Morgunblaðið - 29.12.1985, Blaðsíða 27
27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. DESEMBER1985
Rflrisútvarpið:
Nútímaverk á
tónlistarkvöldi
Barizt á landamærum
Burkina Faso og Mali
Abidjan, Fflabeinsströndinni, 27. desember. AP.
Á TÓNLISTARKVÖLDI Ríkisút
varpsins sunnudagskvöldið 29. des-
ember 1985 ki. 20.30 verður útvarpað
um dreifikerd rásar 2 tónleikum til
heiðurs franska tónskáldinu og
hljómsveitarstjóranum Pierre Bo-
ulex, sem varð sextugur 26. mars sl.
Af þvf tilefni efndi Evrópu-
bandalag útvarpsstöðva, EBU, til
sérstakra afmælistónleika honum
til heiðurs, 1. apríl. Tónleikarnir
voru haldnir í umsjá vestur-þýska
útvarpsins í Baden og útvarpað
beint frá Baden-Baden til sautján
útvarpsstöðva í álfunni, en sjö út-
varpsstöðvar austanhafs og vestan
fengu hljóðritun frá tónleikunum
til útsendingar síðar, þeirra á
meðal Ríkisútvarpið. Atli Heimir
Sveinsson kynnir tónleikana. Á
efnisskránni eru fimm tónverk
eftir Pierre Boulex („Figures-
Doubles-Prismes", „Cummings ist
der Dichter", „Improvisations III",
„Notations" og „Le Soleil des
eaux") og tónverk eftir Karlheinz
Stockhausen og Edison Denisov.
Flytjendur eru Sinfóníuhljómsveit
vestur-þýska útvarpsins í Baden,
kammerkór útvarpsins í Vestur-
Berlín, Phyllis Bryn-Julson sópr-
an, Ensemble Intecontemporaine
og fleiri. Stjórnendur eru afmælis-
barnið sjálft, Pierre Boulex, og
Peter Eötvös.
(Fréttatilkynning)
BARDAGAR héldu enn áfram í dag
á hinu umdeilda svæði á landamær-
unum milli Mali og Burkina Faso í
Afríku.
Stjórnvöld í Mali staðfestu í
dag, að flugvél frá Burkina Faso
hefði gert loftárás á borgina Si-
kasso, þar sem kona og barn henn-
ar biðu bana.
Ali Triki, utanríkisráðherra
Líbýu, hefur undanfarna tvo daga
verið á þönum milli höfuðborga
ríkjanna tveggja í þeim tilgangi
að koma á vopnahléi milli þeirra,
en bardagar milli þeirra brutust út
á jóladag. Kvaðst Triki vongóður
um, að vopnahlé væri skammt
nndnn
AVARP
FRÁ STJÓRN FÉIAGASAMTAKANNA VERNDAR
Félagasamtökin Vernd efna um þessar mundir til happdrœttis Allir þeir sem siíkrar endurhœfingar njóta, taka þátt í henni af
til styrktar starfsemi sinni. Happdrœtti þetfa gengur undir nafninu fúsum og frjálsum vilja og skilyrðið er algjört bihdindi á áfengi
LANDAPARÍS. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, keypti fyrsta og aðra vímugjafa og að viðkomandi stundi þá vinnu sem
miðann, enda hefur forseti íslands verið verndari samtakanna honum býðst. Endurhœfing sem þessi hefur reynstvel og margir
um árabil. þeirra sem hennar hafa notið eru í dag fullnýtir þjóðfélags-
Féiagasamtökin Vernd hafa það meginmarkmið að aðstoða þegnar.
einstaklinga sem afplánað hafa fangelsisdóm. Aðstoðin fer að Við undirrituð, í stjórn Verndar, beinum nú þeirri ósk til
miklu leyti fram í formi endurhœfingar sem nauðsynleg er landsmanna, að þeir leggi sitt af mörkum til stuðnings þessum
þessum einstaklingum þegar þeir snúa á ný inn í samfélag þarfa málstað.
frjálsra manna. Tilþess að slík endurhœfing geti farið fram, þurfa
félagasamtökin m.a. að geta boðið skjólstœðingum sínum
heimili um stundarsakir og aðstoðað þá við að fá vinnu.
<yh(J~?iY.dZc.
Jkí»JJUUL\íXUJUU
oCt