Morgunblaðið - 29.12.1985, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 29.12.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. DESEMBER1985 33 Alls staðar fáni í hálfa stöng á dánardsgri Atatiirks. Endurbyggt hús á Heybeli Ada. Það fannst mér sýna að þau væru verulega farin að aðlágast lifnaðarháttum. Raki er rótsterkur anisdrykkur og ég hafði aldrei lagt í að bragða hann fyrr en eftir kvöldmatinn. Tyrkir blanda drykkinn til hálfs með vatni og láta þetta renna ljúflega niður með hádegisverði sem kvöldmat. Radi og Erden höfðu vakið at- hygli mína á hversu margir Grikk- ir búa á Prinsessueyjunum og töluðu um, að sambúðin væri al- gerlega áfallalaus og undurgóð. Þeir bentu á eitt merki þess hve Tyrkir væru umburðarlyndir — í senn gagnvart Grikkjum og þó ekki síður gagnvart trú þeirra. Því að á Prinsessueyjunum fjórum, sem eru byggðar, rís grísk kirkja á hæsta stað eyjanna og blasir við. „Hvenær myndu Grikkir líða að við byggðum mosku á grísku fjalli?“ sögðu þeir og voru góðir með sig. Það má kannski til sanns vegar færa, hins vegar voru banda- rísku hjónin ekki alveg sammála því að sambúðin væri jafn friðsæl og þeir félagar vildu vera láta. Á leiðinni aftur frá Lata steini var fallegt útsýnið til Asíuhluta Istanbul sem virtist nánast í seil- ingarfjarlægð handan sundsins. Og yfir til þriðju eyjarinnar, Heybeli Ada, og Teskeiðareyjar- innar. Teskeiðin ber nafn með rentu. Mönnum ber hins vegar ekki saman um, hver eigi hana. Hún er í einkaeign, svo mikið er þó víst. Einn sagði að eigandinn væri ríkur gyðingur, sérvitur milljónari, sem leyfir engum að stíga þar á land nema fjölskyldu sinni. „Derringslegur Arabi sem veit ekki aura sinna tal,“ sagði annar. Hestvagnsstjórinn gamli sagði að eyjan væri í eigu tyrkn- esks kaupsýslumanns sem byggi í Istanbul. Hvað sem því líður væri áreiðanlega gaman að eiga Te- skeiðina, gróðursæl og friðsæl þó svo að ferjurnar ösli hjá rétt undan henni. Á Burgaz voru bátarnir að koma að landi þegar örþreyttir hestar og enn þreyttari gestur komu aftur niður í þorpið. A eyjunum er auk akuryrkju töluverð útgerð, öll er hún stunduð á smábátum. Kattafé- lagið var líka mætt til að gera að fiskinum og var handagangur í öskjunni þegar einn og einn smá- fiskur datt út úr börunum, sem fiskurinn var keyrður í af bryggj- unni. Sumir kattanna voru svo fífldjarfir, að þeir teygðu sig upp í börurnar og reyndu að góma fisk og fisk. Á Heybeli Ada eru mest umsvif. Þar eru veitingahúsin litlu á hverju strái og meira að segja sést stöku bíll á götunum. Þar er ein kirkjan enn á fjallstindi og þessi kirkja getur varla verið lokuð. Svo að ég skunda eftir krákustígum upp að kirkjunni. Þar er allt lokað og læst og tveir illilegir hundar láta dólgslega við hliðið og ég er dauðfegin að þeir geta ekki opnað. Radi og Erden sjá þarna kjörið tækifæri til að halda enn einn smáræðustúf yfir mér um þröng- sýni grískra trúarbragða, sem leyfa sér að hafa guðshús lokað og læst, þegar gesti ber að. Þetta þekkist ekki í þeirra trú. Eftir að við komum niður aftur er einmitt að hefjast matmálstími, klukkan er að ganga þrjú. Við ‘setjumst niður á grískum stað og étum okkur pakksödd af grilluðum kjötbollum, grilluðum kótelettum og kjöti á teini, salati