Morgunblaðið - 26.01.1986, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1986
sem gefast til þess að ná árangri á
mörkuðum þeirra sem í vinnudeilu
lenda þegar til slíkra truflana
kemur.
Mikil samkeppni
í samkeppni þeirri sem íslending-
ar taka þátt í á Norður-Atlantshafi
starfa um 40 flugfélög. Einna
skæðust af þessum flugfélögum eru
bandarísku flugfélögin. Þar hefur
orðið veruleg breyting á rekstrar-
stöðu þessara félaga eftir að flug-
starfsemi var í reynd gefin algjör-
lega fijáls í Bandaríkjunum.
Við þá þróun spruttu upp ný
flugfélög sem réðu til sín starfsfólk
á launum sem oft voru helmingur
eða jafnvel þriðjungur af því sem
eldri flugfélögin greiddu sínu fólki.
Þetta leiddi aftur til þess að eldri
félögin voru tilneydd að endursemja
við starfsfólk sitt um lækkun launa
til samræmis við þau kjör sem þessi
nýju félög buðu þar sem ella var
hætta á að þau yrðu undir í sam-
keppninni. Nýju félögin voru yfir-
leitt ekki bundin fagfélögum og
gátu því ráðið ferðinni að því er
laungreiðslur varðaði. Flest eldri
félaganna voru hins vegar bundin
fagfélögum og urðu að semja við
þau. Þetta tókst í lang flestum til-
fellum þar sem staðreyndin var sú
að ef ekki hefðu náðst slíkir samn-
ingar þá var samkeppnisaðstaða
þessara eldri félaga mjög hæpin og
rekstrargrundvöllur þar með í
hættu. Þetta er sú staða sem ríkir
á þessum markaði í dag. Sem sagt
gífurleg samkeppni, og þá sérstak-
lega frá bandarísku félögunum þar
sem ftjálsræði I samningum við
starfsfólk er mun meira en hjá
Evrópufélögum. Þetta leiðir aftur
til þess eins og áður hefur verið
sagt frá að launakjör eru önnur og
einnig að vinnutímareglur eru tals-
vert fijálslegri, þannig að nýting
starfsmanna verður í mörgum til-
fellum mun betri en hjá flestum
Evrópufélögum.
Staða mála erlendis
Fróðlegt er að kanna hvemig
þessi mál eru framkvæmd í ná-
grannalöndum okkar og er þá fyrst
að nefna Lúxemborg. Þar semja
flugfélög aðeins við tvö fagfélög
og samningamir em yfirleitt til
tveggja ára í senn. í flugrekstri í
Lúxemborg hefur aldrei komið til
verkfalls.
Reyndar er það svo að engin
verkfoll hafa verið i Lúxemborg
síðan 1933. Þar hafa menn fyrir
löngu komið auga á þann stóra
sannleika að verkföll bæta ekki hag
vinnandi manna og slík tæki em
því ekki til umræðu þegar deilt er
um kaup og kjör. Ríkið hefur þar
VERKFALLSDAGAR,
MEÐALTAL ÁRANNA1975-1984
DAGAR TAPAÐIR VINNUDAGAR Á HVERJA1000 VINNANDI
15001-------------------------------------------------------
MEÐALBREYTING KAUPMÁTTARÁRIN1975—1984
%
Morgunblaðið
haft forgöngu um lagasetningu,
sem gerir ráð fyrir samráði ríkisins
og aðila vinnumarkaðarins, þ.e.a.s.
vinnuveitenda og verkalýðsfélaga.
Þegar til ágreinings kemur setjast
þessir aðilar niður og reyna að finna
viðunandi lausn.
í Sviss var gerður eins konar
þjóðarsáttmáli árið 1937 og þar
hafa engin verkföll verið síðan. í
þessum þjóðarsáttmála er gert ráð
fyrir því að deilur sem upp koma
milli vinnuveitenda og verkalýðs-
félaga séu leystar með gerðardómi.
Hefur sú raunin verið á og hefur
þeim famast vel í þessum málum. •
Á írlandi em viðsemjendur flug-
félaga þar aðeins tvö félög á sama
hátt og í Lúxemborg. Þar hafa
engin verkföll orðið í flugrekstri að
því er ég best þekki til, enda gert
ráð fyrir bindandi gerðadómi þegar
deilurkoma upp.
í Finnlandi semja flugfélög við
tvö verkalýðsfélög og em gerðir
heildarsamningar við þessi tvö
sambönd. í hvom sambandi em svo
tvö félög þannig að heildarsamning-
ar ná til Qögurra fagfélaga, en
samningamir em aðeins við þessi
tvösambönd.
í Skandinavíu, þ.e.a.s. hjá SAS,
gerir félagið heildarsamninga við
aila flugstarfsmenn í einu lagi fyrir
öll þijú löndin. Starfsmenn SAS em
í sex til sextán verkalýðsfélögum
eftir því hvert land á í hlut, en
gerðir em heildarsamningar við alla
starfsmenn.
Hér á landi hafa orðið samtals
16 vinnustöðvanir eða tmflanir í
flugrekstri á undanfömum 12
ámm. Þar er áreiðanlega um heims-
met að ræða.
Lokaorð
í þessari umfjöllun um stöðu
verkfalla og vinnulöggjafar á Is-
landi hef ég reynt að draga fram
megin þætti þessa máls eins og
þeir koma mér fyrir sjónir. Það er
sannfæring mín að núverandi
vinnulöggjöf sé algjörlega úrelt og
þar þurfí að koma á gagnger breyt-
ing. Það er einnig sannfæring mín
að verkfall sem tæki til kjarabóta
er úrelt fyrirbrigði og á ekki lengur
við í því þjóðfélagsumhverfi sem
við búum við í dag.
