Morgunblaðið - 29.12.1985, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 29. DESEMBER1985
fclk í
fréttum
Gleðskapur íslendinga
í V ínarborg
Félag íslendinga í Austurríki
hélt fagnað í Vínarborg í til-
efni fullveldisdagsins, 1. desember.
Heiðurskonsúll fslands í Vínar-
borg, frú Cornelia Schubrig, bauð
til veislunnar og meðal gesta var
sendiherra íslands í Bonn, Dr.
Hannes Jónsson og frú, formaður
Austurrísk-fsienska félagsins,
Werner Schulze, svo og eini full-
trúi íslands í Ungverjalandi,
Gunnsteinn Ólafsson. Nokkrir tón-
listarnemendur fluttu íslensk lög
og ræður voru haldnar og allir áttu
góða kvöldstund saman.
Þess má geta að í Austurríki eru
búsettir tæplega fjörutíu íslend-
ingar og þar eru meðtaldir sautján
nemendur sem flestir stunda tón-
listarnám.
Þessi fámenni hópur fslendinga
heldur tiltölulega vel saman og eru
til dæmis haldin spilakvöld, fólk
kemur saman og sker út laufa-
brauð og saumaklúbbur er starf-
andi.
Frú Schubrig, sem að þessu sinni
bauð til veislunnar í tilefni full-
veldisdagsins, hefur um árin verið
íslendingum þarna ytra mikil stoð
og til dæmis um það er að svokall-
aður Schubrig-hjálparsjóður
stendur til boða ef íslendingar eiga
í erfiðleikum og þurfa á hjálp að
halda.
Klúbbnum
Dansunnendur hafa að und-
anförnu getað horft á hinn
sögufræga dans Charleston
dansaðan i Klúbbnum. Þar hafa
nokkrir nemendur úr Dansskóla
Heiðars Ástvaldssonar, þær Vii-
borg, Þóra, Kristín og Hulda,
öðru nafni Charleston systur,
stigið dansinn í viðeigandi bún-
ingum. Þær systur búast við að
stíga dansinn áfram, amk. eitt-
hvaðfram í janúar.
Hverageróisnemar í austursai Kjarvalsstaða.
Hveragerðisnemar
F
1
Reykjavíkurheimsókn
Nemendur úr elstu bekkjum í
Hveragerði heimsóttu höf-
uðborgina fyrir nokkrum dögum
og skoðuðu Kjarvalssýninguna í
Kjarvalsstöðum og Ásmundasafn,
en síðdegis fór hópurinn í bíó.
Nemendurnir létu vel af ferð sinni
og kváðust bæði hafa haft gagn
og gaman af því að sjá listaverk
þessara tveggja kunnu íslensk
listamanna, en myndirnar vor
teknar í Kjarvalsstöðum og í rút
fyrir utan Kjarvalsstaði þar ser
Ásmundarsafnshópurinn beið eft
ir skólafélögum sínum, sem vor
í fylgd með skólastjóra og kennur
um.
Hveragerðisnemar í rútu í leið í Ásmundarsafn.
Hveragerðisnemar í vestursal KjarvalssUða.