefna þessara síðustu fólsku-
verka. Því hefur verið haldið
á loft í erlendum blöðum, að
fjöldamorðin á flugvöllunum
við Róm og Vínarborg hafi
þann tilgang að egna ísraela.
Öfgamönnum meðal Araba
standi ógn af því, hve vel
miði í umleitunum til að koma
á varanlegum friði milli ísra-
ela og nágranna þeirra. Þeir
sjái þann kost vænstan til að
spilla framgangi þeirra mála,
að ísraelar hefni sín svo
grimmilega, að allir Arabar
rísi upp í andúð og reiði.
Skoðanir af þessu tagi ber
ekki að afskrifa, þegar blóð-
baðið í Róm og Vín er íhugað.
Við sáum það í nýlegum sjón-
varpsþætti um forvígismenn
öfgahópa í nágrannalandi
okkar Norður-írlandi, að þeir
telja ekkert geta komið í stað
byssunnar í baráttunni til
endanlegs sigurs fyrir mál-
stað, sem allir siðaðir menn
telja að leysa beri við samn-
ingaborð.
Lagaleg úrræði til að halda
hryðjuverkamönnum í skefj-
um hafa ekki borið neinn ár-
angur til þessa. Af þeim sök-
um er ekki annað talið unnt
en svara þeim nema í sömu
mynt. Það er yfirlýst stefna
Israela að hefna sín ávallt í
tilvikum sem þessum. Árásin
á höfuðbækistöðvar PLO í
Túnis á þessu ári er til marks
um það. Sumir töldu, að með
henni hefði ísraelsstjórn far-
ið út fyrir hæfileg mörk. En
hvar á að draga slík mörk í
tilvikum sem þessum? Hvar
eru siðferðileg mörk þeirra
manna, sem ganga með vél-
byssur og handsprengjur inn
í hóp saklauss fólks, er bíður
þess að fá flugfar til ættingja
og vina á jólahátíðinni?
Við íslendingar erum sann-
færðir um að atburðir sem
þessir séu okkur fjarlægir.
Hryðjuverkin gerast þó ekki
nema í nokkurra klukku-
stunda flugfjarlægð frá landi
okkar. Ofbeldismennirnir
halda sér enn nálægt Mið-
jarðarhafi. Hvenær kemur að
flugvöllum viö Atlantshaf,
má spyrja. Það er fyllsta
ástæða fyrir okkur að huga í
alvöru að öryggi á Keflavíkur-
flugvelli, eina alþjóðavellin-
um hér á landi.
rþessu síðasta Reykjavíkur-
bréfi ársins er rætt um þann
atburð á alþjóðavettvangi, sem
vakti hvað mesta eftirvænt-
ingu og athygli á árinu, fund
þeirra Ronalds Reagan,
Bandaríkjaforseta, og Mik-
hails Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna,
í Genf 19. og 20. nóvember síðastliðinn.
Þegar litið er yfir það, sem ritað hefur
verið í erlend blöð um fundinn, vaknar
sú spurning, hvort leiðtogunum hafi í
raun tekist að brúa hyldýpið, sem er á
milli á þeirri. William Safire dálkahöf-
undur New York Times dregur það í efa
með þessum orðum:
„Viðræður geta dregið úr óvináttu og
þær eru nauðsynlegar til að leiðrétta
ranghugmyndir, en að baki ágreinings-
ins milli risaveldanna býr annað en
tortryggni byggð á misskilningi. Þar er
á ferðinni vissan um sögulegt hlutverk
þeirra, að útbreiða eigið stjórnkerfi til
allra heimshorna — auk þeirrar ábyrgð-
ar Bandaríkjamanna að ýta undir frelsi
alls staðar. Gagnkvæmur skilningur
mun breikka hyldýpið en ekki minnka
það.