og kartöflum fyrir þrjú þúsund lírur, það eru um 250 krónur. Að vísu misstu þeir Radi og Erden af því að drekka raki með, því að þetta var á dánardægri þess góða manns Kemals Atatiirk og þá heiðra allir minningu hans með því að láta ekkert sterkara en te inn fyrir sínar varir. Og síðan úr kyrrðinni á Prins- essueyjum inn í yndislegt öng- þveiti Istanbul á ný. Texti: Jóhanna Kristjónsdóttir Þá er komið að síðustu Dyngju þessa árs, og tilheyrir hun eld- húsinu — og sérstaklega sýrða rjómanum — því varla eru margir að dútla við föndur þessa dagana. Nú býð ég ykkur fljótlegan en ljúffengan forrétt, ávaxtasalat og með því tvær tegundir af sósum, ábætisrétt, og frábæra ídýfu. Rækjuglaðningur (Forréttur) 'k dós sýrður rjómi, 1 tsk. sítrónusafi, '/s tesk. salt, Vs tesk. rifinn laukur, 2 matsk. tómatsósa, 'k matsk. HP-sósa, \ dl. rjómi, þeyttur, 60 gr. salatblöð, 150 gr. rækj ur. Blandið öllum efnunum saman í skál, nema rækjunum og salatinu. Setjið salatstrimla og rækjur til skiptis í litlar forréttarskálar. Setjið sósuna ofan á og skreytið með salatblaði og rækjum. Berið )etta fram kalt með ristuðu brauði. Ávulanlat Lítil dós ananas, lítil dós perur, 2 bananar, 1—2 kívíávextir, 2 mangóávextir, 1 flaska engiferöl. Látið safann renna af dósaávöxtunum, skerið síðan alla ávextina í litla bita. Blandið öllu varlega saman í skál og hellið engiferölinu yfir. Geymið í kæli þar til það er vel kalt. Nægir 6—8 manns. Appelsínusósa 2 dósir sýrður rjómi, 1 xk tesk. vanillusykur, 3 matsk. flórsykur, rifinn börkur af 1 appelsínu, safi úr 1 appelsínu (% dl) Hrærið öllu vel saman og kælið sósuna. Þessi sósa er sérstaklega ljúffeng með ávaxtasalati úr ferskum ávöxtum, til dæmis appelsínum, eplum og banönum, eða með salatinu hér að ofan. Hnetusósa með makrónukökum 2egg, 3 matsk. flórsykur, 1 tesk. vanillusykur, 2 dósir sýrður rjómi, 10 makrónukökur, muldar, 30 gr saxaðar valhnetur Þeytið saman egg, flórsykur og vanillusykur. Blandið sýrða rjóman- um út í eggjahræruna og bætið makrónunum og hnetunum í rétt áður en þið berið sósuna fram. Berið hana fram kalda með ávaxtasal- ati. Bananaábætir 4 bananar, 1 lítil dós ananas, 2 matsk. sykur, 3 matsk. brauðmylsna (ósæt, úr bakaríi), smjör eða smjörlíki, 2 dl. ananassafi, saxaðar valhnetur, 2‘A dl. þeyttur rjómi. Eldfast fat smurt vel og ananas- og bananabitar settir í botninn. Sykri og brauðmylsnu blandað saman og stráð yfir ávextina. Setjið nokkra smjörklatta ofan á. Hellið ananassafanum yfir. Gott að láta aðeins koniak, sherry eða romm út í safann, en ekki nauðsynlegt. Bakið í 180°—200° í 15 mínútur. Söxuðum valhnetum síðan stráð yfir. Þetta er borðað heitt með ískældum þeyttum rjóma. Kplaídýfa með grænmeti Tilvalið í áramóta-„partíið“. 1 dós sýrður rjomi, 2 matsk. smátt saxaður lauk- ur, 2 tesk. sykur, 2 matsk. dill, 1 epli. Blandið saman sýrðum rjóma, lauk, sykri og dilli. Rífið eplið á rifjárni og bland- ið saman við sýrða rjómann. Berið fram með gulrótar- stilkum, selleristilkum, ag- úrkustilkum, eplabátum og osti. Dyngjan þakkar svo öllum sem hafa skrifað og hringt, og óskar lesendum gleðilegs árs með þökk fyrir samstarfið á árinu 1985. Beztu kveðjur, Jórunn. i«Érti.áTVr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.