Morgunblaðið - 29.12.1985, Síða 48

Morgunblaðið - 29.12.1985, Síða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. DESEMBER1985 Opinn háskóli: ÞINGBRÉF i í I i í „Bylting í atvinnu- og menntalífí“ „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að undirbúa nú þegar stofnun og starfrækslu opins háskóla sem gerir nemendum sínum kleift að stunda háskólanám í heimahúsum með aðstoð útvarps og sjónvarps, myndbanda og tölvutækni. Skolinn se undir stjorn tillits til fyrri menntunar.** Þannig hljóðar tillaga til þings- ályktunar sem Ragnar Arnalds (Abl.-Nv.) flytur og mælti fyrir 4. desember síðastliðinn í sameinuðu þingi. Haskola Islands en öllum opinn an notkun fjölmiðla í fræðsluskyni og þrói þannig kennsluaðferðir á þessu sviði með hliðsjón af íslenzk- um aðstæðum og að fenginni reynslu hjá öðrum þjóðum.“ Fjarnám Fjarskiptatækni, útvarp og sjónvarp, kunna að skipa mun stærri sess í menntun og þekkingu þjóðarinn- ar á næstu árum og áratugum en til þessa. Opinn háskóli er nýtir þessa tækni til æðri menntunar, hefur sannað ágæti sitt annars staðar, ekki sízt í Bretlandi. Þessi kennslutækni kom til umræðu á Alþingi fyrir skemmstu. Máski höldum við inn í 21. öldina með hana í farteskinu. Ný háskóladeild - Aukin tækifæri Kagnar Arnalds vék að því í fram- sögu að skipuleggja ætti „opinn háskóla" innan Háskóla íslands, sem nýjan starfsþátt, er lyti skipu- lagi og stjórnun ráðamanna há- skólans. Tilgangur með þessari nýju háskóladeild á að vera sá að veita „áhugasömu fólki fjarri menntastöðvum aukin tækifæri til æðri menntunar. Það er líka til- gangurinn að byggja upp áfanga- kerfi fyrir nemendur, sem ekki uppfylla formleg menntunarskil- yrði háskóla, þ.e. hafa ekki lokið stúdentsprófi. Það er um leið til- gangurinn að byggja upp samfellt menntakerfi til að þjálfa og endur- mennta starfsfólk í atvinnulífi í nánu samstarfi við atvinnuvegina. Og loks er það hugsunin með þess- ari tillögu að þessi nýja háskóla- deild hafi forustu hér á landi um Tveggja áratuga reynsla Gunnar G. Schram (S.-Rn.) taldi reynslu Breta, sem „fyrir bráðum tveimur áratugum stofnuðu til slíkrar æðri menntunar með at- beina fjárskiptatækni, útvarps og sjónvarps", góða. Hér hafi þessi fræðsluleið lítt verið reynd, ef undan væri skilin tungumála- kennsla hljóðvarps, sem hafin var skömmu eftir að útvarpið hóf starfsemi sína 1930. Orðrétt sagði Gunnar: „Það er ljóst að að allmiklu leyti má kenna þannig ýmsar þær grein- ar, sem í dag eru kenndar við Háskóla fslands í formi fyrirlestra og verklegra æfinga ... eins og tungumál, sagnfræði, lögfræði, viðskiptafræði og ýmsar fleiri." Ennfremur: „Ég hygg að gagn af slíkri fræðslu, slíkum opnum há- skóla, yrði ekki sízt á sviði fullorð- insfræðslu og endurmenntunar. Endurmenntun hefur aukizt hér síðustu árin. Komin er á laggir formleg starfsemi á vegum Há- skóla Islands og Bandalags há- skólamanna, Tækniskóla Islands ogfleiri aðila.“ Hér eru opnaðar nýjar dyr, nýj- ar menntabrautir, á grundvelli þessarar tillögu, sagði þingmaður- inn efnislega. Fjarnám í náinni framtíð Guðrún Agnarsdóttir (Kl.-Rvk.) lýsti og stuðningi við tillöguna. Hún sagði orðrétt: „Ég þekki vel þessa starfsemi frá Bretlandi þar sem ég bjó um 13 ára skeið og fylgdist oft með útsendingum og fræðsluþáttum frá opna háskólanum í Bretlandi. Það sem kannski skiptir einmitt miklu máli í sambandi við þessa kennslu og próf úr þeim háskóla er að þau próf eru fyllilega sam- bærileg við próf úr öðrum háskól- um og í sumum tilfellum jafnvel mun betri og í meira áliti. Það skiptir auðvitað meginmáli að fólk, sem þannig stundar nám, verði ekki fyrir misrétti þegar það síðar kemur út á vinnumarkað eða ætlar að gegna störfum sínum." Þingmaðurinn taldi líklegt að fjarnám yrði vaxandi í framtíðinni og ríkur þáttur í fullorðinsfræðslu og endurmenntun - og þá á öllum fræðslustigum. Sjónvarpið er kröftugur miðill, sagði hún. Allsherjar efling háskólans llaraldur Ólafsson (F-Rvk) lýsti einnig stuðningi við tillöguna. „Kostirnir eru ótvíræðir," sagði i i 28 dagar 8. jan. — 5. febr. Beint leiguflug Verð aðeins kr. 33.000.- Nú er haegt aö stytta skammdegiö á viöráöanlegu veröi og njóta sólar og sumaryls í hinni fögru sólskinsparadís Kanaríeyja, Tenerife, þar sem rósirnar vaxa viö gangbrautir á miöjum vetri og sjórinn, sólskiniö og skemmtanaloftiö er eins og fólk vill hafa þaö. Hermann Ragnar Stefánsson skipuleggur skemmtilega dvöl fyrir ungt fólk yfir sextugt og er fólki til aöstoöar ásamt öörum fararstjórum. Þátttaka er heimil öllum Islendingum 60 ára og eldri. Þátttöku þarf aö tilkynna sem fyrst þar sem takmarkaö pláss er til ráöstöfunar. (En venjulegt verö fyrir 4ra vikna ferö er um kr. 10.000,- dýrari en þetta tilboö). Ailar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar. Aórar feróir okkar: Jólaferð: Landió helga — Egyptaland og London, 18. de«. 19 dagar. Kanaríeyjar: Jólaferó 18. dea. 22 dagar, 8. jan. 28 dagar, 5. febr. og 26. febr. 22 dagar. Páskaferó 19. mart15dagar. &C0XWÍ H Góóan daginn! » skávo?'^g BeSSS1986 hefst á Grensásvegi 46 sunnudaginn 5. janúar kl. 14. Keppendur tefla í einum flokki, ellefu umferðir, Mon- rad-kerfi. Öllum er heimil þátttaka. Umferöir veröa tefldar á sunnudögum kl. 14 og miövikudögum og föstudögum kl. 19.30. Biöskákdagar ákveönir síöar. Skráning í mótiö fer fram í símaTaflfélags- ins á kvöldin kl. 20—22. Lokaskráning í aöalkeppnina veröur laugardag 4. janúar kl. 14—18. Keppni hjá 14 ára og yngri hefst laugardag 11. janúar kl. 14. Tefldar veröa níu um- feröir eftir Monrad-kerfi og tekur sú keppni þrjá laugardaga. Þrjár umferöir í senn. Taflfélag Reykjavíkur, Grensásvegi 44—46, R., símar 83540 og 81690.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.