Morgunblaðið - 29.12.1985, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. DESEMBER1985
*
- i
m
Svavar A. Jónsson
Kímnin er mikilvæg
til skilnings á
Nýja testamentinu
Rætt viö dr. Jakob Jónsson
um endurútgáfu á doktorsritgerð hans
Árið 1965 gaf Bókaútgáfa Menn-
ingarsjóós út doktorsritgerð séra
Jakobs Jónssonar Humour and
Irony in the New Testament, illum-
inated by Parallels in Talmud and
Midrash. Nú á þessu ári var bókin
gefin út aftur af útgáfufyrirUekinu
EJ. Brill í Hollandi. Krister
Stendahl biskup í Stokkhólmi
skrifar formála að nýju útgáfunni.
Hann segir þar m.a. að hann telji
bókina afar gagnlega fyrir tvennar
sakir. í fyrsta lagi hafi dr. Jakob
farið út í vfðtckari rannsókn en
aðrir fræðimenn á undan honum.
í öðru lagi sé hinn markvissi
samanburður við Talmud og Midr-
ash. (Forn fræðirit gyðinglegra
rabbía.)
Hver hefur sína
kímnigáfu
Dr. Jakob skrifar eftirmála að
hinni nýju útgáfu og segir þar
að hver einstaklingur hafi sinn
smekk fyrir kímni rétt eins og
fyrir hljómlist og öðrum listum.
A okkar dögum flytji dagblöðin
okkur margvíslegar skrítlur, sem
mörgum finnist ekkert fyndnar.
Það sé því eðlilegt að margir lesi
Biblíuna án þess að finna þar
nokkuð, sem þeim finnst kímið.
Ég myndi síðastur allra halda
því fram, segir dr. Jakob, að Nýja
testamentið sé skrifað vegna
kímninnar, en samt sem áður
gæti hún verið mikilvægur þátt-
ur í þeirri mynd, sem við höfum
af frumkristninni. Kímnin hlýt-
ur að tilheyra því elsta í frásögn-
um guðspjallanna og vera runnin
beint frá Jesú sjálfum.
Upphafið
Ég hitti dr. Jakob að máli og
ræddi við hann um ritgerð hans.
Ég spurði hann fyrst hvað hafi
vakið hjá honum hugmyndina að
því að rannsaka þetta efni.
Ég er alinn upp við það, ekki
sízt fyrir áhrif nýguðfræðinnar,
að beina huganum að hinum
jarðneska Jesú. Þegar ég var að
búa mig undir predikanir mínar
vestur í Ameríku fyrir rúmlega
40 árum fór ég að hugsa um það
að Farísearnir reiddust þegar
þeir töluðu við Jesúm. Hvers
vegna reiddust þeir? Ég komst
að þeirri niðurstöðu að þeir hefðu
reiðst vegna þess að þeir gerðu
sig hlægilega þegar þeir svöruðu.
Jesús kom þeim í sjálfheldu.
Séra Gunnar Arnason flutti
einu sinni fyrirlestur, sem er
prentaður í Prestafélagsritinu,
þar sem han segir, að Jesús hafi
setið veizlur og verið mannblend-
inn. Hann hefur ekki setið úti í
horni í þessum veizlum heldur
verið glaðlegur í fasi og skemmti-
legur. Ég fór því að athuga ýmsa
hluti. Niðurstaða min var þessi:
Það er margt, sem skýrist í frá-
sögum guðspjallanna, ef maður
reiknar með þessu.
Einlægir trúmenn
og húmoristar
Fjölmargir menn, sem hafa
verið einlægir trúmenn, hafa
verið þekktir fyrir húmor. Við
þurfum ekki annað en nefna séra
Bjarna Jónsson dómkirkjuprest
og Olfert Ricard. í list sinni
hefur kirjan ekki hugsað mikið
út frá þessu sjónarmiði. Það
kemur varla fyrir að listamenn
sýni Krist brosandi. Samt er til
mynd í Cannes af brosandi
Kristi. Stendahl segir að kirkjan
sé orðin of grafalvarleg.
