Morgunblaðið - 29.12.1985, Page 19

Morgunblaðið - 29.12.1985, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. DESEMBER1985 19 Litlu jólin í Stykkishólmi Stykkishólmi, 20. desember. LITLU jólin í Stykkishólmi voru í vikunni fyrir jól og var mikid um dýröir, enda haldið í nýja skólanum. Var gleði og gaman frá kl. 15 og fram á miðnætti og lögðu allir sitt af mörkum til að gera þau eftirminni- leg, bæði nemendur og kennarar. Nemendur höfðu skreytt skólann og var það mjög smekklega gert. Undanfarin ár hefir það verið venja að veita verðlaun í öllum bekkjum fyrir kunnáttu í umferð, en lögregluþjónninn hér, Sveinn Ingi, hefir fylgst með umferðinni og nemendum. Barnastúkan Björk hefir jafnan veitt þessi verðlaun sem kennarar hafa áritað og af- hent ásamt lögreglunni. Þykir þetta hafa gefist mjög vel, enda starfar barnastúkan í sambandi við skólann og hafa skólastjóri og kennarar veitt sitt liðsinni af góð- um hug og er það mikilsvert. Þá voru einnig litlu jólin í barnaheim- ili St. Fransiskussystra en þær hafa um mörg ár haft barnaheim- ili fyrir börn 'sem ekki enn eru skólaskyld. Var virkilega gaman að fylgjast þar með og sjá hina minnstu borgara okkar, hvað þeir gátu gert til að skemmta bæði sér og öðrum. Árni Við höfum skipt um nafn! Samtök járnsmiðja, sem hingað til hafa borið nafnið Meistarafé- * lag járniðnaðarmanna heita nú FÉLAG MÁLMIÐNAÐARFYRIR- TÆKJA. Félagið er samtök 126 málmiðnaðarfyrirtækja, sem dreifast um allt land, og gætir hagsmuna þeirra gagnvart opinberum aðilum og öðrum þeim, sem greinin þarf að skipta við. Það - ásamt heildarsamtökum, sem félagið er aðili að - veitir aðildarfyrirtækjum sínum ýmiss konar aðstoð og þjónustu. .1.% FÉLAC MÁLMlÐNAÐARFYRIfiT/EKJA Hverfisgötu 105-101 Reykjavík s. 91 -621755.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.