Við ættum að taka Svisslendinga
og aðra okkur til fyrirmyndar um
það að gera einhvers konar þjóðar-
sátt að leysa allar slíkar deilur án
verkfalla því að sú sóun á verðmæt-
um sem á sér stað af völdum verk-
falla er gífurleg, og hefur leitt af
sér lakari afkomu manna í þessu
landi en vera þyrfti.
Höfundur er stfómarformaður
Flugleiða hf.
Ekki lengur á lista
Neytendasamtakanna
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi athugasemd frá
Hraða hf.
í sambandi við skrif Sigurðar
Sigurðssonar um neytendamál í
Morgunblaðinu 24.01., viljum við
taka fram eftirfarandi:
1. Það liðu 3 mánuðir frá því flíkin
var hreinsuð þar til okkur barst
fyrsta og eina bréfíð sem við
höfum fengið frá Neytenda-
samtökunum.
2. Aðeins 4 vikum síðar var þessi
svarti listi sendur til prentunar
án þess að Neytendasamtökin
kynntu sér málið frekar eða
skoðuðu flíkina.
3. Þann 20. þ.m. skoðaði kunn-
áttumaður sem tilnefndur var
af Neytendasamtökunum flík-
ina og staðfesti hann það sem
við alltaf vissum að flíkin hafi
fengið góða meðferð í okkar
höndum.
4. Neytendasamtökin hafa því
dregið til baka allar kröfur á
okkur í því sambandi.
■ ril ,ö. Þrátt fýrir þessi málalok ritafc
formaður Neytendasamtaka
Reykjavíkur grein sem birtist í
Morgunblaðinu 4 dögum síðar
þar sem haldið er áfram nei-
kvæðum skrifum í okkar garð
í máli sem er uppgert og snerist
aðeins um 1.790 kr.
6. Það er leitt til þess að vita að
Neytendasamtökin skuli ekki
vera aðili sem fjallar um mál á
hlutlausan og heiðarlegan
máta.
Það hefur verið metnaður okkar
að skila vandaðri vinnu og koma
fram við viðskiptavini okkar af
fullri sanngimi í öllum málum
og það vorum við tilbúin að
gera í þessu máli sem öðrum.
Virðingarfyllst,
Guðjón Jónsson.
Þá þykir blaðinu rétt að birta
fréttatilkynningu frá Neytenda-
samtökunum dags. 13. janúar
1986 um málefni Gullhallarinn-
ar, vegna lista í Neytendablað-
jimjudesember 1985:
í Neytendablaðinu, desemberhefti
1985, birtist listi yfir fyrirtæki sem
Neytendasamtökin geta ekki mælt
með viðskiptum við. Meðal fyrir-
tækjanna á listanum er Gullhöllin,
Laugavegi 72, Reykjavík.
Ástæða þess var kvörtun
snemma árs 1985. Neytenda-
samtökin sendu Gullhöllinni bréf
með ósk um að sent yrði svar hið
fyrsta. Forsvarsmaður Gullhallar-
innar svaraði bréfinu munnlega, en
vegna mistaka af hálfu Neytenda-
samtakanna misfórst svarið og nafn
Gullhallarinnar lenti í handriti að
áðumefndum lista. Þetta uppgötv-
aðist eftir prentun blaðsins og í
eintökum, sem send voru fjölmiðlum
var nafn Gullhallarinnar yfirstrikað.
Vegna þess mikla fjölda sem les
sjálft Neytendablaðið vill undirrit-
aður koma þessum upplýsingum á
framfæri og biðjast velvirðingar
fyrir hönd Neytendasamtakanna og
Neytendablaðsins.
Virðingarfyllst,
Guðsteinn V. Guðmundsson,
ritatjóriNeytendablaðsins.
JC Árbær:
Hefur gefið út
öryggisalmauak
BYGGÐARLAGSNEFND JC Ár-
bæjar hefur gefið út öryggisalm-
anak fyrir árið 1986. Á almanak-
inu eru sjö ábendingar um örygg-
ismál ásamt simanúmeri lögreglu
og slökkviliðs.
Nefndin vonast til að íbúar í
Árbæjarhverfi taki þessu framlagi
vel og hengi á góðan stað hjá sér.
Almanakinu verður dreift í hús í
hverfmu næstu daga.
Reykjavíkurflugvöllur:
Girtur og
flugskýlum
læst
„GIRÐINGIN umhverfis völlinn
er mjög ófullkomin og nú er
verið að endurbæta hana eftir
því sem fjárveitingar leyfa,“
sagði Gunnar Sigurðsson flug-
vallarstjóri á Reykjavíkurflug-
velli í samtali við Morgunblaðið.
Gunnar sagði að í fyrrasumar
hefði verið hafist handa við að
endumýja girðinguna umhverfis
flugvöllinn. Byijað verður aftur á
verkinu næsta vor, en það fer eftir
§árveitingum hvort unnt verður að
ljúka verkinu næsta sumar. Gunnar
sagðist reyndar ekki eiga von á
því, enda væri mjög kostnaðarsamt
að girða umhverfis allan flugvöll-
inn.
Þá hefur verið ákveðið að læsa
flugskýlunum og sagði Gunnar að
almennt væri stefnt að því að hamla
á móti óviðkomandi umferð um
flugvöllinn. Aðspurður sagði hann
að ekki stæðu fleiri breytingar fyrir
dy_rum á Reykjavikurflugvelli.