Unnt er að tala við þá. Margir þeirra
eru geðþekkir sem einstaklingar. Harð-
stjórn verður þó ekki þoluð vegna þess
að harðstjórinn eða útsendarar hans
trúa því í einlægni að þeir hafi rétt fyrir
sér. Hún verður aðeins hættulegri. Leið-
togafundir ættu að kenna okkur, að
samskipti leysa ekki allan vanda, sér-
staklega þegar þau sýna okkur, hve
mjög við erum ósammála.“
Það var yfirlýst markmið Reagans
fyrir fundinn, að hann ætti að verða
upphaf frekari viðræðna fulltrúa Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna um takmörk-
un vígbúnaðar og annað, sem á milli
skilur. Gorbachev lagði á hinn bóginn
áherslu á það, að hann ætlaði að ná
ákveðinni niðurstöðu í afvopnunarmál-
um á fundinum sjálfum. Orð hans og
jafnvel hótanir fyrir fundinn var ekki
unnt að skilja á annan veg en þann, en
allt ylti á því að fá Reagan til að falla
frá áformum sínum um geimvarnir gegn
langdrægum eldflaugum.
Tekist á um geimvamir
Bandaríska vikuritið Time lýsir við-
ræðum ieiðtoganna um geimvarnir og
takmörkun vígbúnaðar með þessum
hætti:
„Reagan tók fyrstur til máls og talaði
greinilega frá dýpstu hjartarótum.
Hann hallmælti „siðlausu eðli“ gagn-
virkrar gjöreyðingar, þeirrar fælingar-
kenningar, sem sett hefur svip sinn á
samkeppni risaveldanna í meira en tvo
áratugi. Hann sagðist ekki geta verið
fylgjandi kenningu, sem miðaði að því
að tryggja frið með hótun um að
sprengja veröldina í loft upp. Við verð-
um, sagði hann við Gorbachev, „að finna
betri leið“. Forsetinn taldi, að það yrði
ekki gert nema með því að fækka sóknar-
vopnum og leggja meiri áherslu á varn-
arvopn. Hann sagðist gera sér ljóst, að
Gorbachev liti á geimvarnarkerfið sem
yfirvarp, Bandaríkjamenn ætluðu í raun
að ná þeirri aðstöðu, að þeir gætu þurrk-
að Sovétmenn út í fyrsta kjarnorku-
höggi. Hann vildi fullvissa Gorbachev,
um að þetta væri ekki og yrði aldrei
markmið Bandaríkjamanna.
Gorbachev greip fram í og reyndi að
komast að. „Viltu vinsamlega leyfa mér
að klára,“ sagði Reagan. Áhyggjur sov-
éska leiðtogans væru fyllilega rétt-
mætar, sagði forsetinn. En hann gæti
dregið úr þeim með loforði um „opnar
rannsóknastöðvar". Reagan lagði síðan
fram það boð, að Sovétmenn fengju að
kynnast öllum þáttum kerfisins, eftir
að Bandaríkjamenn hefðu þróað tækni
til að koma á fót virkri hlíf gegn kjarn-
orkueldflaugum.
Gorbachev hallaði sér aftur í stólnum
og horfði í augu Reagans „án þess að
blikna", segir embættismaður, sem sat
fundinn. Hann sagði ekkert. Enginn
sagði orð. Síðan tók hann hægt og rólega
til máls en tilfinningahitinn jókst jafnt
og þétt og var orðinn ákafur undir lokin.
Gorbachev sagðist skilja allt, sem
viðmælandi sinn hefði sagt, sér væri
ljóst, að Reagan þætti mikið til geim-
varnaáætlunarinnar koma. Hitt taldi
Gorbachev fráleitt, að unnt væri að
koma á fót geimkerfi, sem gerði kjarn-
orkuvopn úrelt. Miklu líklegra væri, að
í raun stefndi Reagan að einhverjum
myrkraverkum með þessu kerfi, hann
ætlaði að nota varnir sem yfirvarp í
viðleitninni við að geta veitt Sovét-
mönnum fyrsta högg með kjarnorku-
vopnum. „Þig getur dreymt um frið,“
hrópaði sovéski leiðtoginn, „en við verð-
um að horfast í augu við staðreyndir."
Roði hljóp í kinnar Gorbachevs og hann
lagði áherslu á orð sín með bendingum:
“Eg er ekki blóðþyrstur maður. Við
verðum að fækka öllum vopnum, ekki
hefja smíði nýrra."
