Morgunblaðið - 26.01.1986, Side 47

Morgunblaðið - 26.01.1986, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANÚAR1986 47 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Starf óskast Miðaldra maður sem undanfarin 20 ár hefur unnið við stjórnun og rekstur fyrirtækis í bygginga- og tréiðnaði óskar að skipta um starf strax. Er einnig vanur ýmiskonar samn- ingagerð og sölustarfsemi. Upplýsingar í síma 99-4163. Aðstoðarmaður í söludeild Vegna mikillar sölu vantar okkur hressan og duglegan aðstoðarmann í söludeild á aldrin- um 17-20 ára. Upplýsingar veitir Hilmar Böðvarsson mánu- daginn 27.1. frá kl. 17.00-18.00 (ekki í síma). JOFUR HF _________ NÝBÝLAVEGI2 KÓPAVOGI SÍMI42600 Tollvörður - Keflavík Hjá Tollgæslu íslands við embætti Bæjarfó- getans í Keflavík, Njarðvík, Grindavík og sýslumanns Gullbringusýslu er laus til um- sóknar staða tollvarðar. Umsóknir sendist undirrituðum eða bæjarfógeta fyrir 12. febrú- ar 1986,á þar til gerðum eyðublöðum, sem eru til afhendingar hjá embættinu. Reykjavík 12.janúar 1986. Tollgæslustóri. Tollvörður - Vestmannaeyjar Hjá Tollgæslu íslands við embætti Bæjarfó- getans í Vestmannaeyjum er laus til umsókn- ar staða tollvarðar. Um er að ræða hálft starf hjá tollgæslu og hálft starf við lögskráningu sjómanna. Umsóknir sendist undirrituðum eða bæjarfógeta fyrir 12. febrúar 1986, á þar til gerðum eyðublöðum, sem eru til afhendingar hjá embættinu. Reykjvík 12.janúar 1986. Tollgæslustjóri. Starfsmaður á markaðssviði Öflug fjármálastofnun, vel staðsett viil ráða starfsmann til starfa á markaðssviði. Um er að ræða störf tengd almennum kynningar- og markaðsmálum. Við leitum að aðila með góða undirstöðu- menntun sem vinnur sjálfstætt og skipulega, hefur trausta og örugga framkomu, opinn fyrir nýjungum. Reynsla í markaðsmálum, blaðamennsku aða skyldum störfum æskileg. Starf þetta er laust strax en þar eð hér er um að ræða fjölbreytt, lifandi og krefjandi starf, er hægt að bíða smá tíma eftir réttum aðila. Laun samningsatriði. Algjör trúnaður. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og starfsreynslu sendist skrifstofu okkar fyrir 10. febrúar nk. Guðni ÍÓNSSON RÁÐCJÖF &RÁÐNINCARÞJÓNUSTA TÚNGÖTU5, 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322 Endurhæfingarstöð Sjálfsbjargar Akureyri óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara nú þegar eða eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari í síma 96-26888. Verkfræðingur eða eðlis/efnafræðingur íslenska járnblendifélagið hf. auglýsir starf verkfræðings eða eðlis/efnafræðings laust til umsóknar. Rafmagnsverkfræðingur mun að öðru jöfnu hafa forgang. Starfið er einkum fólgið í daglegri umsjón járnblendiofna. Ennfremur þarf viðkomandi að sinna ýmiss konar sérverkefnum. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu í stjórnun. Ennfremur .er kunnátta í meðferð PC tölva æskileg. Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Sigtryggur Bragason, framleiðslustjóri, í síma 93-3344 á vinnutíma og heima í síma 93-2153. Umsóknir skulu sendar Járnblendifélaginu hf. eigi síðar en 10. febrúar nk. Umsjón fylgi ítarlegar upplýsingar um náms- og starfsferil ásamt prófskírteinum. Grundartanga, 21.janúar 1986. Verkefni til áramóta Við leitum að aðila til að taka þátt í undir- búningi og rekstri viðamikils verkefnis, seinni hluta ársins á vegum öflugra félaga- samtaka. Þarf m.a. að taka þátt í fundum erlendis, hafa samband við opinbera aðila og skyld verkefni. Nauðsynlegt að viðkomandi vinni sjálfstætt og skipulega, eigi gott með að tjá sig og sé kunnugur ríkisgeiranum. Eitt norðurlandamál algjört skilyrði. Launakjör samningsatriði. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og starfsreynslu sendist skrifstofu okkar fyrir 1. febrúar nk. CrtJÐNT IÓNSSON RÁÐCJÖF & RÁÐNl NCARÞJÓN USTA TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322 Tölvur sala — framtíð Vegna stöðugt aukinna umsvifa hjá fyrirtæki okkar óskum við eftir að ráða 2 sölumenn. ► Leitað er eftir hæfileikafólki með góða undirstöðumenntun, skipulagshæfileika, sjálfstæði í störfum og leikni í mannlegum samskiptum. ► Við bjóðum lifandi störf í traustu og fram- sæknu fyrirtæki með samhentu starfs- fólki. ► Launakjör eru góð. Þeir sem áhuga hafa vinsamlegast snúi sér til Sigurðar S. Pálssonar, framkvæmdastjóra tölvutæknisviðs (ekki í síma), fyrir 1. febrúar nk. yMóCHf, Sk '7$r SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. Hagvangur hf - SÉRI IÆFÐ RÁÐNINGARRJÓNUSTA BYCGÐ Á GAGNKVÆMUM TRÚNAÐ Véltæknifræðing (1) til starfa hjá útgerðarfyrirtæki í Reykjavík. Starfssvið: Eftirlit og umsjón með endurnýjun og viðhaldi skipa, hönnun, áætlanagerð o.fl. Við leitum að véltæknifræðingi sem jafn- framt hefur vélstjóra/vélvirkjamenntun og reynslu af framangreindu starfssviði. Æski- legt að viðkomandi hafi starfað sem vélstjóri á skipum. Starfið er laust strax eða eftir nánara sam- komulagi. Nýtt starf hjá traustu útgerðarfyrir- tæki. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarð- arson. Vinsamlega sendið umsóknir á eyðu- blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar merktar númeri viðkomandi starfs. Hagvangur hf --- A --- n. ■ ■ rv I ✓—' /\ i-V I- I Æ\ IV I I I f T /\ RÁÐNINGARPJÓNUSTA CRENSÁSVECI 13, 108 REYKJAVIK SÍMAR: 83666 - 83472 - 83483 Rekstrar- og tsekniþjónusta Namskeiöahald Markaös- og söluráögjöf Tölvuþjónusta Þjóðhagfræöiþjónusta Ráöningarþjónusta Skoöana- og markaðskannanir Þórir Þorvaröarson Katrín Óladóttir og Holger Torp. Hverfisgötu 33 Simi 20560 IAUSAR STÖÐURHJÁ REYKJAVIKURBORG Reykjavíkurborg vill ráða starsfólk til eftirtal- inna starfa. Starfskjör samkvæmt kjara- samningum. • I Bókasafnsfræðingur — Bókaverðir við Borgarbókasafn Reykjavíkur (m.a. stöður í hinu nýja útibúi í Gerðubergi.) Upplýsingar veittar á skrifstofu Borgar- bókasafns í síma 27155. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00 mánudaginn 3. febrúar 1986. Rektor Skálholtsskóla Skólanefnd Skálholtsskóla auglýsir starf rektors laust til umsóknar. Umsóknarfrestur rennur út 28. febrúar 1986. Rektor verður ráðinn frá 1. maí og tekur formlega við embætti 1. júlí. Umsækjendur skulu hafa lokið kandídats- prófi frá Guðfræðideild Háskóla íslands ell- egar hliðstæðu námi. Umsókn skal fylgja vottorð um próf þetta svo og greinargjörð fyrir frekari námi og fræðaiðkunum. Einnig er óskað eftir lýsingu á starfsferli og vitnis- burðum, er að honum lúta. Rektor er ætlað að móta starfsemi skólans í samráði við skólanefnd, standa fyrir almennu lýðháskóla- starfi og efna til lengri og skemmri nám- skeiða fyrir bæði innlenda og erlenda þátt- takendur innan ramma laga um SRálholts- skóla nr. 31/1977. Um launakjör rektors og starfsskilyrði fer eftir lögum um Skálholtsskóla svo og lögum um réttindi og skyldur opinberra starfs- manna. Umsóknir skulu afhentar Skólanefnd Skál- holtsskóla, Biskupsstofu, Suðurgötu 22, Reykjavík. F.h. skólanefndar, Biskup íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.