Dæmi úr guös-
spjöllunum
Dr. Jakob tekur nú dæmi úr
guðspjöllunum. Vandræðin eru
þau, segir hann, að hvorki orð
eins og humour eða irony er til
í íslenzku. Ég hef spurt málfræð-
inga og reynt sjálfur að finna orð
til þýðingar en það er ekki auð-
hlaupið að því. En við skulum
taka söguna um Mörtu og Maríu.
Tvítekningin á nafninu táknar
glaðlegt ávarp. Marta, Marta
þýðir eitthvað eins og: Heyrðu
mig nú góð. Gefðu þér nú tíma
til að spjalla við mig. Skyldurnar
við rabbía voru tvenns konar.
Það var ósæmilegt að bera ekki
eitthvað á borð og það var ekki
borðað án þess að minnast á
eitthvað í lögmálinu. Marta var
að fullnægja annarri skyldunni
en María hinni. Hvorug þeirra
var algjör. En Jesús talar glað-
lega við þær.
Við getum líka tekið ummælin
um sverðin tvö. Ástandið er orðið
þannig, segir Jesús, að þið skuluð
kaupa sverð. Hvað meinar Jesús
með þessu? Það er ekki sagt í
alvöru. Engum, sem ætlar í stríð,
myndi detta í hug að tvö sverð
væru nóg fyrir heilan hóp. Þessi
orð hans sýna að það stríð, sem
hann háði, var allt öðru vísi, —
og ekki þörf á tveimur sverðum,
hvað þá fleirum.
Og þetta einfalda dæmi um
manninn, sem nennti ekki á
fætur til að láta vin sinn hafa
brauð um miðnættið. Sennilega
hefur hann þurft að stíga yfir
allt fólkið í flatsæng á gólfinu.
Jesús er ekki að lýsa Guði. Hann
er að segja: Gefizt ekki upp. Það
sama er sagt í sögunni um rang-
láta dómarann og konuna, sem
alltaf var að koma til hans og
biðja hann að taka mál sitt fyrir.
Jesú er að segja: Ekki gefast
upp, ekki hætta að biðja. Ég
talaði einu sinni við stúdent, sem
hafði misst sannfæringuna um
Guð. Ég sagði við hann: Þú skalt
halda áfram að biðja til þess
Guðs, sem þú trúir ekki á.
Rannsókn á
rabbínismanum
í ágúst sótti ég fund í alþjóð-
legu félagi Nýja-testamentis-
fræðinga, sem var haldið í Nor-
Dr. Jakob Jónsson
egi. Þar var sagt: Við rannsökum
frumheimildir kristinsdómsins
vísindalega og álitum að það sé
nauðsynlegt fyrir kristindóminn.
Svo mega kirkjudeildirnar
mynda sér sínar skoðanir. Ég
held að það sé nauðsynlegt til
að þekkja Nýja testamentið og
frumkristnina að lesa Nýja
testamentið sem bókmenntir.
Það er ekki nóg að líta bara á
það sem rit um trúfræði og sið-
fræði.
Margir guðfræðingar hafa vilj-
að gera Jesúm að hellenskum
spekingi. En rannsóknir mínar
hafa sannfært mig um að hann
var gyðinglegur í kennslu sinni.
Ég fylli flokk þeirra guðfræð-
inga, sem gera ekki of skarpan
greinarmun á milli Grikkja og
Gyðinga innan hellenismans.
Það kemur betur og betur í ljós
að Jesús hefur verið 100 prósent
gyðinglegur rabbí. Og samt er
munur á honum og þeim. Þegar
Matteus segir að Jesús hafi talað
eins og sá, er valdið hefir, er það
ekki lýsing á Jesú sem mælsku-
manni heldur á því þegar rabbíar
dæma í málum. Þeir vitna til
annarra rabbía, einn rabbíinn
sagði þetta og annar hitt og svo
var vitnað í lögmálið. Allir styðj-
ast þeir við eitthvað eins og lög-
fræðingar nútímans við lög-
bækur. En Jesús segir: Þetta
stendur, en Ég segi. Hann er
hærra vald en þeir. En kennslu-
aðferðirnar eru ákaflega líkar.
Við athuganir á rabbínismanum
kemur svo margt í ljós til skýr-
ingar á því, sem Jesús og hans
menn segja.
Samanburður á Nýja
testamentinu og
gyðinglegum fræðum
Ég hrífst með af frásögn dr.
