Morgunblaðið - 29.12.1985, Blaðsíða 56
V^terkurog
kj hagkvæmur
auglýsingamiðill!
fflfltrgMiifrlafotft
TIL DAGLEGRA NOTA
SUNNUDAGUR 29. DESEMBER1985
Snjóbíllinn Innikrákur á Fjarðarheiði
Morgunbladid/RAX
FÆRÐ hefur verið erfh> sídustu daga um Fjarðarheiði, þar sem þessi mynd
er tekin sl. fóstudag. Þórhallur Árnason, starfsmaður Slysavarnadeildarinn-
ar Gró á Egilsstöðum, braust yfir heiðina i snjóbflnum Innikráki með
blaðamenn Morgunblaðsins, sem þar voru á ferð til að afla frétta af snjó-
flóðinu og olíulekanum á Seyðisflrði.
Ferðin yfir heiðina tók þrjá tíma, en heimferðin gekk greiðar fyrir
sig, enda hafði þá nýlega verið hlásið af veginum. Snjóbíllinn er sænskur
og nokkuð kominn til ára sinna. „En hann stendur fyllilega fyrir sínu
og það er ótrúlegt hvað hann kemst,“ sagði Þórhallur, og sannaði það
fyrir blaðamönnum þennan dag.
Nafn bílsins vekur forvitni og er nokkur saga að segja frá því hvernig
það er til komið. Slysavarnadeildin Gró heitir eftir konu, sem var bú-
andi á Eyvindará á 11. öld. Hún hét Gróa og er hennar getið í Droplaug-
arsonasögu og Fljótsdælu. Segir í Droplaugarsonarsögu að Gróa hafi
komið Grími Droplaugarsyni til hjálpar þar sem hann lá særður eftir
bardaga við Kálfshól í Eyvindardal. Helgi bróðir Gríms féll í þessum
bardaga og héldu menn að Grímur hefði einnig drepist. En Gróa fann
Helga særðan og kom honum til hjúkrunar. Hún er því fyrsta slysa-
varnakonan fyrir austan sem heimildir eru til um.
Gróa átti grip sem hún hafði meiri mætur á en öðrum, sem var
gæðingurinn Innikrákur. Honum var gefið það nafn fyrir það að Gróa
sparaði hann mjög og hafði mikið inni. Þannig er komið til nafn snjó-
bílsins, þótt það sé varla rétt að hann sé jafn sparaður og hesturinn góði.
Jólabókamarkaðurinn:
Fimm bækur seldust í
6000—7500 eintökum
SALA bóka var mjög mikil fyrir
þessi jól, sú mesta undanfarin 10
ár, að sögn Eyjólfs Sigurðssonar,
formanns Félags íslenskra bókaút-
gefenda. Á annan tug bóka seldist
f yflr 5.000 eintökum og u.þ.b. 5
bækur í 6.000 til 7.500 eintökum.
Eyjólfur sagði að verð bóka
væri nú hagstætt og stæðist fylli-
lega samkeppni á jólamarkaðn-
um. Þá virtist bókin vera á upp-
leið hér á landi sem annars staðar
eftir mikla lægð, sérstaklega
1981-1983.
„Þetta snerist við í fyrra og var
bóksala þá ágæt, en nú er hún
talsvert meiri en í fyrra," sagði
Eyjólfur. „Líklega hefur selst um
hálf milljón bóka á íslandi fyrir
jólin sem samsvarar um tveimur
bókum á hvern íbúa. Alls voru
gefnar út milli 360 og 400 bækur
en um 300 í fyrra. Árið 1983 voru
gefnar út um 500 bækur en mark-
aðurinn ber ekki svo mikinn
fjölda.
Sú aukning sem orðið hefur frá
því í fyrra byggist á nýjum forlög-
um og einstaklingum sem gefa
sjálfir út bækur. Forlögin sem eru
í Félagi íslenskra bókaútgefenda
hafa reynt að halda sig við ákveð-
inn fjölda bóka, svipaðan og var
í fyrra, því við teljum að markað-
urinn þoli ekki meira.
Bókamarkaðurinn fyrir þessi
jól er staðfesting á því að bókaút-
gáfan fer batnandi bæði hvað
varðar vinnslu og efni og á þetta
við um þýddar bækur jafnt sem
íslenskar," sagði Eyjólfur Sig-
urðsson.
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Indríði G. Þorsteinsson
stjórnarformaöur ísfílm hf.:
Vangá að
miða leyfis-
gjald við
íbúafjölda
INDRIÐI G. ÞORSTEINSSON
stjórnarformaður ísfllm hf. telur að
um vangá hafl verið að ræða í
mörgum tilvikum, þegar drög að
reglugerð um útvarp samkvæmt
tímabundnum leyfum voru samin.