Reagan reyndi að komast að með
þessum orðum: „En ef við opnum rann-
sóknastofur okkar, geta vísindamenn
okkar séð, hvað þið eruð að gera. Þið
gætuð séð, hvað við erum að gera.“
Gorbachev lét sér ekki segjast. „Við
eigum að banna öll geimvopn. Banna
þau! Banna öll geimvopn!"
Þegar hér var komið kastaði Gorbach-
ev þessari spurningu hastarlega fram:
„Hvers vegna trúið þið okkur ekki?“ Með
henni snerti hann viðkvæmustu taugina
í sambandi risaveldanna á kjarnorkuöld,
og þarna reis spennan hæst á leiðtoga-
fundinum og hættan varð mest á því,
að hann færi út um þúfur. Ákefðin rann
nú af Gorbachev og hann sagði loks:
„Mér sýnist við ekki komast lengra."
Óþægileg þögn ríkti nú í gullbúnu,
rjómagulu herberginu, þaðan sem sást
yfir kyrrt Genfarvatn. Reagan reyndi
að nálgast viðmælanda sinn úr annarri
átt. Kannski væri gott fyrir þá báða að
gera stutt hlé og breyta um umhverfi.
Hann lagði til að þeir fengju sér göngu-
ferð í svölu Genfarloftinu. „Ah,“ sagði
Gorbachev snögglega. „Frískt loft kynni
að gefa okkur frískar hugmyndir." Reag-
an svaraði: „Kannski eigum við eftir að
finna að þetta tvennt fer saman.““
í sinn brotnar
Síðan segir Time frá því, að á leiðinni
í garðskálá við vatnið hafi Reagan beðið
Gorbachev að segja Arbatov, ráðgjafa
sínum um bandarísk málefni, að hann
hefði ekki bara leikið í lélegum kvik-
myndum. En Arbatov hæddist að kvik-
myndaleik Reagans á blaðamannafundi,
eins og sýnt var oftar en einu sinni í
íslenska sjónvarpinu. Gorbachev sagðist
vita þetta um leikferil Reagans, hann
hefði einu sinni séð hann í hlutverki
fótalauss manns. Síðan hlógu þeir báðir.
ísinn brotnaði.
Áður en Reagan fór í gönguferðina,
stakk hann skjalamöppu undir hand-
legginn. 1 henni voru tillögur Banda-
ríkjamanna um hvað ætti að ræða í
framtíðarviðræðum um takmörkun vig-
búnaðar. Þegar þeir voru sestir við arin-
eld í skálanum við vatnið, dró forsetinn
skjöl úr möppunni. Sum þeirra voru á
rússnesku og rétti hann Gorbachev þau
með þeim orðum, að þeir ættu að gefa
fulltrúum sínum fyrirmæli, um hvað
þeir skyldu ræða í næstu samningalotu
um afvopnunarmál. Gorbachev setti á
sig gleraugu og fór að lesa tillögurnar,
sem voru í 9 liðum.
Lagt var til, að ríkin fækkuðu kjarn-
orkuvopnum sínum um 50% í samræmi
við yfirlýsingar fyrir fundinn. Stungið
var upp á því, að gerður yrði sérstakur
bráðabirgðasamningur um meðaldræg-
ar kjarnorkueldflaugar í Evrópu. í
þriðja lagi var vakið máls á hugmyndum
Bandaríkjamanna um að varnarvopn
komi í stað sóknarvopna, og hvor aðili
um sig geti haldið áfram að kanna
varnaraðgerðir gegn langdrægum kjarn-
orkuvopnum í samræmi við það, sem
leyft er í samningnum um bann við
gagneldflaugakerfum, ABM-samningn-
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. DESEMBER1985
29
REYKJAVIKURBRÉF
Laugardagur 28. desember
um frá 1972. I öðrum liðum var hvatt
til þess að ráðstafanir verði gerðar í því
skyni að auka traust milli ríkjanna,
banna efnavopn, sporna gegn útbreiðslu
kjarnorkuvopna og að koma á fót stjórn-
stöðvum til að draga úr líkum á mistök-
um á hættutímum.
Reagan sagði við Gorbachev að hann
yrði að samþykkja öll atriðin eða ekkert.
Hann gæti ekki valið þá hugmynd, sem
sér þætti best og hafnað hinum.