Jakobs. Eins og ég raunar vissi
að verða myndi. Samtölin, sem
við áttum I símanum þegar við
vorum að tala okkur saman um
að hittast voru svo skemmtileg
að ég skírskotaði til þeirra við
flesta, sem ég talaði við þá dag-
ana.
Það gladdi mig mikið að rit-
gerðin skyldi vera gefin út aftur,
því það er fremur sjaldgæft að
doktorsritgerðir séu gefnar út í
mörgum útgáfum, segir dr. Jak-
ob. Þetta vildi þannig til að dr.
Klinkeit prófessor í trúarbragða-
sögu i Bonn sá ritgerðina á heim-
ili dóttur minnar í Kaupmanna-
höfn og svo var ákveðið að bókin
yrði gefin út hjá Brill-útgáfufyr-
irtækinu. Það er aldagamalt
forlag og gefur út rit um öll
möguleg vísindaleg efni, sem það
kynnir út um allan heim.
Ég hef fengið gróflega mikla
viðurkenningu frá fræðimönn-
um, sem eru vel að sér í gyðing-
legum fræðum. Þeir segja að
nýjungin í minni bók sé saman-
burðurinn á Nýja testamentinu
og gyðinglegum fræðum. Sumir
vinir mínir sögðu þegar þeir
heyrðu að ég væri að skrifa um
húmorinn í Nýja testamentinu
að nú væri eitthvað bilað við
háaloftið hjá mér.
Prédikun
gudsþjónustunnar
Ég gríp tækifærið til að tala
við dr. Jakob um prédikun kirkj-
unnar. Það er mér kærkomið því
mér finnst sjálfri að prédikunin
sé um of farin að fjalla um ver-
aldleg mál án tengsla við trúna.
— Ég sil þig, segir dr. Jakob. Þér
finnst prestarnir ekki vera sér-
fræðingarnir í þeim málum.
Kirkjan þarf auðvitað að fjalla
um hversdaginn. En ef prestar
eru sífellt að tala um það, sem
er efst á baugi í fjölmiðlunum,
t.d. verðbólguna, verða þeir eins
og læknirinn, sem aldrei gat
talað um annað en bólgur. Sviðið
er miklu stærra og víðara. Það
þarf að tala um öll svið trúarinn-
ar. Ef fólk heyrir ekki prédikað
um eilíft líf og bænalífið t.d.
verður það fákunnandi um þetta.
Mér finnst stundum að ungir
prestar undirbúi sig ekki nóg
undir prédikun sína, noti ekki
nóg þá þekkingu á Nýja testa-
mentinu sem þeir hafa úr guð-
fræðináminu. Og ég segi þetta
stundum við þá. Eg verð kannski
frægur fyrir nöldur. En ef ég á
að segja eins og er finnst mér
of lítið bera á því innan kirkjunn-
ar — og ekki aðeins hér á landi
- að prédikarar hafi lagt stund á
vísindaleg Nýja-testamentis-
fræði.
Við kveðjumst og ég fer strax
að vitna í orð hans við þau, sem
ég hitti næst, þar næst og þar
næst. Ég minnist þess með mik-
illi hlýju að hann bauð mér fyrir
langa löngu að prédika í Hall-
grímskirkju. Ég hafði þá aldrei
prédikað í kirkju. Fyrir guðs-
þjónustuna hringdi hann til mín
nokkrum sinnum til að uppörva
mig við samningu prédikunar-
innar, segja mér að ég skyldi
segja það, sem mér lægi á hjarta
en ekki reyna að segja það allt
í einu. Og þegar ég geng frá
Espigerðinu, þar sem dr. Jakob
býr, vekja þessar minningar enn
einu sinni hjá mér þakklæti.
Flugeldasala handknattleiksdeildar
Hauka Flatahrauni I
(við hiiðina á slökkvistöðinni)
Stórkostlegt úrval flugelda.
Meðal annars 3 stærðir af fjölskyldupokum, tívolí-bombur 4 gerðir, inni-bombur
og knöll og hið vinsæla partý-spray. Allar gerðir af rakettum og blysum.
Viö seljum flugelda frá Landssambandi hjálparsveita skáta.
Handknattleiksdeild Hauka.
HHMMHMHHHMHHNMHÉHÍHHHHMHHMMINHHHHHMHHMHHM