Sverrir Hermannsson menntamála-
ráðherra sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að hann gæti ekki
tjáð sig um reglugerðardrögin, sem
Morgunblaðið birti frétt um í gær,
þar sem hann hefði ekki kynnt sér
þau til hlítar.
„Ég tel það mikilsvert atriði að
lagt er til að erlent efni skuli þýtt
eins og verið hefur. Það er mikil-
vægt fyrir okkur hér, - svona
stofublóm í málheiminum," sagði
Indriði í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Indriði sagðist hins
vegar telja það vangá af semjend-
um reglugerðardraganna að gera
tillögu um að leyfisgjald miðaðist
við íbúafjölda leyfissvæðisins:
„Við skulum segja að það væru
10 útvarpsstöðvar sem ná til
Reykjavíkursvæðisins," sagði
Indriði, „en það þýðir að afnota-
gjöld ná til milljón manns. Það
hlýtur að vera vanhugsað, því það
hlýtur að leika vafi á því hvort
ríkisvaldið hefur rétt á að selja
einhverjum þriðja aðila ákveðna
höfðatölu."
Indriði sagðist líta á ákvæðið
sem gerir ráð fyrir að einstakur
aðili megi ekki kosta nema 3%
af heildardagskrá eins mánaðar,
sem ritstýringarþörf þeirra aðila
sem hefðu samið drögin að reglu-
gerðinni. „Maður getur ímyndað
sér að þetta sé samið af Ríkisút-
varpinu, því þessi ritstýringar-
þörf miðast við að móta þessar
stöðvar eins og Ríkisútvarpið.
Frjálsræðið snýst náttúrlega um
það að koma á stað hér útvarpi
eða sjónvarpi sem er ekki eins og
Ríkisútvarpið," sagði Indriði.
Gjaldskrárbreyting TR:
Læknar kanna
lögmætið
„VIÐ munum koma saman fljót-
lega eftir áramótin til að ráða ráð-
um okkar og móta stefnuna fyrir
sameiginlcgan fund samninga-
nefnda TR og lækna, sem haldinn
verður 9. janúar," sagði Kristján
Baldvinsson, formaður Læknafé-
lags Reykjavíkur, í samtali við
Morgunblaðið í gær um viðbrögð
sérfræðinga í læknastétt við þeirri
ákvörðun TR að breyta gjaldskrá
sérfræðinga í nokkrum greinum
með afturvirkni til 1. september sl.
„Við erum að láta kanna það
hvort þessar aðgerðir Trygginga-
stofnunarinnar standast laga-
lega,“ sagði Kristján. „Það hafa
verið viðræður í gangi um gjald-
skrána frá því í haust, en læknum
finnst sem Tryggingastofnun hafi
nú sýnt þeim óvirðingu og þvl sé
þörf á að skoða stöðuna upp á
nýtt,“ sagði hann.
Innréttingar í flugstöðina:
Gengið til samninga-
viðræðna við Hagvirki
BYGGINGARNEFND flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli hefur ákveðið að
ganga til samningaviðræðna við fyrirtækið Hagvirki á grundvelli tilboðs
þess í innréttingar flugstöðvarinnar. Jafnframt hefur nefndin óskað eftir
því við aðra tilboóshafa, að þeir framlengi gildistíma tilboða sinna til 15.
janúar næstkomandi, en tilboð þeirra renna út á gamlársdag.
Fimm fyrirtæki buðu f innrétt-
ingar og frágang flugstöðvarinnar,
sem opnuð voru þann 19. nóvember
síðastliðinn. Fyrirtækið Álftárós
var með lægsta tilboðið, 569 millj-
ónir króna, eða 87,1% af kostnað-
aráætlun. Hagvirki átti næst-
lægsta tilboðið upp á 625 milljónir
króna eða 95,7% af kostnaðaráætl-
un. ístak bauð 635.9 milljónir eða
97,3% af kostnaðaráætlun. Tvö
hæstu tilboðin voru nánast sam-
hljóða upp á 699 milljón krónur.
Þau voru frá Guðjóni Pálssyni og
Flugtaki, eða rúm 107% af kostn-
aðaráætlun, sem hljóðar upp á
653.3 milljónir króna.
Byggingarnefndin átti fyrst við-
ræður við forráðamenn Álftáróss,
en ekki varð úr samningum. Þá
var gengið til viðræðna við for-
ráðamenn Hagvirkis og Istaks, og
hafa þær leitt til þess að nú er
gengið til samninga við Hagvirki
á grundvelli tilboðs fyrirtækisins.
Ráðgert er að taka flugstöðina í
notkun í apríl 1987.