Gorbachev neitaði að ræða málið á
þessum grundvelli, tillögurnar leyfðu
Bandaríkjamönnum að halda geim-
varnaáætluninni áfram. Á hinn bóginn
sagði Gorbachev, að þráðurinn mætti
ekki slitna í afvopnunarviðræðunum.
Þeir risu úr sætum og héldu í átt til
bifreiða sinna. Þegar þeir komu að þeim,
sagði Reagan: „Ég held við séum sam-
mála um að þessi fundur sé gagnlegur."
Já, sagði Gorbachev. Þá verðum við að
hittast aftur, hélt Reagan áfram. Á
bílastæðinu bauð hann Gorbachev til
Bandaríkjanna næsta sumar og Kreml-
arhöfðinginn svaraði: „Og ég býð þér til
Sovétríkjanna." Þannig voru tveir leið-
togafundir á næsta ári og 1987 ákveðnir.
Nixon endurbættur
I ræðu, sem Reagan flutti á Banda-
ríkjaþingi við heimkomuna, sagði hann
meðal annars:
„Hvert höldum við héðan? Við viljum
mjög gjarnan, að samskiptin batni. Við
erum reiðubúnir og fúsir til að fara skref
fyrir skref að markinu. Við vitum, að
friður er ekki aðeins það ástand, þegar
ekki er háð stríð. Við viljum hvorki
falskan frið né veikbyggðan frið; við
erum ekki að eltast við einhvers konar
tilbúna slökun. Við getum ekki sætt
okkur við sýndar-umbætur, sem stand-
ast ekki tímans tönn. Við viljum raun-
verulegan frið.“
Breska vikuritið Economist segir, að
Gorbachev hafi hitt bandaríska ráða-
menn fyrir eins og þeir geti bestir verið
á fundinum í Genf. Blaðið vitnar í kafla
úr grein eftir Richard Milhous Nixon,
fyrrum Bandaríkjaforseta, í tímaritinu
Foreign Affairs sem gerð var að umtals-
efni í Reykjavíkurbréfi fyrir leiðtoga-
fundinn og birtir vikuritið sama kafla úr
greininni og Morgunblaðið gerði. Eco-
nomist segir:
„Hann [Gorbachev] hitti Reagan:
(a) sem hafði verið að lesa nýlega grein
Nixons í Foreign Affaim.
„Slíkir fundir stuðla því aðeins að
friði, ef leiðtogarnir átta sig á því, að
spenna milli ríkjanna á ekki rætur að
rekja til þess, að við skiljum ekki hvor
annan, heldur hins, að við skiljum, að
við höfum gjörsamlega andstæðra hags-
muna að gæta í hugmyndafræði og að
því er varðar pólitíska afstöðu til ein-
stakra ríkja."
(b) sem barði tvfstígandi embættismenn
og þreytandi blaðamenn til hlýðni; og
(c) sem geymdi skotfærin fyrir aðalorr-
ustuna um takmörkun vígbúnaðar og
geimvarnaráætlunina.
Gorbachev veit nú hvern hann á í
höggi við: andstæðingurinn er hvorki
fasistinn, sem lýst hefur verið á síðum
Prövdu, né hinn hættulegi klaufabárður,
sem lýst er í evrópskum tröllasögum,
heldur forseti, sem er Richard Milhous
Nixon endurbættur. Þörf Gorbachevs
sjálfs fyrir samninga við Bandaríkin
vex, hann verður að geta dregið úr fjár-
veitingum til hermála og stundað við-
skipti við Vesturlönd. En tíminn vinnur
einnig gegn Reagan, eftir mikla upp-
sveiflu í bandarísku efnahagslífi er að
koma lægð, og forsetinn er í þeirri
óþægilegu stöðu að búa og þurfa að
semja í Washington. Eigi Reagan að
takast ætlunarverk sitt þarf hann að
koma fram við samstarfsmenn sína og
fjölmiðlamenn með sama hætti og hann
gerði i Genf. Og með einhverjum hætti
verða þeir Gorbachev að koma ágrein-
ingnum um geimvarnirnar fyrir kattar-
nef, og það geta þeir gert, ef þeim tekst
að sýna geðprýði við arineldin."
Framhaldid
Eftir leiðtogafundinn lýstu 81%
Bandaríkjamanna yfir ánægju sinni með
það, hvernig Reagan hafði staðið sig á
honum og 77% töldu hann standa sig
vel í forsetaembættinu. Hugh Sidey, sem
skrifar um bandaríska forsetaembættið
í Time segir, að Reagan sé nú greinilega
fremsti leiðtogi veraldarinnar, hvorki
meira né minna. Ásakanir andstæðinga
hans um að forsetinn botni ekkert í
viðfangsefnum sínum séu marklausar.
Sífelldar fréttir um skoðanaágreining
og átök milli manna í ríkisstjórn og
meðal embættismanna forsetans séu
ekki annað en athugasemdir á spássíu,
þótt þær kunni að vera réttar. Enginn
þungavigtarmaður í alþjóðastjórnmál-
um svo sem eins og Pierre Trudeau,
Helmut Schmidt og nú Mikhail Gor-
bachev hafi staðist honum snúning.
Þessi ummæli manns, sem hefur haft
það að atvinnu í mörg ár að gagnrýna
íbúa Hvíta hússins í Washington, sýna
ef til vill best vonimar, sem menn binda
við framhaldsfundi þeirra Reagans og
Gorbahcevs á Vesturlöndum. Þegar
utanríkisráðherrar Atlantshafsbanda-
lagsins hittust á árlegum vetrarfundi
sínum í Brussel á dögunum, notaði
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hvert tækifæri sem
gafst til að minna menn á, að enn væru
mörg ljón í veginum fyrir samkomulagi
um takmörkun vígbúnaðar og afvopnun.
Evrópskir aðilar bandalagsins hafa látið
í ljós vonir um að i næstu lotu takist
samninganefndum Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna að ná bráðabirgðasam-
komulagi um takmörkun meðaldrægra
kjarnorkueldflauga í Evrópu. Viðræður
fulltrúa í nefndunum hefjast að nýju í
Genf um miðjan janúar. Þar er rætt um
langdrægar eldflaugar, meðaldrægar
eldflaugar og geimvopn. í ályktun ráð-
herrafundar NATO er lýst yfir fullum
stuðningi við málstað Bandaríkjanna á
öllum sviðunum þremur. Þetta túlka
bandarískir embættismenn sem þögult
samþykki við þá stefnu Reagans að
hafna öllum skilyrðum Sovétmanna um
fráhvarf frá geimvarnaáætluninni. Það
fer eftir því, hvernig sérfræðingunum
tekst að greiða úr málum sín á milli,
hvaða árangur næst, þegar þeir Reagan
og Gorbachev hittast að nýju í Banda-
ríkjunum um mitt næsta ár.
Á utanríkisráðherrafundinum í
Brússel hlaut ræða Geirs Hallgrímsson-
ar, utanríkisráðherra, góðar undirtektir.
Þótti mönnum hann tala af raunsæi,
þegar hann leit fram á veginn og mat
stöðuna á grundvelli leiðtogafundarins
í Genf. Hann sagði meðal annars:
„Nýju leiðtogarnir í Kreml hafa aftur
á móti ekki breytt um sína grundvallar-
stefnu, þeir reyna enn að rjúfa samstöðu
Vesturlanda. Þó að við fögnum þvi, að
nokkur árangur hefur náðst nýlega í því
að koma á þeinum samningaviðræðum
milli austurs og vesturs, sérstaklega
milli risaveldanna, sem ákveðið hafa að
hraða afvopnunarviðræðunum í Genf,
þá skulum við ekki gleyma því, að
markmið Sovétmanna eru enn þau sömu.
En okkur á að vera betur ljóst en
flestum öðrum að ágreiningsmálin eru
mörg og ekki er auðvelt að leiða þau til
lykta. Oskhyggjan ein má ekki ráða
ferðinni."
„Þegar litíd er
yfirþad, semrit-
að hefiir verið í
erlend blöð um
firnd þeirra Ron-
alds Reagan og
Mikhails Gorb-
achev, vaknar sú
spurning, hvort
þeim hafi í raun
tekist að brúa
hyldýpið, sem er
á milli þeirra.“